Þjóðviljinn - 21.11.1984, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 21.11.1984, Blaðsíða 4
LEIÐARI Lúaleg aðför Frá því kjarasamningarnir voru gerðir hefur ríkisstjórnin, að sjálfsögðu í samvinnu við samtök atvinnurekenda, leitað leiða til að ná aftur hinum fjárhagslegu ávinningum sem náð- ust með samningunum. Fulltrúar atvinnurek- enda og forystumenn ríkisstjórnarflokkanna hafa keppst við að ryðja úr sér yfirlýsingum um að „þjóðarbúið" þoli ekki hinn aukna kaupmátt, sem vannst með dýrkeyptum fórnum þúsunda verkfallsmanna. Þessi flaumur yfirlýsinga hefur þann tilgang að telja fólkinu trú um, að sökum kauphækkana vinnandi fólks sé óumflýjanlegt að fella gengið. Það er verið að smíða átyllu til að fella gengið svo rækilega að launafólk hugsi sig um tvisvar áður en það fer aftur í verkfall. Þjóðviljinn hefur bent á þetta dag eftir dag, og spáð því að um leið og verkalýðsfélögin væru búin að samþykkja samningana kæmi gengis- felling. Það hefur nú sannast: um helgina var búið að samþykkja í flestum félögunum og degi síðar kom gengisfellingin. Þjóðviljinn spáði líka, að gengisfellingin sem ríkisstjórnin var með í undirbúningi tæki ekki einasta aftur ávinning kjarasamninganna, - heldur miklu meir! Þetta hefur nú einnig rækilega sannast. í fyrradag greindi ríkisstjórnin frá því að hún hefði ákveðið að fella gengið um 12 prósent. Gengis- fellingin er hins vegar miklu meiri. í síðustu viku var gengið látið síga um fjögur prósent, þannig að hin raunverulega gengisfelling ríkis- stjórnarinnar er ekki tólf, heldur 16 prósent! Kauphækkunin sem launafólk fékk til að byrja með út úr hinum nýju samningum er hins vegar ekki nema 10 prósent. Með hliðsjón af því ætti öllum að vera Ijóst, að gengislækkunin er ein- faldlega miklu meiri en nemur þeim kostnaðar- hækkunum sem liggja fyrir í þjóðfélaginu. Gengisfellingin er því ekkert annað en lúaleg aðför að launafólki, hefndarráðstöfun vegna verkfallanna í haust. Og það ætti að vera mönnum umhugsunarefni, að eftir margra daga fundi stjórnar og þingflokka stjórnarinnar, þá hefur ekki náðst samkomulag um neinar efna- hagsráðstafanir nema gengisfellingu! Engar hliðarráðstafanir hafa verið ákveðnar sökum úr- ræðaleysis og ósamkomulags. Þvílík stjórn! Það er einnig fróðlegt að líta á viðbrögð hag- fræðinga við gengisfellingunni. í Þjóðviljanum fyrirskömmu benti BirgirBjörn Sigurjónsson hjá Bandalagi Háskólamanna á þá einföldu stað- reynd að gengisfelling fjölgar ekki fiskunum í sjónum og lét uppi þá skoðun að vanda sjávar- útvegsins yrði að leysa með öðrum ráðum. Már Guðmundsson hjá Seðlabanka Islands var svipaðrar skoðunar og bendir á þær leiðir sem verkalýðsstjórn myndi fara: skattleggja hátekjuhópa, endurnýja fyrirtækjaskatta, draga úr óþarfa fjárfestingum og erlendum lántökum, sem þeim fylgja. Ásmundur Stefánsson, hagfræðingur og forseti ASÍ, hefur einnig bent á, að til að leysa vanda sjávarútvegsins sé önnur leið fær. Sú leið er einfaldlega að flytja fjármuni frá þeim greinum sem hafa aflað mikils fjár að undan- förnu, og flytja til sjávarútvegsins. Þannig er dómur hagfræðinga sá, að gengis- felling leysi ekki vandann. Með henni ereinung- is verið að ráðast að launafólki. Með henni er ríkisstjórnin