Þjóðviljinn - 08.02.1985, Qupperneq 3
FRETTIR
Myndbandastríðið
„Kaupum frið“ fyrir stórfé
Myndbandaleigurnar vilja hreinsa til. Vantar allsherjar reglugerð um þessi viðskipti.
Leigufrömuðir: Rekinn harður áróður gegn okkur
Fjölmargar myndbandaleigur
hafa á undanförnum árum
greitt einstökum rétthöfum
hundruð þúsunda krónur til „að
kaupa sér frið“ eins og leiguaðilar
orða það. Hér er um hreinar
mútugreiðslur að ræða og allar
kærur látnar falla niður í fram-
haldinu. Nú ætla leigufrömuðir
hins vegar að taka höpdum sam-
an og styrkja sín samtök. Eina
ráðið til að koma einhverri reglu
á myndbandamarkaðinn er, að
sögn þeirra, að setja lög og reglu-
gerð um þessi viðskipti.
„Það vantar allsherjarreglu-
gerð um þessi viðskipti frá upp-
hafi til enda. Almenningur er
orðinn gegnsósa af áróðri móti
okkur og við unum því ekki að
vera kallaðir svikarar og svindlar-
ar í sölum Alþingis", segja for-
svarsmenn myndbandaleiga.
Á fundi með fréttamönnum í
gær lögðu þeir áherslu á að
leigurnar greiddu söluskatt og
tolla af öllu myndbandaefni sem
væri keypt inn og leigt út. Margt
væri hins vegar óljóst um löglega
rétthafa af stórum hluta mynd-
bandaefnis sem er í umferð og
félagar í samtökum rétthafa
hefðu farið með yfirgangi í árás-
um sínum á leigurnar.____________________________________________________________________________________________________
Forráðamenn félags myndbandaleiga segjast vilja koma einhverri skikkan á /iðskipti þeirra og rétthafa. Reglugerð verði að koma til. Mynd-eik.
B-álma Borgarspítalans
Vantar starfsfólk og húsnæði
Fjárframlög stórlega skorin niður. Framkvœmdir dragast á langinn.
Sjúkrarúm auð vegna skorts á starfsfólki. Ekki hœgt að senda fólk heim
því engin þjónusta er fyrir hendi. Vandamálin sífellt að aukast
essi aðstaða fyrir sjúkra- og
iðjuþjálfun er orðin mjög að-
kallandi og hefði þurft að koma til
helst í dag. Núna höfum við not af
smáherbergi í turinum sem þjón-
ar um leið öllum Borgarspítalan-
um, sagði Gunnar Sigurðsson
yfirlæknir lyflækningardeildar á
B-álmu Borgarspítalans er Þjóð-
viljamenn kynntu sér þær að-
stæður er starfsfólk og sjúklingar
búa þar við.
Samkvæmt áætluninni átti að
ljúka að fullu við B-álmuna fyrir
lok næsta árs en eftir mikinn
niðurskurð á framkvæmdafé frá
ríkissjóði og borgaryfirvöldum er
ljóst að þessi þjónustuálma fyrir
aldraða kemst ekki að fullu í
gagnið á þessum áratug.
I dag eru aðeins 2 hæðir af 7 í
B-álmunni komnar í rekstur,
báðar undir legudeildir með sam-
tals 58 sjúkrarúmum. Þar af eru
nú 14 rúm ónotuð vegna mikils
skorts á sjúkraliðum og hjúkrun-
arfræðingum. Um þriðjungur
sjúklinga á deildinni eru þar í
endurhæfingu en vegna mikils
skorts á starfsfólki til heimilis-
þjónustu fyrir aldraða í borginni
hefur nánast ekki verið hægt að
útskrifa nokkurn vistmann af B-
álmunni frá áramótum.
„Þetta fólk teppist hér inni á
sama tíma og fjöldi aldraðra bíð-
ur eftir að komast inn. Hér situr
allt fast og vandamálið er sífellt
að aukast", sögðu þær Ásta
Möller deildarstjóri og Jóna Egg-
ertsdóttir félagsráðgjafi á B-
álmu.
Þar á ofan bætist að dregið hef-
ur verið mjög úr framkvæmdum
við álmuna og ljóst er að iðju- og
þjálfunardeildin á 1. hæð verður
ekki fullkláruð á árinu eins og
stefnt var að. Þá er engin lyfta
komin í gagnið ennþá, loftræsti-
kerfið ófrágengið og- símamál ó-
fullkomin.
