Þjóðviljinn - 23.01.1985, Síða 13
FRÉTTASKÝRING
Orkumál
Fjárfestingabaggi þrystihópanna
Landsvirkjun vildi byggja nýja Búrfellsvirkjun 1983. Taldi 60%
Orkan frá Sultartanga og Kvíslaveitum enn óseld og verður ekki seld
af afgangsorku stóriðjunnar forgangsorku.
nœstu 3-4 árin. Kostnaður 350 miljónir á ári.
Þeir forsvarsmenn orkuveldis-
ins sem risið hafa upp til varnar
gegn ásökunum Finnboga Jóns-
sonar um offjárfestingu í
vatnsaflsvirkjunum Landsvirkj-
unar hafa gjarnan bent á að ekki
sé hægt að fínna mannvirki fyrir
þá upphæð (um 4 miljarða kr.)
sem Finnbogi hefur nefnt í þessu
sambandi, sem taka mætti úr
rekstri. (Sbr. grein Jónasar Elías-
sonar stjórnarformanns Orku-
stofnunar í DV 16. jan.)
orðum: „Það fer víst ekki lengur
framhjá neinum, að nauðsynleg-
asta úrbót í orkumálum sé að gefa
hæstvirtum iðnaðarráðherra frí
frá störfum.“ í sömu umræðu
lögðu þeir Birgir ísleifur Gunn-
arsson (S), Magnús Magnússon
(A), Sigurður Oskarsson (S), og
Pétur Sigurðsson (S) áherslu. á
nauðsyn þessara framkvæmda og
Gunnar Thoroddsen þáverandi
forsætisráðherra lýsti því yfir við
sömu umræðu að gengið væri út
ert Briem framkvæmdastjóra
segir meðal annars: „Nauðsyn-
legur þáttur hinna orkuaukandi
framkvæmda á Þjórsársvæðinu er
stækkun Búrfellsvirkjunar, og er
brýnt að lagaheimild fáist hið
fyrsta. An stækkunar Búrfells
yrði ekki svigrúm til aukinnar
orkusölu til stóriðju næstu sex
árin, jafnvel þótt reiknað sé með
Blönduvirkjun í árslok 1987.“
Hin áformaða stækkun Búr-
fellsvirkjunar, sem einnig hefur
BLADIÐ, LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981
yy
Ejp[gert Haukd.il, alþingismaður:
Kappið við að drepa allt
í dróma í orkumálum...“
Var bréf iðnaðarráðherra samþykkt af ríkisstjórninni?
Eggert Haukdal (S), scm telst stuðningsmaður núverandi ríkisstjórnar, veittist harkalega ad orkr
ráðherra, lljörlcifí Guttormssyni, I umrædu utan dagskrár í neðri dcild Alþingis í gær, cr hugsaalef*
framkvæmdatilhögun við Sultartangastífíu bar á góma, vegna fyrirspurnar Sigurðar Óskarssonar (S^
Eggcrt lauk ræðu sinni með þessum orðura: „Það fer víst ekki lengur framhjá neinum, að nauðsyaleg-
asta úrbót í orkumálum sé að gefa hæstvirtum iðnaðarráðherra frí frá störfum.“
Landsvirkjun og
þrystihoparnir
Þegar forsaga þessa máls er
rakin sést að stjórnendur Lands-
virkjunar hafa ávallt þrýst á
stjórnvöld um stöðugt auknar
fjárfestingar í vatnsaflsvirkjun-
um. Ljóst er að fyrir þeim hefur
vakað stóraukinn hlutur orkufr-
eks iðnaðar í íslensku atvinnulífi
og þar með stóraukinn hlutur
orkuvinnslufyrirtækjanna í þjóð-
arbúskapnum. Á sömu sveif hafa
þau öfl lagst sem gengu fram fyrir
skjöldu við að rjúfa þá þjóðar-
einingu sem Hjörleifur Gutt-
ormsson reyndi að mynda hér á
landi við afhjúpun viðskipta-
samninganna við Alusuisse. Það
eru þau öfl í íslensku þjóðfélagi
sem telja að afhenda eigi út-
lendum stórfyrirtækjum burðar-
ás íslensks atvinnulífs. Á sömu
sveif hafa einnig lagst þeir þing-
menn og þrýstihópar sem ekki
hafa séð út fyrir landamörk síns
kjördæmis og heimtað virkjanir í
sitt kjördæmi til þess að skapa
vörubílstjórum og verktökum at-
vinnu á kostnað þjóðarinnar.
