Þjóðviljinn - 08.02.1985, Blaðsíða 6
ALÞÝÐUBANDAIAGID
Alþýðubandalagið Garðabæ og Hafnarfirði -
Þorrablót
Árshátíö og þorrablót Alþýðubandalagsfélaganna í Garöabæ og
Hafnarfiröi verður haldin í Garðaholti, nk laugardag 9. febrúar.
Veislustjóri veröur Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi.
Hljómsveitin Hrím flytur skemmtiatriði og spilar fyrir dansi.
Þorsteinn og Hulda Runólfsdóttir skemmta.
Miöapantanir í símum: 43956 (Guðmundur), 43809 (Hilmar) og
54065 (Páll). - Skemmtinefndin
AB Akranes
Opið hús
veröur í Rein nk mánudag 11. febrúar kl 20.30. Umræöuefniö er
Þjóðviljinn. - Stjórnin
Árshátíð Alþýðubandalagsins
á Akureyri
Árshátíö Alþýöubandalagsins á Akureyri veröur haldin í
Húsi aldraðra á Akureyri laugardaginn 23. febrúar
næstkomandi.
★ Hátíðin hefst kl. 20.00 stundvíslega með borðhaldi.
★ Vönduð skemmtiskrá verður auglýst síðar í Þjóðviljanum
og/eða Norðurlandi.
★ Að loknu borðhaldi verður stiginn dans við undirleik Sig-
urðar Sigurðssonar og félaga.
Væntanlegir þátttakendur í hátíðahöldum þessum eru vin-
samlegast beðnir að láta skrá sig sem fyrst hjá Ragnheiði í
síma 23397 eða Óttari í síma 21264.
Kvennafylkingin auglýsir
Konur! Mætum í morgunkaffi!
Alltaf heitt á könnunni í Flokksmiðstöð AB aö Hverfisgötu 105 á
laugardagsmorgnum frá kl. 11.00. Hittumst og spjöllum saman um
það serh okkur liggur á hjarta.
Miðstöð Kvennafylkingar AB
Blaðburðarfólk ' L* 4* ress
Ef þú ert morgunh
Haföu þá samband við afgreiðslu I^oðviljans, sími 81333
Blaðbera vantar strax á: Öldugötu og Túngötu.
Tilboð óskast í
eftirtaldar eignir:
Klapparstíg 26
Austurstræti 17
Laugaveg 146 (óbyggð lóð)
Aðalstræti 12 (óbyggð lóð)
Semja ber við Þorkel Valdimarsson og/eða Inga R.
Jóhannsson, löggiltan endurskoðanda, Ármúla 40.
Hlynur. . .
Framhald á bls. 5
Sigurð Guðmundsson. Viðtöl eru
við þá Jörund Kristinsson, skip-
stjóra á Dísarfelli, Ingiberg Finn-
boga Gunnlaugsson hjá Skipa-
deildinni, Gunnstein Karlsson,
forstöðumann Skjalasafns Sam-
bandsins, og Pétur Kristjónsson
um KPA-ráðið, en Pétur var for-
maður þess til skamms tíma. Sagt
er frá aðalfundi Nemendasam-
bands Samvinnuskólans, heim-
sókn í kaupfélagið á Stöðvarfirði,
bikarmóti LÍS í innanhússknatt-
spyrnu, Samvinnudögum á
Akureyri, nýju félagsheimili
starfsmannafélagsins á Djúpa-
vogi og Jóhann Tr. Sigurðsson
segir frá störfum S VS á Akureyri.
Stefanía Ólafsdóttir „hefur orð-
ið“ og ræðir um þýðingu sam-
hjálpar og samvinnu til þess að
sigrast á hverskonar erfiðleikum.
Andlitsmyndir eru þarna af for-
ystumönnum LÍS, gerðar af Kára
Sigurðssyni á Húsavík og fylgir
þeim ljóð í kaupbæti. Þættir eru
um vísur og matargerð.
Þetta er nú orðið allnokkuð og
er þó æði margt ótalið af efni rits-
ins.
- mhg.
Frá Hvammstanga
Hvammstangi
Afhending
verkamannabústaða
Fjórar íbúðir við Fífusund
Frá Eyjólfi R. Eyjólfssyni,
Hvammstanga:
Þann 25. jan. sl. fór fram af-
hending verkamannabústaða,
sem byggðir hafa verið við Fíf-
usund á Hvammstanga. Voru
þetta 4 íbúðir af 6, sem unnið
hefur verið við að undanförnu.
