Þjóðviljinn - 21.02.1985, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 21.02.1985, Blaðsíða 5
Þórleif Guðmundsdóttir gröfustjóri: Sjómönnunum veitirsvo sannarlega ekki afkauphœkkun Það var líf og fjör í Vestmannaeyjum um síðustu helgi þegar ljósmyndari Þjóðvilj- ans var þar á ferð. Loðnubátarn- ir streymdu að með fullfermi og landverkafólkið hafði ekki undan við að flokka, frysta og bræða þetta nýjasta siifur hafsins. Þegar þessi orð koma á þrykk er hins veg'ar allur annar gangur hjá fólki og hjólin farin að hægja á sér. Nú þegar verkfall sjómanna er skollið á eiga sjómenn enn eftir um 100.000 tonn af loðnukvótan- um, og það sem verra er: dýrmæt- asta hluta hans, sem er feit og hrognafull loðna sem ætluð var til frystingar. Loðnuþrær eru hins vegar full- ar víða um land, ekki síst í Vestmannaeyjum þar sem ein stærsta loðnubræðslan á landinu er til staðar. Eitthvað er því úr að vinna til bræðslu fram eftir vik- unni en vari sjómannaverkfallið lengur stöðvast hjó.l atvinnulífs- ins í sjávarplássunum alveg. Ljósmyndari Þjóðviljans gerði sér ferð út í Eyjar skömmu áður en loðnuhrotunni lauk og hér birtist hluti mynda sem hann tók í rispunni. GuðmunduráGígjunniíVestmannaeyjahöfn.Siðastitúrgerði 12.000krónurí hásetahlut. Ljósm.: E.ÓI. Milliliðimir mergsjúga okkur Guðmundur Magnússon á Gígjunni: Margtþarfað breytast efsamningar eiga að nást „Milliðliðakerfið er að sliga sjávarútveginn. Það er nefnilega eins með þetta eins og djöfulinn: Ef þú réttir fram litla fingur þá missir þú alla höndina,“ sagði Guðmundur Magnússon skip- stjóri á Gígjunni Vestmannaeyjum. frá „Að mínu mati þarf margt að breytast til að viðunandi samn- ingar náist. Kostnaðarhlutdeildin verður að breytast, skiptapró- sentan þarf að hækka, en hún er nú aðeins 28% til háseta. Síðasti túr gerði 12 þúsund í hásetahlut, úr 750 tonnum. Auk þess þurfa fæðispeningar að hækka töluvert, einnig þurfa að koma til fata- kaup, það er að segja þessir gallar sem við notum eru rándýrir og þeir duga yfirleitt ekki nema 1-2 túra.“ Þórleif gröfustjóri á botni einnar loðnuþróarinnar í Vestmannaeyjum. Ljósm.: E.ÓI. Vona að þetta leysist sem fyrst „Maður vonar bara að þetta leysist sem allra fyrst og það er alveg öruggt að það verður mikið áfall fyrir okkur og raunar þjóð- arbúið í heild ef samningar drag- ast verulega á langinn,“ sagði Þórleif Guðmundsdóttir gröfu- stjóri er við hittum hana fyrir í loðnubingnum. Aðspurð kvaðst Þórleif vera eini kvenmaðurinn sem gegndi því starfi að stjórna gröfu. En ef verkfallið leysist ekki fljótlega hvað þá? „Þótt bátarnir séu nú stopp er talsverð vinna eftir í landi fyrir okkur en þegar loðnan er búin, fæ ég líklega eitthvað að gera inni við. Maður vonar bara að útgerð- armenn þráist ekki mikið við og ________________________________________________________ bjóði sjómönnunum gott kaup. Allar lestir fullar af loðnu og unnið sleitulaust við að ná verðmætunum á land. Þeim veitir víst ekki af.“ Ljósm.: E.ÓI. Loönu- hrata í Eyjum UMSJÓN: MAGNÚS H. GÍSLASON Flmmtudagur 21. febrúar 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.