Þjóðviljinn - 01.02.1985, Side 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
Fðstudagur 1. febrúar 1985 26. tölublað 50. árgangur
DJOÐVIUINN
Nesjavellir
Endast í 10 til 15 ár
Davíð Oddsson borgarstjóri: Kostnaður uppá 4 miljarða
Neytendur borga. Hitaveitustjóri: Gömlu svœðin fullnýtt
og að lokum komin. Aœtlanir um Nesjavelli gera ráð fyrir
verulegri útþenslu á Reykjavíkursvœðinu
Aætlun Hitaveitu Reykjavíkur
um vatnsþörf í borginni næstu
áratugi miðast við að húsrými
aukist með sama hraða og undan-
farna þrjá til fjóra áratugi, um
tæp 4% á ári. „Við höfum ekkert
annað að byggja á“, sagði Jó-
hannes Zoega hitaveitustjóri við
Þjóðviljann í gær. í samtölum
Þjóðviljans við hitaveitustjóra og
borgarstjóra kom fram að þeir
telja núverandi orkusvæði Hita-
veitunnar þegar nýtt.
„Það er bágt að segja um hve-
nær Nesjavallavirkjun yrði
fullnýtt“, sagði hitaveitustjóri,
„en ef byggingarhraði verður
Avegum Lýsi hf. er nú verið að
gera tilraunir með nýtingu á
beinhákarli. Eru uppi áform
innan fyrirtækisins um fram-
svipaður í Reykjavík og að und-
anförnu ætti til dæmis 400 mega-
watta virkjun að endast okkur til
1995 eða 2Q00“. Jóhannes sagði
að engar vonir stæðu til að sú
skýrsla sem nú er verið að skrifa
um Mosfellssvæðið breyti miklu.
Hitaveitumenn væru vissir um að
á næstu árum og áratugum yrði
„brennandi þörf“ fyrir meira
jarðhitaafl og -orku en nú er til
reiðu í Reykjavík, og væru Nesja-
vellir líklegasta öflunarsvæðið.
Miklar framkvæmdir nú við
Nesj avelli byggðust á því að Hita-
veitunni hefði verið „haldið niðri
með tekjur og rannsóknir allan
leiðslu á olíu sem heitir squalin úr
lýsi hákarlsins, auk þess sem til-
raunir hafa verið gerðar til þess
að nýta ugga þessa risaflsks og
síðasta áratug, frá 1972“.
Davíð Oddsson borgarstjóri
sagði ekkert benda til að drægi úr
fjölgun í Reykjavík á næstunni.
A síðustu tveimur árum hefði
íbúum fjölgað um 4-5000 og
orkuspá væri byggð á verulegri
aukningu næstu áratugi þótt
menn vonuðu að hún yrði ekki
einsog undanfarin ár. Enginn vafi
væri í hugum manna um að Mos-
fellssvæðið væri komið að lokum.
Um framkvæmdir á Nesjavöllum
nú sagði Davíð að hinn langi að-
dragandi áður en endanleg
ákvörðun er tekin stafaði af því
að ekki ætti að haga vinnu-
brögðum einsog við Kröflu-
sporð, sem og skrápinn sem nota
má til klæðagerðar eins og skinn.
Baldur Hjaltason efnafræðing-
ur hjá Lýsi hf. tjáði Þjóðviljanum
að squalín-olían, sem þeir hafa
unnið úr beinhákarlslifur, væri
verðmæt feiti sem nota mætt í
hvers kyns snyrtivörur jafnt og í
sérhæfðan iðnað.
Austurlandabúar, og þá eink-
um Hong-Kong- og Singapore-
búar, framleiða sérstakan rétt úr
uggum og sporði beinhákarlsins,
og sagði Baldur að þeir hefðu
einnig áhuga á að gera tilraunir
með framleiðslu hans. Þá eru
uggarnir þurrkaðir og meðhöndl-
„Það gefur auga leið að fyrr
eða síðar koma þessir fjórir milj-
arðar frá neytendum“, sagði
borgarstjóri um kostnaðinn við
Nesjavallavirkjun. Hitaveitu-
stjóri sagði Þjóðviljanum að fjár-
hagsáætlun 1984 hefðu fylgt laus-
legar hugmyndir um fjáröflun til
virkjunarinnar, og hefði þar ver-
ið gert ráð fyrir að helmingur
fjárins yrði tekinn að láni, en
hinn helminginn greiddi Hita-
veitan sjálf með umframtekjum
og því fé sem fellur til við afskrift-
ir, - og þá miðað við að halda
sama raungildi í verðlagningu til
neytenda.
