Þjóðviljinn - 27.02.1985, Side 5
Sveinborgin, GK 70, nýlegur togari í eigu ísstöövarinnar í Garði liggur nú bundinn við bryggju í Njarðvíkum og er til
sölu. Sveinborgin er þriðji togarinn sem ísstöðin selur úr byggðarlaginu. Ljósm. E.OI.
Unnið að því að steypa undirstöður annars olíugeymsins i Helguvík. Áætlað er að oliugeymarnir muni kosta 4,9
miljarða króna og að höfnin kosti um 2 miljarða. Ljósm. E.ÓI.
Suðurnesiamenn
„Fast þeir sóttu sjóinn...“
Nú erþeim œtlað að róa íHelguvíkina og hernaðarframkvœmdirnar á Keflavíkurflugvelli
Á síðustu tveim árum hafa ver-
ið seid skip frá Suðurnesjum sem
samsvara 9000 tonna aflakvóta.
Enn er verið að selja skip úr
byggðarlaginu, því togarinn
Sveinborg, GK 70 er nú til sölu.
Togarinn er í eigu ísstöðvarinnar
í Garði, sem eitt sinn var grósku-
mikið útgerðar- og fískvinnslu-
fyrirtæki, en rekstri þess er nú að
hætta. Sveinborgin er þriðji tog-
arinn sem ísstöðin selur, hinir
togararnir voru Erlingur og Ing-
óifur.
„Það er eins og þau sjónarmið
ráði, að við eigum að byggj af-
komu okkar á Kananum hér á
Suðurnesjum", sagði Grétar
Mar, útgerðarmaður í Sandgerði
í samtali við Þjóðviljann í gær.
Það er heldur ekki neinum
blöðum um það að flétta, hvar
gróskuna í atvinnulífinu er að
finna á Suðurnesjum um þessar
mundir, því bæði í Helguvík og á
Keflavíkurflugvelli standa nú yfir
gífurlegar framkvæmdir og
mannvirkjagerð. í olíubirgða-
stöðinni, sem bandaríkjaher er
Framhald á bls. 6.
Suðurnes
Slagunnn er
við bankakerfið
segir Guðmundur Ingvarsson
hjá Garðaskaga í Garðinum
Við útvegsmenn hér á Suður-
nesjum stöndum í svokölluðum
bankaslag, og það er fyrst og
fremst ástæða þess að menn hafa
verið að selja héðan skip og loka
fyrirtækjum, sagði Guðmundur
Ingvarsson hjá útgerðar- og físk-
vinnslufyrirtækinu Garðskaga í
Garði í samtali við Þjóðviljann í
fyrradag.
Þau fyrirtæki í Garðinum sem
nú hafa hætt eða eru að hætta eru
ísstöðin og Fiskverkun Guðbergs
Ingólfssonar, en ísstöðin hefur
verið rekin af sonum Guðbergs.
Síðasti togari ísstöðvarinnar,
Sveinborg GK, liggur nú bundinn
við bryggju í Njarðvíkum og er
kominn á söluskrá. Þessi tvö fyr-
irtæki hafa verið með 150-200
manns í vinnu þegar mest hefur
verið.
Guðmundur Ingvarsson sagði
að útvegsmenn í Garðinum hefðu
verið í viðskiptum hjá Útvegs-
bankanum þar til að bankinn
sagði viðskiptunum upp í fyrra-
sumar. Bankinn gaf þá skýringu
að þar sem Sparisjóði Keflavíkur
hefði veri veitt leyfi til að stofna
útibú í Garðinum, þá bæri honum
einnig að taka við útgerðinni.
Það virðist stefna Útvegsbankans
að draga úr þjónustunni við sjáv-
arútveginn, sagði Guðmundur,
og hafa hliðstæðir atburðir gerst á
Seyðisfirði, Grundarfirði og
Akranesi. Sparisjóðurinn hérna
hefur hins vegar tjáð okkur að
vegna núverandi stöðu sinnar
treysti hann sér ekki til að taka að
sér svo fjármagnsfrek viðskipti
sem útgerð og fiskvinnsla er.
Þetta er höfuðástæðan fyrir því
að menn hafa verið að hætta út-
gerð hér.
Þessi mál eru búin að vera í
umfjöllun í viðkomandi bönkum,
sparisjóðum, sveitarstjórnum,
hjá þingmönnum og hjá bankam-
álaráðherranum, sagði Guð-
mundur. Ég er að vona að þetta
leysist fljótlega, því ef svo verður
ekki munum við neyðast til að
selja okkar togara líka.
Útgerðarfyrirtækið Garðskagi
gerir út tvö skip, togarann Gaut
Guðmundur Ingvarsson í vinnslusalnum hjá Garðskaga: milliliðirnir og myndbandaleigurnar blómstra í Reykjavík á
meðan frumframleiðslan er höfð í fjársvelti og þvinguð til að vinna á óhagkvæman markað.
GK 224 og Happasæl GK 225,
sem er 250 tonna bátur, og landa
skipin í Sandgerði. Hjá fyrirtæk-
inu eru nú um 75 manns á launa-
skrá á sjó og í landi, en verður
mest um 110 manns á sumrin.
Togarinn er nú í vélaskiptum og
klössun eftir bilanir og kemst
ekki í gagnið fyrr en í aprfl. Guð-
mundur sagði að þeir myndu ekki
selja togarann fyrr en í síðustu
lög.
Guðmundur sagði að fjár-
magnsskorturinn hefði gert það
að verkum að þeir hefðu verið að
fiska í gáma og ódýrar pakkning-
ar á Bretlandsmarkað að undan-
förnu, þar sem það gæfi skjót-
fengnari pening. Þetta væri hins
vegar glórulaus vitleysa þegar
hægt væri aðvinna sama fisk í dýr-
ari pakkningar á dollaramarkaði.
Það er bankakerfið sem stýrir
þessu, en þeir fá verðminni gjald-
eyrir til að braska með fyrir vikið.
Það virðist hins vegar vera hag-
stæðara fyrir bankana að lána í
áhættuminni þjónustu- og milli-
liði en í útgerðina, sagði Guð-
mundur að lokum. Ég tók eftir
því í fréttunum um daginn að það
eru 50 videóleigur í Reykjavík
og 15 í Hafnarfirði. Það vinna
sjálfsagt 2-3 á hverri vídeóleigu
og þetta virðist ábatasöm útgerð.
En þeir geta ekki flutt inn eins
mikið af myndböndum og mynd-
bandatækjum ef þeir þvinga okk-
ur til að selja skipin og verka fisk
á óhagkvæma markaði, sagði
Guðmundur hjá Garðskaga að
lokum. -ólg.
Miövikudagur 27. febrúar 1985 ÞJÖÐVIUINN - SÍÐA 5