Þjóðviljinn - 21.02.1985, Qupperneq 13

Þjóðviljinn - 21.02.1985, Qupperneq 13
Selfossbuar Sunnlendingar Höfum ávallt mikið úrval af brauðum og kökum. ATH. Bætt þjónusta. Seljum einnig fjölbreytt álegg frá Sláturfélagi Suður- lands og Höfn. ii\flg$niRVEGI3f - Slm 1755 - SEIFOSSI Höldum heim að Hofi Þar eru húsakyrmi við þitt hæfi. I veitingasalnum erboðið upp á Ijúffengan og ódýran mat i hádeginu og á kvötdin og þar er einnig glæsilegt úrval af heimabökuðum kökum. Á Hótel Hofi eru glæsileg salarkynni til veisluhalda. Þareru einnig til staðar öll hjálpargögn til tunda- og ráðstefnuhalds. Ekki má gleyma þægilegu gistiherbergjunum. Þau eru vel búin húsgögnum, sturtu, snyrtingu, sima, útvarpi o.fl. Velkomin heim að Hofi. Raudarárstig 18 -Simi 28866 SUÐURLAND Guðlaugur Ámason: Allar geymslur fullar af kartöflum. Mynd - eik. Langstærsti hluti kartöfluuppskerunnar í Þykkvabænum enn óseldur „Verða að duga í uppgræðslu" segir Guðlaugur Árnason á Eyrartúni sem hefur aðeins losnað við 12% af uppskerunni Eins og skýrt var frá í frétt í Þjóðviljanum á dögunum er stærsti hluti kartöfluuppskerunn- ar í Þykkvabænum frá sl. hausti ennþá óseldur. Allar geymslur í þorpinu eru yfirfullar af kart- öflurn. Stór hluti uppskerunnar liggur undir skemmdum og Ijóst er að að minnsta kosti helming uppskerunnar verður hent á garða. Guðlaugur Árnason bóndi á Eyrartúni í Þykkvabæ hefur ein- ungis losnað við um 12% af sinni uppskeru og liggur með 3000 poka af kartöflum í geymslum. „Það eru hérna tvö hús full af kartöflum sem ekki er farið að hreyfa við síðan í haust og það má heita í meira lagi undarlegt ef mér tekst að selja meira en helming- inn af þessu,“ sagði Guðlaugur þegar við litum við hjá honum og fengum hann með okkur út í geymslurnar. Ætla menn að standa saman eða ekki „Hvernig manni líður? Ég veit ekki, hvernig kæmi það við ykkur að fá enga vinnu og ekkert kaup? Það fylgir þessu ekkert nema kostnaðurinn. Rækta þetta, taka upp, koma í hús og geyma síðan í kældum geymslum. Nei, það verða ekki ræktaðar kartöflur af neinu viti hérlendis ef þetta á að fá að ganga svona áfram með „hobbýbændurna“. Annað hvort verður hér um alvörustofnræktun að ræða og menn halda bæði hóp- inn og lögin í sinni starfsemi, eða við hættum þess. Þessi deila við „hobbybændurna" snýst um það hvort menn ætla að standa saman í verkalýðsfélagi og tryggja sinn hag eða ekki,“ segir Guðlaugur og leggur áherslu á orð sín. Svokallaðir „hobbýbændur" eru þeir sem stunda kartöflurækt- un í hjáverkum. Þeir tóku uppá því sl. haust að selja afurðir sínar beint í verslanir en ekki til Græn- metisverslunar landbúnaðarins sem hefur verið sölu- og dreifing- arstofnun fyrir kartöflubændur. Grænmetið hefur séð til þess að jafna sölua þannig að enginn bóndi sitji eftir með sína upp- skeru óselda. Nú er staðan hins vegar sú að „Hobbýbændurnir" eða hjáverkabændur sem er betra orð, hafa flestir selt um 80-90% af sinni framleiðslu á meðan að Slátrun á sauðfé, nautgripum, svínum og hrossum a/lt árið. Frystihús, frysti- geymslur, garna- hreinsun, úrbeining o.m.f/. % SLÁTU RFELAG SUÐURLANDS FOSSNLSL SELFOSSl S 99-1192 „Við sitjum eftir sem héldum hópinn og lögin". Mynd: -eik. aðrir kartöflubændur hafa ein- ungis losnað við 12-20% af allri framleiðslunni. 