Þjóðviljinn - 21.02.1985, Side 21

Þjóðviljinn - 21.02.1985, Side 21
 Kýpur Sameining í sjónmáli? Sjaldan hefur jafn lítið borið á milli oddvita Kýpur-Grikkja og Kýpur- Tyrkja og í viðrœðum sem slitnaði uppúr í Nýju-Jórvík fyrir skömmu TURKCYPRIO T/SKT OMRÁDE Nicosia^v ( ' • Famagusta Larnaca Libaraön Medelhavet Israel Limassol Egypten Jordan Kýpurmálið skaust aftur fram á forsíður blaða fyrir skömmu vegna þess að oddvitar Kýpurgrikkja og Kýp- urtyrkja komust furðunálægt samkomulagi um að stofna einskonar sambandsríki á eynni og binda þar með enda á þá algjöru tvískiptingu sem eyjaskeggjar hafa búið við frá 1974 og hefur gert mikinn hluta þeirra að flóttamönnum í eigin landi. Og sem fyrr tengist Kýpurmálið mjög hagsmunum Nató sem hefur miklar áhyggj- ur af því að Kýpurmálið og tyrkneskt hernám norðurhluta eyjarinnar geri Grikki enn óþægari í Nató en þeir annars væru. maður Kýpurtyrkja, sem eru 120 þúsundir, leit svo á að litið væri eftir annað en undirrita samkomulagið sem bindandi samning. í samkomulagsátt Málsaðilar höfðu rætt um möguleika á að sameina Kýpur aftur í eitt sambandsríki tveggja sjálfstjórnarhéraða, ríki sem stæði utan hernaðarbandalaga. Báðir höfðu slegið af fyrri kröf- um sínum. Kyprianú hafði til dæmis fallist á það að Tyrkir fengju 30% þingsæta í neðri deild og helming sæta í efri deild sam- bandsþingsins enda þótt þeir séu ekki nema 18% af öllum íbúum. Tyrkir áttu einnig að fá þrjá ráð- herra af tíu í stjórn landsins. Kýpurtyrkir höfðu að sínu leyti horfíð frá kröfunni um að forseti landsins væri til skiptis Grikki eða Tyrki og létu sér nægja vara- forsetaembættið. Þeir höfðu og fallist á að láta af hendi hluta þess landssvæðis sem þeir nú ráða í skjóli tyrkneskra hersveita - og myndu þeir fá 29% af landinu en ráða nú 38%. Um langan aldur höfðu aðilar ekki komist svo langt í átt til samkomulags og ekki er ólíklegt að þeir muni síðar meir semja á þessum nótum. Hagsmunir Nató Nató hefur að sjálfsögðu síst áhuga á að sessunautar í því bandalagi, Grikkir og Tyrkir, haldi áfram að velta þeirri púð- urtunnu sem Kýpur er á milli sín fyrir botni Miðjarðarhafs. Og Bandaríkjamenn óttast það sér- staklega að stjórn Papandreú láti Kýpurmálið verða sér tilefni til að gera alvöru úr því að loka CYPERN Syricn Sameinuðu þjóðirnar og fram- kvæmdastjóri þeirra, Perez de Cuellar, hafa komið allmikið við sögu þeirrar samningaviðleitni sem nú hefur strandað í bili að minnsta kosti. Það kom á daginn að málsaðilar skildu það hver sín- um skilningi sem áunnist hafði í samkomulagsátt. Spyrios Kypri- Kýpur hefur verið skipt í tvo hluta allt frá árinu 1974 er tyrkneskar hersveitir náðu svæði frá gríska hlutanum og er landamæranna gætt af gæslusveitum Sameinuðu anú oddviti Kýpurgrikkja, sem eru um hálf miljón, taldi að samið hefði verið um grundvöll frekari samninga. Rauf Denktash, tals- Kýpur Kýpur hefur margoft í sög- unni verið vettvangur styr- jalda, enda er lega landsins mikilvæg fyrir þá sem ráða vilja austurhluta Miðjarðar- hafs - hvort sem þeir eru Forn- grikkir, Rómverjar, Krossfarar eða þá Nató. Hér steig ástar- gyðjan Afródíta upp úr hafi að því er sögur herma, en sönnu nær væri að kenna eyjuna við stríðsguðinn. Kýpur var bresk nýlenda en á sjötta áratugnum áttu Bretar*í höggi við skæruliða sem börðust fyrir Enosis, sameiningu við Grikkland. Það máttu Tyrkir hinsvegar ekki heyra nefnt og vildu þeir helst að landinu yrði skipt. Eyjan fékk sjálfstæði 1960 og var þá sett stjórnarskrá sem átti» að tryggja rétt beggja þjóða á eynni. Forsetinn átti að vera Grikki en varaforsetinn Tyrki, 15 af 50 þingmönnum áttu að vera fulltrúar tyrkneska minnihlutans og hann átti og að eiga þrjá ráð- herra af tíu. í raun voru þeir Kypiranú og Dehktash að koma sér saman um margt úr gömlu Samfelld ófriðarsaga stjórnarskránni í þeim viðræðum sem frá segir annarsstaðar hér á síðunni. Bretar réðu miklu um þessa stjórnarskrá - og komu því svo fyrir í leiðinni að þeir fengju tvær herstöðvar á eynni. Þær hafa þeir enn. En Tyrkjum þótti að þeir mættu sín lítils í þessu kerfi og hættu að mæta á þingi og á stjórnarfundum í ársbyrjum 1964 en þá þegar höfðu brotist út al- varleg átök milli þjóðarbrotanna. Sameinuðu þjóðirnar sendu friðargæslulið til eyjarinnar til að skilja stríðandi aðila. Bardagar blossuðu upp aftur 1967 og mun- aði minnstu að til meiriháttar styrjaldar kæmi. Árið 1974 steyptu ofstækisfull- ir Grikkir sem vildu sameinast Grikklandi Makaríosi erkibisku- pi og forseta landsins af stóli. En hlutleysispólitík Makariosar var h'tt að skapi þeim herforingjum sem þá réðu í Aþenu. Uppúr þessu valdaráni hófust átök milli þjóðarbrotanna og Tyrkir sendu her á vettvang og hernámu norðurhluta landsins. Það var þá að um þriðjungur landsmanna varð flóttafólk í eigin landi. áb - tók saman nyðri hluta eyjarinnar á sitt vald. Hin svokallaða „græna lína“ aðskilur það þjóðanna (merkt inn á kortið með strikalinu). bandarískum herstöðvum á Grikklandi. Því er það haft fyrir satt að Bandaríkjamenn hafi lagt mjög að stjórn Tyrklands til að hún að sínu leyti fái Denktash til að semja við Kyprianú. Mögu- leikarnir til þrýstings eru svo sannarlega fyrir hendi: Tyrkland borgar um 60% af útgjöldum þessa Tyrkjalýðveldis sem Denk- tash stofnaði á norðurhluta eyjar- innar í hitteðfyrra. Og Banda- ríkjamenn dæla að sínu leyti miklu fé og vopnum í tyrkneska herinn, sem er tiltölulega mjög stór. Óleystur vandi Það eru einkum þrjú erfið mál sem þeir Kyprianú og Denktash áttu eftir að leysa. í fyrsta lagi voru þeir ekki sam- mála um það hvenær tyrkneska herliðið í norðurhlutanum, um 24 þúsundir manna, verði á brott. Grikkir vilja að þeir fari strax, en Denktash vill að þeir séu áfram um hríð sem trygging fyrir öryggi Kýpurtyrkja. I annan stað er spurt um það, hvort landsmenn fái að setjast þar að sem þeim sýnist - og þar með hvort þeir sem flúðu heimkynni sín 1974 geti flutt heim til sín aftur og endurheimt þær eigur sem þeir þá misstu. Hér er spurt um hvorki meira né minna en 190 þúsundir Kýpur- grikkja og 60 þúsundir hinna tyrknesku. í þriðja lagi er spurt um það, hvernig tryggja eigi framkvæmd samkomulagsins um sameinað Kýpur. Grikkir vilja að það sé á vegum Sameinuðu þjóðanna. En Denktash og hans menn vilja að tiltekin ríki ábyrgist samkomu- lagið og Tyrkland sé eitt þeirra. áb tók saman. : Flmmtudagur 21. febrúar 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 21

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.