Þjóðviljinn - 21.02.1985, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 21.02.1985, Blaðsíða 9
Litið við / Geirakot[ „Frekar þjóðhollusta en búskapur“ Þegar Eyrarbakkaafleggjarinn er ekinn niður frá Seifossi, blasir fljótlega við nýlegt og reisulegt býli á vinstri hönd. Það er Geir- akot í Sandvíkurhreppi þar sem hjónin Ólafur Kristjánsson og María Hauksdóttir búa ásamt þremur dætrum sínum. Einnig búa á jörðinni fullorðnir foreldr- ar Ólafs sem brugðu búi fyrir rúmum áratug. - Við byrjuðum búskap hérna árið 1970, segir Ólafur þegar hann hefur boðið okkur blaða- mönnum í bæinn. Pabbi var þá kominn upp undir áttrætt og var þá með 13 kýr. Við byggðum nýtt fjós og erum núna með 30 mjólk- andi kýr. 5 dagar í frí Er þetta ekki erflður bú- skapur? spyrjum við hús- freyjuna? Komist þið nokkurn tímann í frí. - í fyrra fórum við í 5 daga austur á firði. Það er það lengsta sem við höfum komist í burt frá búinu í seinni tíð. Hvernig gekk að koma upp þessum byggingum og bústofni? - Lánin voru óverðtryggð á þessum tíma og við sluppum vel miðað við það sem fólk stendur frammi fyrir núna. Það er erfitt að sjá hvernig dæmi á að geta gengið upp hjá þeim sem byrjað hafa búskap nú á síðustu árum. Annars var ég að reikna það út núna á dögunum, bætir Olafur við, að miðað við 100 þús. lítra innlegg á ári eins og frá þessu búi, þá eiga menn yfirleitt útistand- andi um 300 þús. krónur. Það sem við leggjum t.d. inn í mjólk- urbúið núna í febrúar fáum við greitt að 90% þann 20. mars en full skil koma ekki fyrr en í apríl á næsta ári. Yfir sumarmánuðina eru greidd út 70% af grundvallar- verði en hitt bíður. Það er kann- ski ekki víst að allir átti sig á þessu. Þannig reiknast mér til að frá sl. ári eigi ég ógreiddar um 300 þús. krónur. Þið talið um erfiðleika hjá ungu fólki að hefja búskap. Er að endurnýjast mikið hérna í sveitinni? - Það er alltaf eitthvað. Sér- staklega uppúr 1970, þá tók ný kynslóð víða við. Fylgdi því mikil tæknibylting á bæjunum? Hvað t.d. hjá ykkur? - Við tókum upp rörmjalta- kerfi, og byggðum nýtt rimlaflór- að fjós. En eftir því sem tæknin eykst þá bæta menn bara meiru á sig. Nokkur sýnishorn Þið eruð ekkert í sauðfjárbú- skap? - Það eru til nokkur sýnishom, segir Ólafur og kímir. Nei, það dæmi gengur ekki upp. Þetta er Fjölskyldan í Geirakoti. Frá v. María Hauksdóttlr, Auðbjörg 5 ára, heimilishundurinn Sveppur, Kristján 3ja ára og Ólafur Kristjánsson. Elsta dóttirin Sigurbjörg 13 ára var í skóla á Selfossi er okkur bar að garði. Mynd - eik. miklu frekar þjóðhollusta en bú- skapur að vera með rollur, auk þess sem þetta hérað hentar ekki vel fyrir sauðfé. Það er stutt héðan á Sclfoss. Er það kostur? - Já vissulega, stutt að sækja alla þjónustu. Það er samt ein- kennilegt að þrátt fyrir nálægðina við Selfoss hefur tekist hér í Sandvíkurhreppi að halda vel í horfinu. í Ölfusi hefur aftur á móti hefðbundinn búskapur að stórum hluta lagst niður. Menn hafa farið út í loðdýrarækt, þöku- sölu og hestamenn að sunnan keypt upp sumar jarðimar. Hvað er efst á baugi í landbún- aðarpólitíkinni