30 ára staðnað fyrirtæki „Ég veit ekki hvernig stjórnvöld ætla að bregðast við þessu. Það eru ekki greidd nein sjóðsgjöld af þeim kartöflum sem fara beint í versianir. Þá teljum við einnig að Grænmetisverslun- in hafi brugðist okkur. Þetta er 30 ára staðnað fyrirtæki. Þeir hafa ekki fylgt tímanum. Verslunar- hættir þurfa að breytast. Þeir hafa ekki stundað neina sölu- mennsku, heldur eingöngu verið í afgreiðslu sem dreifingarmið- stöð. Mér sýnist samt að þetta sé eitthvað að breytast til batnað- ar,“ heldur Guðlaugur áfram. „Eins og staðan er núna þá hef ég persónulega enga trú á öðru en við verðum látnir sitja eftir. Ég set þetta á bíl í sumar,“ segir Guðlaugur og bendir á kartöflu- staflann,“ hreinsa út úr húsunum og keyri þetta suður í gljá. Kart- öflur eru ágætar til uppgræðslu, þær verða að duga í það að þessu sinni“. -Ig. Fáið Smið hf. með ykkur í framkvæmdirnar. Getum tekið að okkur hvers konar framkvæmdir, stærri og smærri verk. Höfum 25 og 40 tonna bílkrana, byggingar- krana og Case- gröfur 4x4, 580 G. X i- I Höfum á plotum allt fyrir álbita undirslátt stoðir. Höfum kerfismót í stærri og smærri byggingar t.d. skemmur, haughús, iðnaðarhús, íbúðarhús. Getum bætt við verkefnum Hringiö eöa komiö og fáið upplýsingar. Símar: 2025 Verkstæði 1726 Heimasími 1852 Heimasími 1413 Heimasími 4222 Hveragerði Allttil steypuvinnu. Vibrator Sladdara Gólfslípivélar Steypusíló Gagnheiði 25 Sími 99-2025 Húsbyggjendur Byggingarmeistarar Húseigendur Fljótleg og þægileg aðferð! Betokem SUM gólfílögn Nú þarft þu ekki lengur að bíða i 5-6 daga eftir að golfilögnin þorni og þú getir haldið áfram. Með þvi að nota Betokem sjálfútjafnandi ílögn i gólfin getur þú unnið 5 daga, Betokem gólfilögnin harðnar svo fljótt að þú getur keyrt á gólfinu eftir 24 tima. SUM gólfílögn hefur verlð i þróun í Þýskalandi, Svi- þjóð og Noregi sl. 15 ár og hefur sýnt að hun stenst fyllilega allar þær gæða-, þol- og styrkleikakröfur sem settar voru í upphafi og síðar hafa komið fram Það hefur enda sýnt sig á söluþróuninni sl. 7 ár að þarna er á ferðinni algjör bylting í gólfílögn, salan hefur nánast þotið upp og ekki hefur verið hægt að anna eftirspurn fyrr en nú. Betokem A/S í Noregi er leiðandi fyrirtæki í kemisk- um efnum fyrir steinsteypu. Þeir hafa leystóteljandi vandamál fyrir norskar steypustöðvar, rafmagns- veiturnar, vegagerðina, járnbrautirnar, og siðast en ekki síst verkefni i sambandi við oliuborpallana, þar sem þeir þróuðu upp efni og aðferðir til að gera steypu sveigjanlega. Þeir hjá Betokem eru lika sérfræðingar í að leysa allskonar vandamál meö gólf og efni sem mikið mæðir á. 12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 21. febrúar 1985 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 13 Okkur er sönn ánægja að geta nú k þeirra efni og aðferðir hér á landi. S. Sigurðsson hf., Hafnarfirði, símar 52723 og 54766

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.