Þjóðviljinn - 02.02.1985, Qupperneq 7
Segja má aö tónlistarkennsla
Ragnars H. Ragnará ísafiröi
sé orðin hálfgerð goðsögn.
Fjöldi frábærra tónlistar-
manna hóf sín fyrstu spor
undir leiðsögn hans og
skólinn er að ýmsu leyti sér-
stakur meðal íslenskratón-
listarskóla. Einn kaldan
sunnudagíjanúar bönkuðum
við upp á hjá þeim hjónum
Ragnari og Sigríði í Smiðjug-
ötu, en heimili þeirra hefurfrá
upphafi skólans verið miðstöð
hans. Hvergi fá gestir jafn
hjartanlegar móttökur og ein-
mitt á þessu rausnarheimili og
svo var nú. Við vorum drifin
inn og boðið að vera viðstödd
samæfingu sem stóð fyrir dyr-
um og vera síðan (kaffi með
kennurum skólans.
Ragnar H. Ragnar hefur verið
skólastjóri Tónlistarskólans á
ísafirði frá stofnun hans árið 1948
en lét af skólastjórn í fyrra þegar
dóttir hans, Sigríður, tók við
henni. Ragnar hefur samt ekki
látið deigan síga, þó að hann sé
orðinn 86 ára gamall, og kennir
enn af krafti. Og hugarflug hans
og speki er enn á sínum stað.
En hvað er samæfing? Það er
fyrirbæri sem Ragnar innleiddi
frá Ameríku en þar bjó hann um
aldarfjórðungsskeið. Allir nem-
endur skólans koma saman á
Feðginin Sigríðurog Ragnar H. Ragnar. Hún tók við skólastjórn íhausten hann hafði verið skólastjóri frá upphafi 1948. Ljósm.: GFr.
Tónlist
Skólabygging hefstívor
Veriðvið samœfingu ístofunni hjó Sigríði og Ragnari H. Ragnar í Smiðjugötu ó ísafirði
og rœtt við Sigríði dóttur þeirra .sem tók við skólastjórn Tónlistarskóla ísafjarðar í haust
nær hverjum sunnudegi inni í
stofu á Smiðjugötunni og síðan
spila allir, hvort sem þeir eru ný-
byrjaðir eða lengra komnir. Þetta
eru ekta stofuhljómleikar og
klappað fyrir hverjum og einum.
Þennan sunnudag áttu yngri
krakkarnir að vera kl. 16.00 en
eldri nemendur kl. 18.30.
Yfir húsþökin
Og svo hófst samæfingin sem
Sigríður skólastjóri stjórnaði eins
og herforingi. Krakkarnir sátu
stilltir og prúðir enda verða þau
að þegja þó að sumum reynist
það erfitt á þessum aldri. Þeir
yngstu léku pínulítil tónverk á
hljóðfæri sín en aðrir voru stærri í
sniðum. Sumir voru ögn óöruggir
en aðrir léku af sannri yfirvegun.
Ekki var hætt fyrr en búið var að
flytja milli 30 og 40 verk. Þá sótti
Sigríður skólastjóri allar úlpurn-
ar í einni hrúgu og hver fann sitt
og krakkarnir þutu út í bylinn.
Kennarar skólans settust síðan
við hlaðið kaffiborð óg ræddu
heima og geima. Hinn aldni
Ragnar H. Ragnar hugsar ekki á
vestfirska vísu og ekki á landsvísu
heldur á heimsvísu og er óspar á
að láta í ljós skoðanir á framtíð
heimsins og draga lærdóma af því
sem liðið er. Umræðan náði því
langt yfir húsþökin á ísafirði.
Við gátum því miður ekki verið
viðstödd seinni samæfinguna en
Framhald á bls. 8
UMSJÓN: GUÐJÓN FRIÐRIKSSON
Laugardagur 2. febrúar 1985 ÞJÓOVILJINN - SÍÐA 7