Þjóðviljinn - 24.11.1984, Side 3

Þjóðviljinn - 24.11.1984, Side 3
FRETTIR LÍÚ-þingið Sundmng meðal útvegsmanna Fjölmargir vilja harðar aðgerðir strax. Meirihlutinn situr hljóður hjá og vill ekki styggja stjórnvölcL né olíufélögin. Mjög skiptar skoðanir komu fram á þingi útvegsmanna sem lauk í gær, um viðbrögð við sífelldum árásum ríkisvaldsins á sjávarútveginn en útgerðir og fiskvinnslufyrirtæki víða um land standa nú frammi fyrir gjald- þroti. Á þinginu komu fram fjöl- margar tillögur um að gjörbreyta stefnu í olíusölumálum og þrýst- ing á stjórnvöld með því jafnvel að leggja flotanum. Þessar hugmyndir og tillögur vöktu lítinn fögnuð hjá forystu LÍÚ sem hélt verndarhendi yfir hinu þrefalda olíusölukerfi. Er fréttin um stórhækkun á olí- uverði barst inn á þingið síðdegis í gær komu greinilega í ljós þær skiptu skoðanir er ríktu á þing- inu. Kristján Pálsson í Ólafsvík sagði greinilegt að meirihluti út- vegsmanna hefði ekki áhuga á neinum aðgerðum en menn stæðu frammi fyrir því að útgerð- in væri að verða gjaldþrota. Því hefðu nokkrir fundarmanna ákveðið að boða til sérstaks fund- ar að loknu þinginu til að ræða til hvaða aðgerða ætti að grípa. Emil Thorarensen frá Eskifirði lagði fram tillögu um að olíufé- lögin 3 yrðu sameinuð í eitt eða ríkið tæki yfir olíusöluna. Út- gerðin hefði ekki efni á því að halda uppi þreföldu oiíusölukerfi í landinu. Ágúst Einarsson Vestmannaeyjum bar ffarn frá- vísunartillögu sem var samþykkt. Einar Kristinsson Keflavík sagði að ef það væri ætlun stjómvalda að leggja niður sjáv- arútveg á íslandi væri heiðarlegra að segja það strax svo menn gætu hætt þegar. Hilmar Rósmundsson Vest- mannaeyjum sagði að nauðung- amppboð á skipum myndu halda áfram næstu vikur og mánuði og eina ráðið sem stjómvöld skildu væri að stöðva flotann. Slíkt hefði verið reynt en samstaðan væri ekki fyrir hendi. Þingið væri að taka ákvarðanir sem fríuðu stjórnvöld algerlega frá gerðum sínum. Það væri hryggilegt að þing LÍÚ væri orðið að hálfgerðu sláturhúsi útgerðar. Tillögur og ályktanir þingsins væm hvorki fugl né fiskur. Jón Magnússon Patreksfirði sagði sundurlyndi með mesta móti í samtökum útvegsmanna og kenndi formanni um hvemig komið væri. Enginn vandi væri leystur frekar aukinn og ekkert kæmi að viti út úr þessari sam- komu. Það var kannski táknrænn endir á þessu 45. þingi LÍÚ eftir að þingfulltrúar höfðu fengið framan í sig 20-30% hækkun á olíu, að þingfulltrúar fjölmenntu, með undantekningum þó, í sam- kvæmi hjá sjávarútvegsráðherra, sem einhver sagði að myndi bjóða uppá beiskan olíukokkteil. -*g- ASÍ-þing Undir- alda Þing Alþýðusambands íslands hefst á mánudaginn kemur. Eitt af þeim málum sem hefur verið rætt um fyrir þingið er hvort fjölga eigi í miðstjórn sambands- ins og þá hvort fjölgað verði um ljóra eða sex menn. Fyrst kom fram hugmynd um að fjölga mið- stjórnarmönnum um fjóra og að baki lá einkum þrýstingur frá konum um aukin ítök í miðstjórn- inni. Sjálfstæðismenn og Fram- sóknarmenn í ASI þóttust sjá að ef aðeins yrði fjölgað um fjóra, myndi hið pólitíska valda- jafnvægi raskast, því samkvæmt styrktarhlutföllum yrðu tveir af þessum fjórum Ifklega Alþýðu- bandalagsmenn, einn krati og einn í hinni svokölluðu „gráu deild“ sem er utan við öll flokks- bönd. Þessu vildu Framsóknar- og Sjálfstæðismenn ekki una og lögðu fram þá hugmynd að fjölga um sex, en þá fengju þeir einn hvor. En þess má geta að saman gætu þeir staðið í vegi fyrir fyrir- huguðum lagabreytingum á þing- inu, en 2/3 hluta atkvæða þarf á þinginu til að koma lagabreyting- um fram. í gær var verið að ræða þessi mál. Maður úr verkalýðshreyf- ingunni tjáði Þjóðviljanum að margt benti til að menn myndu hallast að fjölgun um sex manns, einkum af því að hægri menn sæktu það stíft. Hins vegar er ljóst að engin átök verða um menn í æðstu stöður ASÍ. __________________-S.dór Alþingi Hvað las Sverrir? Það vakti athygli alþjóðar, að Sverrir Hermannsson iðnaðar- ráðherra hafði ekki meiri áhuga á stefnuræðu forsætisráðherra og þeim umræðum sem á eftir fylgdu en svo, að hann sat og las í þvældri pappírskilju allt kvöldið. Þetta sást auðvitað glöggt þar sem umræðunum var sjónvarp- að. Fjölmargir hafa komið að máli við blaðið og