Þjóðviljinn - 23.01.1985, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 23.01.1985, Blaðsíða 2
FRETTIR Uppsagnir Besta fólkið fer annað Þjóðviljinn rœðir við fiskverkunarkonur í B UR. Hafa verið án atvinnu í4 vikur og fengið 3.800 krónur í bœtur - Hér hafa verið svona 100 kon- ur og 20 karlar atvinnulaus frá 20. desember. Við reiknum með að byrja aftur á föstudaginn. Á þessum tíma höfum við einu sinni fengið grciddar atvinnuleysisbæt- ur, kr. 3.800-. Bæturnar voru um áramótin 583.00 kr á dag og 23.32 kr. með hverju barni, sögðu fisk- verkunarkonurnar í BUR sem Þjóðviljinn ræddi við í gær. Eftir margra ára starf er hægt að reka okkur heim hvenær sem er með viku fyrirvara. Við stund- um ekki þessa vinnu að gamni okkar, eins og sumir virðast halda, telja jafnvel að fólk í fiski sé fegið að fá frí. Öryggisleysið í fiskvinnslunni er óþolandi og hreint ótrúlegt að bjóða fólki sem þó gefur sig í að vinna í fiski, undirstöðuframleiðslunni, að staðaldri upp á svona skilyrði. Öryggisleysið og lágu launin sem boðið er upp á er ekki bara skað- legt fyrir starfsfólkið, heldur líka fyrir atvinnurekendur, vegna þess að duglegasta fólkið, allir sem geta, reyna að komast í aðra vinnu. Það fæst ekkert fólk í fisk til frambúðar upp á þessi býti. Þegar samningarnir voru gerðir í haust þá fengum við 19,6% svo- kallaða kauphækkun, sem var talin allt of mikil en þingmennirn- ir fengu 37% hækkun sem þá hét leiðrétting á kjörum, en ekki kauphækkun. Verkalýðshreyfingin verður að fara að beita sér fyrir afnámi þessa öryggisleysis hjá fisk- vinnslufólki, sögðu fisicverkun- arkonurnar að Jokum. -hágé Þær voru ómyrkar ( máli, fiskverkunarkonurnar í BÚR sem Þjóðviljinn hitti að máli í gær. Ljósm. eik. Uppsagnir Vá fyrir dymm Karl Steinar Guðnason: Hvað œtli stjórnarráðsmenn segðu efþeir vœru sviptir atvinnunni frá miðjum desember og fram í febrúar? í fyrstu viku janúar voru greiddar hér út í atvinnuleysis- bótum um ein og hálf miljón króna. Hér eru rúmlega 600 manns á atvinnuleysisbótum og því miður ekki líkur til þess að ástandið sé að skána, sagði Karl Steinar Guðnason formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur er Þjóðviljinn innti hann álits á stöðu mála þar syðra. - Við höfum miklar áhyggjur af sölu skipa héðan á undanförn- um mánuðum. Þeim hefur fylgt kvóti sem þýðir auðvitað að hér verður minni fiskur til að vinna. - Er ekki von á einhverju í stað- inn? - Nei ég get ekki séð það. Okk- ur er mæta vel ljóst að ef útgerð og fiskvinnslu er haldið niðri þá er vá fyrir dyrum í sjávarplássun- Karl Steinar: Stefna stjórnvalda er að drepa niður sjávarútveginn en leggja áherslu á tuskuverslan- ir og bensínsölur. um. Stefna stjórnvalda virðist vera sú að drepa niður sjávarút- veginn en leggja áherslu á tusku- verslanir og bensínsölur. Það sem er alvarlegast af öllu er að ráða- mönnum virðist nákvæmlega sama um ástandið og telja það beinlínis eðlilegt. Menn líta á vanda sjávarútvegsins, benda á erfiða stöðu í greininni án þess að huga nokkuð að vanda þess fólks sem vinnur í sjávarútveginum. Þegar atvinnuleysið skellur á eru margir sem ekki hafa aðrar tekjur en atvinnuleysisbætur. Hvað ætli þeir segðu í stjórnarráðinu ef þeim væri gert að vera atvinnu- lausir frá miðjum desember og fram í febrúar á hverju ári, eins og fjöldi fólks um allt land verður að sætta sig við? hágé T0RGIB Frostið Varasamt fyrir fjölærar Hún er uppbyggjandi, framtíð- arsýn varaþingmannsins að vestan! Frostið getur hlaupið ansi mikið niður í jörðina ef það verð- ur langvarandi, sagði Hafliði Jónsson garðyrkjustjóri í gær. „Það verður þó aldrei mjög mikill klaki í jörð þegar svo langt er liðið á veturinn. Kuldakastið er varasamt fyrir ýmsar fjölærar plöntur en ekki er teljandi hætta á að tún kali, því svellalög eru ekki á þeim.“ Hafliði Jónsson sagði að sjálf- sagt væri að hlífa gróðri eins og hægt væri fyrir þessu kuldakasti. „Þetta er varasamt fyrir þykk- blöðunga sem eru safamiklir allt árið t.d. alls konar hnoðra. Gott er að velja dagblöð í stöngla um plönturnar og vatnsverja síðan með plasti." (Þá er hægt að lesa blöðin aftur í vor!) -JP 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 23. janúar 1985 Uppsagnir Kauptryggingin einskis virði Jón Kjartansson: Hráefnisskorti er borið við eins og venjulega þegar fiskvinnslufólk er rek- ið fyrirvaralaust heim Þrjú stærstu frystihúsin í Vestmannaeyjum hættu að taka á móti flski samtals í einn mánuð á sl. ári. Fyrst í kring um þjóðhátíð (10-12 vinnudaga) og síðan aftur í haust í hálfan mánuð, sagði Jón Kjartansson formaður Verka- lýðsfélags Vestmannaeyja m.a. í viðtali við Þjóðviljann í gær. - Hver var tilgreind ástæða? - Hráefnisskortur eins og venjulega. Réttleysi fiskverkun- arfólks er átakanlegt og fullkomið siðleysi að það er rekið heim með viku fyrirvara vegna hráefnisskorts sem frystihúsin ákveða sjálf, þegar togararnir eru látnir sigla með aflann. Hér hefur vandinn verið heimatilbúinn þar sem ekki hefur vantað kvóta. Fólk er með öðrum orðum rekið heim og geymt þar svo lengi sem hinum háu herrum þóknast. - Gefst kostur á annarri vinnu? - Nei, konurnar, þeir sem látn- ir eru fara eru jú að langmestu leyti konur, verða bara að bíða þangað til kallið kemur. Kauptryggingarsamningurinn er einskis virði, eins og honum hef- ur verið beitt.Hér eru brotin öll lög guðs og manna þegar afla- hrotur eru. I plássum þar sem allt byggist á fiski, eru allir tilbúnir að bjarga afla frá skemmdum. Vinn- utíminn verður þá kannski sextán tímar á dag, alla sjö daga vikunn- ar. \ Jón Kjartansson: Togararnir sigla með aflann að geðþótta útgerðarinn- ar og landverkafólkið svipt lífsbjörg- inni. - Hvað viltu segja um ráðningu erlends verkafólks til fiskvinnslu? - Það er ekkert vit í að sópa útlendingum inn í landið til fisk- vinnu meðan svona er ástatt. Nær væri, að eitthvað af þeim fjár- munum, sem þetta kostar færi til að tryggja jafnari vinnu og létta þá um leið á atvinnuleysistrygg- ingarsjóði. Þess utan eru svo að- stæður sem erlendu verkafólki er boðið upp á hér fyrir neðan allar hellur. hágé.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.