Þjóðviljinn - 08.12.1984, Page 4
LEIÐARI
íslandsdeild
Amnesty Intemational
íslandsdeild mannréttindasamtakanna al-
þjóölegu, Amnesty International, heldur upp á
tíu ára afmæli sitt um þessar mundir: Á morgun,
sunnudag, halda samtökin opinn kynningar-
fund meö fjölbreyttri dagskrá á Hótel Borg.
Amnestysamtökin hafa sett sér erfið verkefni
og göfug. I fyrsta lagi leitast þau viö aö fá látna
úr haldi samviskufanga. En meö þeim er átt
viö fólk sem haft er í haldi fyrir trú sína, litarhátt,
kynferði, vegna uppruna, tungumáls eöa trúar-
og séu þetta um leið, menn sem ekki hafa neytt
ofbeldis eða boðað þaö.
í ööru lagi miðast upplýsingastarf Amnesty
og bréfaherferöir aö því, að sérhver pólitískur
fangi fái sæmilega meðferð mála sinna fyrir
dómstólum.
í þriöja lagi berst Amnesty gegn dauöarefs-
ingu pyntingum og annarri ómennskri meöferö
á föngum, hverjir sem þeir eru.
Um þessar mundir hefur Amnesty skipulagt
mikiö starf sem tengist einkum baráttu gegn
pyntingum. Samtökin hafa tekið saman mikla
skýrslu um „Pyntingar á níunda áratugnum" og
kemur þar meðal annars fram, að á síð-
astliðnum fjórum árum hafa fangar veriö pynt-
aðir eða sætt illri meðferð í að minnsta kosti
þriðja hverju landi heimsins. En alls hafa borist
fram ásakanir um pyntingar og aðra illa með-
ferð á föngum í allt að því hundrað löndum eða
svo sem tveim af hverjum þrem sem á skrá
komast í landafræðinni. I þessari skýrslu er lögð
áhersla á það, að pyntingar eigi sér stað í öllum
heimshlutum og undir margskonar stjórnarfari
og að fólk á öllum aldri og af öllum stéttum hefir
sætt pyntingum. Aðferðir við pyntingareru mjög
mismunandi og einatt eru bæði aðferðirnar ein-
att þess eðlis og svo leyndarhjúpurinn sem j
stjórnvöld reyna að sveipa um svo smánarlegt
athæfi svo þykkur, að mjög erfitt að að afla
nákvæmra upplýsinga um það sem gerist í ein-
staka ríkjum. Má nærri geta að þeim mun
nauðsynlegra er upplýsingastarf samtaka sem
njóta virðingar á borð við Amnesty Internation-
al.
Allskonar gagnrýni hefur komið fram á starf
Amnesty International. í austri, vestri og suðri
hafa valdsmenn kvartað yfir því, að slík samtök
trufli friðinn, skipti sér af því sem öðrum kemur
ekki við - eða þá geri of mikið úr sumum málum
en gleymi öðrum. Mest er þessi gagnrýni
hræsni og fyrirsláttur. Og að því er varðar þriðja
atriðið (af hverju er talað meira um okkar
mannréttindabrot en hinna) er því til að svara,
að Amnesty getur ekki haldið uppi einhverjum
fáránlegum samanburði á ógæfu manna hér og
þar. Samtökin taka, eðli sínu samkvæmt, við
þeim upplýsingum sem fáanlegar eru og reyna
að prófa þær og afla nýrra og leggja þeim lið
sem þurfa.
í heimi þar sem allur fréttaflutningur af
mannréttindamálum mótast mjög af því hvað er
„okkar“ liði í hag eða óhag, verður hlutverk
samtaka á borð við Amnesty International ekki
ofmetið. Og það er sem fyrr mikil ástæða til þess
að brýna fyrir íslendingum að styðja sem mest
þeir mega við bakið á þessum samtökum - með
fjárhagslegri velvild, með bréfaskriftum eða
öðrum hætti. Ein er sú skylda sem menn mega
síst undan víkjast: að muna þá sem sitja barðir
og illa haldnir á bak við fangelsisrimla, kannski
fyrir litlar sakir eða alls engar - meðan við sjálf
njótum málfrelsis, frelsis undan ótta og margra
annarra gæða.
niðÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans.
Rltatjórar: Ámi Bergmann, össur Skarphóðinsson.
Ritstjórnarfuiltriii: Oskar Guðmundsson.
Fróttaatjóri: Valþór Hlööversson.
Blaðamenn: Álfheiður Ingadóttir, Ásdís Þórhallsdóttir, Guðjón Friðriksson,
Jóna Pálsdóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Mörður Árnason,
ölafur Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir).
Ljósmyndir: Atli Arason, Einar Karfsson.
Útlft og hönnun: Filip Franksson, Þröstur Haraldsson.
Handrita- og prófarkaleatur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Auglyslngastjóri: Ragnheiður Óladóttir.
Auglýsingar: Anna Guðjónsdóttir, Margrót Guðmundsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgrelðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir.
Símavarsla: Ásdís Kristinsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmæður: Bergljót Guðjónsdóttir, ólöf Húnfjörð.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafur Bjömsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 22 kr.
Sunnudagsverð: 25 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 275 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 8. desember 1984