Þjóðviljinn - 24.11.1984, Qupperneq 15
Myndlist
A vit tómleikans
í Gallerí Borg við Austurvöll
sýnir Björg Atla (Atladóttir) 37
myndir, flestar frá þessu ári.
Björg hefur áður haldið einka-
sýningu og var það í boði
listkynningar Héraðsbókasafns í
Mosfellssveit, síðastliðið vor.
Hún stundaði nám við Myndlista-
og handíðaskóla íslands á árun-
um 1979-82, en áður hafði hún
sótt námskeið við Myndlista-
skólann í Reykjavík, 1976-79. Þá
hefur hún kennt á námskeiðum í
málaradeild þess skóla frá árinu
1982.
Björg fæst mest við olíumál-
verk, en einnig eru á sýningunni
akrýlmyndir og verk unnin með
blandaðri tækni, auk teikninga á
pappír. Virðast smámyndir henn-
ar margar hverjar vera rissmynd-
ir fyrir stærri verkin. Stfllinn er
sambland af abstraksjónum og
fígúratívri list með ívafi úr heimi
popplistannnar.
Listamanninum reynist nokk-
uð erfitt að gera upp við sig á
hvaða mið skuli róa og þjakar
það nokkuð sýninguna í heild.
Svo virðist sem Björgu láti best
að vinna í óhlutbundnum stfl og
bestu verk hennar eru þess eðlis.
En einhverra hluta vegna nægir
það henni ekki, svo hér og þar
skjóta upp kollinum skugga-
myndir af mannverum í óræðu
landslagi, sem samanstendur af
lýrískum litum og geometrískum
burðarásum. Ofan á þetta bætist
svo samlímingartækni (collage),
Björg Atla í Gallerí Borg
þannig að áhrifin verða ruglings-
legri en þurfa þyrfti.
Reyndar eru þetta ytri ein-
kenni málverka Bjargar, en þau
bera vott um vandann sem liggur
að baki. Svo virðist nefnilega sem
hstamaðurínn hafí sáralítið að
segja okkur annað en það, hvern-
ig fara eigi að því að búa til snotr-
ar myndir.
Þetta væri sök sér, ef Björg
hefði ekki að baki sér um 6 ára
myndlistamám við viðurkennda
listaskóla. En það má vera að þar
hafi aldrei farið fram umræða um
innihaldsleysi myndverka.
Hverjar sem ástæðumar eru, þá
er það greinilegt að Björg hefur
fallið í pytt innihaldsleysisins. En
henni til huggunar skal það sagt,
að hún er ekki ein um slfkt fall.
List hennar, eins og svo margra,
viðheldur þeirri lýgi sem
allmargir íslendingar gína við, að
myndlist sé ekki annað en innan-
tómt skraut sem punta skuli með
enn innantómari hýbýli.
En það ætti öllum að vera ljóst
að ekki er nóg að læra myndlist
eins og hvert annað fag í iðn-
skóla. Menn verða að hafa
eitthvað að segja, eitthvað sem
brennur þeim á vömm, eitthvað
sem ekki hefur verið margtuggið.
Þetta skilja íslendingar þegar tal-
ið berst að bókmenntum. En
þeim virðist erfiðara að átta sig á
því, að sömu lögmál gilda um
aðrar listgreinar. -HBR
Pr'ófað'ann
hann ermjúkur
Mjúkur er
hann
ENGIS HVAÐ...
FELUNG?
EKKITIL UMRÆÐU HJÁ OKKUR
■o
a.
EIGUM NOKKRA SKODA ÁRG.1985
Á GAMLA GÓÐA VERÐINU.
JÖFUR HF
NÝBÝLAVEGI2
KÓPAVOGI
SÍMI 42600