Þjóðviljinn - 17.11.1984, Side 6
IÞROTTIR
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 17. nóvember 1984
íþróttafélagið Þór, Vest-
mannaeyjum, var stofnað árið
1915. Handknattleikur er mjög
ung íþrótt í félaginu því það tók
ekki þátt í íslandsmótinu fyrr en
veturinn 1972-73, þá í fyrstu 3.
deildarkeppninni, og er því
yngsta félag 1. deildar í þeim
skilningi. ÍBV hafði reyndar sent
lið í 2. deildarkeppnina 1967-68.
Þór komst uppí 2. deild 1978, féll
aftur eftir tveggja ára dvöl en fór
jafnharðan uppí 2. deildina 1981.
Þá tóku við þrjú ár í 2. deild og
stærsta stundin í sögu félagsins
var sl. vetur er það sigraði með
glæsibrag í 2. deild og tryggði sér
1. deildarsæti í fyrsta skipti.
Þór hefur unnið til tveggja
meistaratitla á þeim 12 árum sem
félagið hefur tekið þátt í íslands-
móti - vann 3. deild 1978 og 2.
deild 1984.
Þór hlaut sl. vetur fleiri stig en
nokkurt annað félag hefur fengið
á einu keppnistímabili á íslands-
móti - 44 stig úr 26 leikjum. (FH
fékk reyndar samtals 50 stig í 1.
deild í fyrra en það var í tvennu
lagi).
Þorbergur Aðalsteinsson, sem
þjálfaði og lék með Þór sl. vetur,
hefur leikið 103 landsleiki. Hann-
es Leifsson lék 3 landsleiki með-
an hann var leikmaður Þórs, en
aðeins einn „innfæddur" Þórari
hefurleikið landsleik, markvörð-
urinn Sigmar Þröstur Óskarsson
sem á einn landsleik að baki.
Sigmar Þröstur Óskarsson.
Vestmannaeyjum
Það var stór stund í Eyjum I lok
síðasta keppnistímabils er það
varð öruggt að Þórarar væru
komnir uppí 1. deild, en það er
alveg á hreinu að það er hlutur
sem þeir áttu fyllilega skilið undir
frábærri stjórn Þorbergs Aðal-
steinssonar.
Eftir að öruggt var að Þor-
bergur myndi ekki þjálfa liðið
lengur fóru Þórarar að leita sér að
þjálfara erlendis og fengu þeir
Júgóslavann Petar Eror og bend-
ir allt til þess að þessi virti þjálfari
sé að gera góða hluti hjá félaginu.
Einn stærsti kosturinn við Þórs-
liðið í dag er tvímælalaust mark-
varslan en þar stendur ívrirliði
liðsins, Sigmar Þröstur Oskars-
son. Það sem gæti helst farið iila
með Þórararna í vetur er að þeir
munu illa þola álagið sem fylgir 1.
deildarbaráttuni. I vetur eiga þeir
örugglega eftir að hala inn þó
nokkur stig á heimavelli því þeir
eru mjög sterkir þar og hafa frá-
bæra áhorfendur að baki sér.
Þetta efnilega lið getur líka
státað af góðum leikmönnum
sem eru að springa út um þessar
mqndir, eins og Gylfa Birgissyni
og Sigbirni Óskarssyni en þeir
eiga líklega eftir að koma vel út í
vetur. Gylfi býr yfir geysilegum
krafti sem hann á að geta beitt
betur en hann stundum gerir og
Sigbjörn er lykilmaður í spilinu.
Hornamennirnir Óskar Brynj-
arsson og Páll Scheving eru
hættulegir hvaða vörn sem er og
Sigurður Friðriksson getur gert
góða hluti á línunni. Þá hafa Þór-
arar fengið til liðs við sig Steinar
Tómasson úr Aftureldingu sem
hefur mikla reynslu að baki úr 2.
og 3. deild.
