Þjóðviljinn - 23.01.1985, Qupperneq 3
FRETTIR
Kísilmálmverksmiðjan
Samningar að hefjast
Bandarískt fyrirtæki mun tilbúið til kaupa á 25% hlut.
Einnig hefur Elkem Spigelverket sýnt áhuga á eignaraðild
Um miðjan febrúar hefjast
samningar milli íslendinga og
bandaríska fyrirtækisins Dow
Corning um byggingu kísil-
málmverksmiðju á Reyðarfirði.
Mun bandaríska fyrirtækið vera
tilbúið til 25% eignaraðildar að
fyrirtækinu. Þá hefur Elkcm
Spigelvcrket í Noregi sýnt áhuga á
eignaraðild.
Þetta kom fram hjá Sverri
Hermannssyni iðnaðarráðherra í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Sagði Sverrir að samningar yrðu
áreiðanlega ekki auðveldir og
alltaf spuming hvað við treystum
okkur til mikils varðandi orku-
verð.
Þá sagði iðnaðarráðherra að ef
samningar tækjust fyrir mitt þetta
ár, mætti gera ráð fyrir að verk-
smiðjan gæti tekið til starfa 1987/
1988. Þess má geta í þessu sam-
bandi að öllum undirbúnings-
rannsóknum og arðsemisútreikn-
ingum er fyrir löngu lokið, þeir
vom gerðir í tíð Hjörleifs Gutt-
ormssonar sem iðnaðaráðherra.
Þá hefur einnig verið gerður
samningur um vélakaup fyrir
verksmiðjuna og er hann talinn
mjög hagstæður. Þessi hagstæðu
kjör standa verksmiðjunni til
boða fram til 1. janúar 1986.
Verði ekki búið að ganga frá
kaupsamningi þá, fellur þetta
hagstæða tilboð úr gildi.
- S.dór
Vegir
Bílfært
vestur á
firði
Þetta er algert einsdæmi. Yfir-
leitt höfum við þurft að hætta að
aka í endaðan nóvember en nú
hefur verið fært í allan vetur og
við höfum ekki þurft að setja á
keðjur nema rétt fyrir þann hluta
af Þorskafjarðarheiði sem enn er
ekinn. Þetta sagði Ármann Leifs-
son flutningabflstjóri frá Bolung-
arvík sem var að leggja af stað
með Akraborginni um miðjan
dag í gær áleiðis til Bolungarvík-
ur.
Sl. haust var tekinn í notkun
hinn nýi vegur yfir Steingríms-
fjarðarheiði en þó verður enn að
aka inná gamla Þorskafjarðar-
heiðarveginn að hluta. Ármann
sagðist binda miklar vonir við
nýja veginn og vonast til að hægt
verði að halda honum opnum all-
an veturinn í framtíðinni.
Kristinn Jónsson hjá Vegagerð
ríkisins á Vestfjörðum sagði í
samtali við Þjóðviljann að þessi
vetur hingað til hefði verið sá
snjóléttasti í 50-60 ár. Menn
myndu eftir svipuðu á árunum
1928-1934. Það hefði aldrei kom-
ið fyrir áður að akfært væri vestan
af fjörðum til Reykjavíkur í janú-
armánuði.
- GFr
Bílstjórarnir Ármann Leifsson og Björn Finnbogason frá Ðolungarvík að leggja
í hann um borð í Akraborginni í gær: Algert einsdæmi að akfært sé vestur í
þessum mánuði. Ljósm.ieik
----■ /
Almannavarnir
Kjamorkuárás
á Stokksnes
Almannavarnir gerðu stjórnstöðvarœfingu í
desember s. I. þar sem œfð var kjarnorkuárás
á ratsjárstöðina á Stokksnesi.
Fólkið flutt á brott með 3 klst. fyrirvara.