spurt hvaða bók Sverrir var að lesa. Því miður tókst þó ekki að ná tali af ráð- herranum til að fá þetta upp- lýst... Alþingi 20 krónur molinn! Handumið konfekt frá Sviss! Geir Gunnarsson: Meðan sumir hafa vart til hnífs og skeiðar, háma dekurbörn stjórnarinnar í sig handunnið konfekt frá Sviss Tvær fréttir sem birtar voru um síðustu helgi lýsa e.t.v. best hvað er að gerast í kjölfar stjórn- arstefnunnar, sagði Geir Gunn- arsson í sjónvarpsumræðunum í fyrrakvöld. „í annarri fréttinni var sagt frá því að boðinn hefði verið upp togari í útgerðarbænum Akranesi og það er aðeins upphaf í þeim efnum. í hinni síðari fréttinni er greint frá högum dekurbama stjómarstefnunnar, - ný verslun var að hefja starfsemi í Reykjavík og auglýsti með nær heilsíðu lit- myndaauglýsingu í dagblöðunum að nú væri það nýjast um ráðstöf- un á gjaldeyri þjóðarinnar sem sjómenn hætta lífi sínu til að afla, að þessi nýja verslun sinnti því einu að selja handunnið konfekt, sem flutt væri vikulega með flugi frá Svisslandi. Og svo örugglega uppfyllti þetta fyrirtæki kröfur markaðsstefnunnar um arðsemi umfram útgerð og fiskvinnslu, sem verið er að drepa, að um leið var boðað að innan skamms yrði opnuð - önnur sams konar versl- un ofar við Laugaveginn." - 6g Skák Gott gengi Kristján Guðmundsson liðsstjóri íslensku ÓL-sveitarinnar: Mikillfjöldi biðskáka í fyrstu umferðunum þreytti menn mjög Þetta hefur gengið vel í fyrstu umferðunum, alveg þar til í gær að við töpúðum fyrir Eng- lendingum. Þrátt fyrir allt eru menn sæmilega ánægðir með gang mála til þessa, sagði Krist- ján Guðmundsson liðsstjóri ís- lensku skáksveitarinnar á Ólym- píumótinu í Saloniki í Grikk- landi, er Þjóðviljinn ræddi við hann í gær. Kristján sagði að íslenska sveitin hefði fengið mikið af bið- skákum í fyrstu umferðunum og skákskýringar í einum. Efstu hefði það þreytt mannskapinn sveitirnar tefla á sérstökum upp- allmikið. Sérstaklega hefði Helgi hækkuðum palli, þar sem skýr- Ólafsson orðið fyrir barðinu á ingatöflur eru fyrir áhorfendur. þessu með sína 150 leikja skák Islenska sveitin er kominn uppá við Túnismanninn í fyrstu um- þennan pall, enda í 4. sæti. ferð. Öllum keppendum íslands líð- Allar aðstæður á keppnisstað ur vel nema hvað Jón L. hefur eru til fyrirmyndar og mótið í verið hálf lasinn af hálsbólgu og heild afar vel skipulagt. Á keppn- tefldí hann ekki gegn Englend- isstað eru 4 salir, í einum er ingum og heldur ekki í gær gegn keppt, annar er fyrir blaðamenn, Tékkum. Þá kom Karl Þorsteins í einum er matur fram borinn og inn í fyrsta skipti. _ s#d6r. Háskólinn Þingmaður rannsakar Sex sátu hjá í Háskól- aráði við samþykkt tveggja mánaða aukagreiðslu til Gunnars G. Schram Á fundi Háskólaráðs í fyrradag var samþykkt erindi frá Gunnari G. Schram lagaprófessor og þing- manni um tveggja mánaða auka- greiðslu vegna lúkningar viða- mikilla rannsókna. Þetta var samþykkt með átta atkvæðum, en sex ráðsiiðar völdu þann ko- stinn að sitja hjá. Gunnar G. Schram hefur verið í rannsóknarleyfi frá skyldustörf- um á haustmisseri. Þingmenn úr Háskólanum fá hálf laun þaðan auk þingfararkaups, og er ætlast til að þeir skili helmingsvinnu í Háskólanum. Fullt starf háskóla- kennara er talið vera kennsla og prófvinna að 48 hundraðs- hlutum, stjórnunarstörf 12%, rannsóknir 40%. Stefán Sörensen háskólaritari sagði Þjóðviljanum að Gunnar hefði ekki sótt áður um auka- greiðslur vegna þeirra rannsóknarverkefna sem nú eru í deiglunni. Hinsvegar hefur Gunnar áður fengið svipaða fyr- irgreiðslu hjá Háskólaráði á þing- mannstíma sínum. Auk hinna viðamiklu rannsóknarstarfa er Gunnar al- þingismaður Reyknesinga, for- maður Bandalags háskóla- manna, stjórnarskrámefndar- maður og fulltrúi í álviðræðu- nefnd. - m Beðist afsökunar Undirrituðum urðu á leið mis- tök f frétt Þjóðviljans í gær. Þar sagði að skuldir þjóðarbúsins hefðu aukist um 1 miljón króna á hverja 4ra manna fjölskyldu. Hið rétta er 100 þúsund krón- ur. Ástæða þessarar skekkju eru reikningsmistök mín. Við engan annan er að sakast í þessu tilfelli. Aldrei stóð til að reyna neinar blekkingar í þessu máh, nógu slæmt er það samt, heldur brást reikningskunnáttan undirrituð- ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.