Þjóðviljinn - 02.02.1985, Síða 9

Þjóðviljinn - 02.02.1985, Síða 9
MENNING Holldór B. Runólfsson: Að víkko út menningorboráttuno Fyrir hálfum mánuði eða svo, birtist eftir mig grein í Þjóðviljan- um undir heitinu „Bækur eða bókmenntir. Hvert verður fram- haldið?“. Þar var ég að mælast til þess að bókmenntaumfjöllun yrði stórlega aukin í fjölmiðlum, sem og á öðrum vettvangi. Síst var það ætlun mín með grein þessari að troða bókmenntafræð- ingum um tær, eða trana mér inn á þeirra sérsvið. Til þess hef ég hvorki getu né lyst, enda met ég störf þeirra meir en svo að ég haldi að leikmannsþekking mín fái bætt þar um betur. Hins vegar hef ég orðið þess áskynja að almennri þekkingu á sögu og þróun bókmennta er mjög ábótavant, ekki síst í skólum landsins. T.d. hefur það oft valdið mér vandræðum í starfi mínu sem kennara, að geta ekki brugðið bókmenntum fyrir mig þar sem það á við, til skýringa dæmum úr listasögunni. Slíkar tilraunir, til samanburðar tveggja listgreina, hafa oft verið dæmdar til að mistakast vegna of al- mennrar vanþekkingar nem- enda. Svíagaldurinn Það veldur mér kvíða að horfa upp á fólk, sem eytt hefur stórum hluta ævinnar á skólabekk, gata á helstu bókmenntastefnum okkar tíma. Þá á ég ekki einungis við 20. öldina, heldur einnig bróðurpart þeirrar nítjándu. Ég hef því oft spurt sjálfan mig, hver yrðu örlög myndlistar hér á landi, úr því svona er komið fyrir þekkingu á bókmenntum. Eða hvernig skyldi kunnáttu óskólagenginna vera háttað? En e.t.v. eru þetta óþarfar áhyggjur. A.m.k. er eina svarið sem ég hef fengið við grein minni ekki til þess fallið að örva um- ræður um þessi mál í fjölmiðlum. Þetta svar var frá Nirði P. Njarð- vík og birtist í menningardálki Þjóðviljans, miðvikudaginn 23. janúar. Þar gerðist það sem ég óttaðist mest, að ákalli mínu til bókmenntafræðinga var snúið upp í pex um alls óskylda hluti. Njörður kaus nefnilega að taka úr grein minni nokkur atriði og nota þau samhengislaust, annarri umræðu til framdráttar. Sú um- ræða er einhver sú lágkúrulegasta sem skollið hefur yfir íslenskan menningarheim og var eitt sinn nefnd „Svíagaldurinn“, en heitir nú „Norðurlandahatrið". Það veit hver heilvita maður að umræðan um Svígaldurinn kom menningu ekkert við, heldur byggðist hún á dylgjum og þvætt- ingi úr einu horni Dagblaðsins, kenndu við Svarthöfða nokkurn. Þessi Svarthöfði var haldinn ó- stöðvandi ritræpu og uppáhald- sefni hans var einmitt Norræna húsið og Njörður P. Njarðvík. Seinna var mér sagt að bak við þessa pistla hefði staðið rithöf- undur sem taldi sig eiga Norður- löndunum grátt að gjalda. Þau vildu nefnilega ekki veita honum bókmenntaverðlaun af einu eða neinu tagi. Ég sel það ekki dýrar en ég keypti. Eitt er víst að pistlar þessir voru ekki á neinu Nóbels- höfundaplani. Svarthöfði og þorskhöfði í öll þau ár sem Svarthöfði kitl- aði heilasellur hinna ýmsu kjána með Svíagaldursrausinu, minnist ég ekki að honum hafi verið svar- að, hvorki af Nirði né öðrum sem urðu fyrir barðinu á móðursjúku víli hans. Eflaust hafa þeir talið fyrir neðan virðingu sína að ansa þessu bulli og lái ég þeim það ekki. En einhver skjálfti virðist samt hafa gripið þá, e.t.v. vegna þess að Svarthöfða tókst að snúa nokkrum andlegum leppalúðum á sveif með sér. Dæmi þess heyrði ég í útvarpi fyrir einu eða tveimur árum. Þar lýsti maður nokkur yfir því að Svíar hefðu aldrei gert neitt fyrir íslenska menningu vegna þess að þeir fyrirlitu hana í aðra röndina en óttuðust í hina. Þetta aumingj- ans mannkerti hafði auðvitað Svarviðgrein NjarðarP. Njarðvík ekki hugmynd um þann frama sem beið tveggja íslenskra kvik- myndagerðarmanna fyrir til- stuðlan Svía. Hins vegar hefði hann átt að vita að nær þrjátíu árum fyrr þáði einn rithöfunda okkar mestu sæmd sem nokkru skáldi getur hlotnast, úr hendi konungs þessara sömu Svía. En vanþekking sú sem birtist í fullyrðingum þessa ólánstappa, endurspeglar nákvæmlega það ástand sem ég lýsti í byrjun grein- ar minnar og veldur mér hvað mestu angri. Ætli Njörður nú að taka mark á svona mönnum, eftir að hafa staðið æðrulaus af sér hverja orrahríð Svarthöfða á fæt- ur annarri, þá er mér illa brugðið. Enn verra er ef hann hyggst spyrða mig við þetta gæfulausa aulagengi. En lítum nú á það sem Njörður ber mér á brýn og telur svo glæp- samlegt að ekki dugi minna en greinar mínar verði ritskoðaðar og blaðið biðji lesendur afsök- unar á birtingu slíks óhroða. Lítt