Þjóðviljinn - 17.11.1984, Page 3
FRETTIR
Flugstöð
Hagvirki
bauð lægst
Opnuð hafa verið tilboð í
vatnslögn og frárennslislögn
fyrír nýja flugstöðvarbyggingu
á Keflavíkurflugvelli. Lang-
stærsta tilboðið í vatnslögn á
Hagvirki, sem bauð 9.630.000
kr. en kostnaðaráætlun sem
Almenna verkfræðistofan
gerði nam 14.282.550 kr. í það
verk. Lægsta tilboðið í frá-
rennslislögn átti hins vegar
Arnardalur sf. 19.934.820 kr.
en kostnaðaráætlun hljóðar
up á 24.935.341 kr. Hagvirki
bauð 20.229.100 kr. í frárennsl-
islögn en bauð upp á 400.000
króna lækkun ef báðum tilboð-
unum yrði tekið.
Fjárlagafrumvarpið
Flokksþing Alþýðuflokksins var sett í gærkvöldi I Gamla bfó. Asmundur Stefánsson forseti ASi ávarpaðl þlngið. A dagskrá þlngsins er meðal ann
ars kosnlng formanns, þar sem Jón Baldvin Hannibalsson hefur boðtð slg fram gegn Kjartani Jóhannssyni núverandi formannl flokksins. Myndin
vartekin í Gamla bfói í gærkvöld. Ljósm.Svala
Lánasjóður námsmanna sveltur
Sjóðurinn ábyrgist ekki víxillán 1. árs nema.Fulltrúi stúdenta:
Svik menntamálaráðherra
Eg trúi því ekki að þetta muni
gerast, því ella væri um
hreina niðurrifsstarfsemi að
ræða þar sem verið er að af-
nema jafnrétti til náms. Við telj-
um að þær tillögur sem settar
hafa verið inn i fjárlög standist
ekki að lögum og við munum
skipuleggja okkar aðgerðir í
samræmi við það, sagði Hrólf-
ur Ölversson fulltrúi Stúdent-
aráðs í Lánasjóði íslenskra
námsmanna í samtali við Þjóð-
viljann í gær er við spurðum
hann um álit stúdenta og Lána-
sjóðsins á niðurstöðutölum
fjárlagafrumvarpsins, þar sem
gert er ráð fyrir því að Lána-
sjóður íslenskra námsmanna
taki ekki á sig þau víxillán, sem
fyrsta árs nemum var gert að
taka í haust að fyrirskipan
menntamálaráðherra.
„Við erum þeirrar skoðunar að
þær ráðstafanir sem mennta-
málaráðherra greip til í vor stand-
ist ekki gagnvart lögum. Þá var
fyrsta árs nemum vísað á almenn
víxillán í bönkum, en ráðherra
lýsti því jafnframt yfir bæði við
okkur í Lánasjóðnum og á opin-
berum vettvangi að Lánasjóður-
inn myndi yfirtaka þessi lán í jan-
úar og að Lánasjóðurinn myndi
jafnframt standa undir 95% fjár-
þörf umsækjenda. Við fórum að
týrirmælum ráðherra og höfum
gefið út yfirlýsingar um skuld-
bindingar sjóðsins fyrir þessum
lánum. Við lifum enn í þeirri trú
að ráðherra muni standa við orð
sín. Það er hræðilegt að horfa
uppá það að fyrsta árs nemend-
um sé synjað um lán eins og dæmi
eru um og standi Lánasjóðurinn
ekki við skuldbindingar sínar
mun það hafa ófyriisjáanlegar af-
leiðingar fyrir marga.“
I núverandi fjárlagafrumvarpi vegar vera 1059 miljónir króna,
er gert ráð fyrir 651.8 miljóna út- ef framfylgja á gildandi lögum
Iánum á næsta ári. Að mati lán- um námslán.
asjóðsins mun fjárþörfin hins - ólg
Gengisfellingin
Fiskvinnslan hagnast nær ekkert
Afurðalánin eru nú gengistryggð - hagnaður vegna birgða er
því lítill. Samband fiskvinnslustöðva mótmœlir.
I' september sl. ákvað Seðla-
r "
bankinn að afurðalán til fisk-
vinnslunnar skuli hér eftir
gengistryggð. Þetta verður til
þess að við gengisfellinguna
nú hækka þessi lán í sama
hlutfallli og erlendur gjald-
eyrir. Þar með fær fiskvinnslan
í landinu nær ekkert af því sem
gengisfellingin ætti að skila af
sér til hennar vegna birgða
sem eru í landinu. Áður fyrr
fékk fiskvinnslan gengishagn-
að, þar sem afurðalán hækk-
uðu ekki en aftur á móti hækk-
uðu þær birgðir sem til voru í
landinu sem nam gengisfell-
ingunni.
