Þjóðviljinn - 01.02.1985, Qupperneq 15
ÍÞRÓTTIR
Körfubolti
Yfirburðir
Haukar unnu auðveldan sigur á IS í
úrvalsdeildinni í gærkvöldi í líflausum
leik þar sem úrslitin réðust í fyrri hálf-
leik. Haukar höfðu þá náð 33 stiga
forystu sem Stúdentum tókst að
minnka niður í 26 stig fyrir leikslok,
lokatölur 94-68.
Þeir Pálmar Sigurðsson og Ólafur
Rafnsson voru bestir í Haukaliðinu og
þá var Hálfdán Markússon skæður í
fyrri hálfleik.
Þeir Guðmundur Jóhannsson,
Valdemar Guðlaugsson og Arni Guð-
mundsson voru í aðalhlutverkinu hjá
ÍS.
Stig Hauka: Pálmar 25, Ólafur og Hálf-
dán 16. Eyþór Árnason 10, og Henning
Henningsson 10, Ivar Webster 7, Sveinn
Sigurbergsson 6 og Kristinn Kristinsson 4.
Stig ÍS: ÁRni 17, Guðmundur 15, Vald-
emar 14, Ragnar Bjartmarz 8, Helgi Gúst-
afsson 5, Björn Leósson 3, Eiríkur Jóhann-
esson og Þórir Þórisson 2. -Frosti
Helgar-
sportið
Handbolti
Vegna landsliðsferðarinnar er
ekkert leikið í 1. deild karla en í 1.
deild kvenna og 2. deild karla eru
leiknar heilar umferðir. í 1. deild
kvenna leika í kvöld ÍBV-FH í
Eyjum kl. 20 og Þór-Fram á Ak-
ureyri kl. 21.15. Á sunnudag leika
Valur og KR í Höllinni kl. 13.30
og Víkingur-ÍA í Seljaskóla kl.
15.15.
Þór A. og Ármann leika á Ak-
ureyri í 2. deild karla í kvöld kl.
20. Á morgun leika á sama stað
KA og Ármann kl. 14 og á sama
tíma hefst viðureign Hauka og
HK í Hafnarfirði. Fylkir og Fram
leika síðan í Seljaskólanum kl. 14
á sunnudag.
Körfubolti
Aldrei þessu vant verður leikið
í Laugardalshöllinni og þar eru
tveir leikir á sunnudagskvöldið.
ÍR og KR Ieika kl. 19 og á eftir,,
eða kl. 21, mætast Valur og
Njarðvík. f 1. deild kvenna leika
UMFN og Haukar í Njarðvík kl.
21.30 á sunnudag og tveir leikir
fara fram í 1. deild karla. Grinda-
vík og Keflavík mætast í Njarðvík
kl. 13.30 á laugardag og Laugdæl-
ir leika við Fram á Selfossi kl. 14 á
sunnudag.
Borðtennis
Reykjavíkurmótið 1984 fer
fram á morgun, laugardag, en því
hafði áður verið frestað framyfir
áramótin. Það verður haldið í
Laugardalshöllinni og hefst kl. 13
með einliðaleik stráka. Einliða-
leikur stúlkna og „old-boys“ hefst
kl. 14 og tvenndarkeppni ung-
linga kl. 16. Loks heft síðasta
lotan kl. 17 - þá eru á dagskránni
tvíliðaleikur „old-boys“, stúlkna
og stráka. Ekki verður keppt að
þessu sinni í karla- eða kvenna-
flokki vegna keppnisferðar lands-
liðsins til Danmerkur en sú
keppni verður haldin síðar. Dreg-
ið verður í fundarherbergi BTÍ kl.
10 í fyrramálið.
Skíði
Bikarkeppni SKÍ í göngu og
stökki hefst á Siglufirði á morgun,
laugardag. Þar er keppt í flokkum
fullorðinna og unglinga. Keppni í
alpagreinum átti að fara fram á
Húsavík og Akureyri en hefur
Þerið frestað um eina viku vegna
snjóleysis.
Blak
Þrír leikir á íslandsmótinu fara
fram í Hagaskóla á sunnudaginn.
Þróttur og Víkingur leika í 1.
deild kvenna kl. 13.30 og kl. 15
mætast sömu félög í 1. deild karla.
Kl. 16.30 leikasíðan ÍSogHKíl.
deild karla.
Júdó
Afmælismót JSÍ, seinni hluti,
fer fram í íþróttahúsi KHf á morg-
un, laugardag, og hefst kl. 15.
Keppt verður í opnum flokkum
karla og kvenna og þyngdarflokk-
um unglinga.
Badminton
Kvennamót TBR, innanfélags-
mót, fer fram í TBR-húsinu við
Gnoðarvog á morgun. f KR-
heimilinu fer fram KR-mótið í
tvíliða- og tvenndarleik.
