Þjóðviljinn - 01.02.1985, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 01.02.1985, Qupperneq 7
- Og eftir - ómálaður, snyrtilegur og alvarlega þenkjandi? göngu, því hann gekk í Búdda klaustur í Skotlandi, þó ekki hafi hann strengt nein klausturheit. Síðar sneri hann sér að leiklist, tók þátt í látbragðsleikjum og lék ýmis smáhlutverk. Árið 1970 kynntist Bowie hinni amerísku Angelu Barnett ( Ang- ie) og kvæntist henni stuttu síðar. Ári síðar fæddist þeim sonur, er hlaut nafnið Zowie Bowie. Ziggy Stardust Árið 1971 vann Bowie hörðum höndum að því að skapa sér vissa ímynd, og árið 1972 lýsti hann því yfir að hann væri kynvilltur. Skapar hann síðan rokk stjörn- una Ziggy Stardust og með henni tókst honum að slá í gegn. Á hljómleikum birtist hann með appelsínugult hár, málaður og íklæddur furðufötum, og með því tókst honum að valda ýmist hneykslan eða aðdáun, bæði í Englandi og Ameríku. Platan Ziggy Stardust seldist í milljónum eintaka og lagið „Starman" varð feikivinsælt. Eftir fyrstu hljómleikaferð sína til Bandaríkjanna gaf Bowie út plötuna „Aladdin Sane“ sem er eins konar dagbók um ferðina, og skaust lagið „Jean Genie“ af þeirri plötu upp í annað sæti breska vinsældalistans. Textinn í því lagi er um einn besta vin Bowe, Iggy Pop samdi hið fræga lag „China girl“, auk lagsins „Tonight" og ótal fleiri laga. Árið 1973, eftir 60 daga hljóm- leikaferðalag, tilkynnti Bowie að hann myndi aldrei framar koma fram á sviði. Hann gaf þó út plötur af miklum krafti, og eru margar bestu plötur hans frá þeim tíma (1973-76). Einnig vann hann að því að gera söngleik eftir sögu George Orwell „1984“. Ek- kja Orwells neitaði honum um útgáfuréttinn og varð því úr að Framhald á bls. 8 David Robert Jones, fæddur 8. jan 1947 í London. Fyrir hamskiptin - appelsínugult hár, málaður og í furðufötum. Bowie í sjónvarpið Eyþór hringdi og sagði: Mér Þó Glœtan sé ekki sjónvarpið finnst að sjónvarpið eigi að sýna vill hún leggja sitt af mörkum og þætti David Bowies. Hann er æðis- birtir því ævi- og tónlistarsögu lega góður söngvari og sjónvarpið Bowie með von um að Eyþór og sýnir alltof lítið af honum. aðrir hafi gagn og gaman af. Hann fór að leika á saxafón 12 ára og 3 árum síðar þegar hann útskrifaðist úr gagnfræðaskóla var hann þegar byrjaður að spila í ýmsum smá „grúppum“, svo sem The King Bees og David Jones and the Buzz. Árið 1966 hafði David Jones breytt nafni sínu í Bowie (borið fram ,,bóí“) til þess að forðast það að fólk færi mannavillt á hon- um og David Jones söngvara (mæmara) hljómsveitarinnar Monkees. 1967 gerir Bowie samning við plötuútgáfufyrirtækið London/ Deram. Margar litlar plötur Bowie komust á vinsældalista á Bretlandi, s.s. „Love you till Thuesday“ og „The Laugh ing Gnome“. Bowie hafði þó ekki helgað sig poppmúsíkinni ein- Vinsældalistar Þjóðviljans Fellahellir 1. ( 2) Sexcrime- Eurythmics 2. ( 1) Forever Yourtg- Alphaville 3. ( 6) Búkalú - Stuömenn 4. ( 7) Everything She Wants- Wham 5. ( 5) Like a Virgin - Madonna 6. ( 3) Power of Love- Frankie goes to Hohywood 7. ( 4) Sounds like a Melody- Alphaville 8. (11) Love is Love- The Culture Club 9. (12) Fresh - Cool and the Gang 10. (15) The Chauffeur- Duran Duran Rás 2 1. ( 1) Everything she wants- Wham! 2. ( 2) Sexcrime- Eurythmics 3. ( 4) Búkalú - Stuðmenn 4. ( 3) Húsið og ég- Grafík 5. (16) 1 want to know what love is - Foreigner 6. ( 5) 16- Grafík 7. ( 8) Like a Virgin - Madonna 8. (10) Easy lover- Philip Bailey 9. ( 7) Heartbeat- Wham! 10. ( 6) One night in Bangkok- Murray Head Grammió 1. ( 8) Gold Diggers - Lindsay Cooper 2. ( 2) Lili Marlene - Das Kapital 3. ( 3) The Walking Hours- Dalis Car 4. ( -) Stop Making Sense - Talking Heads 5. ( 1) Aural Sculpture- The Stranglers 6. ( 7) The Eye- Kukl 7. (10) The Cure Live- The Cure 8. ( 9) Get ég tekið cjéns- Grafík 9. ( -) Outburst- The Nomads 10. ( -) Litla hryllingsbúðin

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.