Þjóðviljinn - 20.11.1984, Side 10
FLOAMARKAÐURINN
Æskulýðsfylkingin
Félagskonur
í menningar- og friðarsamtökum
kvenna eru beðnar að muna eftir fé-
lagsfundinum í Kvennahúsinu n.k.
miðvikudagskvöld kl. 20.30.
Til sölu
kkalegt sófasett. Á sama stað fæst
gefins svefnbekkur og reiðhjól sem
þarfnast viðgerðar. Sími 18348.
Hver á kojur?
Átt þú kojur úr furu og í fullri stærð?
Ertu til í að selja mömmu þær? Við
erum tvíburar, sem þurfum að sofa
vel og langar svo í kojur. Mamma
svarar í síma 25763.
Atvinna
Mig vantar atvinnu. Er stúdent frá í
vor. Margt kemur til greina. Uppl. í
síma 81693.
Til sölu
Hraðskákmót
I kvöld, þriðjudaginn 20. nóv. efnir Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins til
hraðskákmóts í flokksmiðstöðinni, Hverfisgötu 105. Hefst mótið kl. 20.30.
Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins mun koma á mótið og
spjalla við þátttakendur. Æskilegt að mæta með töfl og klukkur. Kaffi og
meðí! Nú mæta allir, ungir sem aldnir. Sjáumst! - ÆFAB.
rauður Volkswagen Fastback '72,
skoðaður ’84. Selst ódýrt gegn stað-
greiðslu. Uppl. í síma 84310.
Plusssófasett til sölu
3+2+1, 15 þúsund kr. isskápur, 3
þús. Uppl. í síma 686541.
AB - Skólamálahópurinn
Prír fundir um framhaldsskólann (Markmið - stjórnun - inntak)
verða haldnir miðvikudagana 21. nóv., 28. nóv. og 5. des. nk. að
Hverfisgötu 105 Fteykjavík. - Stýrihópur..
Tölvukennsla,
einkatímar
Kr. 300 fyrir kennslustund. Uppl. hjá
Guðmundi Karli í síma 25401.
Kvennafylkingin
íbúð óskast
Heyrnleysingjakennari óskar eftir 2ja
herbergja íbúð, helst í vesturbæ eða
miðbæ. Uppl. í símum 20287 og/eða
27514.
Vél
úr Fíat 127 árgerð 1973 selst ódýrt.
Sími 42747 á kvöldin.
Puch Maxi
skellinaðra árg. 1982. Hún er lítið not-
uð, vel með farin, viðráðanlega hrað-
skreið og eyðslan er um 1,21 á hundr-
aðið. Einnig er til sölu heilmikið af
varahlutum í Wartburg, t.d. hurðir,
hljóðkútar, felgur og rafkerfishlutir
ýmsir og síðast en ekki síst gírkassi,
ekinn um 40 þús. km. Uppl. í síma
23271 eftir kl. 17 öll kvöld og um helg-
ina.
Til sölu
ónotuð 70 cm hurð í 12,5 cm karmi.
Hurðin er spónlögð með sléttu beyki.
Assa skrá fylgir í kaupbæti. Uppl. í
síma 74035 á kvöldin.
Atvinnurekendur athugið
Stór hópur, 20-30 manna, getur tekið
að sér alls konar verk fyrir ykkur. Til
greina kemur að vinna kvöld- og
helgarvinnu. Hafið samband við Hjört
í síma 26789 eða Ármann í síma
31256. Nemendur í jarð- og landa-
fræði við H.t.
N0NNI KJÓSANDI
Yil sölu
kommóða og ýmislegt til heimilis-
halds. Sími 38982.
Dúlla auglýsir:
Skiptum á stærri fötum fyrir minni og
öfugt. Steffens barnakápur, ótrúlega
ódýrar. Komið og gerið góð kaup.
Opið frá 1-6 virka daga og 10-12 á
laugardögum. Dúlla Snorrabraut.
íbúð óskast
Þriggja manna fjölskylda óskar eftir
3ja herbergja íbúð í vesturbænum.
Fyrirframgreiðsla möguleg. Sími
21072 eftir kl. 18.00.
