Þjóðviljinn - 21.02.1985, Side 3
FRÉTTIR
y Suðurnes
Astandið minnir á kreppuna
Forystumenn verkalýðs og atvinnurekenda funda með þingmönnum kjördœmisins
um það alvarlega ástand er ríkir í atvinnumálum á Suðurnesjum
Mjög alvarlegt atvinnuástand
hefur verið á Suðurnesjum
undanfarna mánuði og þykir sýnt
að vetrarvertíðin muni ekki bæta
úr þar sem 3 togskip hafa verið
seld burt frá svæðinu en þeim
fylgir um 9000 þúsund tonna
kvóti.
Forystumenn verkalýðshreyf-
ingar, vinnuveitenda og atvinnu-
málanefnda á Suðurnesjum hafa
tekið saman höndum vegna þessa
alvarlega ástands í atvinnumál-
um. Um síðustu helgi var haldinn
almennur fundur í Keflavík þar
sem staða mála var rædd en fund-
inn sátu m.a. allir þingmenn
Reykjaneskjördæmis.
„Einasta von okkar er sú að
þeir sem sem ráða ferðinn átti sig
á því hversu alvarlegt ástandið er
ekki bara fyrir okkur heldur um
leið þjóðfélagið í heild. Menn
verða að gera sér fulla grein fyrir
því hversu hart er búið að ganga
að undirstöðunni," sagði Guð-
mundur Gestsson formaður At-
vinnumálanefndar Suðurnesja í
samtali við Þjóðviljann.
Guðmundur sagði að eldri
menn líktu ástandinu nú við
krepputímann og þannig væri
komið að best reknu fiskiðjufyr-
irtækin sæju nú sitt óvænna og
hyggðust loka.
A fundinum á sunnudag var
ma. ákveðið að undirbúnings-
hópurinn sem hafði veg og vanda
af fundinum efndi til sérstaks
fundar um stöðu mála með þing-
mönnum kjördæmisins.
-lg-
Landnám
Námu
nonænir
kettir
Ameríku?
Það hefur lengi verið ríkjandi
skoðun hjá mörgum, að landi
okkar, Leifur heppni, hafi fyrstur
manna fundið Ameríku. Nýrri
stoð, og ekki óstyrkari,ihefur nú
verið skotið undir það álit. Bygg-
ist hún á rannsóknum á litarcrfð-
um katta, sem dr. Stefán Aðai-
steinsson hefur átt góðan hlut að.
Við rannsókn á köttum í Bost-
on kom sem sé í ljós, að þeir voru
mjög ólíkir, breska kattastofnin-
um, en á hinn bóginn svo líkir
þeim norræna, að telja má mjög
líklegt að þeir séu af sama upp-
runa. Ferillinn væri þá þessi:
Kettir bárust til Ameríku með
leiðangri Leifs heppna. Töluvert
slangur a.m.k. varð svo eftir er
Leifur og aðrir norrænir menn
ýmist féllu fyrir innbyggjum eða
hröktust aftur til síns heima. Þeg-
ar svo breskt landnám hófst í
Ameríku var villikattastofninn
orðinn það sterkur, að hann réði
lögum og lofum í æxluninni og
mótaði framtíðarstofninn með
sínu eðli. Sterkar líkur benda
þannig til þess, að þarna sé að
finna hina fyrstu norrænu land-
nema, sem tóku sér varanlega
bólfestu í Ameríku.
- mhg
i
Æ, þetta er hálf leiðinlegt land, félagar, en við verðum víst samt að hýrast hér vestan hafs úr því, sem komið er.
Dr. Stefán Aðalsteinsson
Nýtt landsstjórnarafl
Skák
Hort og
Larsen
með f jöltefli
Stórmeistararnir Hort og Lar-
sen munu tefla nokkur fjöltefli í
næstu viku að afloknu afmælis-
móti Skáksambandsins.
