Þjóðviljinn - 02.02.1985, Síða 6
Sendum okkar innilegustu þakkir öllum þeim, sem sýnt hafa
okkur samúö vegna fráfalls eiginmanns míns, föður okkar,
sonar og bróöur,
Aðalsteins Péturssonar
læknis
í Borgarnesi
með minningargjöfum, blómum og skeytum, að ógleymdum
þeim fjölda, sem vottuðu minningu hans virðingu með nær-
veru sinni við jarðarför hans að Reykholti þann 19. janúar.
Guð blessi ykkur öll.
Halldóra Karlsdóttir
Þórdís Brynja Aðalsteinsdóttir Oddur H. Knútsson
Guðríður Hlíf Aðalsteinsdóttir Ólafur Jennason
Áslaug Helga Aðalsteinsdóttir
Halldóra Aðalsteinsdóttir
Guðríður Kristjánsdóttir Pétur Sigurðsson
Systkini og aðrir aðstandendur.
Laus staða
hjá Reykjavíkurborg
Forstöðumaður:
Staða forstöðumanns félagsmiðstöðvarinnar Þrótt-
heima er laus til umsóknar. Menntun á sviði
æskulýðs- og félagsmála æskileg, jafnframt reynsla í
stjórnunarstörfum.
Laun skv. kjarasamningum. Upplýsingar veitir fram-
kvæmdastjóri íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur
Fríkirkjuvegi 11 í síma 21769.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sérstökum
umsóknareyðublöðum sem þar fást fyrir kl. 16.00
mánudaginn 18. febr. 1985.
Lóðaúthlutun
Iðnaðar-, skrifstofu-
og þjónustuhúsnæði.
Eftirtaldar lóðir í Kópavogi eru lausar til umsóknar:
A :Við Smiðjuveg:
Iðnaðarlóð að Smiðjuvegi 2B.
Umsóknarfrestur til 11. febr. n.k.
B :í miðbæ Kópavogs:
Hamraborg 10 og 10A.
Hótel og veitingaþjónusta.
Fannborg 4, 6, 8 og 10.
Skrifstofur, þjónusta og félagslegt starf, e.t.v. nokk-
ur verslun.
Umsóknarfrestur til 25. febrúar n.k.
Umsóknareyðublöð ásamt skipuiags- og byggingar-
skilmálum fást á skrifstofu bæjarverkfræðings Kópa-
vogs, Fannborg 2, virka daga milli kl. 9.30 og 15.00.
Bæjarverkfræðingur
Útboð - Jarðvinna
Hagkaup hf. Lækjargötu 4, Reykjavík, óskar eftir til-
boði í 2. áfanga jarðvinnu fyrir verzlanahús í Kringlu-
mýri í Reykjavík.
Helstu magntölur eru eftirfarandi:
a) Grafa og aka burt mold, samtals um 25.000 m3
b) Rippa eða sprengja fyrir undirstöðum, samtals um
5.000 m3
c) Fylla í grunn samtals um 5.000 m3
Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu Sig-
urðar Thoroddsen hf. Ármúla 4, Reykjavík frá og
með þriðjudeginum 5. febrúar 1985, gegn 2000,-
kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skila til Hagkaups hf. Lækjargötu 4,
Reykjavík fyrir kl. 11.00 föstudaginn 15. febrúar
1985, en þá verða þau opnuð þar að viðstöddum
þeim bjóðendum sem þess óska.
HAGKAUP H.F.,
Lækjargötu 4, Reykjavík
Starfsþjáifun fatlaðra
Nýr hópur byrjar þjálfun á bókhalds- og tölvusviði
föstudaginn 8. febrúar nk. í húsi Iðnskólans á Skóla-
vörðuholti í Reykjavík. Gert er ráð fyrir að starfsemin
spanni þrjár annir. Starfsþjálfun þessi er ætluð fólki
sem orðið hefur fyrir slysum eða áföllum af völdum
sjúkdóma og getur því ekki stundað fyrri störf.
Nánari upplýsingar veitir Hólmfríður Gísladóttir í
síma 91-26722.
ÍÞRÓIHR
Frakklandsmótið
Engin vandræði
ísland vann ísrael 24-17 í Bourg eftir að hafa náð
11 markaforystu
Frakkar-b í kvöld og Tékkar á morgun
íslenska landsliðið í hand-
knattleik átti ekki í minnstu vand-
ræðum með að sigra Israelsmenn
á Tournoi de France mótinu í
Frakklandi í gærkvöldi. Leikið
var í Bourg, í nágrenni Lyon, og
ísland vann 24-17, án þess að
tekið væri á af öllum tiltækum
krafti.
Upphafsmínútur leiksins voru
jafnar, staðan 4-4 eftir rúmar 10
mínútur. Þá kom góður kafli hjá
íslenska liðinu, það fékk ekki á
sig mark í 14 mínútur og skoraði
Alfreð Gíslason var atkvæðamikill í gærkvöldi og skoraði 5 mörk.
sex á meðan. Staðan orðin 10-4
og stórsigur í uppsiglingu. Hvort
lið skoraði síðan eitt fyrir hlé,
staðan 11-5 í hálfleik.
ísraelsmenn hófu seinni hálf-
leik á marki úr vítakasti en ísland
svaraði með fimm mörkum.
Valdimar Grímsson gerði tvö
þeirra, hans fyrstu landsliðs-
mörk. Staðan 16-6 og síðan 18-7,
en þá fóru íslensku strákarnir að
slaka á og leyfa sér ýmislegt.