að ykkar mati? - Andvaraleysi neytenda, svar- ar Ólafur að bragði. Menn eru að glopra niður neytendastyrk á landbúnaðarvörur sem aftur dregur úr neyslunni. Það ætti að sjálfsögðu að vera baráttumál verkalýðshreyfingarinnar að tryggja fólki þessar nauðsynja- vömr á lágu verði. Og af því að þið voruð að sýna fram á það í Þjóðviljanum á dög- unum að nú vantaði um 1/4 af mjólk í fernurnar vegna kaupskerðingar þá er rétt að benda á þá staðreynd að smásölu- álagning á hvern líter er nú 2 kr. Á vel reknu býli heldur bóndinn eftir 6 kr. af hverjum líter þegar dæmið er gert upp. Þetta þýðir m.ö.o. að smásalinn sem seldi alla mjólkurframleiðsluna mína á sl. ári fékk fyrir það 230 þús. kr. Það em heil árslaun. Færri sætta sig við kvótann Nú búið þið við kvótakvcrfi í framleiðslu. Hvað fáið þið að senda frá ykkur mikið af mjólk á ári? - Okkar búmark er 722 ærgildi. Þar af megum við framleiða 90% af búmarki á fullu verði. Það þýð- ir um 115 þús. 1. af mjólkáári. Ég var einmitt að fá bakreikninginn og hann er nokkurn veginn eins og við áttum von á. Fórum aðeins yfir markið. Eruð þið sátt við þetta kerfi og að þurfa að búa við það um ein- hver ókomin ár? - Ég á von á því að færri og færri sætti sig við þennan lífsmáta sem þessum búskaparháttum fylgir, þ.e. mjólkurframleiðslu. Ég á því ekki von á að hér verði um eilífð offramleiðsla í landbún- aði. Það hlýtur að fækka í sveitunum. Sérteiknað íbúðarhús Mig langar að minnast á þetta skemmtilega hús ykkar. Það er ekki víða í sveitum sem húsakost- ur er jafnskemmtilegur og hér. - Húsið er reist árið 1979, segir María og lýsir fyrir okkur húsa- kynnum. Við vorum þegar í upp- hafi ákveðin í að leggja ákveðna hluti til grundvallar. Við vildum góðar bakdyr og stórt þvottahús, rúmgott eldhús og fleiri svefnher- bergi vegna sumarfólksins og húsið átti að vera á tveimur hæð- um. Hins vegar var lítið til þá af teikningum sem hentaði hjá byggingarstofnun landbúnaðar- ins og við fengum því vin okkar Pál Bjarnason sem var nýkominn úr námi til að teikna húsið. Þetta tókst allt mjög vel og við erum mjög ánægð með árangurinn. Hvernig er vinnudagurinn hjá ykkur? - Við förum á fætur kl. hálf átta og erum í fjósinu fram undir há- degi við að mjólka og gefa. Síðan þurfum við að fara í fjósið aftur kl. hálf sex og erum þar til hálf níu um kvöldið. Oft kalið illa Hvernig eru túnin? - Það hefur aldrei legið klaki á í vetur svo það ætti ekki að vera hætta á kali. Það hefur oft kalið illa hérna þegar þíðan hefur ekki náð að klára. Hvernig gekk með hey í fyrra? - Mjög brösulega. Það bjar- gaði að við byrjuðum gott um Jónsmessuna á slættinum. Og hvernig leggst þá sumarið í ykkur eftir þennan góða vetur? - Það þýðir ekki annað en að vona það besta, segir María. - Ég myndi segja að það væri skynsamlegra að vona það versta, bætir Ólafur við. Við þökkum fýrir móttökur og kaffið og röltum út í fjósið þar sem kýmar bíða óþreyjufullar eftir því að komast út í birtuna og vorið. _ig. Flmmtudagur 21. febrúar 1985 ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.