Larsen ætlar að tefla við
bankamenn á mánudaginn kem-
ur og Hort ætlar að tefla þrjú fjöl-
tefli. Hann verður í Sjómanna-
skólanum í Reykjavík á mánu-
dagskvöld. Á þriðjudagskvöld
teflir hann í íþróttahúsinu í Hafn-
arfirði í boði Sparisjóðsins og
Skákfélags Hafnarfjarðar. Hefst
taflið kl. 20 um kvöldið og er
þátttakendafjöldi bundinn við 40
manns. Þátttaka tilkynnist í Spar-
isjóðinn fyrir kl. 15 á mánudag.
Á miðvikudagskvöldið mun
Hort síðan taka þátt í fjöltefli
annaðhvort í Keflavík eða í Vest-
mannaeyjum.
- Ig-
Em samræður ádöfinni?
Alþýðubandalagið leggur til að Kvennalistinn og AB
rœði um nýtt landsstjórnarafl. Svarbréf send í gœr
Hvorug túlkunin er rétt og því
leggur Alþýðubandalagið til
að haldinn verði sem fyrst fundur
Kvennalista og Alþýðubanda-
lagsins til þess að skýra nánar
hvað átt er við í hinu upphaflega
bréfi Alþýðubandalagsins, segir í
bréfi frá forystumönnum Alþýðu-
bandalagsins sem sent var
Kvennalistanum í gær sem svar
við svarbréfi Kvennalista við boði
Alþýðubandalagsins um við-
ræður um nýtt landsstjórnarafl.
I svarbréfi sínu kvað Kvenna-
listinn ekki fyllilega ljóst hvað
væri átt við með „samstöðu um
nýtt landsstjórnarafl" og setti
fram tvenns konar túlkun á því:
ný ríkisstjórn eða nýr stjórnmála-
flokkur. Sagði í svari Kvennalista
að ef hvorug túikunin ætti við, þá
væri óskað eftir nánari skýring-
um. Alþýðubandalagið sagði í
sínu svari að hvorug túlkunin ætti viðræðna við BJ um nýjar leiðir þegar forystumönnum þess snúist
við og fer fram á samræður um til að skapa Nýtt landsstjórnarafl hugur. - óg
málið innan tveggja vikna.
í svari Alþýðubandalagsins við
höfnun Bandalags jafnaðar-
manna á viðræðum um nýtt
landsstjórnarafl segir m.a.: „Ál-
þýðubandalagið telur að í þessari
afstöðu komi fram skilnings-
skortur á nauðsyn sameiginlegrar
baráttu gegn ríkisstjórninni og
þeim afleiðingum sem stefna
hennar hefur fyrir afkomu og lífs-
kjör launafólks í landinu. Að
mati Alþýðubandalagsins felst
einnig í henni vanmat forystu BJ
á einlægum vilja félagshyggju-
fólks, þar á meðal stuðnings-
manna Bandalags jafnaðar-
manna, til þess að stuðla að sam-
stöðu meðal stjórnarandstöðu-
flokkanna um skelegga baráttu
gegn stjórninni". Þakkar AB BJ
skýr svör og lýsir sig reiðubúið til
Sanagerði
Fyrsti fiskurinn
síðan fyrir jól
20 konur af atvinnuleysisskrá í bili
Amánudag hófst aftur vinna í frystihúsi Jóns Erlingssonar hf. í
Sandgerði en síðast var unnið þar 21. desember sl. Rúmlega 20
konur sem verið hafa atvinnulausar síðan eru nú aftur komnar til
vinnu.
Togarinn Haukur GK-25 kom inn fyrir helgi með 50-60 tonn, sem nú
er verið að vinna og fór hann aftur út áður en verkfall sjómanna skall á.
Ef verkfallið dregst á langinn verða konurnar því aftur atvinnulausar
áður en langt um líður.
- ÁI
Fimmtudagur 21. febrúar 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3