Á aðalfundi Samtaka fisk-
vinnslustöðva var þetta eitt aðal
málð á fundinum. Fiskvinnslan
fær afurðalán útfrá 75% birgða
sinna og um þessar mundir er
óvenju mikið magn af frystum
fiskafurðum til í landinu. Þar sem
lánin eru nú gengistryggð fær
fiskvinnslan engan hagnað af
þessum birgðum, nú þegar
gengið verður fellt. Hún hagnast
aðeins á þeim 25% afurðanna
sem ekki er lánað útá.
í gær var ályktað á fundinum
að skora á stjórnvöld að breyta
þessu og í þeim umræðum kom
einmitt fram hugmyndin um að
setja á útskipunarbann á fiskafur-
ðir til að knýja stjórnvöld til að
verða við beiðni fiskverkenda í
þessu máli.
- S.dór
Fiskvinnslan
Stöðvum útskipun
Logandi óánœgja á aðalfundi Sambands Fiskvinnslustöðva. SH hirðir umboðslaunin
Það er Ijóst að við stöndum ein-
ir, VSÍ styður okkur ekki, Sölu-
miðstöð Hraðfrystihúsanna styð-
ur okkur ekki, heldur hirðir bara
sín umboðslaun af okkur. Við
erum hinsvegar slíkir aumingjar
Bœkur og sjónvarp
Hætti við að auglýsa
- seldi jafn vel
Eg hætti fyrir tveimur árum að
auglýsa bækur mínar í sjón-
varpi en get ekki séð að samdrátt-
ur hafi orðið hjá mér þess vegna
þó að auðvitað sé erfitt að meta
það, sagði Oliver Steinn bókaút-
gefandi í Skuggsjá á blaðamanna-
fundi hjá Félagi Isl. bókaútgef-
enda í vikunni.
Tilefni þessa var það að bóka-
útgefendur voru spurðir að því
hvort einhver samtök væru um
það að minnka auglýsingar á
bókum í sjónvarpi nú fyrir jólin
en mörgum hefur þótt auglýs-
ingakapphlaupið í sjónvarpi
ganga æði næst. Oliver sagði að
hann hefði gert lauslega könnun
á bókum sem hann hefur gefið út
og ekki hafa verið auglýstar í
sjónvarpi og mjög sambærilegum
bókum hjá öðrum forlögum og
ekki geta greint áberandi sölu-
mun.
Þess skal að lokum getið að tal-
ið er að 10-15% af verði bóka sé
auglýsingakostnaður hérlendis
en erlendis er talið að 6-8% sé
hæfilegt.
- GFr
að hafa aldrei getað staðið saman
og því er svo illa komið fyrir okk-
ur sem raun ber vitni. Það eina
raunhæfa, sem við getum nú gert
til að tryggja okkar hag, er að-
setja á útskipunarbann, þar til
stjórnvöld hafa komið rekstrar-
grundvelli fiskvinnslunnar á rétt-
an kjöl. Svo mælti Jón Helgason, i
gær á aðalfundi Samtaka fisk-
vinnslustöðva.
Hann var ekki sá eini sem var
harðorður um stöðu fiskvinnslu
og sjávarútvegsins yfir höfuð.
Soffanías Cecilsson, formaður
samtakanna, tók undir með Jóni
og sagði: Ef við gætum einhvern
tímann staðið saman, þá væri ég
tilbúinn að taka þátt í útskipunar-
stöðvun, en við erum druslur,
sem ævinlega látum traðka á okk-
ur, og því veit ég að við munum
ekki standa saman. Við erum
engir Thorlacíusar með sterkan
og samstæðan hóp að baki okkar.
Fleiri tóku þátt í þessari sjálfs-
gagnrýni fiskverkenda á fundin-
um, en greinilegt var að mikil
þykkja er í mönnum út í aðgerð-
arleysi ríkisstjórnarinnar.
— S.dór
Akranes
samþykktir
f gær samþykkti Verkalýðsfé-
lag Akraness samninga VMSÍ og
VSÍ með 55 atkvæðum gegn 11.
Sextán seðlar voru auðir. Nokkr-
ar sviptingar munu hafa verið í
félaginu fyrir fundinn, meðal
annars börðust tvær góðkunnar
baráttukonur, Bjarnfríður Leós-
dottir og Herdís Ólafsdóttur,
gegn samningunum og rituðu
harðskeyttar blaðagreinar gegn
þeim.
-ÖS
Laugardagur 17. nóvember 1984 pjÓÐVILJINN - SÍÐA 3