Þjóðviljinn - 27.02.1985, Side 2
FRETTIR
Kísilgúrnám:
Leyfið stenst ekki
„Við teljum að Náttúruvernd-
arráði beri meira hlutverk en það
eitt að vera umsagnaraðili um
námaleyfi í Mývatni. 3. grein
verndunarlaganna frá 1974 kveð-
ur mjög skýrt á um hlutverk Nátt-
úruverndarráðs varðandi breyt-
ingar á þessu svæði og við teljum
okkur skylt að framfylgja þeim
lögum“, sagði Eyþór Einarsson
formaður ráðsins á fréttamanna-
fundi s.l. þriðjudag.
Á fundinum geröu Eyþór Ein-
arsson, Elín Pálmadóttir, vara-
formaður ráðsins, og dr. Jón
Gunnar Ottósson, varaformaður
Rannsóknastöðvarinnar við Mý-
vatn, grein fyrir þeim ágreiningi
sem risinn er milli Náttúruvernd-
arráðs og iðnaðarráðherra vegna
námaleyfis til Kísiliðjunnar.
Náttúruverndarráð telur að leyfi
ráðherra standist ekki samkvæmt
verndunarlögunum og vísar m.a.
til greinargerðar Gauks Jörunds-
sonar prófessors, þar sem sérstök
lög um verndun svæðisins eru tal-
in taka af öll tvímæli um vald
Náttúruverndarráðs á svæðinu.
Bentu ráðsmenn á að engin und-
anþága er í lögunum varðandi
Kísiliðjuna, eins og t.d. varðandi
búskap og byggingar á skipu-
lögðum svæðum, en þegar lögin
voru sett hafði Kísiliðjan starfað í
10 ár. Náttúruverndarráð hefur
nú leitað aðstoðar menntamála-
ráðuneytisins til að fá fram
breytingar á námaleyfinu.
En hvað er það sem Náttúru-
verndarráð gerir athugasemdir
við í leyfinu? Fyrst og fremst
lengd leyfistímans, og það að kís-
ilgúrnáminu eru engin takmörk
sett fram til 2001. Einnig telur
ráðið að endurskoðunarákvæð
varðandi lífríkið séu of veik o;
reyndar opin til hártogunar.
„Það er ekki forsvaranlegt að
setja engin takmörk á það hvar
og hversu mikinn kísilgúr má
taka af botni Mývatns", sagði Jón
Gunnar Ottósson m.a..
„Miðað við núverandi vitn-
eskju teljum við aðeins óhæf'. að
dæla á ákveðnum svæðum á Ytri-
flóa, sem ekki munu endast
lengur en í 7 ár. Tillaga ráðsins
um leyfi til 1991 miðast við að
nauðsynlegum rannsóknum
verði lokið 1988 og þá gefist tími
til endurmats".
„Þó núverandi iðnaðarráð-
herra túlki þetta opna leyfi sem
bann við efnistöku úr Syðriflóa,
þá er enginn stafur fyrir þeirri
túlkun í leyfinu sjálfu", sagði
Eyþór Einarsson. „Hver veit
hvernig síðari tíma ráðherrar
kunna að túlka þetta.“
Varðandi endurskoðunará-
kvæðin bentu ráðsmenn á að þar
væri aðeins fjallað um skaðsemi á
lífríkið við Mývatn, ekki í vatninu
sjálfu eða á því. „Þetta er opið til
hártogunar", sagði Eyþór, „og
mjög óeðlilegt að skaðsemi verði
að sannast áður en kemur til
afturköllunar á leyfinu. Það er of
seint að byrgja brunninn, þegar
barnið er dottið ofaní“.
Á fundinum lögðu ráðsmenn
áherslu á að Náttúruverndarráð
hefði ekki krafist lokunar Kísil-
iðjunnar. „Kísilgúrinn á botni
Mývatns endist ekki til eilífðar“,
og þar með mun Kísiliðjan ekki
starfa til eilífiðar, sagði Eyþór
Einarsson. „Við vitum ekki nóg
um það ennþá hversu langt má
ganga varðandi lífríkið en höfum
ýmsra vísbendingar um að
nauðsynlegt sé að fara varlega“.
Dr. Jón Gunnar Ottósson, varaformaöur Rannsóknastöðvarinnar við Mývatn,
skýrir kort af botni Vtriflóa. Innan þríhyrn ingsins telur Náttúruverndarráð
óhaétt að taka kísilgúr næstu 7 árin. Frekari vinnsla verði að ákvarðast af
niðurstööum rannsókna sem Ijúki 1988.
Háskólatónleikar
Mozart í
Noiræna
Háskólatónleikar eru að vanda
í dag, miðvikudag. Þessir tón-
leikar eru haldnir í Norræna hús-
/ inu í hádeginu hvern miðvikudag,
hefjast kl. 12.30 og standa í uþb.
hálftíma. Hugmyndin með þess-
um tónleikum er sú að fólk geti
sleppt hádegisverðinum einn dag
í viku og notið tónlistar í staðinn.
Að þessu sinni verður fluttur
kvintett fyrir óbó og strengjasveit
í c-moll, K. 406, eftir Wolfgang
j Amadeus Mozart. Flytjendur eru
Ðaði Kolbeinsson, óbó, Júlíana
Kjartansdóttir, fiðla, Helga Þór-
arinsdóttir, víóla, Sesselja Har-
aldsdóttir, víóla, og Carmel Rus-
sill, selló.
