Þjóðviljinn - 20.11.1984, Síða 2
FRETTIR
Útvarpsráð
Eríndum um friðarmál hafnað
Fulltrúar íhalds og krata leggjast gegn erindaflutningi umfriðarmál í útvarpi.
Á sama tímafœr Hannes Gissurarson að blása út í útvarpi með árásir á friðarhreyfingar.
„Reynt að bola Nató-andstœðingum út“, segir Árni Hjartarson.
Meirihluti útvarpsráðs hafn-
aði á föstudag með hjásctu
sinni flutningi þriggja erinda eftir
Árna Hjartarson um friðarhreyf-
ingar- og friðarbaráttu. Þrír full-
trúar Sjálfstæðisflokksins og einn
fulltrúi Alþýðuflokksins sátu hjá
við afgreiðslu málsins en þrír full-
trúar Alþýðubandalags, Fram-
sóknarflokks og Kvennalista
greiddu atkvæði með flutningi er-
indanna. Þetta er í annað sinn á
nokkrum árum sem þessum er-
indaflutningi er hafnað af meiri-
hluta útvarpsráðs.
„Mér finnst það lýsa bæði ó-
sanngirni og heimóttarskap að
hafna erindum um friðarmál og
friðarbaráttu“, segirm.a. í bókun
sem Árni Björnsson fulltrúi Ab. í
útvarpsráði lagði fram við af-
greiðslu málsins. Þar segir einnig:
„Þessi meinbægni er enn kauða-
legri í ljósi þess, að fyrir skömmu
lauk Hannes Gissurarson við 5
erindi í útvarpinu, þar sem m.a.
komu þrásinnis fram hatrömm
brigsl í garð þeirrar friðarhrey-
fingar sem Árni er virkur í. Ný-
lega voru einnig samþykkt tvö
sunnudagserindi um skyld efni
eftir V. Bukofský í þýðingu og
flutningi Jóns Baldvins Hanni-
balssonar".
Segir Árni síðar í bókun sinni
að af virðingu fyrir skoðanafrelsi
annarra hafi hann hingað til greitt
atkvæði með slíku efni, jafnvel
þótt hann telji þar oft réttu máli
hallað, enda sé það í samræmi við
3. grein útvarpslaga að virða tján-
ingarfrelsi og gæta fyllstu óhlut-
drægni gagnvart öllum flokkum
og stefnum í opinberum málum,
stofnunum, félögum og einstak-
lingum. „En það virðist til of mik-
ils ætlast að búast við samskonar
frjálslyndi af þeim sem helst vilja
kenna sig við frjálshyggju", segir
í lok bókunar Árna Bjömssonar.
Ami Hjartarson sagði í samtali
við Þjóðviljann í gær að þessi
ákvörðun meirihluta ráðsins
sýndi að hann væri markvisst að
reyna að bola út sjónarmiðum
Nató-andstæðinga. Á sama tíma
vom keyptir eins og ekkert væri
heilu erindaflokkarnir frá últra
hægrimönnum.
Aðspurður hvort hann væri bú-
inn að gefast upp á að koma sjón-
armiðum sínum á framfæri í út-
varpi sagði Árni: „Þeir hafa lýst
því sjálfir yfir að þeim finnist
komið nóg af þessum friðarboð-
skap. Ætli maður bjóði þeim ekki
5-6 erindi undir yfirskriftinni
„Rök fyrir stríði““, sagði Árni
Hjartarson.
-•g
Bankastjórar lönaðarbankans voru kampakátir þegar þeir sýndu fjölmiðlafólk-
inu hinn svokallaða tölvubanka. Nú geta viöskiptavinir Iðnaðarbankans gengiö
þar erinda allan sólarhringinn. Ljósm. Atli.