Fjárfestinga-
bagginn
Ekki verður annað séð en að
þessum öflum hafi í sameiningu
tekist að hnýta þjóðinni þann
bagga sem nemur 30% af rafork-
uverði Landsvirkjunar í dag, en
það er sú tala sem Halldór Jónat-
ansson framkvæmdastjóri Lands-
virkjunar nefndi hér í Þjóðviljan-
um sem hlut umframorkunnar í
raforkuverðinu. Er þá ótalinn sá
skattur sem á raforkuneytendur
er lagður með niðurgreiðslum á
raforkunni til Alusuisse. Verði
uppljóstranir Finnboga Jóns-
sonar til þess að núgildandi stefna
verði tekin til endurskoðunar á
hann heiður og þökk fyrir fram-
takið.
ólg.
í yfirheyrslu í sama blaði 18.
janúar segir Finnbogi: „Sultar-
tangastífla og Kvíslaveitufram-
kvæmdir kostuðu á árunum 1982-
84 um 50 miljónir Bandaríkja-
dala eða rúmlega 2 miljarða mið-
að við núgildandi gengi.
Þessar framkvæmdir hafa gefið
um 300 gígawattstundir í aukinni
orkuvinnslugetu og er öll sú orka
enn óseld og verður ekki seld
næstu 3-4 árin... Sé miðað við
12% vexti og 20 ára afborgunar-
tíma lána vegna þessara fram-
kvæmda má ætla að afborganir og
vextir á þessu ári nemi 350 milj-
ónum króna... Það jafngildir að
raforkuverð á árinu 1985 sé tæp-
um 26 aurum hærra á kílówatt-
stundina en ella. Samkvæmt
þessu hækka Sultartangastífla og
Kvíslarveituframkvæmdir raf-
orkuverðið á þessu ári um 25%,
sem er því næst helmingi meira en
öll síðasta raforkuverðshækk-
un.“
Upphlaup á
Alþingi
í ljósi þessara upplýsinga Finn-
boga er fróðlegt að rifja upp
hvernig ákvarðanir voru teknar
um ofangreindar framkvæmdir
og á hvaða forsendum þær voru
byggðar.
Samkvæmt upplýsingum sem
Þjóðviljinn hefur aflað sér fór
stjórn Landsvirkjunar fram á það
í bréfi til þáverandi iðnaðarráð-
herra, Hjörleifs Guttormssonar
20. október 1981 að leyfi yrði
veitt til að hefja framkvæmdir við
Sultartangastíflu.
í svarbréfi ráðuneytisins frá 16.
desember er óskað eftir frekara
mati Landsvirkjunar á orkuþörf á
árunum 1982-84 í ljósi breyttra
viðhorfa, þar sem horfur séu á
„að ekki komi til nýr umtalsverð-
ur stórnotandi í orkukerfinu fyrr
en þá á seinni hluta ársins 1984“.
Strax daginn eftir undirritun
bréfs ráðuneytisins til Lands-
virkjunar efndi Eggert Haukdal
til mikils upphlaups utan dag-
skrár á Alþingi þar sem hann
veittist harkalega að Hjörleifi
Guttormssyni vegna þeirra efa-
semda sem ráðuneytið hafði látið
í ljós um nauðsyn byggingar Sult-
artangastíflu á árinu 1982. Lauk
Eggert ræðu sinni með þessum
frá því að framkvæmdir við stífl-
una hæfust vorið 1982.
Þrýstingur
Landsvirkjunar
f svarbréfi Landsvirkjunar til
ráðuneytisins frá 4. jan. 1982
segir að niðurstaða verkfræði-
deildar Landsvirkjunar sé sú, að
komast megi af veturinn 83/84 án
skerðingar afgangsorku
(undirstr. Þjv.) þótt Sultar-
tangastíflu njóti ekki við, enda
verði orkuframleiðslan ekki fyrir
neinum ófyrirséðum áföllum.
Hins vegar telji stjórn Lands-
virkjunar „æskilegt að ljúka stífl-
unni 1983 svo að rekstraröryggi
og raforkuframboð í landskerf-
inu verði sem best tryggt“. Bréfið
er undirritað af Jóhannesi Nordal
stj órnarf ormanni.
Iðnaðarráðuneytið veitir síðan
heimild til þess að ráðist verði í
framkvæmdir við stífluna með
bréfi dagsettu 8. janúar 1982, þar
sem vísað er til röksemda í bréfi
Landsvirkjunar frá 4. janúar.
