Þjóðviljinn - 08.02.1985, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 08.02.1985, Blaðsíða 8
GLÆTAN Hljómsveitin Dá Ung, bjartsýn á uppleið Fyrir rúmri viku hélt hljómsveitin „Dá“ stórgóða tón- leika í Safarí. Auk hljómsveitarinnar kom fram dansflokk- ur úr Kramhúsinu sem flutti frumsamda dansa við tónlist Dás og hét verkið „Allt sem andardrátt hetir“. Þar sem Dá er tiltölulega ný hljómsveit þótti Glætunni tiivalið að heyra hljóðið í meðlimum hljómsveitarinnar og fara spakyrði þeirra hér á eftir. Við erum sum alveg ný í bransanum en aðrir okkar eru gamlar hljómsveitarkempur, sögðu þau Hlynur, Krist- mundur, Heimir og Hanna Steina. Við erum alls ekki ný hljómsveit, við höfðum verið að æfa saman í skúrnum Stúdíó Nósánd í rúmt ár áður en við komum fyrst fram á tónleikum í fyrravor. Svo vorum við með tónleika í Safarí rétt fyrir jól en þeir drukknuðu í auglýsingaflóðinu fyrir jólin. Safarí er reyndar eini staðurinn sem hefur reynt að gera eitthvað fyrir lifandi tónlist og þeir eru mjög sann- gjarnir þar. Við sjáum um alla framkvæmd í sambandi við tónleikana, miðasölu, auglýsingar o.fl., fáum húsið ókeypis og aðgangseyririnn rennur í okkar vasa. Þetta voru bara þokkalegir tónleikar síðast, við komum slétt út. Fólk hefur ekki tíma til að fara á tónleika. Það eru allir að vinna og hafa lítinn áhuga á að fylgjast með hvað er að gerast. Nei, það eru engir tónleikar á döfinni í bráð. Við erum búin að fá inni í stúdíói og ætlum að taka upp „grunn“ og værum alveg til í að gefa út plötu ef einhver þorir að taka þá fjárhagslegu áhættu. Við eigum fullt af efni og auðvitað væri best að geta komið þessu frá sér til að geta byrjað á einhverju öðru. Þetta er allt frumsamið, stundum semjum við lögin saman, stundum kemur einhver einn með bút og hinir bæta við og stundum kemur einn okkar með alveg tilbúið lag. Það er allur háttur hafður á þessu. Ekki háfleygur boðskapur Þau vilja ekki taka undir þá staðhæfingu að þau séu lík hljómsveit og Kukl og segjast ekki vera inni á sömu línu. - Það segja margir að við séum þung en við erum það alls ekki en það þarf að pæla í tónlistinni, við erum ekki að spila dinnermúsík, okkar tónlist þarf sinn aðlögunartíma, það er ekki nóg að hlusta bara einu sinni. Við látum mata okkur allt of mikið hér á klakanum, fólk er ekki tilbúið til að leita. Auðvitað skiptir líka miklu máli hvar þú færð músíkina inni, og hvar hún er spiluð. Róðurinn er mjög þungur á móti og markaðurinn hér lítill. En við erum samt ekki að klaga; ef við höfum ekki náð til fjöldans er það engum að kenna nema okkur sjálfum. En við eigum okkur fasta aðdáendahóp, segja þau og brosa breitt, það eru eiginkon- ur og eiginmenn okkar. Hvað textana varðar þá erum við með boðskap en ekki endilega háfleygan boðskap heldur einfaldan, skýran og góðan, við erum ekki með neitt væmið ástarhjal, erum ekki að bjarga heiminum, en syngjum bara um venjuleg mannleg samskipti. Ef fólk vill endilega klína einhverjum stimpli á okkur þá má kalla tónlistina framsækið rokk. Framtíðarplön? segja þau og verða undirleit í framan, jú við stefnum að því að gefa út plötu og eftir það tökum við algjöra nýjung. Við erum bjartsýnt ungt fólk á uppleið og viljum bara koma því á framfæri að fólk gefi tónlistinni sjens, ekki segja nei strax! aró Björt mey og hrein... Allt sem lifir og hrærist. Framhald af bls. 7 hvorum við annan, mjóir með fánaandlit í þröngum buxum, silf- urjökkum og með hanska, en lengra nær samlíkingin ekki. Jackson er ímynd kynleysis með- an Prinsinn þrengir upp á áhorf- endur tvíræðni kynferðis síns. En sú tvíræðni er bara til á sviði, í einkalífinu umvefur hann sig með fallegum dömum eins og Vanity, Sheilu E. og Appolloníu. Appoll- onía er nýjasta skotið og segir að Prinsinn sé fyndinn, jarðbundinn og gefandi. Prinsinn er mótsagn- akennd persóna. Hann hefur á sér yfirbragð úrkynjunar, en lifir afskaplega heilbrigðu lífi. Hann reykir ekki, drekkur mjög sjald- an, notar engan vímugjafa og borðar heilsufæðu. Hann býr í dæmigerðu millistéttarhverfi og ekur um á BMW og fjólublárri Hondu. Hann er trúarlega sinn- aður og allsendis ófeiminn við að hræra saman trúarlegri og kyn- ferðislegri hlið persónu sinnar en það eykur bara á þann dularhjúp sem hann vefur um sig. Allir þeir sem vinna með Prinsinum eru bundnir þagnareið og mega ekk- ert láta uppi um hann. Það er sagt að líkt og fyrirrenn- arar Prinsins á tónlistarsviðinu þeir Little Richard og Jimi Hend- rix, ná áhrif Prinsins langt út yfir eigin frambraut. Hann hefur starfað með og stutt til dáða ýmsa listamenn. En hvernig verður svo Prinsinn árið 1999, mun trúarleg sannfæring hans leiða hann inn á prédikunarbraut eins og Little Richard eða taka hans myrku öfl völdin og brenna upp bjartan loga snilldargáfunnar líkt og gerðist með Jimi Hendrix? Það skiptir kannski ekki öllu máli í dag því Prinsinn er orðinn kon- ungur. Þýtt og endursagt aró Hér er Föstudagur 8. febrúar: Ársel: Diskótek kl. 8 - 11.30 Bústaðir: Diskótek kl. 8 -12 Fellahellir: Diskótek kl. 8 - 12 Tónabær: Diskótek kl. 8 - 11 Þróttheimar: Diskótek kl. 8 -12 Traffic: Diskótek kl. 10 - 3 ATHUGIÐ! ATHUGID! Látið Glætuna vita ef úr glæðist í menningar- og skemmtanalífi unglinga. Allar ábendingar eru vel þegnar og þið fáiö jafnframt ókeypis auglýsingu. Þið getið skrifað Glætunni, Þjóðviljanum, Síðumúla 6, eða hringt (8 13 33. Laugardagur 9. febrúar: Agnarögn: Diskótek kl. 9 - 1 Traffic: Duran Duran-hátíð kl. 10 - 3 og sunnudag 10 febrúar kl. 3 - 6 8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 8. febrúar 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.