aðir með sérstökum hætti og þá
ýmist matreiddir heilir eða upp-
leystir í þráðaflækju sem líkist
einna helst spaghetti. Hong-
Kong flytur árlega inn um 2500
tonn af beinhákarlsuggum, og
þykir þessi matur þar lostæti auk
þess sem hann er talinn búa yfir
dulrænum lækningamætti og er
því dýr.
Baldur sagði að einnig væri
möguleiki á að súta húðina af
þessari skepnu og vinna hana á
svipaðan hátt og skinn, og væri
þar um hugsanleg verðmæti að
ræða.
—ólg
Reykinganámskeið
Færrí
komast
að en
vilja
Ásgeir Helgason:
Bjuggumst aldrei við
þvílíkri þátttöku
Við hættum að taka inn á nám-
skeiðið þegar þátttakendur voru
orðnir yflr 60. Áttum von á um 20
manns, sagði Ásgeir Helgason
sem er að hefja 5 vikna námskeið
á vegum Krabbameinsfélagsins
fyrir þá sem ætla að hætta að
reykja.
„Við bjuggumst aldrei við því-
líkri þátttöku. Símalínan hefur
verið rauðglóandi. Nú tökum við
einungis þá inn sem uppfylla skil-
yrðin: að hafa áður reynt að
hætta að reykja, að hafa reykt í
a.m.k. 7 ár, eldri en25 ára. Þaðer
geysimikil vinna í þessu nám-
skeiði fyrir þátttakendur og
undirbúningsvinnan fyrir tímana
krefst þess að menn fari heilshug-
ar í það“.
Ásgeir sagði að svona nám-
skeið hafi ekki verið haldið áður
hér á landi. Það byggir á atferlis-
greiningu, þannig að einstakling-
urinn verði meðvitaður um hvaða
þættir úr umhverfiu leiða til
reykinganna og hvaða umhverfis-
þættir draga úr lönguninni til að
reykja. Þeim sem ekki komast á 5
vikna námskeiðið er bent á að
drífa sig á 5 daga námskeið sem
haldið er í Háskóla íslands á veg-
um Bindindisfélagsins.
-JP
Ratsjárstöðvar
Meiri-
hluti
ámóti
Meirihluti íslendinga er and-
vígur ratsjárstöðvunum sem
bandaríski herinn og ríkisstjórn-
in vilja koma upp hér á landi,.
samkvæmt skoðanakönnun sem
DV birti í gær. Fleiri taka afstöðu
til þessa máls en alla jafnan við
spurningar blaðsins.
í DV í gær segir að 50,4%
þeirra sem taka afstöðu séu and-
vígir ratsjárstöðvunum en 49,6%
séu þeim fylgjandi. 30,1% þeirra
sem spurðir eru í könnuninni
taka ekki afstöðu eða svara ekki.
Spurningin var þannig orðuð:
Ertu fylgjandi eða andvígur því
að ratsjárstöðvar verði reistar á
Vestfjörðum og Norð-
Austurlandi? -óg
DJÓÐVIUINN
Áskriftarverð Þjóðviljans
hækkar frá og með deginum í
dag, 1. febrúar. Kostar mánaðar-
áskrift nú kr. 330. Einnig hækkar
auglýsingaverð úr kr. 180 dálsm í
kr. 198. Verð í lausasölu verður
óbreytt, virka daga kr. 30 og 35
kr. um helgar.
Munið
þorrablót ABR
Miðapantanir í síma: 17500
-m
Baldur Hjaltason efnafræðingur hjá Lýsi hf. með þurrkaðan sporð af beinhákarli og japanska neytendapakkningu af „beinhákarlaspaghetti". Þykir lostæti
hjá kínverskumælandi Austurlandabúum.
Nýjung
llmvatn unnið úr hákaiii
Lýsi hf. hefur unnið verðmœta olíu, squalín, úr beinhákarlslifur.
Lostœti úrsporðum og uggumflutt tilAusturlanda