Stækkun Búrfells-
virkjunar
í greinargerð sem Landsvirkj-
un sendi iðnaðarráðuneytinu 13.
apríl 1982 um framkvæmdaþörf
og rekstraröryggi í hinu samteng-
da langskerfi á tímabilinu 1982-
88 er enn ítrekuð nauðsyn stór-
aukinna framkvæmda á vegum
Landsvirkjunar. Þar gerir stjórn
Landsvirkjunar það meðal ann-
ars að tillögu sinni að gildandi
lögum um raforkuver (nr. 60/
1981) verði breytt á þann veg að
Landsvirkjun verði heimilað að
stækka Búrfellsvirkjun í allt að
350 MW afl samhliða þeim ork-
uaukandi aðgerðum á Þjórsár-
svæðinu sem lögin þá gerðu ráð
fyrir. í þessari greinargerð, sem
undirrituð er af þeim Jóhannesi
Nordal stjórnarformanni og Egg-
verið nefnd Búrfell II, er í raun-
inni sjálfstæð virkjun sem að afli
nemur 140 megawöttum og var
kostnaður hennar áætlaður 962
miljónir króna á verðlagi ársins
1982. Virkjun þessi á að gefa um
260 gwst. á ári. Samkvæmt áætl-
unum Landsvirkjunar áttu fram-
kvæmdir við þessa virkjun að
hefjast vorið 1983 og gangsetning
fyrri aflvélar átti að geta orðið
fyrir áramót 1986.
„Umframgetuskilyrði“
og afgangsorka
Eins og mönnum er kunnugt
hefur stækkun Búrfellsvirkjunar
ekki verið heimiluð. Engu að
síður situr Landsvirkjun uppi
með 700-750 gígawattstunda um-
framorkugetu nú að mati Finn-
boga Jónssonar. Jóhannes Nor-
dal hefur hins vegar sagt að hann
telji umframorkugetuna vera 450
gígawattstundir og hefur hann þá
dregið frá tölum Finnboga þær
250 gwst. sem stjórn Landsvirkj-
unar kallar „umframgetuskil-
yrði“, sem geymd séu á kerfinu til
þess að mæta óvæntum áföllum
og/eða afgangsorkuþörf stóriðj-
unnar.
í umræddri skýrslu Landsvirkj-
unar til iðnaðarráðuneytisins frá
13. apríl 1982 er gert ráð fyrir því
að umsamin forgangsorkusala til
stóriðju sé 250 gwst. meiri á ári en
samningar kveði á um og er það
rökstutt með því að líta verði á
60% umsaminnar sölu á afgang-
sorku til stóriðjunnar sem for-
gangsorku og haga fjárfestingum
samkvæmt því. Þessi skilningur
stjórnenda Landsvirkjunar bygg-
ist á þeim samningum sem Lands-
virkjun hafði gert við ísa! og
Járnblendi-
verksmiðjuna um afhendingu af-
gangsorku, þar sem kveðið er á
um að skerða megi hármarksaf-
hendingu afgangsorkunnar um
50% í einstöku ári, 40% yfir
hvert samfellt fjögurra ára tíma-
bil og 20% að meðaltali reiknað
yfir 20 ára tímabil.
Á það hefur verið bent að þeg-
ar stjórnendur Landsvirkjunar
sömdu við stóriðjufyrirtækin um
afhendingu afgangsorku þá var
ekki gert ráð fyrir því að ráðast
skyldi í sérstakar virkjanafram-
kvæmdir hennar vegna.
Miðvikudagur 23. janúar 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
UTBOÐ
STEINULLAR
VERKSMIÐJAN HF.
SAUÐÁRKRÓKI
AUGLÝSIR
EFTIRFARANDI
ÚTBOÐSVERK6
PÍPULAGNIR OG TÆKI
ÚTBOÐSVERK7
LOFTRÆSTIKERFI
ÚTBOÐSVERK8
RAFLAGNIR
Útboðsgögn fyrir útboðsverk 6 og út-
boðsverk 7 fást afhent á skrifstofu
Fjölhönnunar hf., Grensásvegi 8,
Reykjavík og á Bæjarskrifstofu Sauð-
árkróks frá og með 22. janúar 1985.
En útboðsgögn 8 fást á skrifstofu
Rafteikningar hf. Borgartúni 17,
Reykjavík og á Bæjarskrifstofu Sauð-
árkróks frá og með 25. janúar 1985.
Skilatrygging er kr. 1.000.
Tilboðum skal skilað á sömu staði,
eigi síðar en kl. 14.00 þriðjudaginn 12.
febrúar 1985. Og verða þau opnuð
samtímis að viðstöddum þeim bjóð-
endum, sem þess óska.
STEINULLARVERKSMIDJAN HF
BJARNIDAGUR/AW3L TEKMSTOfA