Þjóðviljinn - 08.02.1985, Síða 14

Þjóðviljinn - 08.02.1985, Síða 14
UM HELGINA Valtýr við tvö af verkum sínum á sýningunni. Valtýrá Veshirgötu A usturbœjarbíó Slenczynska aftur í Reykjavík Píanótónleikar Ruth Slenc- zynska á Kjarvalsstöðum sl. mánudagskvöld vöktu mikla hrifningu allra viðstaddra. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum var Ruth undrabarn á sínum tíma og enn - 50 árum síðar - býr þessi smávaxna kona yfir ótrúlegri tækni og orku. Vegna þess að Ruth Slenczynska verður lengur hér á landi en upphaflega var ráð fyrir gert hefur verið ákveðið að gefa tónlistarunnendum annað tæki- færi til að hlusta á þessa sérstæðu listakonu. Tónleikarnir verða haldnir í Austurbæjarbíói laugardaginn 9. febrúar kl. 14.00. Á efnisskránni verða 24 etýður op. 10 og 25 eftir Chopin, Noct- urne eftir Aaron Copland og Carnaval eftir Schumann. Miðar verða seldir við innganginn og kosta kr. 300.- (Kr. 200.- fyrir tónlistarnemendur). Sigfúsarkvöld fyrir norðan Nú um helgina munu þau Sig- fús Halldórsson, Elín Sigurvins- dóttir og Friðbjörn G. Jónsson leggja land undir fót og fara í tón- leikaferð til Ólafsfjarðar og Ak- ureyrar, og flytja „Ljúfustu lögin hans Fúsa“ fyrir tónlistarfélögin þar. Þau Elín og Friðbjörn munu ýmist syngja dúett eða einsöng hvort í sínu lagi við undirleik Sig- fúsar. Fyrri tónleikarnir verða á Ól-í afsfirði laugardaginn 9. febrúar kl. 20.30, - og hinir síðari í Borg- arbíói á Akureyri sunnudaginn 10. febrúar kl. 15.00. Musica Antiqua í Hafnarfiröi Tónleikar Musica antiqua með Camillu Söderberg blokkflautu- leikara og Herði Askelssyni org- elleikara sem voru í janúar sl. verða endurteknir í Hafnarfjarð- arkirkju á morgun 9. febrúar kl. 17. Leikin verða samleiks- og ein- leiksverk frá barokktímanum eftir ítölsk og frönsk tónskáld. Camilla leikur á 4 ólíkar gerðir af blokkflautum. Orgel Hafnar- fjarðarkirkju er 30 radda með 3 hljómborð og pedal, smíðað af Walcker orgelverksmiðjunum í Þýskalandi árið 1955. Áðgangs- eyrir að tónleikunum er 200 krónur. Á morgun verður opnuð mál verkasýning Valtýs Péturssonar í Gallerí íslensk list að Vesturgötu 17. Sýnir hann þar olíumálverk og vatnslitamyndir. Kennir þar margra grasa, ólíkra þeim sem frá Valtý komu um árabil en hann er nú að mestu snúinn frá ab- straktinu. Hér gefur að líta merkilegar yndismeyjar naktar, báta, hús, fjöll, blóm og ávexti. Blaðamaður hitti Valtý að máli í vikunni og spurði hvort hann væri snúinn til upphafs síns í myndlistinni. Hann sagði: - Ég byrjaði eiginlega svolítið í surrealískum stíl en þær myndir fóru aldrei upp á veggi. Annars er maður orðinn svo gamall í hett- unni að það er rétt að ég muni hvað ég málaði í það og það Á vegum Menningarsamtaka Norðlendinga stendur nú yfir kynning á verkum eftir Samúel Jóhannsson í Alþýðubankanum á Akureyri. Samúel hefur tekið skiptið. En ég málaði lengi ab- strakt, alltafíein 20ár. Efþúlítur á þessar uppstillingar mínar get- urðu líka séð að útilokað væri að ég hefði málað þær nema hafa gengið í gegnum abstraktið. - Þessar myndir minna á mál- verk sem urðu til á kreppuárunum og stríðsárum? - Já, þaðer kannski íslenskasta skeiðið í íslenskri málaralist. Ég þurfti að breyta til hvort sem það verður til ills eða góðs. - Eru þetta allt nýjar myndir? - Petta eru valdar myndir og margar hafa ekki sést áður. Ég hef sýnt sumar í Þrastarlundi þar sem ég er með sýningu á