Jón Hjaltalín
,4lmennt jákvæðii"
Tillaga íslands um Evrópukeppni landsliða fékk góðar
undirtektir á þinginu í Israel
„Þetta er eitt áhugaverðasta þing sem
lengi hefur verið haldið og margt athyglis-
vert kom þar fram. Mikið var rætt um
undankeppni fyrir ? Ólympíuleika og
heimsmeistaramót og áhersla lögð á að
henni verði breytt þannig að meira verði
leikið heima og heiman. Þetta er mjög
mikilvægt fyrir okkur íslendinga, hér
hafa engir alvörulandsleikir farið fram í
áratug eða svo,“ sagði Jón Hjaltalín
Magnússon formaður HSÍ í samtali við
Þjóðviljann í gær. Hann kom í fyrrakvöld
heim frá ísrael þar sem hann sat þing
handknattleikssambanda í Vestur-
Evrópu.
„Norðurlöndin voru sérstaklega hlynnt
þessari breytingu á undankeppninni og
þetta mál verður skoðað nánar í sérstök-
um vinnuhópum og vonandi verður tekin
ákvörðun í þessu efni á næsta þingi, 1986.
Við lögðum fram tillögu um að komið yrði
á fót Evrópukeppni landsliða, eins og
tíðkast í knattspyrnunni, þar sem leikið
yrði heima og heiman og sú keppni yrði
tengd Ólympíuleikum og HM. Menn voru
almennt jákvæðir gagnvart þessu á þing-
inu,“ sagði Jón. Hann sagði ennfremur að
stefnt væri að stofnun sérstakt Evrópu-
sambands og lögð væri áhersla á að
Austur-Evrópuþjóðir yrðu þar með. „í
Ameríku, Afríku og Asíu hafa verið
stofnuð mjög sterk álfusambönd og Evr-
ópuiöndin verða að sameinast um siíkt
samband", sagði Jón.
í lok þingsins bárust til ísrael úrslit í
8-liða úrslitunum í Evrópumótunum. ís-
land og Spánn eru einu þjóðirnar sem eiga
tvö lið eftir í undanúrslitum mótanna
þriggja og var greinilegt að frammistaða
íslensku liðanna vakti mikla undrun og
athygli þingfulltrúa, að sögn Jóns.
- VS
Tapleikur
Stórt stökk
Vantaði einbeitingu en Frakkar geysisterkir
Handbolti
Blikamir
áfram
Breiðablik vann Hauka 24:23 í
bikarkeppni karla í handknatt-
leik í fyrrakvöld. Blikarnir mæta
því hinu öfluga „landsliði“ Vals,
b-liðinu í 16-liða úrslitum. Nú er
ljóst hvaða félög mætast í 16-liða
úrslitunum og eru þau eftirtalin:
Týr-HK
Fram-Víkingur
Ármann-Valur A
Reynir S.-Þróttur
FH-KR
IBK-Fylkir
Valur B-Breiöablik
Grótta-Stjarnan
Blak
ÍS með
bestu stöðu
ÍS stendur best að vígi i 1. deild
kvenna í blaki eftir 3:0 sigur á
Breiðabliki í fyrrakvöld. Þessi lið
berjast um mcistaratitilinn og
þetta var annað tap Breiðabliks
en ÍS hefur tapað einum leik.
ÍS vann Víking 3:1 í 1. deild
karla og Þróttur sigraði Fram 3:0.
í bikarkeppni karla um síðustu
helgi vann HK Víking 3:2 og
Þróttarar unnu Fram 3:2
Pálmar Sigurðsson var í gær útnefndur Iþróttamaður Hafnarfjarðar 1984.
Pálmar er landsliðsmaður í körfuknattleik og frábær árangur hins unga liðs
Hauka undanfarið er ekki síst honum að þakka. Hann varð sl. vetur stiga-
hæstur I úrvalsdeildinni og úrslitakeppninni og er nú annar stigahæsti
leikmaður deildarinnar. Mynd.: E.ÓI.
Ítalía
Juventus
nálgast
Juventus færðist nær efstu liðum
ítölsku 1. deildarkeppninnar í knatt-
spyrnu í fyrrakvöld með því að sigra
Lazio 1-0. Franski snillingurinn Mic-
hel Platini skoraði eina mark leiksins.
Juventus hefur 20 stig og er í 6. sæti en
Verona er efst með 25 stig.
