Þjóðviljinn - 20.11.1984, Blaðsíða 3
FRETTIR
A6 keppni lokinni. Er Kjartan að lyfta hendi Jóns einsog eftir hnefaleikakeppni, - eða er hér á ferðinni
lokasveiflan í Tango Jalousie? Ekki Ijóst, en víst er að annar horfir til hægri og hinn til vinstri. Mynd: eik.
Alþýðuflokksþing
Konur óhressar
Konur aðeins 6 af 30 í flokksstjórn.
Verkalýðskonur ekki inn. Hafnfirðingum gekk illa.
Alþýðuflokksþing
Kjartans-
menn
í fram-
kvæmda-
stjóm
Stuðningsmenn Kjartans
Jóhannssonar þóttu hafa
hefnt þess í kosningum til
framkvæmdastjórnar á sunnu-
dagsmorgun sem tapaðist í
formannskjöri kvöidið áður.
Aðeins 146 fulltrúar kusu af
um 260 á þinginu, og var haft á
orði að Jónsmenn hefðu enn
verið að jafna sig eftir fagnað-
arskemmtun á laugardags-
kvöld.
í framkvæmdastjóm flokksins
sitja ellefu menn, þaraf sex
kjömir beint af þinginu.
Davíð Björnsson frá SUJ fékk
97 atkvæði, framkvæmdastjóri
flokksins Kristín Guðmundsdótt-
ir 78, Guðríður Þorsteinsdóttir
71, Hörður Zóphaníasson og Sig-
þór Jóhannesson úr Reykjanesi,
kjördæmi Kjartans, fengu góða
kosningu (83 og 69 atkvæði), Jón
Sæmundur Sigurjónsson 63. Var
talið á þinginu að Kjartansmenn
væru vel ánægðir með þessi úrslit.
-m
Samningar
3 félög
samþykkja
Nýgerðir kjarasamningar
voru samþykktir í nokkrum
verkalýðsfélögum um helgina,
alls staðar með yfirgnæfandi
meirihluta atkvæða. Dagsbrún
samþykkti með 95 atkvæðum
gegn 14, Eining á Akureyri
með 138 gegn 34, Sókn með
333 gegn 19. Kjörsókn í þess-
um félögum var hins vegar
afar léleg eins og sjá má af at-
kvæðatölum.
Á fundi Dagsbrúnar á sunnu-
dag voru samþykktar tvær álykt-
anir. Önnur er aðvörun til ríkis-
stjórnarinnar um að hömlulitlar
gengislækkanir og verðhækkanir
hljóti að kalla fram harkaleg átök
á vinnumarkaðnum. Hin er þess
efnis að nýframkomnu frumvarpi
fjármálaráðherra er fagnað en
það gerir ráð fyrir því að menn
sem láta af störfum fyrir aldur-
ssakir geti dregið að fullu frá
skattskyldum tekjum sínum
hreinar launatekjur sínar síðustu
12 mánuðina í starfi. -v
Raforkuverð
Alltað
tífatt
hæira
Þrátt fyrir þá hækkun sem ný-
lega varð á raforku til álvcrsins í
Straumsvík greiðir fiskvinnslan í
landinu 6-10 falt hærra raforku-
verð en þetta stóriðjufyrirtæki.
Þá greiðir fiskvinnslan á Isiandi
allt að þrefalt hærra raforkuverð
en aðal keppinautar hennar á
fiskmörkuðum heimsins, Norð-
menn.
Þetta kemur fram í ályktun að-
alfundar Sambands fiskvinnslu-
stöðva sem haldinn var sl. föstu-
dag. Að sjálfsögðu mótmælir
fundurinn þessum ójöfnuði.
-S.dór
Konur á krataþingi voru ekk-
ert sællegar á svipinn þegar
úrslit flokksstjórnarkjörs
spurðust út. Aðeins sex konur
voru í hópi þrjátíu kjörinna fuil-
trúa, og skyggði þetta nokkuð
á kosningu Jóhönnu Sigurðar-
dóttur til varaformanns. At-
hygli vekur að tveir verkalýðs-
leiðtogar úr kvennahópi náðu
ekki kjöri: Þórunn Valdimars-
dóttir formaður Framsóknar
og Guðríður Elíasdóttur for-
Að tillögu Bjarna Guðnasonar
felldi þing Alþýðuflokksins
skammarklausu um Alþýðu-
bandalagið út úr stjórnmálaá-
lyktun sinni. „Við eigum að hætta
þessu nöldri“ sagði Bjarni í líf-
legri þingræðu. „Við eigum að
tala við Bandalag jafnaðarmanna
og opna fyrir Alþýðubandalag-
inu. Hvaða hræðsla er þetta í
fólki?“
Klausan í ályktunardrögunum
var tekin beint úr ræðu Kjartans
Jóhannssonar við þingsetning-
una, og hljóðar svo: „Stjórnar-
andstaðan er veikari en skyldi.
Stœrsti flokkur stjórnarandstöð-
unnar, Alþýðubandalagið, er
tœkifœrissinnaður öfgaflokkur,
maður Framtíðarinnar.
Hafnfirðingar og stuðnings-
menn fýrrverandi formanns féllu
hver um annan þveran í kosning-
unni: af 13 í framboði náðu tveir
kjöri úr heimabæ Kjartans og var
nú annað uppi á teningi en í fsam-
kvæmdastjómarkosningu um
morguninn. Landsbyggðin stóð
vel saman og náðu flestir kjöri af
þeim sem landsbyggðarmenn
komu sér saman um að kjósa.