„Með því að draga þessar
framkvæmdir á langinn þá er ein-
ungis verið að skapa meiri vanda
annars staðar. Hér eigum við að
veita ýmsa þjónustu við aldraða
sem hvergi annars staðar er að fá.
Við erum einnig hér með hóp af
fólki sem ætti betur heima á vist-
heimili en þar er ekkert pláss að
hafa. Þessi mikli skortur af starfs-
fólki bæði á spítalana og í heimil-
isaðstoð er vandi sem verður að
leysa. Það eru fyrst og fremst bág
launakjör sem þar standa í vegin-
um. Við sjáum ekki að neitt sé
gert til að taka á þessum málum.
Það leysir heldur engan vanda að
láta þessa miklu fjárfestingu í B-
álmunni vera meira og minna ó-
nýtta árum saman. Hér er mikið í
húfi og það verður að taka á þess-
um málum", sögðu forráðamenn
B-álmunnar.
-*g-
Skák
Þrjú
alþjóðleg
í vor
Forstöðumenn á tímaritinu
Skák eru nú að undirbúa þrjú al-
þjóðleg mót í vor og verða þau öll
á landsbyggðinni.
í fréttatilkynningu frá Skák
segir að líklegur tími móts á
Húsavík sé miður mars, síðan
verði annað í Borgarnesi um
miðjan apríl og enn eitt í
Vestmannaeyjum um 20. maí.
Þessi mót eiga sér að fyrirmynd
mót á Neskaupstað og í Grinda-
vík í fyrra. Þar tóku allsterkir inn-
lendir og útlendir skákmenn þátt
í og þóttu mótin heppnast prýði-
lega.
—m
Alþýðubandalagið
Úrbætur í atvinnu-
málum
Lögð fram tillaga
I gærkvöldi fluttu fulltrúar Al-
þýðubandalagsins í borgarstjórn
tillögu um að endurvekja nefnd
sem starfaði á síðasta kjörtíma-
bili en hún hafði það verkefni
m.a. að vinna að úrbótum í at-
vinnumálum fatlaðra.
Nefndin beitti sér fyrir marg-
víslegum úrbótum m.a. vernduð-
um vinnustað en hefur ekkert
starfað síðan núverandi meiri-
hluti komst til valda. Atvinnu-
fatlaðra
borgarstjórn í gær
leysi er mjög alvarlegt hjá fötluð-
um einsog sagði frá í Þjv. í gær.
Guðrún Ágústsdóttir fylgdi til-
lögunni úr hlaði í gær, og minnti á
að nefndin hefði verið sett á lagg-
irnar á ári fatlaðra í kjölfar göngu
og fundar á Kjarvalsstöðum.
Samþykkt var á fundi borgar-
stjórnar í gær að fresta tillögu Al-
þýðubandalagsins til næsta fund-
ar.
-GFr
Skuldaskipin
Uppboðin að byrja
Uppboðsbeiðni hefur verið send til nokkurra bæjarfógeta.
Húsvíkingar œtla að halda borgarafund um málefni Kolbeinseyjar
að er rétt að uppboðsbeiðni
hefur verið send frá Fisk-
veiðasjóði til nokkurra bæjarfóg-
eta. Lánaskuldbreytingum hjá
Fiskveiðasjóði er lokið og þeir
skuldaaðilar sem ekki tóku þátt í
henni verða því boðnir upp, sagði
Gunnar Páll ívarsson skrifstofu-
stjóri Fiskveiðasjóðs í samtali við
Þjóðviljann í gær.
í Víkurblaðinu á Húsavík er
greint frá því í gær að uppboðs-
beiðni sé komin til bæjarfógetans
á Húsavík vegna skuttogarans
Kolbeinseyjar. í samtali við út-
gerðarstjóra skipsins, Kristján
Ásgeirsson, segist hann muni
leggja til að verkalýðsfélagið á
Húsavík, sem á í skipinu, eins og
margir fleiri aðilar á staðnum,
boði til borgarafundar um málið.
Tilvist togarans á Húsavík er
spurning um atvinnu eða
atvinnuleysi, þar sem skipið
skilar 40% þess hráefnis sem
unnið er í Fiskiðjusamlagi Húsa-
víkur.
Gunnar Páll ívarsson sagðist
ekki geta sagt á þessari stundu
hve mörgum hefði verið send
uppboðsbeiðni, en hann sagði
það ekki vera mörg skip sem
lenda myndu undir hamarinn.
Föstudagur 8. febrúar 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3