Fjögur næstu mörk voru ísraelsk,
staðan 18-11, og munurinn til
Júdó
Karl, Halldór, Ómar
Magnús og Kolbeinn
Á laugardaginn var fór fram
fyrri hluti afmælismóts Júdós-
ambands Islands í íþróttahúsi
KHÍ. Keppt var í 5 þyngdarflokk-
um karla og urðu úrslit þessi:
- 65 kg flokkur:
1. Karl Erlingsson, Armanni
2. Davíð Gunnarsson, Ármanni
3. Magnús Kristinsson, Ármanni.
- 71 kg flokkur:
1. Halldór Guðbjörnsson. JR
2. Níeis Hermannsson, Armanni
3. Halldór Hafsteinsson, Ármanni
- 78 kg flokkur:
1. Omar Sigurðsson, UMFK
2. Rögnvaldur Guðmundss., Gerplu
- 86 kg flokkur:
1. Magnús Hauksson, UMFK
2. Arnar Marteinsson, Ármanni
3. Páll M. Jónss., Ármanni
+ 95 kg flokkur:
1. Kolbeinn Gíslason, Ármanni
2. Hákon örn Halldórsson, JR
3. Kristján I. Kristjánss., Ármanni
Síðari hluti mótsins fer fram á
sama stað í dag og hefst kl. 15.
Keppt verður í opnum flokkum
karla og kvenna og þyngdarflokk-
um unglinga, yngri en 21 árs.
Fjáröflun
leiksloka hélst 6-8 mörk - loka-
tölur 24-17 eins og áður sagði.
Góð úrslit - við höfum oft átt í
vandræðum með ísraelsmenn og
núna eru þeir að nálgast toppæf-
ingu þar sem þeir taka þátt í B-
keppninni eftir mánuð.
Lykilmenn eins og Kristján
Arason og Þorgils Óttar Mathie-
sen voru hvíldir nánast allan
seinni hálfleikinn. Kristján varð
þó markahæstur, gerði 6 mörk í
fyrri hálfleiknum. Mikilvægt fyrir
liðið að geta slíkt, það er aðeins
skipað 13 mönnum, þar af þrem-
ur markvörðum, og álagið því
mikið að leika fimm leiki á fimm
dögum.
Mörk Islands: Kristján Arason 6 (2v), Al-
freð Gíslason 5 (1 v), Þorbergur Aðal-
steinsson 5, Sigurður Gunnarsson 3, Vald-
imar Grímsson 2, Geir Sveinsson 1, Þor-
gils Óttar Mathiesen 1 og Jakob Sigurðs-
son 1.
í kvöld mætir íslenska liðið b-
liði Frakka. Sá leikur á að vinn-
ast, en hafa ber þó hugfast að
Frakkarnir eru á heimavelli og
allt getur skeð við slíkar aðstæð-
ur. Lokaleikurinn er síðan gegn
hinu sterka liði Tékka á sunnu-
daginn. ísland verður að sigra í
báðum þessum leikjum til að eiga
sigurmöguleika á mótinu.
- VS.
Handbolti
Þór vann
Ármann!
Þór Akureyri fékk dýrmæt stig
K fallbaráttu 2. deildar í gærkvöldi
með því að sigra Ármann 22-21 í
hörkuspennandi leik í íþróttahöll-
inni á Akureyri. Þór leiddi 12-11 í
hléi, Ármann náði þriggja marka
forystu í seinni hálfleik en Þórsar-
ar voru sterkari á endasprettin-
um. Þór er þó áfram á botninum,
hefur 5 stig, en Fylkir er með 6,
Grótta 7 og Ármann 8 stig. Ár-
menningar mæta KAI dag kl. 14.
Völsungar
Birgir
heim
Afreksmanna-
sjóður HSÍ
Stjórn HSÍ hefur stofnað sér-
stakan afreksmannasjóð til að
styrkja þátttöku landsliðsfólks í
handknattleik í æflngum, keppn-
isferðum og landsleikjum.
Leitað verður eftir stuðningi
einstaklinga og fyrirtækja með
fjárframlög í þennan sjóð. Er
þetta ein af fjáröflunarleiðum
sambandsins til að auðvelda
landsliðsmönnum og þjálfara
þess að undirbúa landsliðið sem
best fyrir þátttöku í A-keppninni
í Sviss 1986.
Þeir sem vilja taka þátt í undir-
búningi landsliðsins fyrir keppn-
ina með fjárframlagi í afreks-
mannasjóðinn eru vinsamlegast
beðnir um að koma framlagi sínu
til skila á skrifstofu HSÍ. Áhafnir
skipa og starfsmenn fyrirtækja
geta einnig lagt framlag sitt inná
nýstofnaðan póstgíróreikning af-
reksmannasjóðsHSÍ, nr. 677760.
Birgir Skúlason, varnarmað-
urinn sterki sem lék með íslands-
og bikarmeisturum ÍA sl. sumar,
er á leið heim til Húsavíkur á ný
og leikur væntanlega með Völs-
ungi i 2. deildarkeppninni í knatt-
spyrnu næsta sumar. Birgir náði
að leika einn leik með aðalliði ÍA í
1. deild og kemur heim
reynslunni ríkari.
Ómar Rafnsson landsliðsbak-
vörður kemur örugglega til
Völsungs þrátt fyrir sögusagnir
um annað. Hann mun leika með
Völsungi í Bautamótinu á Akur-
eyri í innanhússknattspyrnu
ásamt Skagamönnunum Jón Leó
Ríkharðssyni og Sigurði Hall-
dórssyni, sem eins og kunnugt er
leika báðir með Völsungi næsta
sumar. Sigurður þjáifar liðið.
- ab/Húsavík.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 2. febrúar 1985