Þjóðviljinn - 13.02.1985, Blaðsíða 3
FRETTIR
PórJakobsson veðurfrœðingur:
Mér datt þettafyrst í hugfyrirsjö árum
Mér datt þetta fyrst í hug fyrir
einum 7 árum síðan, en það
er fyrst nú í vetur sem skriður
kemst á málið, sagði Þór Jakobs-
son veðurfræðingur en hann er
að hrinda í framkvæmd merki-
legri hugmynd. Hann kallar þetta
,JHeimshátíð“ og er hugmyndin
sú að halda hátíð víða um heim,
íþróttahátíð, listahátíð, vísinda-
ráðstefnur, sýningar og umræður
og einkunnarorðin eru að varð-
veita lífið, jörðina og menning-
una.
Þessu tengt er svo hugmynd
um boðgöngu umhverfis hnött-
inn, sem hefjist á Þingvöllum árið
1989, og þaðan stefnt til Kanada,
um N-Ameríku, síðan siglt til
Bretlands og þaðan svo umhverf-
is hnöttinn.
Hátíðarhöld verða svo vítt og
breytt um veröldina og fyrirhug-
að að boðgangan komi alltaf við
þar sem hátíðarhöld fara fram.
Áætlað er að gangan standi yfir í
mörg ár og að henni ljúki nokkr-
um árum eftir aldamótin.
Þór sagðist vera að undirbúa, í
samráði við Æskulýðsráð ríkis-
ins, einskonar æfingu, þ.e. boð-
göngu frá Þingvöllum til Reykja-
víkur 21. júní í sumar. í því sam-
bandi hefur hann ritað bréf til 25
íþrótta- og æskulýðsfélaga um
samvinnu í verkefninu.
Auðvitað er þetta friðarstarf.
Ég geri mér grein fyrir því að á-
greiningur manna á meðal í
heiminum verður aldrei upprætt-
ur, en með þessu vil ég benda
fólki á að laða fram allt það sem
mannkynið á sameiginlegt um-
fram deilumálin, sagði Þór Jak-
obsson. -S.dór
Heimshátíð
Samvinnuferðir-Landsýn
Nýjungar í boði
Aðildarfélagsafsláttur um7milj.
Þór Jakobsson: hyggst hrinda í framkvæmd hugmynd sinni um heimshátíð er
spanni allan hnöttinn.
Ferðaskrifstofurnar eru nú sem
óðast að búa sig undir vertíð-
ina næsta sumar og bjóðast ferða-
mönnum margir kostir eins og
venjulega. í sumarferðabæklingi
Samvinnuferða-Landsýnar, sem
kominn er út, kennir margra
nýrra og gamalla grasa en á með-
al nýjunga má nefna sjálfstæðar
leiguflugsferðir til Rhodos, nýjan
sælureit í Hollandi, leiguflug til
Salzburg auk þess sem boðið er
upp á ferðir til tuga hefðbund-
inna áfangastaða víða um heim.
Eins og áður bjóða
Samvinnuferðir-Landsýnar upp á
„sama verð fyrir alla lands-
menn“, SL-kjör og SL-ferðaveltu
með allt að 175% lánshlutfalli. Þá
er bryddað upp á þeirri nýjung nú
að auglýst er sérstakt verð fyrir
aðildarfélaga Samvinnuferða-
Landsýnar í stað afsláttar sem
verið hefur sl. ár. Er aðildarfélag-
sverðið tilgreint í verðlistanum
með bláum aukalit og gildir það
fyrir ofangreinda farþega sem
staðfesta ferðapöntun sína fyrir
7. maí nk. Er alls gert ráð fyrir að
aðildarfélagsafsláttur af ferðum
fyrirtækisins í sumar nemi um 7
miljónum króna.
Hinn nýi sumarferðabæklingur
Samvinnuferða-Landsýnar er
afar vel úr garði gerður, fullur
upplýsinga um einstakar ferðir og
einnig fullur fyrirheita um kom-
andi sumarferð. Þar kemur m.a.
fram að ferðir til sæluhúsa í Hol-
landi og sumarhúsa í Danmörku
kosta frá 14.800 kr. á mann, ferð-
ir til Rhodos kosta frá 24.500 kr. í
þrjár vikur og til Rimini má kom-
ast í 11 daga ferð fyrir aðeins
19.700 krónur. Segir í frétt frá
ferðaskrifstofunni að nú þegar
hafi um eitt þúsund manns skráð
sig í ferðir til sæluhúsa í Hollandi
og því vissara að panta sér ferð
sem allra fyrst. -v.
Félag
heyrnar-
lausra
25 ára
I fyrradag var Félag heyrnar-
lausra 25 ára en það var stofnað
hinn 11. febrúar 1960. Var afmæ-
lisins minnst með kaffisamsæti í
hinum vistlegu húsakynnum fél-
agsins að Klapparstíg 28.
