Þjóðviljinn - 17.11.1984, Page 13

Þjóðviljinn - 17.11.1984, Page 13
Tom Waits QÆGURMÁL Hrólfur lifandi kominn? Tom Waits er töluvert sérstak- ur músikant og þótt undirrituð hafi vitað um tilveru hans í um það bil tíu ár hlustaði hún, þó skömm sé frá að segja, í fyrsta skipti á hann nú um daginn ef undan er skilið eitt óljóst kvöld í fortíðinni. Liklega er fleirum eins farið og mér, fram að fyrmefndri upplifun, að það eina sem ég vissi um Tom Waits var að hann hafði búið með hljómlistarkon- unni Rickie Lee Jones og hún jafnframt verið kölluð kvenútgáf- an af honum. Fyrir utan samband sitt eiga þau þó vart annað sam- eiginlegt en að músik þeirra á áberandi rætur í djassi og yrkis- efni beggja er um félagana á götunni. Munurinn er hins vegar sá að Tom er karl og Rickie er kona... þannig að persónurToms eru öllu „Ijótari" og ýmist á leið eða komnar í „strætið". Og þá er söngrödd- og stíll hans kapítuli út af fyrir sig ...það hvarflar að manni að hann sé fyrirmyndin að Hrólfi í Prúðuleikurunum. Tom Waits verður 35 ára í des- ember, fæddur þann 7. árið 1949 í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Hann hóf feril sinn sem skemmtikraftur í litlum búllum í Los Angeles í tríóinu The Syst- ems, þar sem hann lék á píanó og söng og rabbaði í stíl bítnikk- skálda eins og Jacks Kerouac, en félagar hans léku á trommur, sax- ófón og kontrabassa. Tom Waits tókst þó að fálma sig í gegnum reykinn og út úr búllunum og fór að spila sem upphitunaratriði á hljómleikum hjá skærari stjöm- um eins og t.d. Frank Zappa, sem hann tileinkar Iagið Frank’s wild years á plötu þeirri sem varð til- efni þessara skrifa, Swordfish- trombones. Breiðskífan Sverðfisksbásúnur kom út árið 1982 og inniheldur heil 14 lög, þar af 3 mannsraddar- laus. Eins og áður er imprað á fjalla textarnir ekki um neinn dans á rósum - einmanaleikinn er yfir og allt um kring - hrjúfur og að því er virðist óumflýjanlegur - flest mjög karllegir textar. Bestur finnst mér þó textinn í laginu Town with no cheer (Gleðisnauð- ur bær), þar sem Tom lýsir lífinu - ef líf skyldi kalla - í deyjandi bæ, þar sem allar lestir em hættar að stoppa - afleiðing af tækni nú- tímans sem fæðir af sér æ hrað- skreiðari lestir þannig að bæir sem byggðust sem þjónustu- stöðvar við ferðamenn hafa eng- an tilgang lengur. Og ekki er óhófinu fyrir að fara Sverdflsksbésúnur Tom Watts eru gefnar út á Island-merkinu og fást t.d. í Fálkanum vlð Suðurlandsbraut I hennl Reykjavík. í hljóðfæraskipan: undirleikur við ráma, hljómmikla rödd Toms kemur úr allt frá einum, óraf- mögnuðum kontrabassa og mest upp í 5 hljóðfæri: hammondorg- el, trommur, kontrabassi, básúna og barítónhorn; í einu lagi heyrist í sekkjapípum. Músik Toms Waits má reyna að lýsa með að segja hana sam- bland af nútíma djassi 6. áratug- arins, blús, tónlist Kurts Weil, rokki - og ef einhver hélt eða heldur enn að pönkmúsik sé eitthvað nýtt kemst hann að öðru með því til dæmis að hlusta á Tom Waits. Sem sagt: allir sem telja sig áhugafólk um sögu rokks og róls (í víðasta skilningi) geta ekki látið Tom Waits fram hjá sér fara - og betra er seint en aldrei og meira en það, eins og undirrituð hefur sannreynt. -A Úps! Tvenn mistök komu á daginn í greininni um Cörlu Bley um síð- ustu helgi á síðunni Dægurmál: Messías var vitlaust feðraður og kenndur Bach, en hið rétta er auðvitað Hándel - og sannast enn að ættfræði skyldu menn varlega taka, og þá einkum skráðum heimildum þar um; þá vantaði orðið ekki í síðustu línu ofan við neðstu greinaskil í fyrsta dálki og átti sú málsgrein því að enda svo:..., en í þeim hæfileikapróf- um sem lögð voru fyrir mig í gaggó, og áttu að vísa á getu manns, var tónlist þar að sjálf- sögðu ekki að finna. Er hér með beðist afsökunar á þessum yfirsjónum. -A KVIKMYNDIR Garp og heimur hans The World According to Garp (Bandaríkin, 1982) Stjórn: George Roy Hill Handrit: Steve Tesich, eftir skáldsögu Johns Irvings Kvikmyndun: Marislav Ondricek Leikendur: Robin Williams, Mary Beth Hurt, Glenn Close. Sýnd í