nánast að rifta hinum nýgerðu samningum. Gengisfellingin sýnir einungis að ríkisstjórnin er ráðlaus stjórn, hún hefur ekki pólitískt þrek til að færa fé frá milliliðum til undirstöðugreina á borð við sjávarútveginn. Úrræði hennar þjóna stundarhagsmunum fjármagnsins - þau eru plástrapólitík sem ekki leysa neinn vanda til frambúðar. KLIPPT OG SKORIÐ Leiðtogum slátrað Sú saga er sögð af svíum að þeir hafi þegar illa áraði að fornu kippt konungi sínum af stalli, brytjað hann í smátt og sent lík- amspartana út og suður um ríkið til að auka frjósemi og friða goð- in. Alþýðuflokkurinn virðist hafa svipaðar hugmyndir um hvernig bregðast á við óáran: slátruðu leiðtoga sínum á allsherjarþingi um helgina, og nú ætlar hinn ný- smurði frelsari í hringferð um landið, væntanlega með leifarnar af fyrri flokksforystu í farteskinu. Prek, draumar, viðkvæmni Það er eins gott fyrir flokkinn og formann hans að tilvitnun hins síðarnefnda í þakkarræðu sinni verði að áhrínsorðum: „Hjarta mitt stœlist við stríðl þó stenst á hvað vinnst og hvað tapast/ það sem mitt þrek hefur grœtt/ það hefur viðkvœmnin misst. “ Flokk- urinn þarf sannarlega á meira þreki að halda en hann hefur sýnt á liðnum árum. Þessi vísuorð eru eftir Steingrím Thorsteinsson, þótt nýja formanninum hafi orð- ið á að nefna til Stein Steinarr. Rangminnið um hínn heimspeki- lega mystíker Stein Steinarr er hinsvegar ekki undarlegt í ljósi þess hve draumar hafa komið við sögu í formannsslagnum. Við fæðingu nýja formannsins vitjaði gamall krataleiðtogi nafns og Jón Baldvin talar um forlög; í blaða- viðtali við Jón var fyrirsögnin: Ég á mér draum. Steinn Steinarr sagði nefnilega einusinni: í draumi sérhvers manns er fall hans falið. Mælskukeppnin Það var skemmtileg upplifan klippara að voka yfir þingi krata. Fróðir menn höfðu fyrir þingið talið að Kjartan ynni slaginn með um 60% prósent atkvæða. Úrslit- in urðu þveröfug, Jón Baldvin fékk þá prósentu hérumbil ná- kvæmlega. Harðsnúin Hafnar- fjarðarsveit Kjartans stóð með sínum manni en Jón sótti fylgi í flesta hópa aðra, og munu konur og ungt fólk hafa vegið þyngst. Áhrifamenn höfðu fæstir lýst fýlgi við frambjóðendur en talið var að verkalýðsmenn í flokknum hefðu ekki góðan bifur á áskor- andanum. Og sumir kusu að standa fjarri hanaatinu : Gylfi Þ. var ekki á þinginu, ekki Éggert G., ekki Sighvatur prófkjörs- kappi. Það var rafmagn í loftinu í ráð- stefnusal og göngum Hótels Loft- leiða áður en frambjóðendur fluttu lokaræður sínar og eftirá var talið að úrslit hafi ráðist mjög af framgöngu þeirra. Jón Baldvin var fyrstur og flutti skörulega ræðu; sagði að flokkurinn þyrfti að þekkja sinn vitjunartíma: Bíð- ur líokkurinn átekta (=Kjartan) eða er hann alfús til bardaga (=Jón). Er flokkurinn fulltrúi lít- ilsigldrar kyrrsetu í palísander- höllum kerfisins (=Kjartan) eða er hann róttækur umbótaflokkur (=Jón). „Augu landsmanna beinast að ykkur“ þrumaði Jón að stjörfum þingfulltrúum, „þor- um við eða þorum við ekki?