Steinullarverksmiðjan
Hugleiðir
koksinnflutning
Er œtlað að greiða 65 millidali fyrir kílówatt
Eins og málin horfa núna getum
við búist við að þurfa að
greiða um eða yfir 100% hærra
verð fyrir raforkuna en keppi-
nautar okkar á Norðurlöndum í
steinullariðnaði, sagði Þorsteinn
Þorsteinsson framkvæmdastjóri
Steinullarverksmiðjunnar á
Sauðárkróki í samtali við Þjóð-
viljann. Miðað við núgildandi
verðlagningu má reikna með að
okkur verði gert að greiða 65
millidali fyrir kílówattstundina
sem er tvöfalt til þrefalt orkuverð
miðað við það verð sem tíðkast til
sambærilegs iðnaðar á Norður-
löndum.
Við höfðum upphaflega gert
ráð fyrir orkukostnaði sem næmi
Egg-leikhúsið
Tvær sýn-
ingar í viðbót
Geysileg aðsókn hefur verið á
síðari sýningar á hinu nýja leikriti
Áma Ibsen, Skjaldbakan kemst
þangað líka, sem Egg-leikhúsið
sýnir í Nýlistasafninu við Vatns-
stíg. Vegna mikillar eftirspurnar
hefur Egg-leikhúsinu tekist að fá
Nýlistasafnið í kvöld og á
fimmtudagskvöld til tveggja við-
bótarsýninga.
-GFr
30-35 millidölum á kwst. að með-
töldum dreifingarkostnaði. Nú
blasir það við að þessi upphæð
verður helmingi hærri, og þá snýr
dæmið þannig gagnvart okkur,
að það mundi borga sig fyrir okk-
ur að henda rafbræðsluofninum
sem við höfum keypt fyrir um 20
miljónir króna og hefja innflutn-
ing á koksi til bræðslunnar. Slík
breyting mundi borga sig á 2-3
árum.
Dreifingar- og orkusölukerfið
hér er meingallað og virðist ekki
taka tillit til fyrirtækja á borð við
okkur. Við emm 3. kaupandi
orkunnar frá Landsvirkjun, þar
sem Rafmagnsveitur ríkisins og
Rafveita Sauðárkróks em milli-
liðir. Við höfum því litla mögu-
leika á samningum um orkusöl-
una innan þessa kerfis. Fyrir okk-
ur er mikiivægast að orícuverðið
sé lágt í upphafi, á meðan við
erum að vinna okkur markað. Ef
núgildandi verð á að standa
gagnvart okkur munum við alvar-
lega íhuga þann möguleika að
hætta við að nota raforku og
hefja innflutning á koksi.
Það hefur vakið furðu margra
samkeppnisaðila okkar þegar
þeir hafa heyrt að við búum við
tvöfalt til þrefalt orkuverð miðað
við þá. Þeir hafa allir staðið í
þeirri trú að orka væri svo ódýr
hér á íslandi. Þeir hafa hins vegar
ekki gert sér grein fyrir því að það
gildir bara um orkuverð til stór-
iðju.
__________________—ólg..
Opið allan sólarhringinn
Iðnaðarbankinn tekur á mánu-
daginn upp nýja þjónustu í
bankaviðskiptum hérlendis sem
eru svokallaðir „tölvubankar“
þar sem viðskiptavinir bankans
geta afgreitt sig sjálfir með
greiðslur og úttektir á hvaða tíma
sólarhringsins sem er.
Aðeins örfá ár eru síðan farið
var að nota tölvubanka í ná-
grannalöndum okkar en þeir hafa
hvarvetna reynst mjög vinsælir.
Að sögn forráðamanna Iðnað-
arbankans var byrjað að athuga
með uppsetningu á tölvubanka
árið 1979 en þótti þá of dýr fram-
kvæmd. Nú væri kostnaðurinn
orðinn viðráðanlegri auk þess
sem komið hefði fram í könnun
meðal viðskiptavina bankans ein-
dregin ósk um sveigjanlegri opn-
unartíma.
Tveir tölvubankar verða teknir
í notkun á mánudag. Annar í að-
albanka Iðnaðarbankans í Lækj-
argötu og hinn í útibúi bankans í
Hafnarfirði. Fieiri slíkar vélar
verða settar upp á næstu mánuð-
um.