Þeir, sem áður sátu í flokks-
sem ítrekað hefur sýnt ábyrgðar-
leysi í stórnarsamstarfi og dekrar
við öfgastefnur í samrœmi við
uppruna sinn, en hœttan er sú að
einar öfgarnar magni aðrar. “
Ýmsir þingfulltrúa vildu halda
klausunni inni, þarámeðal Árni
Hjörleifsson sem mótmælti
„fleðuskap“ við Alþýðubandalag
og sagði það afturhaldssaman
íhaldsflokk. Hreinn Erlendsson
kvartaði yfir því að Alþýðu-
bandalagið hefði amast við kröt-
um í verkalýðshreyfingunni „en
farið vel með það, einsog ég með
áfengi þessi tvö skipti sem ég hef
smakkað það. Hægt og sígandi,
smám saman hafa þeir stjakað
einum og einum í burtu“.
Aðrir voru á því að skammar-
stjórn, voru nú í framboði og
féllu: Gunnar Már Kristófersson
Hellissandi, Jónas Magnússon
Seifossi, Árni Hjörleifsson Hafn-
arfirði, Þórunn Valdimarsdóttir.
Gömlu mennirnir náðu bestri
kosningu: Magnús H. Magnús-
son (190), Gylfi Þ. (184), Eggert
G. Þorsteinsson (152). Bjarni
Guðnason nýtur mikils stuðnings
(155), eins Sighvatur Björgvins-
son (155). Þingmenn flokksins
eru ekki í kjöri.
klausa ætti ekki við, og allra síst
nú þegar A-flokkamir eru í sam-
starfi gegn ríkisstjóminni.
Þingnefnd sem um þetta fjall-
aði varð ekki sammála og kom til
atkvæðagreiðslu á þinginu. Var
brottfellingartillaga Bjarna sam-
þykkt með þorra atkvæða gegn
níu. Meðal þeirra sem brott vildu
fella voru Eiður Guðnason og
Ámi Gunnarsson. Kjartan Jó-
hannsson greiddi ekki atkvæði,
og nýkjörinn formaður brá sér af
fundi þegar atkvæðagreiðslan fór
fram.
Niðurstaða varð því sú að 42.
þing Alþýðuflokksins heldur því
ekki fram að Alþýðubandalagið
sé tækifærissinnaður öfgaflokk-
ur. -m
Alþýðublaðið
Misskilningur
Formaður Alþýðuflokks
segir DV hafa
misskilið ummœli sín
Ég skal játa að mér brá þegar
ég sá þetta haft eftir formann-
inum og hafði því samband við
hann í dag. Hann sagði mér að
ummælin í Dagbiaðinu um að
leggja Alþýðublaðið niður
væru á misskilningi byggð.
Blaðið kæmi ekki út í óþökk
sinni, þannig að ég held að
blaðið verði ekki lagt niður al-
veg á næstuni, sagði Guð-
mundur Árni Stefánsson rit-
stjóri Alþýðublaðsins í samtali
við Þjóðvlljann í gær. Ástæðan
fyrir því að rætt var við Árna
eru þau ummæli Jóns Bald-
vlns Hannibalssonar hins nýja
flokksformanns í DV í gær að
leggja Alþýðublaðið niður.
Ámi sagði, að enda þótt upp-
lag blaðsins og dreifing væri ekki
mikil, teldi hann það samt vera
tengilið milli hins almenna
flokksmanns og flokksforystunn-
ar. Enda liti hann svo á að blaðið
hlyti að hafa hlutverki að gegna
eftir 65 ára sögu þess. Hann sagði
að blaðið hefði verið fjárhags-
baggi á flokknum fýrir nokkrum
árum síðan en uppá síðkastið
hefði það lagast og blaðið væri
komið yfir það versta í þeim efn-
um.
Á meðan ekki finnst betri tengi-
liður milli forystunnar og flokks-
manna er ég ekki tilbúinn til að
leggja blaðið niður, sagði Guð-
mundur Árni.
-S.dór
— TORGIÐ —
Jón Baldvin lærði til formanns í
Alþýðubandalaginu.
Alþjóðadómstóll
Evensen
til Haag
Jens Evensen fyrrum haf-
réttarmálaráðherra og
ambassador Norðmanna var
nýlega ráðinn dómari við Al-
þjóðadómstólinn í Haag. Við
dómstólinn starfa 15 dómarar.
Ráðningartími 5 dómara renn-
ur út í febrúar nk. en 3 þeirra
voru endurráðnir. Auk Even-
sen var Zhenguy Ni frá Kína
ráðinn nýr að dómstólnum.
Ráðningartími dómaranna er 9
ár.
í höfuðstöðvum þeirrar stofn-
unar sem velur dómarana fékk
Evensen 133 atkvæði af 159 og í
öryggisráðin 14 atkvæði af 15.
Stuðningur við Evensen kom alls
staðar að úr heiminum. Val Jens
Evesen að alþjóðadómstólnum
er talinn mikill persónulegur
sigur hans. _jgK
Alþýðuflokksþing
Ab. er ekki tækifæris-
sinnaður öfgaflokkur
Klausa um Allaballa felld út í ályktun krataþingsins
Þriðjudagur 20. nóvember 1984 ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA 3