hverju sumri en yfirleitt hef ég breytt þeim. Ég er alltaf að vinna mynd- ir mínar, stöðugt að pikka í þær. -GFr þátt í nokkrum samsýningum m.a. á Kjarvalsstöðum og í Nor- ræna húsinu. Hann hefur einnig haldið eina einkasýningu á Akur- eyri, 1983. Akureyri Samúel sýnir í Alþýðubankanum Plakat-list í Listamiðstöðinni í dag kl. 14 verður opnuð sýn- ing á Plakat-list í Listamiðstöð- inni við Lækjartorg. Er hún á vegum plakatverslunarinnar „Hjá Hirtí“ á Laugavegi 24 og 21. Plakötin sem til sýnis verða eru frá hinum þekktu hollensku fyrir- tækjum: Art Unlimited og Verk- erke. Eru þau flutt inn í mjög tak- mörkuðu upplagi, 1 - 5 eintökum af hverri mynd og er verð frá 1400 - 2500 plakatið í ramma. „Hjá Hirti“ er ungt fyrirtæki sem hefur haslað sér völl á þessu sviði, enda er almennt hér á landi mjög vaxandi áhugi á plakat-list. Verslunin „Hjá Hirti" Lauga- vegi 24 sérhæfir sig í umræddum plakötum en verslunin Laugavegi 21 er sérstaklega ætluð unga fólk- inu sem áhuga hefur á hljóm- sveitaplakötum o.þ.h.. Sýningin stendur yfir dagana 9. -17. febrúar og verður opin dag- lega kl. 14 -18. Aðgangur verður ókeypis. í innri sýningarsal Listamið- stöðvarinnar verða svo verk eftir ýmsa innlenda og erlenda lista- menn til sýnis, sölu og leigu. Einnig verða til sölu möppur með eftirmyndum af verkum nokk- urra íslenskra listamanna á mjög hagstæðu verði. Sauðárkrókur Gítartónleskar Páls Eyjólfssonar Páll Eyjólfsson gítarleikari heldur tónleika í Safnahúsinu Sauðárkróki sunnudaginn 10. febr. kl. 16. Á efnisskrá verða verk eftir Luis de Narvaez, D. Scarlatti, J.S. Bach, M. C. Te- desco, I. Albeniz og F. N. Torro- boa. Páll hóf nám í Barnamúsík- skóla Reykjavíkur en síðar í Gít- arskólanum þar sem kennari hans var Eyþór Þorláksson. Hann lauk þaðan einleikaraprófi árið 1981 og stundaði síðan fram- haldsnám á Spáni undir hand- leiðslu spánska gítarleikarans Jose Luis Gonzales. Hann starfar nú sem gítarleikari í Reykjavík. Mokka Ljósmyndir Lofts Atla Nú stendur yfir Ijósmyndasýn- ing Lofts Atla á Mokka-kaffi við Skólavörðustíg. Þetta er 3ja einkasýning hans en auk þess hef- ur hann tekið þátt í nokkrum samsýningum. Á sýningunni eru 3 svart/hvítar myndir og 11 litmyndir og eru þær allar til sölu. Sýningin er opin til 25. feb. á opnunartímum kaffi- hússins. Hafnarborg Fimmta einkasýning Jónínu Jónína Guðnadóttir, leirlistar- maður, opnar sýningu á skúlptúr- um, lágmyndum o.fl. í Hafnar- borg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar að Strandgötu 34, á morgun, laugardaginn 9. febrú- arkl. 14.00. Sýningin eropin dag- lega frá kl. 14.00-19.00. Henni lýkur 24. febrúar. Þetta er fímmta einkasýning Jónínu en hún hefur tekið þátt í fjölda sam- sýninga innan lands sem utan, m.a. Scandinavia Today í Banda- ríkjunum og Form Island sem hófst í Helsingfors á síðastliðnu ári. Eitt af verkum Jónínu Guðnadóttur Leikfélag Akureyrar Næstsíðasta sýningarhelgi Sýningum fer nú að ljúka á leikriti Sveins Einarssonar, Ég er gull og gersemi, sem fjallar um Sölva Helgason listamann og flæking á síðustu öld. Leikritið fékk yfírleitt ágæta dóma og ættu menn því að grípa tækifærið og sjá verkið áður en það er um seinan. Þriðja síðasta sýning verður í kvöld og svo verða tvær síðustu sýningarnar í næstu viku. 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 8. febrúar 1985

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.