Knattspyrna
Aöalsteinn
til baka
Víkingar hafa endurheimt Að-
alstein Aðalsteinsson sem hætti
að leika með liðinu i fyrrasumar
og gekk til liðs við KR. Hann
skipti það seint yfir í KR að hann
náði ekki að leika einn einasta leik
með liðinu i 1. deildarkcppninni í
knattspyrnu og gerir það vart
héðan af. Mikill styrkur fyrir
Víkinga sem hafa misst annan
sterkan miðjumann, Ómar
Torfason, yfir í Fram.
stööunni í 8-6, íslandi í hag.
Frakkar gerðu tvö síðustu mörk
fyrri hálfleiks og leiddu 11-10 í
liléi. ísland náði að komast yfir
um miðjan seinni hálfleik, síðast
15-14, en lokakaflinn var slæmur
og Frakkar tryggðu sér sigur.
Við ræddum við Jón H. Karls-
son, fyrrum landsliðsmann og nú-
verandi formann landsliðsnefnd-
ar, og gefum honum orðið:
„Strákarnir voru ekki nógu
einbeittir í kvöld og sérstaklega
var stökkið hjá Kristjáni Arasyni
stórt eftir 15 mörkin gegn Ung-
verjum. Það var greinilegt að
hann átti ekki að komast upp
með neitt, svissnesku dómararnir
gáfu honum gult spjald fyrir að
yppa öxlum eftir 45 sek. og síðan
var hann tekinn úr umferð allan
leikinn. Páll Ólafsson tók við að-
alhlutverkinu og lék frábærlega
en var óheppinn með skot. Það er
greinilegt að það þarf að þróa
betur okkar leikaðferrð þegar
Kristján er tekinn úr umferð en
samæfingin er lítil sem engin enn-
þá. Við eigum líka ár til stefnu en
Frakkamir eru í toppæfingu -
þeir eru að fara í B-keppnina eftir
mánuð og þetta er sterkasta
franska landslið sem ég hef séð.
Síðustu 12 mínúturnar voru eyði-
lagðar af svissnesku dómurun-
um, skemmdu konfektmolunum.
Þeir voru kannski ekki hlutdrægir
en voru virkilega slakir og létu
viðgangast ljót brot gagnvart ís-
lensku leikmönnunum. Þetta fór
í skapið á þeim og það gerði gæfu-
muninn í lokin. Heppnin var ekki
á okkar bandi, 3 víti fóru forgörð-
um og liðið átti ein 8 stangarskot.
En, við erum hér fyrst og fremst
til að læra, við erum í skólaferð.
Við höfum fengið á okkur sterkar
pressuvarnir, sérstaklega í kvöld,
og þurfum að vera viðbúnir þeim.
Annað kvöld er leikið við Israel
og þar verður ekki samþykkt
annað en sigur“, sagði Jón H.
Karlsson.
Mörk Islands: Páll Ólafsson 7, Þorbergur
Aöalsteinsson 3, Kristján Arason 3, Þorgils
Dttar Mathiesen 1, Alfreö Gíslason 1 og
Jakob Sigurösson 1. _ yc
Sigurður í
heimsliðið?
Eitt mark síðasta korterið í
Villafrance í gærkvöldi og ísland
mátti þola 19-16 ósigur gegn
Frökkum í Tournoi de France
keppninni í handknattleik. Svo
sannarlega stórt stökk frá hinum
glæsilega sigri á Ungverjum í
fyrrakvöld.
Handbolti
Sigurður Gunnarsson, sem nú
leikur með Koronas Tres De
Mayo frá Spáni, hefur verið út-
nefndur sem varamaður í
heimsliðinu í handknattleik sem
mætir Dönum þann 20. apríl.
Leikurinn fer fram í tilefni af 50
ára afmæli danska handknatt-
leikssambandsins.
Þessir voru valdir í heimsliðið:
Morten Stig Christiansen, Dan-
mörku, Andreas Thiel, Arnulf
Meffle og Erhard Wunderlich,
V. Þýskalandi, Ingolf Wiegert og
Gúnther Wahl, A. Þýskalandi.
Peter Kovacs, Ungverjalandi,
Waszkiewicz, Póllandi, Vasile
Stinga, Rúmeníu, Max Schár,
Sviss, Claes Hellgren, Svíþjóð,
Schewzow og Oleg Gagin Sovétr-
íkjunum og Mile Isakovic, Júg-
óslavíu. Varamenn eru Sigurður
Gunnarsson, Mogens Jeppesen,
Danmörku, Kotrc, Tékkóslóvak-
íu og Veselin Vukovic, Júgósla-
víu. Ef einhver af 14 aðalmönn-
unum forfallast verður kallað á
varamennina og Sigurður á því
ágæta möguleika á að öðlast þann
heiður að leika með heimsliðinu í
handknattleik. -VS
Sigurður Gunnarsson
Frakkar voru yfir framn af en
fjögur íslensk mörk breyttu
Föstudagur 1. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SfÐA 15