Notað er sérstakt Iykilkort
með leyninúmeri sem eigandinn
einn þekkir til að taka út úr tölvu-
bankanum. Til að byrja með
verður hámarksúttekt hjá hverj-
um á einum sólarhring 5000 kr.
Margvíslegir möguleikar fylgja
hinni nýju tækni, m.a. gefst við-
skiptavinum tækifæri að taka út
°g leggja inn peninga, millifæra
af einum reikningi á annan og
greiða ýmsa reikninga. Til að
byrja með er einungis hægt að
taka peninga út úr tölvubönkum.
Hver tölvubanki kostaði í inn-
kaupum um 900 þús. kr. en með
uppsetningu hugbúnaðar um 7
miljónir. -Ig.
Af flokksráðsfundi
Vegur kvenna
að efiast
Kolbrún Guðnadóttir, kennari,
Selfossi: „Þetta hefur verið
góður fundur. Sérstaklega flnnst
mér gott hversu andrúmsloftið í
garð kvenna er jákvætt. Að vísu
flnnst mér ekki að konur hafl átt
erfltt uppdráttar í mínu eigin fé-
lagi, en ég geri mér vel grein fyrir
því að sú gagnrýni sem konur
hafa hér sett fram um að yfir-
bragð Alþýðubandalagsins sé of
„karlalegt“ á rétt á sér. Ég held til
dæmis að það sé ein af ástæðun-
um fyrir velgengni Kvennalist-
ans.
Þau mál sem ber auðvitað hæst
eru atvinnu- og kjaramálin. Mér
finnst skorta mun meiri samstöðu
innan verkalýðshreyfingarinnar,
og það er í rauninni forsenda fyrir
því að við náum einhverjumbót-
um. Hér á Suðuriandi standa at-
vinnumál heldur illa, á Selfossi
hafa margir verið á atvinnuleysis-
skrá og meiri hluta þeirra eru
konur. Við í Alþýðubandalaginu
viljum fá hingað á Suðurlandið
fleiri smærri iðnfyrirtæki sem
veita vinnu konum sem vilja og
þurfa að fara út af heimilinu".
-OS
Kristinn H. Gunnarsson
Radarmálið
í brennidepli
Kristinn H. Gunnarsson, Bol-
ungarvík: Ég er ánægður með
hversu fundurinn hefur tekið vel
á radarstöðvamálinu og mótmæl-
um okkar Vestflrðinga gegn því.
En þetta mál er injög mikilvægt
fyrir okkur og bæði bæjarstjórn-
in lijá okkur í Bolungarvík og
varnarmáladeildin í Reykjavík
gera allt sem þær geta til að draga
leynd yfir málið.
„Eitt af því sem mér finnst
nauðsynlegt að flokkurinn ræði
betur er hvernig hann ætlar sér að
styðja félagsstarfsemina úti í
kjördæmum. Það getur verið afar
erfitt að halda lífi í litlum fé-
lögum, þó ég telji að þau séu al-
ger nauðsyn fynr fiokkinn. Það
þarf að móta stefnu um hvemig
hægt sé að rjúfa þá félagslegu ein-
angrun sem smærri félögin eru í.
Því miður er annars hætta á að
sum þeirra lognist hreinlega út
af.“
„Atvinnumál eru nokkuð góð
á Vestfjörðum. Kvótinn er ekki
minni en svo að það verður iík-
lega hægt að halda úti fullri at-
vinnu fram að áramótum. Hvað
snýr að samningunum þá eru
menn hræddir við að kaupmátt-
urinn rýrni fljótt. En ég held það
séu allar forsendur til að verja
hann. Launakostnaður er ein-
faldlega orðinn svo lítið hlutfall
Kolbrún Guðnadóttir, Selfossi: And-
rúmsloftið jákvætt gagnvart konum.
Kristinn H. Gunnarsson, bæjarfulltrúi
í Bolungarvík: Ánægður með mót-
mæli flokksráðsfundar gegn ratsjár-
stöðvum á Vestfjörðum.
af heildarkostnaði fyrirtækjanna
að kjarabætumar skipta ekki svo
miklu. Það þarf að ráðst gegn
milliliðunum af hörku“. _q§
2 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN