Þjóðviljinn - 21.12.1984, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 21.12.1984, Blaðsíða 1
“1 desember I ) 1984 J I föstu- Z I 256. tölublað 49. örgangur Kjarnorkuvopn Tóíf spumingar til Geirs Þjóðviljinn spyr utanríkisráðherra tólf mikilvœgra spurninga í fyrradag var birt yfirlýsing frá fulltrúa ríkisstjórnar Banda- ríkjanna til Geirs Hallgríms- sonar, utanríkisráðherra, í tilefni af upplýsingum sem bandariski vígbúnaðrsérfræðingurinn Wil- liam Arkin veitti ísienskum stjórnvöldum. í yfirlýsingunni voru ekki bornar brigður á sanngildi heim- ilda Arkins, sem greindu frá því að til væri bandarísk forsetaheim- ild til að hingað yrðu fluttar 48 kjarnorkusprengjur á stríðstím- um. Af þessu tilefni hefur Þjóðvilj- inn sent Geir Hallgrímssyni tólf spurningar, með ósk um skjót svör. Spurningum var komið til utanríkisráðuneytisins í gær. Þær eru jafnframt birtar í leiðara Þjóðviljans í dag. Þjóðviljinn mun upplýsa lesendur sína um svör ráðherrans um leið og þau berast blaðinu. _ÖS Vaxandi dagur í gær byrjaði daginn að lengja aftur. Með vaxandi degi eykst lífsmagn í mönnum og dýrum, til að mynda er vitað að kynhorm- ónar og vaxtarhormónar í mörg- um norðlægum fískum margfald- ast eftir að dag tekur að lengja. Nú hafa rannsóknir í Banda- ríkjunum sýnt það sama um okk- ur mannskepnur. Vaxtarhorm- ónar aukast að mun þannig að við vöxum hraðar en áður, og ættum líka að eiga dulítið auðveldara með að megra okkur, því vaxtar- hormónarnir stuðla að niðurbroti fitu. Hár og neglur vaxa miklu hraðar en í skammdeginu en síð- ast en ekki síst geta íbúar hins myrka norðurs farið að elskast aftur því kynhormónarnir aukast með daglengdinni. -ÖS Jóhann Pétursson: sór þess að kaupa ekki meira bækur eftir að ég kom suður en stóð auðvitað ekki við það boðorð. Ljósm. eik. Breytingar Jól meðal manna Jóhann Péturssonfyrrum vitavörður á Horni dvelur nú sínfyrstu jól syðra eftir25 jóla dvöl þar vestra Eg hef haldið 25 jól norður á Hornströndum og líkaði það verulega vel. En svo einkennilegt sem það má þykja þá hef ég nú, þegar ég er kominn hingað suður til Reykjavíkur, enga tilfínningu fyrir því, að hafa nokkru sinni verið þarna norður frá. Ég var brunninn upp á staðnum sem slíkum. Svo mælti Jóhann Pétursson, fyrrverandi vitavörður á Horni, og bætti við: - Ég hef alltaf verið veikur fyrir bókum og lengi lifað í félagsskap með þeim. Rak Bókaverslun Guðmundar Gamalíelssonar á stríðsárunum og vann hjá Helga- felli. Og síst vil ég lasta samlífið með bókunum. Pó var það svo, að í tvennu var ég ákveðinn þegar ég hætti á Horni: í fyrsta lagi að hætta að kaupa bækur og í annan stað að lokast ekki inni í Reykja- vík. En það góða, sem ég vil, það geri ég ekki en hið vonda, sem ég vil ekki, það geri ég, sagði postul- inn Páll. Fyrsta daginn, sem ég var í Reykjavík, rakst ég inn í Klausturhóla, en Guðmundur var þá nýbúinn að kaupa bóka- safn Ragnars heitins Jónssonar, hæstaréttarlögmanns. Ég féll auðvitað fyrir freistingunni og keypti bók. Þar með fauk fyrra boðorðið. Næsta dag var ég far- inn að vinna í Klausturhólum. Og þá fór hið síðara forgörðum. Og nú finnst mér, þegar ég er kom- inn inn í þetta umhverfi á ný, að í raun og veru hafi ég alltaf verið hér. -mhg Jólafrí á þingi Jón Baldvin sveik lit við afgreiðslu fjárlaga Þegar Þjóðviljinn fór í prentun um miðnætti í nótt var alþingi að ljúka störfum fyrir jólaleyfi þingmanna. í gærkveldi voru langar og strangar at- kvæðagreiðslur við 3. umræðu og lokaafgreiðslu fjárlaganna og voru allar tiilögur stjórnarandstöðunnar felldar. Þær gengu flestar út á hærri fjárveitingar til mannúðarmála og samneyslu. Mikla athygli vakti við atkvæða- greiðsluna að nýkjörinn formaður Alþýðuflokksins sat hjá við atkvæða- greiðslu um hærri framlög til dagvist- unarmála og Jón Baldvin var einnig einn stjórnarandstöðuþingmanna í hópi 6 íhaldsþingmanna sem greiddu atkvæði á móti fjárframlagi íslands til UNESCO menningamálastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Þegar Þjóðviljinn fór í prentun var eftir spennandi kosning í bankaráð og nefndir en jólaleyfið mun svo standa til 28. janúar. -óg. Kjarnorkusprengjur MANNLlF MENNING ÍÞRÓTTIR Ríkisstjórnin 14%hækkun á rafmagni Landsvirkjun hefur ákveðið að hækka rafmagnsverð til almenn- ingsveitna um 14% frá og með 1. janúar sl. Segir í frétt frá fyrir- tækinu að ástæðan sé gengisfell- ingin og nýgerðir kjarasamning- ar. Geir Gunnarsson alþingis- maður sagði á Alþingi í gær að hann teldi að taxtar Landsvirkj- unar myndu hækka það mikið á næsta ári að jafngilti 20% hækk- un frá og með nýju ári. Geir sagði við umræðurnar um fjárlög að þrátt fyrir þessa miklu hækkun á seldu rafmagni væri gert ráð fyrir í frumvarpi ríkis- stjórnarinnar að skuldabyrði Rafmagnsveitnanna aukist á næsta ári um 22 miljónir króna. Stofnunin greiði 153 miljónir í af- borganir lána en taki nú lán að upphæð 175 miljónir. I umræðu á alþingi á dögunum kom fram hjá iðnaðarráðherra Sverri Hermannssyni að tölurnar um hækkunarþörf Rarik væru í- skyggilega háar og að ágreiningur hefði verið milli hans og Alberts Guðmundssonar um það hvernig tæka ætti á málunum. Framsóknarflokkurinn sís þjóönýtti aftan frá Karvel Pálmason fór á kostum í þingræðu í fyrrinótt, þegar kvótafrumvarpið var til af- greiðslu. Þingmaðurinn sagði m.a.: Framsóknarflokkurinn og SÍS hafa þjóðnýtt sjávarútveginn aftan frá! Umræður á þinginu stóðu til klukkan fjögur um nóttina og var margt skemmtilegt látið fjúka. Margir þingmanna úr stjórnarlið- inu fengu sér blund en þá áttu þingmenn úr stjórnarandstöð- unni það til að krefjast þess að viðkomandi yrði viðstaddur um- ræðu. Vaknaði þá margur af vær- um blundi. Ófullnægjandi svör Geir Hallgrímsson: Arkin er ekki treystandi. Stjómarandstaban: Svar Bandaríkjastjómar ekki annað en endurtekning á viljayfirlýsingu. Krefjumstýtarlegra og haldgóðra upplýsinga Ekkert kom fram í svari Geirs Hallgrímssonar utanríkisráð- herra annað en það sem þegar hefur komið fram frá bandaríkja- stjórn áður, sögðu stjórnarands- töðuþingmennirnir í gær eftir að hafa hlýtt á Geir Hallgrímsson svara fyrirspurnum Hjörleifs Guttormssonar utan dagskrár á alþingi í gær um svar Bandaríkja- manna við afhjúpun á leyniskja- linu um að kjarnorkuvopn yrðu flutt til íslands á stríðstímum. í svarræðu Geirs Hallgríms- sonar við fyrirspurnum Hjörleifs kom fram, að svarið er frá for- stöðumanni bandaríska sendir- áðsins á íslandi og skrifað í um- boði forseta og ríkisstjórnar Bandaríkjanna. Geir kvað enga þörf vera á lagasetningu um bann við staðsetningu kjarnorkuvopna hér á landi og vísaði síðan til þeirrar „starfsreglu" Nató að játa hvorki né neita tilvist slfkra skjala. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir vitnaði til þess að ráðherrann hefði sagt á þingi fyrr í mánuðinum að hann myndi afla sér „ýtarlegra og haldgóðra upplýsinga og fá þær víða að“. Ekki væri hægt að sjá neitt hald- gott eða ýtarlegt vib svarið sem ráðherrann fékk. Ekkert væri hægt að sannreyna þetta svar, sem í rauninni væri ekki annað en viljayfirlýsing. Guðmundur Ein- arsson kvað ekkert hafa komið fram um sannleiksgildi plaggsins frá Arkin og nú væri þörf á að fá upplýst hvernig hafi verið spurt. Hjörleifur Guttormsson kvað ráðherrann greinilega vera með tunguhaftið frá Nató (játa hvorki né neita) og aðal spurningin væri sú hvort ísland væri með á kjarn- orkuvopnaáætlunum Bandaríkj- anna eða ekki. Geir Hallgríms- son sótti í sig veðrið í lokaræðu sinni og kvað vart að treysta manni einsog Arkin. Staðhæfing- ar hans hefðu með svarinu verið fullkomlega afsannaðar. Athygli vakti að enginn Alþýðuflokks- maður talaði við umræðuna. _óg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.