- ÞH
Verkalýðsmálaráð AB
Fræðslu-
fundur
I kvöld miðvikudagskvöld kl.
20.30, er fyrsti fræðslufundur
Verkalýðsmálaráðs Alþýðu-
bandalagsins, sem boðað hefur
fundaherferð á næstunni um
verkalýðsmál.
Á fundinum í kvöld munu þau
Gylfi Páll Hersir og Sigurlaug
Gunnlaugsdóttir ræða um vinnu-
verndarmál, öryggi og hollustu-
hætti á vinnustöðum. Þau munu
kynna niðurstöður nýlegrar
könnunar á aðbúnaði og heilsu-
fari fiskverkunarfólks og verka-
fólks í fata- og vefjariðnaði.
2 SfÐA - ÞJÖÐVIUINN
Styrktarfélag vangefinna
Húsin í Víðihlíð verða heimili
22. febrúar tók Styrktarfé-
lag vangeflnna formlega í
notkun sambýli og skamm-
tímaheimili í Víðihlíð 9-11 og
nýtt húsnæði fyrir vinnustof-
una Ás að Brautarholti 6.
Fyrsta skóflustungan var
tekin 23. mars 1983 í tengslum
við 25 ára afmæli Styrktarfé-
lags vangefinna. Heildar-
kostnaður við bygginguna er í
dag 11,5 miljónir. Borgin af-
henti félaginu 1,5 miljónir og
gaf eftir gatnagerðargjöld, um
500 þúsund. Framkvæmda-
sjóður fatlaðra lagði fram 4
miljónir en Styrktarfélag van-
gefinna kostaði framkvæmd
að öðru leyti. Tvö húsanna
eru nú fullfrágengin og stefnt
að því að ljúka hinum tveimur
á þessu ári. Vinnustofan Ás
sem áður var rekin í bráða-
Við formlega opnun glæsilegu heimilanna að Víöihlíð. Frá vinstri:
Tómas Sturlaugsson framkvæmdastjóri Styrktarfélags vangefinna,
Davíð Kr. Jensson varaformaður félagsins, Alexander Stefánsson,
félagsmálaráðherra, Sólveig Theódórsdóttir forstöðumaöur heimil-
anna, Magnús Kristinsson formaður Styrktarfélags vangefinna og
Margrét Margeirsdóttir deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu.
birgðahúsnæði þjálfunar-
heimilisins Lækjaráss er nú
flutt í Brautarholt 6. Festi fé-
iagið kaup á húsnæðinu í júní
sl. og er kostnaður við kaupin
rúmar 5 miljónir. Starfsemi
vinnustofunnar hófst 12. dés-
ember sl. Forstöðumaður
nýju heimilanna er Sólveig
Theódórsdóttir þroskaþjálfi
en Hafliði Hjartarson er fram-
kvæmdastjóri Áss. - aró
Það er dýrt drottins
orðið.
Guömundur
Haglín
látinn
Guðmundur Gíslason Hagalín
rithöfundur er látinn. Guðmund-
ur var mikilvirkur rithöfundur og
liggur eftir hann mikill fjöldi
skáldsagna og ritverka, þar sem
gjarnan gætir áhrifa frá heimasl-
óðum hans á Vestfjörðum.
Guðmundur var ættaður frá
Lokinhömrum í Arnarfirði og var
86 ára er hann lést. Hann gegndi
trúnaðarstörfum í samtökum rit-
höfunda og tók einnig virkan þátt
í störfum Alþýðuflokksins. Guð-
mundur var heiðursfélagi Al-
þýðusambands Vestfjarða, Fé-
lags íslenskra rithöfunda og Rit-
höfundasambands fslands. Eftir-
lifandi kona Guðmundar er Unn-
ur Aradóttir Hagalín.
Kennarar
í áttina
Á samningafundi í gær lýsti
samninganefnd ríkisins því enn
yfir að hún hafnaði kaupkröfum
HÍK. Hinsvegar kvaðst hún að
sögn Indriða Þorlákssonar „tilbú-
in að taka sérstakt tillit til sér-
stöðu kennara“. Enn er óljóst
hvort munnlegar viljayfirlýsingar
samningamanna rikisins duga
kennurum til að draga uppsagnir
sínar til baka.
Þegar aðilar hittast aftur á
morgun verða samninganefndar-
menn ríkisins að sögn Kristjáns
Thorlaciusar formanns HÍK
beðnir um að „tala skýrar“ og
helst í tölum. Stjórn HIK hefur
ákveðið að boða alla þá kennara
sem sagt hafa upp til fundar ann-
að kvöld og verður þar tekin
ákvörðun um hvort kennarar
hætta störfum á föstudag.
Kristján kvaðst túlka yfirlýs-
ingar ríkismanna þannig að þeir
ætluðu að semja betur við kenn-
ara en aðra hópa innan BHM.
— Þetta er auðvitað í áttina,
sagði formaður HÍK, „jákvætt
frekar en neikvætt. Hvort menn
sætta sig við þessa véfrétt, það á
eftir að koma í ljós“. m