Þjóðviljinn - 20.11.1984, Síða 13
U-SÍBAN
Baráttan um draumadísina
Nú á næstunni er væntanleg
á bókamarkaðinn ný bók Eð-
varðs Ingólfssonar. Ber hún
nafnið Fimmtán ára á föstu.
Eðvarð hefur áður sent frá sér
tvær unglingabækur, Gegnum
bernskumúrinn og Birgi og
Ásdísi.
Söguþráð bókarinnar er að
finna á baksíðu hennar og hljóm-
ar á þessa leið: Hún heitir Lísa og
er 15 ára, dökkhærð, brúneygð
og ofsalega sæt. Hún er drauma-
dís allra stráka. Árni bekkjar-
bróðir hennar er mjög hrifinn af
henni, svo hrifinn að hann verður
stundum andvaka af ást. En það
er einn Þrándur í götu. Hún er á
föstu með mótorhjólatöffara sem
er tveimur árum eldri en hún og
kemur oft að sækja hana í
skólann. Árni hefur gefið upp
alla von um að ná í hana þar til
óvæntir atburðir verða og spenna
færist í leikinn. Hvorki mótor-
hjólatöffarinn né Árni vilja gefa
eftir í þeim leik...
U-síðan hitti Eðvarð að máli
og birtist spjall okkar hér að neð-
an.
Hvaðan færð þú efni í bækurn-
ar þínar?
- Það er nú það. Ég hef starfað
mikið með unglingum. Rætt
Eðvarð Ingólfsson
mikið við þá, þannig að efnið er
fengið hjá unglingunum sjálfum.
Eru þetta þá sannsögulegar
bækur?
- Nei, alls ekki. Ég er aðeins
að reyna að lýsa þeim aðstæðum
og tilfinningum sem ég held að
séu alltaf að gerast hjá ung-
lingum.
Finnst sumum þetta ekkert
væmið?
- Jú, eflaust kann einhverjum
að þykja það. Þegar ég skrifa er
ég ekki að lýsa einhverjum meðal
unglingi. Mínar sögupersónur
hvorki reykja né drekka þó að
allflestir unglingar á þesum aldri
14-16 ára geri það.
En þú ert í ýmsu öðru en að
skrifa bækur.
- Já, ég er með unglingaþátt-
inn Frístund á Rás 2 eins og svo
margir kannast við. Svo hef ég
unnið mikið við Barnablaðið
Æskuna s.l. þrjú ár, og er einmitt
núna að vinna við janúarblaðið af
kappi.
Hvernig gengur að koma sam-
an þætti eins og Frístund?
- Það gengur mjög vel, og ég
hef haft mikla ánægju af þessu.
Krakkarnir hafa verið mjög já-
kvæðir og hjálpsamir.
Ég hef heyrt að ykkur berist
(jöldinn allur af bréfum, er það
rét?
- Já, við fáum að meðaltali um
500 bréf á viku. Langflest þeirra
eru að vísu svör við verðlaunaget-
rauninni sem alltaf er á sínum sað
í þættinum. En það má segja að í
nær öllum bréfunum séu kveðjur
til þáttarins, óskir um lög og
ábendingar um efni svo að
eitthvað sé nefnt. Af þessu má
ráða að hlustunin sé allgóð, svo
að ég uni giaður við mitt.
Eðvarð Ingólfsson
Mennirnir þrír á þessari þeim við að finna rétta hatt-
mynd eiga allir að vera með inn?
hatta, en nú hafa hattarnir •£ ju 5
ruglast. Getið þið hjálpað 3 80 j ju 5 g •£ ju ueq b y :jbas
Ur myndasafninu
Með frekjurmi einni saman
1. nóv. s.l. birtist á U-síðu
Þjóðviljans grein um Æsku-
lýðsfylkingu Ab.
Þar er m.a. talið upp að auk
ÆFRON (Rvík og nágrenni)
starfi Æskulýðsfyikingin á
Húsavík, Akureyri og ísafirði.
Þarna fellur niður Æskulýðs-
fylkingin í Kópavogi. Hún var
stofnuð 9. jan. '84 að viðstödd-
um fulltrúm ÆFAB og starfar
enn.
í áðurnefndri grein er látið að
því liggja að Æskulýðsfylkingin í
Kópavogi sé aðili að ÆFRON.
Því skal bent á, að af inngöngu
ÆFK hefur ekki orðið, einfald-
lega vegna þess að kynnin á lög-
um og starfsháttum ÆFRON og
formlegt boð um inngöngu hefur
alls ekki borist á skrifstofu Kópa-
vogsfélagsins.
Það verður ekki liðið, hvorki
nú né síðar, að einhverjir félagar
okkar í Reykjavík leggi niður fé-
lög utan Reykjavíkur með frekj-
unni einni saman og ákveði síðan
fulltrúa í stofnanir án samráðs við
flokksfélaga í viðkomandi sveit-
arfélagi.
Æskulýðsstarf er eitt af áhuga-
málum Áb manna í Kópavogi.
Því hljótum við að fagna allri um-
ræðu og kynningu á ÆFAB. En
það verður hreyfingunni ekki til
framdráttar og er í rauninni til
lítils sóma sá yfirgangur forystu-
sveitar ÆF sem lýst er í þessari
athugasemd.
Friðgeir Baldursson
form. ABK.
_________________________________________________________|
Þriðjudagur 20. nóvember 1984 ÞJÓÐVILJINN - SjÐA 17