íbúð óskast
Fjölskyldu, nýkomna frá útlöndum,
vantar fbúð til leigu strax. Uppl. í síma
34498.
Vantar legstað
í Fossvogskirkjugarði. Sá sem gæti
látið af hendi tvo grafreiti í Fossvogs-
kirkjugarði hafi samband við S.P.S. í
síma 81455.
Til sölu
BIT 90 heimilistölva ásamt minnis-
stækkun. Ódýr (í ábyrgð). Uppl. í
síma 50613.
Vil gefa
óskemmdan sófa með rauðgulu á-
klæði, hægt að gera tvíbreiðan. Uppl.
í síma 38615 á kvöldin.
Konur, konur!
Miöstöö kvennafylkingarinnar boöar til fundar miðvikudaginn 22.
nóvember kl. 20.30 að Hverfisgötu 105. Rætt um: 1) ASÍ-þing, 2)
stefnuskrá flokksins, 3) samningana, 4) hugmyndafræðilegan
grundvöll kvennafylkingarinnar, en Rannveig Traustadóttir mun
koma meö innlegg í þá umræðu. Mætum hressar!
- Kvennafylkingin.
Konur - 1985 nálgast
Miðstöðin minnir allar konur á undirbúning vegna loka kvennaára-
tugsins 1985. Fimm opnir hóþar hafa hafið störf á vegum '85
nefndarinnar, sem 23 samtök kvenna standa að. Hóparnir eru:
Gönguhópur, Listahátíðarhópur, Alþjóðahópur, Fræðsluhóp-
ur, Atvinnumálahópur.
Skráið ykkur til starfa strax. Allar upplýsingar um fundartíma og
starf hópanna fást hjá Jafnréttisráði, síminn er 27420.
- Kvennafylkingin.
Æskulýðsfylking
Hafnarfjarðar
Félagsfundur
Æskulýðsfylking Hafnar-
fjarðar boðar til félagsfundar
föstudaginn 23. nóv. kl.
20.00 að Strandgötu 41
(Skálinn). Dagskrá: 1) Stutt
kynning á starfi Æskulýðs-
fylkingarinnar. Framsögu-
maður Árni Björn Ómars-
son.
Árni Björn.
Guðbjörn.
2) Fyrirspurnir og almennar umræður, kaffi og með því.
3) Létt skemmtidagskrá. Hörður Þorsteinsson klappar gítarnum.
Kynnir: Guðbjörn Ölafsson. Allir Hafnfirðingar á besta aldri velk-
omnir.
„Hér býr Fýlupúkinn hann Hermóður, en látið hann
ekki hræða ykkur".
- ÆFHA.
Útboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í styrklngu Vestur-
landsvegar á Holtavörðuheiði. (Lengd 5,1 km, magn alls
13.700 m3).
Verkinu skal lokið 20. desember 1984.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í Reykjavík
og í Borgarnesi frá og með 20. nóvember.
Skila skal tilboðum fyrir kl. 14.00 þann 26. nóvember 1984.
Vegamálastjóri.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma
Hanna Guðjónsdóttir
píanókennari
Kjartansgötu 2
lést á Landspítalanum sunnudaginn 18. nóvember.
Aðstandendur
Lárétt: 1 hluti 4 illgresi 6 orka 7
urg 9 spyrja 12 gamalla 14 tunnu
15 varkárni 16 nærri 19 stétt 20
röð 21 skelfur.
Lóðrétt: 2 sefa 3 stertur 4 lengd-
armál 5 smágerð 7 vanvirðir 8
samt 10 pési 11 hindrar 13 depil
17 spíri 18 heiður
Lausn á síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kvöld 4 ögri 6 ell 7 lafi 9
álka 12 iðuna 14 nýt 15 urt 16
undan 19 sina 20 lina 21 amman.
Lóðrétt: 2 vía 3 leið 4 ólán 5 rok 7
lánast 8 fituna 10 launin 11 aftrar
13 und 17 nam 18 ala.
Auglýsið í Þjóðviljanum
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 20. nóvember 1984