þekktir, vel þekktir Njörður telur mig ýkja stórlega tíma þann sem hann eyddi í viðtöl við þrjá norræna rithöfunda. Vissulega kann það að vera rétt hjá honum, en ekki getur Njörð- ur ætlast til að ég sitji við útvarpið með skeiðklukku til að mæla lengd þátta hans. En skömmu fyrr hafði hann stjórnað röð kynningarþátta í tilefni af nor- rænu bókmenntaári og voru þeir þættir einnig byggðir á viðtölum við ýmsa norræna höfunda. E.t.v. hefur mér verið farið að finnast nóg komið af svo góðu, einkum meðan önnur menningarsvæði jarðarkúlunnar eru gjörsamlega látin liggja milli hluta. Hitt vil ég ítreka, að sem slíkir eru þættir Njarðar góðra gjalda verðir, enda fór ég engum niðrandi orðum um þá í grein minni. Ég sagði einungis að einir og sér nægðu þeir ekki til að auka skilning hlustenda á bók- menntum. Gagnrýni mín beindist því fyrst og fremst að útvarpinu og slælegri framgöngu þess til styrktar bókmenntum, en ekki að Nirði og þáttum hans. Það sem eftir er svars hans þyk- ir mér heldur þunnt, eins og þeg- ar hann snuprar mig fyrir að kalla höfundana þrjá „lítt þekkta“. Njörður veit ofur vel að frægð er afstætt hugtak. Jafnvel þótt hér hafi verið flutt stykki eftir Clas Anderson, er ekki þar með sagt að hann sé „vel þekktur“. Það þarf meira til, enda hef ég sannreynt oftar en einu sinni að innan leikhúsanna sjálfra eru höfundar ekki endilega vel þekktir þótt verið sé að færa upp verk eftir þá. Hvað Tunström varðar, þá var hann nánast óþek- ktur hér á landi áður en afbragðs- þýðing Þórarins Eldjáms á Jólaóratóríunni leit dagsins ljós skömmu fyrir jól. Á landi þar sem fólk veit varla hvað módem- ismi er, þá efa ég að því sé kunn- ugra um norska grein hans en stofninn og ræturnar sjálfar. Það er neínilega svo með fræðimenn og fagþekkingu þeirra, að oft finnst þeim sem þorri manna hljóti að kunna ein- hver skil á því sem þeir em að fást við. En því fer fjarri og dæmin sýna að nú fyrst hefur íslending- um opnast leið að Dostojevskí, Cervantes, Kafka og Malraux, svo einhverjir séu nefndir af þeim aragrúa heimsþekktra rithöfunda fyrr og síðar, sem hingað til hafa verið löndum okkar Njarðar nær lokuð bók. Restinni nenni ég varla að svara, nema hvað ég vil benda Nirði á þá rökleysu sem felst í samanburði hans á norrænni menningu og engilsaxneskri tískumenningu. Ekki veit ég bet- ur en Svíar sjálfir abbist daglangt upp á útvarpshlustendur með enskubreimi og hafi í þeirri kúnst náð lengra en Engilsaxarnir sjálf- ir. Þurfum við Njörður að rjúka sérstaklega til varnar þjóðum sem eru svo slyngar, að þeim munar ekki um að skáka Eng- lendingum og Ameríkönum á þeirra eigin menningarlega ví- gvelli? Svo er það þetta með „stór- þjóðaglýjuna“. Geta Norður- löndin þó fámenn séu kallast smáþjóðir, þegar kjör þegnanna eru betri en flestra annarra? At- hugaðu Njörður, að landfræði- lega eru þrjú Norðurlandanna meðal stærstu og ríkustu landa Evrópu. Olíuvinnsla, skipastóll, verktækni og margt fleira gera Norðurlöndin að stjórþjóðum. Þetta eru lönd sem hafa alið skrí- benta á borð við Kierkegaard, Brandes, Ibsen og Strindberg;. menn sem hafa haft afgerandi áhrif á heimspeki og bókmenntir. Skjól fyrir alla menningu En hvað liggur að baki þessum skrifum Njarðar, þegar öllu er á botninn hvolft? Jú, hann er að reyna að telja okkur trú um að hér á landi eigi norræn menning frekar undir högg að sækja en önnur menning. Þetta er rangt, því öll menning á hér jafn erfitt uppdráttar, hvaða nafni sem hún nefnist. Sést það best á dræmri sölu góðra bóka; lélegu úrvali mynda í kvikmyndahúsum; förs- um og söngleikjum á fjölum leikhúsanna og öllum þeim ara- grúa lesendabréfa sem flæðir yfir dagblöðin með skætingi, í hvert sinn sem eitthvað vandað og ný- stárlegt sést á sjónvarpsskermin- um. Hvernig væri að víkka skjald- borgina sem Njörður vill slá um menningu Norðurlanda og veita allri heimsmenningunni skjól undan árásum afsiðunarinnar? Mundi það ekki tákna hið sama og snúa vörn í sókn, menning- unni í heild til framdráttar? HBR Vegna innlausnar spariskirteina ríkissjóÓs bic k— VERÐTRVGGÐA r^ff/Z L_I LJ z vaxtareiknin Allir afgreiðslustaðir Samvinnubankans annast innlausn spariskírteina ríkissjóðs og bjóða sparifjáreigendum verðtryggðan Hávaxtareikning með vöxtum. Hávaxtareikningur er alltaf laus og óbundinn. Kynntu þér Hávaxtareikninginn. Betri kjör bjóðast varla Samvinnubankínn

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.