Þjóðviljinn - 21.02.1985, Blaðsíða 22

Þjóðviljinn - 21.02.1985, Blaðsíða 22
HEIMURINN T Garðyrkja- Æ Hafnarfjörður Hafnarfjarðarbær óskar að ráða verkstjóra til að ann- ast garðyrkju- og ræktunarstörf á vegum bæjarins. í starfinu felst aðallega verkstjórn, umsjón með ræktun- arverkefnum, vinnuskóla o.fl.. Á vetrum verður starfað að hönnun og öðrum undirbúningi verka. Óskað er eftir skrúðgarðyrkjumanni í starfið. Laun samkvæmt kjarasamningum verkstjóra. Nánari upplýsingar veitir bæjarverkfræðingur Strandgötu 6 á skrifstofutíma. Umsóknum skal skilað á sama stað eigi síðar en 7. mars nk.. Bæjarverkfræðingur. SÖLUSKATTUR Viðurlög falla á söluskatt fyrir janúarmánuð 1985, hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 25. þ.m. Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin 20%, en síðan reiknast dráttarvextir til viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. mars. Fjármálaráðuneytið, 18. febrúar 1985. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri Staða yfirsjúkraþjálfara við endurhæfingadeild sjúkrahússins er laus til umsóknar. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf 1. júní 1985. Upplýsingar um starfið veitir Inger Eliasson, yfirsjúkraþjálfari í síma 96-22100. Umsóknir er greini menntun og fyrri störf sendist framkvæmdastjóra sjúkrahússins fyrir 15. apríl 1985. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Atvinnurekendur 28 ára kona óskar eftir góðri framtíðarvinnu á Stór- Reykjavíkursvæðinu. Margt kemur til greina, nema verslunar- og/eðaframleiðslustörf. Upplýsingar í síma 28595 e.kl. 19 á kvöldin. Aðalfundur íþróttafélagsins Fylkis verður haldinn fimmtudaginn 28. febrúar nk. kl. 20.30 í félagsheimilinu við Fylkis- veg. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin. 1X2 1X2 1X2 25. leikvika - ieikir 16. 02. 1985 Vinningsröð: XXX-X12-212-2X2 1. VINNINGUR: 10 réttir, kr. 24.995.- 81 47319(4/9) 58470(4/9) 7295 57822(4/9) 63403(4/9) 8850 58450(4/9) 88136(6/9) 9388 58452(4/9) 94681(6/9) 95365(6/9) 56635(2/10,6/9)* 163083(3/10,1/9) 2. VINNINGUR: 9 réttir, kr. 1.089.- 145 9699 43899 58032 86246 94680 57461(2/9)♦ 294 * 9725 44611 58324 87269+ 94984 57833(4/9) 835 12832 45162 58447 88096 95004 58581(2/9) 853 12954 45253 58448 88 361 95045 64758(2/9)♦ 1037 13762 46068 58451 88371 95186+ 86796(2/9)+ 3038 + 14083 47059+ 58453 88548+ 96775+ 88631(2/9) 3054 + 18610 47099+ 61465 88606 165676 95009(2/9) 4737 19299 49627 61576 88621 1171(3/9)+ 96815(2/9)♦ 4783 19312 50031 63399+ 88848 37464(2/9)♦ 163082(2/9) 4881 35309 50408+ 63400+ 88905 38732(2/9) 5047 38078 52044+ 63629 89441 39860(2/9) Úr. 24. viku: 6195 40594+ 56737 63679+ 90419+ 40414(2/9)+ 90257 6397 41145 56752 64164 91800+ 44437(2/9)+ 90670 7063 42171 57826 64903 92352+ 48147(2/9) 7467 42203+ 57827 85030 92932 50874(2/9) 7887 42831+ 57828 86164+ 93322+ 55571(2/9) Kærufrestur er til 11. mars 1985 kl. 12,00 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á skrifstofunni í Reykjavík. Vinn- ingsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina. Handhafar nafn- lausra seðla (+) verða að framvísa stofni eða senda stofninn og fullar upplýs- ingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir lok kærufrests. GETRAUNIR - íþróttamiðstöðinni - REYKJAVÍK Margaret Joan Anstee, aðstoðarframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, ásamt aðstoðarmanni sínum á blaðamanna- fundi nú í vikunni. (mynd: eik). Próunarabstob Léleg stjómun hefur eyðilagt mörg góð mál MargaretJoan Anstee stýrir stofnun sem bætirfyrir vanrækslusyndir Sameinubu þjóbanna Hér var stödd á dögunum merkileg kona að nafni Marg- aret Joan Anstee til viðræðna við íslenska ráðamenn. Frú Anstee er sú kona sem komist hefur til einna mestra metorða inna skrifstofubáknsins hjá Sameinuðu þjóðunum. Hún gegnir starfi aðstoðarfram- kvæmdarstjóra og undir hana heyrir deild sem fæst við tæknisamvinnu og þróunar- mál. Erindi hennar hingað til lands var að kynna sér aðstæður okkar til að sinna þróunaraðstoð á sviði jarðhita og vatnsaflsnýtingar. Þar hafa íslendingar lagt fram drjúgan skerf á undanförnum áratugum og fór Anstee fögrum orðum um það sem hún nefndi brautryðjendastarf íslenskra vís- indamanna. Nefndi hún þar eink- um til starf Sveins S. Einarssonar og fleiri jarðvísindamanna ís- Ienskra í Mið-Ameríku. Það sem Anstee vildi helst ná fram hér á landi var að koma föst- um samningum um að íslending- ar sendi vísindamenn út um heim og taki við tæknimönnum frá þró- unarlöndunum til þjálfunar hér á landi. Það síðarnefnda á sér þeg- ar stað að vissu marki þar sem er Jarðhitaskóli SÞ sem starfrækir deild hér á landi. En sú stofnun heyrir ekki undir deild Anstee. Vasast í ýmsu Deild sú sem Anstee veitir forstöðu hefur verið við lýði í nokkra áratugi, eða allt frá stofn- un SÞ fyrir 40 árum. Hluverk hennar hefur þó verið nokkuð á reiki, hún hefur vasast í ýmsu. „Við tökum við ýmsu sem aðrar stofnanir SÞ sinna ekki“. sagði Anstee. „Það má segja að við höfum verið í því að bæta fyrir vanrækslusyndirsamtakanna. En meginviðfangsefni okkar hefur verið að styrkja innviði þeirra þjóðfélaga sem við störfum í, leggja grunninn að því að þar geti framþróun átti sér stað. Við höf- um aðstoðað stjórnir ýmissa landa við að bæta stjórnun, gera mannfjöldaspár o.þ.h.. Eitt stærsta verkefni deildarinnar undanfarin ár var að skipuleggja manntal í Kína. Einnig höfum við haft afskipti af félagsmálum og landbúnaði. Þróunin hefur orðið sú að orku- og auðlindamál taka mest- an hluta af okkar og peningum. Á þessu fjárhagsári ráðum við yfir liðlega 110 miljónum dollara og af því fara um 40% til þessara máiaflokka. Á sviði orkumála einbeitum við okkur að því að aðstoða ríki sem ekki ráða yfir olíulindum við að nýta aðra orkugjafa og þar er jarðhitinn veigamestur. Við höf- um ákveðið að verja 28 miljónum dollara til þess að auka jarðhita- nýtingu næstu þrjú árin. Þegar þetta starf hófst fyrir hartnær tuttugu árum voru ís- lendingar ein af fáum þjóðum Sveinn S. Einarsson er nýhættur eftir 15 ára þróunarstörf að jarð- hitavirkjunum I Mið-Ameríku. sem réðu yfir umtalsverðri þekk- ingu á nýtingu jarðhita. Þeir voru brautryðjendur og Sameinuðu þjóðirnar komu þekkingu þeirra áleiðis til þeirra sem þurftu á henni að halda. Það sem við vilj- um fá hjá íslendingum er að þeir sendi tæknimenn til þróunarland- anna til að sinna þar skammtíma- verkefnum og þjálfun innlendra tæknimanna. Einnig viljum við geta sent hingað tæknimenn í þjálfun. Reynslan sýnir okkur að útkoman verður best ef blandað er saman á réttan hátt kennslu á heimaslóðum og námsferðum. Með því móti nýtist þekkingin best og minnst hætta er á að þeir sem þjálfun hljóta fjarlægist þann veruleika sem ríkir í heima- landinu." Fjöður í hatt Á blaðamannafundi þar sem Anstee sagði það sem hér er eftir henni haft var hún spurð hver^ væru helstu vandamálin sem deild hennari ætti við að eiga, þ.e. að frátöldum eilífðarvandan- um: peningum. „Ég hef nú lært það á löngum ferli mínum að það er hættulegt að alhæfa. Vandamálin eru mjög misjöfn eftir löndum. Þó get ég sagt að mjög víða hefur léleg stjórnun eyðilagt mörg góð mál. Því hefur ekki verið sinnt nóg að aðstoða þróunarlönd við að koma á góðri stjórnun. Þetta er skiljanlegt því stjórnun er mjög erfitt og viðkvæmt svið og aðstoð þar skilar ekki eins áþreifan- legum árangri og margt annað, td. hráefnaleit eða virkjanagerð. En mér hefur sýnst að augu manna séu að opnast fyrir þess- um vanda. Annar vandi er að fá sérhæft fólk til starfa í þróunarlöndun- um. Oft kemur það fyrir að við höfum peningana en ekki þekk- inguna til að vinna ákveðin verk. Þetta á sér m.a. þá skýringu að fólk vill síður rjúfa feril sinn í heimalandinu með því að dvelja í einhverju fjarlægu landi kannski í nokkur ár. Að þessu leyti finnst mér að til þurfi að koma hugar- farsbreyting. Við þurfum að koma því þannig fyrir að þróun- arstarf verði fjöður í hatt vísinda- manna, að það ýti frekar undir framavonir þeirra en dragi úr þeim að taka þátt í þróunar- starfi", sagði Margaret Joan An- stee. -ÞH 22 SÍOA — ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 21. febrúar 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.