Almannavarnir ríkisins héldu
æfingu í A-Skaftafellssýslu í des-
ember síðastliðnum, þar sem æfð
var stjórnun á brottflutningi alls
fólks af svæðinu vegna yfirvof-
andi kjarnorkuárásar á ratsjár-
stöðina á Stokksnesi. „Hér var
um stjórnstöðvaræfingu að
ræða“, sagði Árni Kjartansson
byggingafulltrúi á Höfn, en hann
á sæti í stjórn almannavarna á
svæðinu.
„Þær forsendur voru gefnar",
sagði Árni, „að um hótun væri að
ræða og að 3 klukkustunda fyrir-
vari gæfist til þess að flytja fólkið
burt af svæðinu. Gert var ráð
fyrir 120 kílótonna kjarnorku-
sprengju. Það voru Álmanna-
varnir ríkisins sem áttu frum-
kvæðið að æfingunni og veittu öll
gögn og upplýsingar, en æfingin
beindist að því að þjálfa viðbrögð
stjórnenda við þessar aðstæður.“
Hafa farið fram almannavarn-
aæfingar hjá ykkur vegna eldgosa
og flóðahættu úr jöklinum?
„Nei, en fyrir þrem árum var
hér umfangsmikil æfing þar sem
sett var á svið flugslys við Horna-
fjarðarflugvöll. Við höfum hins
vegar ekki æft Öræfagos ennþá,
en það væri óneitanlega meira
aðlaðandi verkefni."
Eru ratsjársvæðin talin hættu-
svæði af almannavörnum ríkis-
ins?
„Já, það hrellir mann óneitan-
Iega, en það kom berlega fram í
máli fulltrúa Almannavarna
meðan á þessu stóð að fyrsta að-
gerð í ófriði yrði sú að flytja brott
fólk frá ratsjárstöðvasvæðunum.
Ef setja á net af slíkum stöðvum
yfir allt landið geta menn glögg-
íega séð hvaða þýðingu þetta hef-
ur. Annars hef ég litla trú á að við
fáum þriggja klukkustunda frest
við þessar aðstæður og ég held að
sprengjan yrði varla svona lítil.“
- ólg.
Alþýðubandalagið
Fjörugur fundur
á Isafirði
Svavar Gestsson og Vilborg Harðardóttir
héldu um helginafundi ogfóru á vinnustaði á
Vestfjörðum
Formaður og varaformaður
Alþýðubandalagsins, þau Svavar
Gestsson og Vilborg Harðardótt-
ir, voru á Vestfjörðum um helg-
ina og fóru á vinnustaði og stofn-
anir í Bolungarvik, Súðavík og á
ísafirði. Á síðasttalda staðnum
voru þau svo framsögumenn á al-
mennum fundi á Hótel Isafirði og
voru á honum um 60 manns.
Á hinum fjölmenna fundi á
Hótel ísafirði þótti til tíðinda að
enginn fundarmanna reykti -
reykfrír fundur án þess að kæmi
til bein samþykkt um bann við
reykingum. Að sögn fróðra
manna er slíkt algert einsdæmi að
slíkir fundir séu reyklausir og
þykir þetta sýna mátt áróðursins
fyrir tóbaksvörnum. Þess er og
minnst að tóbaksvarnarnefnd sú
sem bjó frumvarpið úr garði fyrir
alþingi, var skipuð í heilbrigðis-
ráðherratíð Svavars Gestssonar.
Fundurinn stóð í á þriðja tíma, og
blótaði enginn tóbaksgoðið á
laun svo vitað sé.
Á fimmtudaginn heldur Al-
þýðubandalagið fund í Þorláks-
höfn þarsem Svavar Gestsson og
Margrét Frímannsdóttir hafa fra-
msögu.
- óg/GFr
Miklar umræður spunnust á fundi Alþýðubandalagsins á Hótel isafirði en þar höfðu framsöqu Svavar Gestsson og
Vilborg Harðardóttir. Ljósm. GFr.
Miðvikudagur 23. janúar 1985 ÞJÓÐVILJINN - siÐA 3