Forgöngumenn félagsstofnun-
arinnar voru þau Guðmundur
Björnsson, Markús Loftsson,
Jón Ólafsson og Hervör Guðj-
ónsdóttir. Til liðs við sig fengu
þessir fjórmenningar Brand
Jónsson, skólastjóra
Heyrnleysingjaskólans. Vann
hann með þeim að gerð félaga og
félagsstofnuninni. A
stofnfundinum gengu 33 menn í
félagið og fyrsti formaður var ko-
sinn Guðmundur Björnsson. Nú
eru félagar 200 talsins. -mhg
Mývatn
Ibúar vilja rannsóknir
202 íbúar Mývatnssveitar vilja ekki útiloka
kísilgúrnám úr Syðriflóa
fyrr en rannsóknir hafafariðfram
t&u'iéía&id
Deilur i Mývatnssveit:
Þorgrímur Starri:
„VERJUM SYÐRI FLÓA”
Sigurður R. Ragnarsson:
,AUÐVITAÐ VERÐUR FARIÐ
í SYÐRI-FLÓANN”
Boðganga um hnöttinn
Meirihluti atkvæðisbærra
manna í Mývatnssveit hafa
sent Náttúruverndarráði yfirlýs-
ingu þar sem þess er krafist að
vísindalegar rannsóknir á áhrif-
um efnistöku úr vatninu fari fram
áður en kísilgúrnám úr Syðriflóa
verði tekið af dagskrá. Yfirlýsing
íbúanna, 202 að tölu, er svohljóð-
andi:
„Við undirritaðir íbúar Mý-
vatnssveitar viljum ekki útiloka
kísilgúrnám úr Syðriflóa Mý-
vatns. Við teljum að vísindalegar
rannsóknir sem fram munu fara
hljóti að gefa til kynna áhrif efnis-
töku þar. Áður en nokkrar niður-
stöður liggja fyrir teljum við ekki
tímabært að kveða upp úr með
hvort þaðan skuli numinn kísilg-
úr eða ekki. Við teljum ástæðu til
að hvetja Náttúruverndarráð og
aðra sem hafa látið þetta mál til
sín taka, að fella ekki dóm um
efnistökuna fyrirfram".
Undirskriftum til stuðnings
þessari yfirlýsingu var safnað
seinni hluta síðustu viku og skrif-
uðu 202 íbúar sveitarinnar undir
en tæplega 350 manns voru á
kjörskrá við síðustu almennar
kosningar.
Hreinsanir
Bað hana
að segja upp
Jón Baldvin: Kristín var virk
í kosningabaráttunni gegn mér
Knstin er ágætur skrifstofu-
maður og reyndist ágætlega
sem slfk. Hitt er annað að flokks-
skrifstofan starfaði öll innávið en
var ekki pólitísk baráttumiðstöð,
sagði Jón Baldvin Hannibalsson
formaður Alþýðuflokksins er
hann var inntur skýringa á brott-
rekstri Kristínar Guðnrundsdótt-
ur framkvæmdastjóra flokksins.
„Ég vil taka það fram vegna
yfirlýsingar Kristínar að fljótlega
eftir flokksþingið þá óskaði ég
eftir því að hún segði upp. Rökin
fyrir því eru einfaldlega þau að
hún var á sínum tíma ráðin sem
trúnaðarmaður forvera míns og
var virk í kosningabaráttunni
gegn mér. Á milli starfsmanna og
formanns á að vera fullur trúnað-
ur“, sagði Jón Baldvin, aðspurð-
ur um hvort hann stæði fyrir
hreinsunum innan flokksins.
Hann sagði brottrekstur Krist-
ínar lið í uppstokkun á starfsemi
flokksins til að gera hann að
fjöldaflokki.
-lg-
Athugasemd
„Þann 8. febrúar tekur Þjóð-
viljinn upp viðtal við mig sem
birtist í Víkurblaðinu 5. febrúar
sl. Þar sem blaðið sá ekki ástæðu
til að bera þessi ummæli undir
mig vil ég koma eftirfarandi
leiðréttingu á framfæri:
Blaðamaður ÁI slær upp þejrri
fullyrðingu „Förum í Syðrifióa",
en hirðir ekki um að geta for-
sendu hennar sem kemur skýrt
fram í Víkurblaðsgreininni. Hún
er, að rannsóknir sýni ekki að
lífríki vatnsins sé stórhætta af því
búin og leyfi fáist til vinnslunnar
þar. Þetta flokka ég undir óvand-
aða blaðamennsku.
Annað atriði sem ég vii
leiðrétta og er raunar rangt eftir
haft í Víkurblaðinu er að dýpkun-
in í Syðriflóa verður ekki 6 til 7
metrar eins og sagt er, heldur
lokadýpi verður 6 til 7 metrar í
stað 2,7 metrar sem er í dag“.
Sigurður Rúnar Ragnarsson
,Auðvitað verður farið í Syðr-
iflóann“ er fyrirsögn á aðalfrétt
Víkurblaðsins 5. febrúar s.l. og
haft eftir Sigurði R. Ragnarssyni,
stjórnarformanni Kísiliðjunnar.
Pað sem er nýtt íviðtalinu og kom
t.d. ekki fram t viðtali Pjóðviljans
við sama mann 1. febrúar s.l. er
sú skoðun hans að annað hvort
verði að loka Kísiliðjunni eðafara
í Syðriflóa á því 15 ára tímabili
sem nýja leyfisveitingin nærtil. Pó
stjórnarformaðurinn telji það
„óvandaða blaðamennsku“ að
vekja athygli á þessum ummœl-
um, er rétt að benda honum á að
þau eru fréttnæm. Ástœðurnar
eru tvœr: 1. Hann staðfestir það
sem Náttúruverndarráð hefur
haldið fram og varað hvað mest
við í sambandi við leyfisveitingu
iðnaðarráðherra. 2. Hann er
þ.a.l. ósammála iðnaðarráð-
herra, sem hefur aftekið þessa
túlkun Náttúruverndarráðs.
Tilgangur Þjóðviljans með
fréttinni 8. febrúar var eingöngu
að vekja athygli á þessum stað-
reyndum.
-AI
Miðvikudagur 13. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3