Þjóðviljinn - 21.02.1985, Síða 7
Húsnæðismálin
Hvað vill
Alþýðubandalagið?
Skattheimtu á banka, verslun, skipafélög
og stóreignamenn til aö afla
byggingarsjóöunum 1400 miljóna á ári
næstuöárin.
•
Afborganir og vextir af húsnæðislánum
miöist viö þá vísitölu sem lægst er á
hverjum tíma.
Hvað þýðir þetta?
Ránskjaravísitalan afnumin.
1000 miljónir til viöbótar í nýbyggingar á ári
hverju.
400 miljónir á ári til að létta skuldir
húsbyggjenda.
•
Eiginfjárstaöa byggingasjóðanna styrkt um
7 miljarðaáöárum.
Hverju myndi þetta
breyta fyrir þig?
1000 íbúðir á ári fyrir ungt fólk með 75%
lánum.
500 þúsund króna lán aö meðaltali til þeirra
sem byggt hafa eftir 1980.
300 miljónir á ári til
húsnæðissamvinnufélaga.
•
300 miljónir á ári til viðbótar í
Verkamannabústaði, þar af 100 miljónir í
leiguíbúðir.
Alþýðubandalagið hefur
ilutt frumvarp um hús-
næðismál í samræmi við þá
stefnu sem flokkurinn mark-
aði í samstarfsgrundvelli fyrir
síðustu kosningar. Tillögum-
ar miðast að því að á næstu 5
árum verði gerðar sérstakar
ráðstafanir bæði vegna þeirra
sem hafa eignast húsnæði á
síðustu árum og hinna sem á
næstu árum þurfa að tryggja
sér húsnæði í fyrsta sinn.
Ríkissjórnin hefur nú sett
íslandsmet í kosningasvik-
um gagnvart húsbyggjendum.
í stað 80% láns eins og lofað
var, fær 2ja til 4urra manna
fjölskylda nú 29,1% lán í ný-
byggingu og 11,5% lán ef
keypt er gömul íbúð.
Kaupránið og dráttur á af-
greiðslu lána frá Húsnæðis-
stofnun hefur valdið því að
fólk getur ekki staðið í skilum
eða tryggt sér nýtt húsnæði.
Lögbirtingablaðið er orðið
helsta málgagn ríkisstjórnar-
innar.
Eina úrræði ríkisstjórnar-
innar í þessum vanda er að
opna ráðgjafarþjónustu, sem
greinilega er full þörf fyrir.
Þar eiga þeir sem eru í van-
skilum með meira en 150 þús-
und krónur að fá lán að upp-
hæð 50 til 100 þúsund krónur
hver. Þetta fjármagn, 150-200
miljónir króna, á að taka af
nýbyggingarlánum þessa árs.
Alþýðubandalagið telur það
siðleysi að afnema verð-
bætur á laun en verðtryggja
húsnæðislán með lánskjara-
vísitölu sem æðir áfram um-
fram kaupgjald. Flokkurinn
gerir kröfu til þess að þessi
„ránskjaravísitala“ verði af-
n uminog afborganir og vextir
miðist við kaupgjaldsvísitölu
eða byggingarvísitölu, eftir
því hvor er lægri á hverjum
tíma.
Itillögum Alþýðubandalags-
ins er gert ráð fyrir beinum
framlögum til byggingarsjóð-
anna í stað dýrkeyptra lána, -
framlögum frá þeim semí mak-
að hafa krókinn í tíð þessarar
ríkisstjórnar: bönkum, versl-
un, skipafélögum og stór-
eignamönnum.