Þjóðviljinn - 23.01.1985, Side 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
UODVIUINN
Miðvikudagur 23. janúar 1985 18. tölublað 50. árgangur
Fjárhagserfiðleikar
Sædýrasafnið lagt niður
Safnið tapaði gerðardómsmáli í Bandaríkjunum vegna höfrungasölu
sem er mikið fjárhagslegt áfall. Líkur á að safnið verði gert að laxeldisstöð
Það er ekkert launungarmál að
við stefnum að því að leggja Sæ-
dýrasafnið niður. Fjárhagsstað-
an er með þeim hætti að þessu
verður ekki haldið áfram. Við
töpuðum gerðardómsmáii vestur
í Bandaríkjunum, varðandi söiu
á háhyrningi og fórum illa útúr
því máli og má segja að það hafi
orðið til þess að við verðum að
leggja niður laupana, sagði Hörð-
ur Zophaníasson stjórnarfor-
maður Sædýrasafnsins í samtali
við Þjóðviljann í gær.
Umboðsmaður Sædýras-
afnsins við sölu á háhyrningum
fór með eitt dýr úr landi og seldi
það fyrir vestan án þess að láta
stjórnarmenn safnsins vita. Þetta
töldu þeir brot á öllum samning-
um og þar með væri hann úr gildi
og kröfðust þess. í framhaldi af
því höndluðu þeir eins og þeir
væru lausir við samninginn. Fyrir
dómi var brot umboðsmannsins
viðurkennt, en ekki talið nægi-
legt til að rifta samningnum. Þar
með lenti safnið í klemmu fyrir að
hafa selt hvalinn öðruvísi, og tap-
aði stórfé.
Hörður sagði að enn lægju
reikningar safnsins ekki fyrir,
þannig að hægt væri að segja til
um hve skuldir væru miklar, en
þær næmu mörgum miljónum. Á
móti kæmi að vísu að safnið á
eignir uppá miljónir, bæði dýr
sem hægt er að selja og húsnæði í
safninu.
Sagði hann að óformlegar við-
ræður hefðu átt sér stað um að
laxeldisstöð myndi kaupa fast-
eignirnar, en ekkert væri ákveðið
í því máli. Ekki vildi Hörður
segja hvaða stöð það er.
- S.dór
Nú fer hver að verða síðastur að heimsækja Sædýrasafnið í Hafnarfirði en safnið skuldar nú margar miljónir króna. Ljósm. eik.
Nýbygging
Útboð
Stórtiýsi
á
Suðurgötu 7
Á Suðurgötu 7 (fyrir ofan
Tjarnarbíó) mun væntanlega rísa
5 hæða hús, alls 5000 fermetrar,
áður en langur tími líður. Áður.
var lítið timburhús á lóðinni en
það var flutt í Árbæjarsafn fyrir
um tveimur árum; fékkst ekki
friðað á staðnum.
Þann 8. janúar samþykkti
borgarráð byggingu stórhýssins
en málinu var frestað í byggingar-
nefnd skömmu síðar, því nánari
hæðarafstöðu húss og nágranna-
lóða vantaði. Húsin á nágrannal-
óðunum hafa verið helsta vand-
amálið því slökkviliðið kemst
ekki að þeim ef stórhýsið verður
byggt. Slökkviliðsstjóri hefur nú
samþykkt nýja leið að þeim hús-
um: að brotinn verði niður
steyptur veggur við Tjarnarbíó
þannig að greið leið verði frá
Tjarnargötunni.
Málþóf hefur verið um þessa
lóð og byggingu á henni í nokkur
ár. Ingimundur Sveinsson arki-
tekt teiknar húsið sem borgarráð
hefur nú samþykkt. Jens P.
Hjaltested á umsóknina um
byggingu íbúðar- og verslunar-
húss á staðnum.
-jp
SH hagnast um 67 miljónir
Farmgjöldin hafa lœkkað á Rússlandsflutningunum um 31 miljón
króna en 36 miljónir til V-Evrópu. Eftir er að skoða tilboð íflutning-
ana til Bandaríkjanna
Þau útboð í farmgjöld á fisk- með lægsta tilboðið. Ekkierbúið og því sagðist Guðmundur ekki hve lækkunin yrði mikil þar.
flutningum til V-Evrópu og So- að skoða tilboðin niður í kjölinn geta á þessari stundu sagt til um - S.dór
vétríkjanna sem Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna lét gera á síð-
asta ári lækkuðu farmgjöldin um
samtals 67 mi|jónir króna miðað
við það sem greitt var fyrir flutn-
ingana áður en útboðin voru
gerð.
Þessar upplýsingar fékk Þjóð-
viljinn í gær íyjá Guðmundi H.
Garðarssyni fulltrúa hjá SH.
Sagði Guðmundur að þessar
tölur miðuðust við það allra hag-
stæðasta í tilboðunum.
Hér er um að ræða flutning á
16.500 lestum af frystum fiski til
Rússlands og næmi fargjalda-
lækkunin á þeim 31 miljón króna.
Til V-Evrópu er miðað við 20
þúsund iestir og nemur lækkun á
farmgjöldum þangað 36 miljón-
um króna.
Þá er allur flutningur til Banda-
ríkjanna eftir en þar er um að
ræða 40 þúsund lestir af frystum
fiski. Nýlega voru opnuð tilboð
frá mörgum skipafélögum í þá
flutninga og skipafélagið Víkur
Sjávarútvegur
Greiðslur undirborðið
Duldar yfirborganir til sjómanna. Samt segist LÍÚ ekki geta greitt
hœrra kaup og leggur til kauplœkkun
A sama tíma og Landssamband
ísl. útvegsmanna neitar öllum
kjarabótum til handa sjómönnum
og leggur til kauphækkun, eins og
formaður Sjómannasambandsins
túlkar tilboðið, tíðkast yfirborg-
anir til sjómanna vítt og breitt um
landið. Þjóðviljinn hefur fengið
það staðfest að þessar yfirborg-
anir sem eru 100 kr. á 1 tonn á
hvern skipverja hafa verið í gangi
allt síðan í sumar.
Ólafur Rögnvaldsson fram-
kvæmdastjóri hjá Rifsnesi h.f. á
Rifi var í fyrstu tregur til að viður-
kenna þetta í samtali við Þjóðvilj-
ann en sagði svo að kjör sjó-
manna í haust hefðu verið með
þeim hætti að þau hefði orðið að
bæta og var það gert með þessari
yfirborgun.
Kristján Guðmundsson út-
gerðarmaður á Snæfellsnesi sagði
fátt um málið til að byrja með, en
sagði svo: „Hafi ég greitt þeim
eitthvað meira, hafa þeir áreið-
anlega unnið fyrir því“.
Ragnar Ólsen hjá útgerð Sig.
Ágústssonar á Rifi vildi ekki
kalla þetta yfirborgun, hann
sagði að sjómenn hefðu flokkað
og þvegið fiskinn og fengið greitt
fyrir það. En sem kunnugt er þá
ber sjómönnum að flokka
fiskinn, þannig að auðvitað er um
hreinar yfirborganir að ræða.
- S.dór