“ Ræða Kjartans á eftir Jóni var skaplítil og sviplaus, og eftir að Jón hafði unnið mælskukeppnina var harla víst að hann ynni einnig kosninguna. Og þetta er skýring- in á sigri Jóns: flokkurinn hefur engu lengur að tapa, og flokks- mönnum þótti skárra að leggja uppí óvissa ævintýrareisu með syni Hannibals en að rúlla áfram niðrí gleymskuna með kerfiskrat- anum úr Firðinum. Svo skipti Bryndís máli líka. Ég, ég, ég Klippari komst ekki hjá að verða var við efasemdir á þinginu eftir útvarpsviðtöl við formenn A-flokkanna að þingunum af- stöðnum á sunnudagskvöld. Svavar Gestsson talaði í nafni flokksmanna: Alþýðubandalag- ið... við alþýðubandalagsmenn... vinstrimenn í landinu... flokk- ráðsfundarmenn..., - en ræða Jóns Baldvins var: ég.. .ég.. .ég... Tilviljun? Eftilvill. En með því að „þora“ nú um helgina er Al- þýðuflokkurinn hérumbil orðinn að einsmannsflokki, svipað og Samtök Hannibals um árið, eða Bandalag Vilmundar. Það þýðir að frami mannsins er frami flokksins, en það þýðir líka að persónuleg mistök eru áfall flokksins alls. Sörli og dyggðin í lok framboðsræðu sinnar á þinginu vitnaði Jón Baldvin í „skáld, mitt skáld, Guðmund Kamban“, og fór með þetta er- indi úr kvæðinu Vikivaka: Vantraust Guðrúnar, vonsvik Kjartans með vopnum enda sinn fund. En þetta er vísan um vissu hjartans og vorglaða íslenska lund... Stína rakar og Bjössi bindur, og bóndinn hirðir sinn arð. Nú er sólskin og sunnanvindur, og Sörli ríður í garð. Vikivaka yrkir Guðmundur Kamban í orðastað ungrar stúlku og fjallar kvæðið um samskipti hennar við ástmanninn Sörla. Með tilvitnun sinni setur Jón Baldvin sjálfan sig í hlutverk elskhugans Sörla og Alþýðu- flokkurinn er þá auðvitað stúlkan sem bíður og vonar. í öðru erindi þessa ljóðs er fjallað um fyrsta fund þeirra skötuhjúa, og skal tekið fram að það erindi barst ekki eyrum full- trúanna á krataþingi: En ég var feimin, - með jörpum lokkum, og ég var saklaus og fróm, í brúnum upphlut, á bláum sokkum og blásteinslituðum skóm... Hvað tjáirmildi þín, tunglið ríka, hvað tjáir skjöldur og sigð? Hann vildi fá mig og fékk mig líka, hann fór með dyggð mína og tryggð. -m DJÖÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgofandi: Útgáfufólag Þjóðviljans. Ritstjórar: Ámi Bergmann, össur Skarphéðinsson. Ritatjómarfulttrúl: Oskar Guðmundsson. Fréttaatjóri: Valþór Hlóðversson. Blaöamenn: Álfheiður Ingadóttir, Ásdís Þórhallsdóttir, Guðjón Friðriksson, Jóna Pálsdóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Mörður Ámason, Ólafur Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir). Ljósmyndlr: Atli Arason, Einar Karlsson. Útllt og hönnun: Filip Franksson, Þröstur Haraldsson. Handrlta- og prófarkaJestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Framkvœmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrlfatofustjóri: Jóhannes Haröarson. Auglýslngastjóri: Ragnheiður Óladóttir. Auglýslngar: Anna Guðjónsdóttir, Margrót Guðmundsdóttir. Afgrelðslustjórl: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir. Símavarsla: Ásdís Kristinsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir. Húsmœður: Bergljót Guðjónsdóttir, ólöf Húnfjörð. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Bjömsson. Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lausasölu: 22 kr. Sunnudagsverð: 25 kr. Askriftarverð á mónuði: 275 kr. 4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Mlðvikudagur 21. nóvember 1984

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.