Þegar Þórarar rifu sig uppúr 2.
deildinni í fyrravetur vildu margir
meina að það hefði allt byggst á
einum manni, Þorbergi Aðal-
steinssyni. Án hans eigi þeir ekk-
ert erindi í 1. deild. Tveir fyrstu
leikir liðsins í deildinni Iofa hins
vegar góðu og það er á þeirra færi
og engra annarra að sanna tilver-
urétt sinn meðal þeirra bestu.
Vestmannaeyingar hafa aldrei
áður átt lið í 1. deild og fögnuður
þeirra sl. vetur var tvöfaldur því
kvennaliðið komst einnig uppí
efstu deild. Yngri flokkar Eyja-
liðanna hafa verið vaxandi og
flest mælir með því að í framtíð-
inni verði leikinn handknatt-
leikur í háum gæðaflokki í
Eyjum. Mikið veltur þó á fram-
mistöðunni í vetur en Þórsliðið er
ungt að árum og lærir í hverjum
leik. Ef rétt verður haldið á spil-
unum ættu 1. deildarlið Þórs að
verða fleiri en eitt og fleiri en tvö.
En úr því getur framtíðin ein
skorið.
-JILVS
Friðrik Már
meistarar“
Friðrik Már Sigurðsson liðs-
stjóri Þórs tók að sér það hlut-
verk að spá í hin sjö lið deildar-
innar þar sem Petar Eror þjálfari
hefur ekki kynnst þeim ennþá.
„Ég er pottþéttur á því að Vík-
ingar verða íslandsmeistarar. Lið
FH verður ekki svipur hjá sjón,
það er þó erfitt að spá í þetta
svona snemma“, sagði Friðrik
Már í samtali við Þjóðviljann.
Hann spáir þannig:
1. Víkingur
2. Valur
3. FH
4. Stjarnan
5. KR
6. Þróttur
7. Breiðablik.
Petar Eror.
Leikmenn Þórs í 1. deild keppnistímabilið 1984-85:
Markverðir:
Slgmar Þröstur Óskarsson - 23 ára - 137 leiklr m/Þór -
1 A-landsleikur, 13 U-21-landsleiklr, 5 U-landsleikir.
Gunnar Leifsson - 17 ára - nýllði.
Aðrir leikmenn:
Elías Bjarnhéðinsson - 20 ára - 17 leikir m/Þór.
Eyþór Harðarson - 21 árs - 28 lelkir m/Þór.
Gylfi Birgisson - 19 ára - 54 leikir m/Þór - 7 U-21 landsleikir,
4 U-landsleikir.
Herbert Þorlelfsson - 28 ára - 188 leikir m/Þór.
Kari Jónsson - 28 ára - 86 leikir m/Þór.
Óskar Freyr Brynjarsson - 21 árs - 118 leikir m/Þór.
Páll Scheving - 21 árs - 95 leikir m/Þór.
Sigbjörn Óskarsson - 23 ára - 67 leikir m/Þór.
Sigurður Frlðriksson - 20 ára - 37 leikir m/Þór.
Steinar Tómasson - 28 ára - nýliði (áður í Aftureldingu).
„Víkingar
verða
Sigmar Pröstur
„Matkmiðið að
leika áfram
í deildinni“
„Markmið okkar Þórara í vet-
ur, númer eitt, tvö og þrjú, er að
spÚa áfram í deildinni að ári,“
sagði Sigmar Þröstur Oskarsson,
hinn snjalli markvörður Þórs sem
einnig er fyrirliði liðsins, í samtali
við Þjóðvi(jann.
„Mér líst mjög vel á þetta
keppnistímabil, sem er okkar
fyrsta í 1. deildinni. Ég geri mér
hins vegar grein fyrir því að þetta
verður mjög erfitt, bæði vegna
þess að við höfum enga reynslu úr
1. deildinni og að við erum með
yngsta liðið sem þar leikur. Með-
alaldurinn í liði okkar er ekki
nema 22 ár“, sagði Sigmar
Þröstur Óskarsson. _JR