Ekki er úr vegi, við þetta tæki-
færi, að líta ögn til baka og rifja
lítillega upp byggingasögu verka-
mannabústaða hér á Hvamms-
tanga. Árið 1981 lét stjórn
Verkamannabústaða gera könn-
un á byggingaþörfinni. Á grund-
velli þeirrar könnunar var ákveð-
ið að byggja 4 íbúðir við
Hvammstangabraut og 5 við Fíf-
usund. Húsið við Hvamms-
tangabraut var afhent kaupend-
um í nóv. 1982. Teikningar af
raðhúsunum við Fífusund voru
samþykktar í ársbyrjun 1983.
Vegna aðstæðna á lóðinni var
ákveðið að byggj a 6 íbúðir í stað 5
eins og upphaflega var fyrirhug-
að.
Útboð fór fram í júlí 1983, og
varð niðurstaðan sú, að samið var
við Sameinaða verktaka hf.
Samningsverð var 8.566.000 kr.
Framkvæmdir hófust í ágúst 1983
og um áramót voru húsin upp-
steypt. Vegna fjárskorts hjá
Byggingasjóði verkamanna voru
gerðir tveir verksamningar við
verktakann um tvo verkáfanga.
Vegna fjárhagserfðileika Bygg-
ingasjóðs hefur stundum orðið
nokkur dráttur á greiðslum.
Um seinni verkáíanga var sam-
ið í mars 1984 og þá gert ráð fyrir
afhendingu 4 íbúða 1. okt. 1984
og 2ja íbúða í maí 1985. Breyting
var gerð á þessum samningi í júní
1984 þannig að afhendingu um-
ræddra fjögurra íbúða var frestað
til 1. des. 1984. Síðan var afhend-
ingunni enn frestað, að ósk verk-
taka, til 25. jan. sl.
íbúðirnar voru teiknaðar hjá
Tæknideild Húsnæðismálastofn-
unar ríkisins og var arkitekt Sig-
urbergur Árnason. Þær eru af
tveimur stærðum. Þær minni eru
3ja herbergja, 84 ferm, nettó,
94,6 ferm. brúttó en þær stærri
fjögurra herbergja plús geymsla,
99 ferm. nettó, 112,7 ferm.
brúttó. Rými er fyrir bflgeymslu á
lóð.
Byggingarstjóri verktakans
hefur verið Einar Jónsson, húsa-
smíðameistari. Byggingaeftirlit
hefur Olafur Jónsson tæknifræð-
ingur annast en fjárhagsleg um-
sjón hefur verið í höndum Þórðar
Skúlasonar sveitarstjóra.
Fjármögnun íbúðanna er
þannig háttað að kaupendur
greiða 10% en Byggingasjóður
verkamanna 90%. Oafturkræft
framlag Hvammstangahrepps til
Byggingarsjóðsins er 9%, af
framkvæmdakostnaði. Ekki
liggur fyrir endanlegt verð íbúð-
anna en bókfært kostnaðarverð
þeirra allra nú um áramótin var
9,7 milj. Áætlað verð hverrar
íbúðar af minni gerðinni er kr.
2,4 milj. en stærri 2,8 milj.
Á grundvelli könnunarinnar
frá 1981, þar sem fram kom að
íbúðaþörfin er meiri en leyfi
fékkst fyrir að byggja í þeim
áfanga, sem nú er senn að ljúka,
var áformað að sækja um bygg-
ingarleyfi fyrir fleiri íbúðum á ár-
inu 1986. Er og á því fyllsta nauð-
syn vegna íbúafjölgunar og þar af
leiðandi húsnæðisskorts. Svar
hefur enn ekki borist og því mið-
ur litlar líkur á að leyfi fáist.
- ere/mhg
Kjötiðnaðarstöð KEA
Aldrei framleitt
jafh mikið hangikjöt
Magáll, svínakjöt og lifrarkœfa runnu út
Menn eru lystugir á hangikjöt-
ið. Síðustu tvo mánuði fyrir jól
framleiddi Kjötiðnaðarstöð KEA
tæp 70 tonn af þeirri ágætu fæðu,
að sögn Óla Valdimarssonar for-
stöðumanns fyrirtækisins. Hefur
framleiðslan aldrei verið svo
mikil á jafn skömmum tíma.
í desember voru framleidd 40
tonn, sem er met í sögu fyrirtæk-
isins. Mest af hangikjötinu fór á
Reykjavíkurmarkað.
Magállinn og svínakjötið
runnu einnig út og gekk hvoru-
tveggja nánst til þurrðar. Þá má
nefna lifrarkæfuna, sem mjög
mikið seldist af. Hefur hún jafn-
an verið mjög vinsæl, enda nær-
ingargildi hennar mikið. Hefst
naumast undan að framleiða
hana og liggur stundum við að
ekki fáist nóg lifur.
- mhg
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 8. febrúar 1985