Þjóðviljinn - 01.02.1985, Blaðsíða 3
Norðausturland
Friðarfundur
um ratsjárstöð
Friðarhreyfíng Þingeyinga
gengst um næstu helgi fyrir al-
mennum héraðsfundum á Þórs-
hðfn, Raufarhöfn og Kópaskeri
um áhrif ratsjárstöðvar á Norð-
austurlandi.
Geir Hallgrímssyni utanríkis-
ráðherra og Áma Hjartarsyni
jarðfræðingi, formanni Samtaka
herstöðvaandstæðinga, hefur
verið boðið á Þórshafnarfundinn
og hafa þar framsögu.
Að loknum framsöguræðum
verða fyrirspurnir og almennar
umræður.
Héraðsfundirnir verða á eftir-
töldum stöðum: Þórshöfn: Fé-
lagsheimilinu Þórsveri, laugard.
2. feb. kl. 14, Raufarhöfn: Fé-
lagsheimilinu Hnitbjörgum,
sunnud. 3. feb. kl. 15, Kópasker:
í Barnaskólanum, sunnudags-
kvöld 3. feb. kl. 20.30.
Nauðungaruppboð
Undir-
skriftir á
Húsavík
Fjöldi húsvískra íbúðabyggj-
enda stendur nú frammi fyrir
gjaldþroti og uppboði húseigna
sinna. Fyrstu uppboðin hafa þeg-
ar verið auglýst. Mikil reiði er
meðal margra bæjarbúa vegna
þessara mála sem íbúðaeigendur
segja alfarið á ábyrgð stjórnvalda
og bankayfirvalda á staðnum sem
ekki hafí staðið við áður gefín lof-
orð um framlengingu lána og
skuldbreytingar.
í gær var hafin undirskriftaher-
ferð í bænum þar sem segir m.a.
að fjöldi húsbyggjenda eigi yfir
höfði sér eignasviptingu. „Við
undirritaðir Húsvíkingar lýsum
yfir ábyrgð á hendur stjórnvöld-
um fyrir sofandahátt í þessum
mikilvæga málaflokki. Með
undirskrift okkar hér á þennan
lista viljum við hvetja
stjórnmálamenn til þess að taka á
þessum málum þannig að afstýra
megi því óláni og ógæfu sem hús-
byggjendur standa nú frammi
fyrir. Krafa okkar er að nú strax
verði skammtímalánum breytt í
langtímalárí', segir í undirskrift-
askjalinu sem hefur fengið góðar
viðtökur bæjarbúa. _ |g
FRÉTTIR
Samvinnuferðir-Landsýn
Agóðinn endurgreiddur
Öllumfarþegum Samvinnuferða-Landsýnar í áhœttuhópferðum 1984
endurgreiddur 1000 kr. viðbótarafsláttur vegna góðrar nýtingar á gistingu
Stjórn Samvinnuferða-Land-
sýnar hefur ákveðið að endur-
greiða öllum farþegum hinna
svokölluðu „áhættuferða" ferð-
askrifstofunnar á síðasta ári sér-
stakan viðbótarafslátt vegna
óvenju góðrar afkomu. Nemur
afslátturinn 1000 krónum fyrir
fullorðna og 500 kr. fyrir börn
fyrir alla farþega skrifstofunnar í
hópferðum til Rimini, sumarhúsa
í Danmörku, sæluhúsa í Hollandi,
Grikklands og Dubrovnik í Júgó-
slavíu.
í fréttatilkynningu Samvinnu-
ferða-Landsýnar segir að verð-
lagning „áhættuferðanna“ sé
miðuð við ákveðna nýtingu á
ákveðnum fjölda leiguflugferða
og gistiaðstöðu sem greidd er
fyrirfram af ferðaskrifstofunni.
Nýting á þessum ferðum síð-
astliðið sumar fór svo langt fram
yfir bjartsýnustu spár, að stjórn
fyrirtækisins hefur nú ákveðið að
leiðrétta verðlagningu þessara
ferða með ofangreindum hætti.
Farþegar í ofangreindum ferðum
geta nýtt sér afsláttinn til frá-
dráttar í hópferðum komandi
sumars, en gefist ekki tækifæri til
utanlandsferðar í ár mun afslátt-
urinn verða endurgreiddur í
reiðufé á tímabilinu 1. september
til 31. desember í ár. Öllum farþ-
egum ferðaskrifstofunnar í ofan-
greindum ferðum á síðasta sumri
hefur verið sent bréf þar að lút-
andi.
Stjórn Samvinnuferða-Land-
sýnar er skipuð fulltrúum verka-
lýðsfélaga og Landssambands
samvinnustarfsmanna, sem eru
eigendur ferðaskrifstofunnar.-ólg
Umferðin
Fylgst með
Ijósabunaði
Lögreglan og starfsmenn Bif-
reiðaeftirlitsins hafa fylgst náið
með Ijósabúnaði bifreiða í
skanundegisumferðinni síðustu
daga og stöðvað þær bifreiðar
sem ekki hafa haft öll Ijós í lagi.