Austurbæjarbíói. Það sannast hér sem endranær, að það er ekki heiglum hent að kvikmynda bókmenntaverk svo vel fari. Að vísu hef ég ekki lesið söguna um Garp, sem mun hafa komið út 1978, en kvikmyndin um hann er brennd sama marki og svo margar aðrar kvikmyndir byggðar á skáldsögum: það er verið að reyna að segja manni alla söguna, eins og hún er í bók- inni. Taka allt með. Og það gengur ekki upp, því miður. Myndin byrjar mjög vel og heldur áfram að vera góð fram undir hlé eða þar um bil. Það er sérkennilegur og skemmtilegur tónn í lýsingunni á bernsku Garps. Móðir hans er dásamlega sérvitur og sambandi þeirra er vel lýst. Húmorinn er mátulega svartur og væmnin víðsfjarri. Myndin er byggð upp á hröðum, stuttum atriðum sem eru fremur laustengd innbyrðis en gefa all- góða hugmynd um uppeldi Garps og aðstæður hans í bemsku. Svo fer að halla undan fæti. Garp verður rithöfundur, og móðir hans líka. Gagnrýnendur taka honum vel, en hakka hana í sig. Engu að síður er það bók móðurinnar sem selst. Hún verð- ur rík og fræg og tekur að safna um sig hirð kvenna sem allar virð- ast eiga bágt og sumar eru m.a.s. Mary Beth Hurt og Robin Williams í myndinni um Garp. tunguskomar. Garp kvænist hinsvegar skólasystur sinni og lifir hamingjusömu fj ölskyldulífi allt þar til ógnvæniegir atburðir gerast sem ekki verða raktir hér. En því fleiri stórviðburðir sem verða því vandræðalegri verður myndin og á endanum er hún komin út í ógöngur sem valda því að það sem á að vera harmrænt verkar öfugt á áhorfendur og þeir reka upp pínlegar hlátursrokur á vitlausum stöðum. Um hvað er þessi mynd? Það er ekki auðvelt að svara þeirri spumingu. Satt að segja fjallar hún um svo margt að hún segir í rauninni ekki neitt. Mér dettur þó helst í hug að hún hafi átt að fjalla um kvennahreyfinguna bandarísku á áttunda áratugnum, a.m.k. er sú hreyfing býsna áber- andi í bakgrunni. Garp er alinn upp af móður sem hefur afneitað karlmönnum (nema rétt á meðan hún varð sér úti um barnið, af illri nauðsyn) og hefur mjög sterkar meiningar um kynlíf og það sem hún kallar losta. Þegar fyrsta bók hennar kemur á markað verður hún strax að átrúnaðargoði bandarískra kvenna - andúð hennar á karlmönnum fellur í góðan jarðveg. Sambýlið sem hún kemur á fót getur þó varla átt að vera þverskurður af kvenna- hreyfingunni, því flestar konum- ar þar virðast tilheyra hópi tungu skorinna. Þær hafa skorið úr sér tungurnar til að mótmæla hrylli- legri meðferð einhvers glæpa- manns á lítilli telpu. Þessi aðgerð þeirra hefur auðvitað engin áhrif, nema hvað sjálfar eru þær ör- kumla eftir. Besta vinkona móðurinnar er þó Roberta, risavaxin fyrrver- andi fótboltahetja sem hefur skipt um kyn. Ætlunin er greini- lega að gera Robertu að drama- tískri persónu, gott ef ekki trag- ískri, en það misheppnast, líklega mest vegna fordóma vanþróaðra áhorfenda. Eftir því sem líður á myndina verður húmorinn svartari og um leið nær smekkleysið oft yfir- höndinni. Þótt atburðarásin væri hröð í fyrri hlutanum var hún þó alltaf rökrétt og skiljanleg, en í seinni hlutanum er því varla fyrir að fara. Áður en upp er staðið hafa alltof margir farist á voveif- legan hátt til að eðlilegt geti talist í mynd sem ekki gefur sig út fyrir að vera hasarmynd. Robin Williams leikur Garp á ósköp svipaðan hátt og hann lék Rússann í myndinni Moskva við Hudsonfljót, sem fjallað var um í síðustu viku. Þetta er fremur bangsalegur ungur leikari og kemur hreint ekki illa fyrir, þótt varla sé leikur hans stórbrotinn. Konuna hans leikur Mary Beth Hurt og gerir það ágætlega, og einnig er Glenn Close hressiíeg í hlutverki móðurinnar. Þegar á allt er litið er myndin um Garp óvenjuleg og á köflum bráðskemmtileg, en meingölluð. Það er einfaldlega ekki hægt að kvikmynda skáldsögu á þennan hátt. Gæfulegra hefði verið að grisja söguna, velja úr henni ein- hvem þráð sem hægt hefði verið að fylgja í stað þess að flækja saman öllum þráðunum í eina bendu. Laugardagur 17. nóvember 1984 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.