„Ljósabúnaðinum virðist vera
dálítið ábótavant núna og við
höfum þurft að stöðva þó nokkuð
af bifreiðum“, sagði Sigþór
Steingrímsson hjá Bifreiðaeftir-
litinu. Hann sagði að öku-
mönnum væri gefinn viku til 10
daga frestur til að koma ljósunum
í lag og mæta þá með bílinn í
aukaskoðun. „Þetta er aðallega
trassaskapur en aukið eftirlit ýtir
við mönnum“, sagði Sigþór,- lg.
Brunabót
íslensk uppfinning heiðmð
4 hlutu heiðurslaun á sviði lista, vísinda, uppfinninga- og öryggismála
r
Arni M. Mathiesen, dýra-
læknir, Birgir Dýrfjörð, raf-
virki, Hannes Hafstein, fram-
kvæmdastjóri, og Kristinn Sig-
mundsson, óperusöngvari, hlutu
heiðurslaun Brunabótafélags Is-
lands árið 1985 og fór afhending
launanna fram við hátíðlega at-
höfn á Hótel Loftleiðum í gær.
Árni M. Mathiesen hlaut
heiðurslaun í 5 mánuði í því skyni
að afla sér sérþekkingar á sviði
fiskisjúkdóma. Birgir Dýrfjörð
hlaut heiðurslaun í 2 mánuði í því
skyni að fullgera varnarbúnað
gegn hélu- og móðumyndun á bfl-
rúðum. Hannes Þ. Hafstein hlaut
heiðurslaun í 2 mánuði í því skyni
að afla sér þekkingar á skipulagn-
ingu öryggismála sjómanna og
leitar á sjó. Kristinn Sigmunds-
son hlaut heiðurslaun í 3 mánuði í
því skyni að halda áfram söng-
námi erlendis.
í stuttri ræðu sem Ingi R.
Helgason forstjóri B.í. hélt við
afhendingu heiðurslaunanna
kom m.a. fram að þetta væri í
fjórða sinn sem heiðurslaunum
væri úthlutað en alls hefðu um 37
umsóknir borist. Megintilgangur
heiðurslaunanna væri sá, að gefa
einstaklingum kost á að sinna sér- og heilla horfðu fyrir ísienskt
stökum verkefnum sem til hags samfélag. _ aró.
Þorsti
Meirihluti með bjór
Mikill meirihluti íslendinga er fylgjandi því að leyfa sterkan bjór hér
á landi. í skoðanakönnun HP, sem kom út í gær, kom í ljós að 71,5
prósent landsmanna vilja leyfa bjórinn. Þetta er töluverð aukning frá
fyrri árum, þegar innan við 60 prósent sýndu vild sína í garð bjórsins í
skoðanakönnunum dagblaðanna. Þess má geta að á þingi virðist sem
meirihluti sé að myndast um hinn görótta mjöð. _ ÖS
Skák
Sterkt lið á
NM í skólaskák
Norðurlandamótið í skólaskák,
einstaklingskeppni, verður
haldið í Danmörku dagana 15. til
18. febrúar nk. í bænum Hadersl-
ev. íslendingar senda tíu kepp-
endur á mótið og er um harðsnú-
inn hóp að ræða miðað við Elo-
stig hinna ungu skákmanna. Und-
anfarin ár hefur íslensku kepp-
endunum gengið mjög vel á NM i
skólaskák og hafa þeir margir
orðið sigurvegarar í sínum ald-
ursfíokkum. Þeir sem að þessu
Þetta er hópurinn sem tekur þátt í
Norðurlandamótinu í skólaskák sem
fram fer í Danmörku 15. til 18. febrúar
nk. ásamt fararstjórunum Ólafi H. Ól-
afssyni og Árna B. Jónassyni.
(Ljósm.: E.ÓI.)
sinni taka þátt í mótinu (innan
sviga Eló-stig):
A-flokkur (f. 1964-67): 1. Hall-
dór G. Einarsson, MH (2240), 2.
Lárus Jóhannesson, MH (21609.
B-flokkur (f. 1968-69): 1. Davíð
Ólafsson, VÍ (2160), 2. Þröstur
Þórhallsson, Hvassaleitisskóli
(2155). C-flokkur (f. 1970-71): 1.
Magnús Pálmi Örnólfsson,
Garðaskóli (1690), 2. Arnaldur
Loftsson, Hlíðaskóli (1685). D-
flokkur (f. 1972-73): 1. Hannes
H. Stefánsson, Fellaskóli (1880),
2. Þröstur Árnason, Seljaskóli
(1670). E-flokkur (f. 1974 og síð-
ar): 1. Héðinn Steingrímsson,
Hvassaleitisskóli (1435), 2.
Magnús Ármann, Breiðholts-
skóli (stigalaus).
Föstudagur 1. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3