Þjóðviljinn - 02.03.1985, Blaðsíða 1
SUNNUDAGS-
BLAÐ
MENNING
Ratsjárstöðvar
Geir hugleiðir afsögn
Fundurinn á Þórshöfn. Geir Hallgrímsson kveðst taka þátttöku sína
íríkisstjórninni til endurskoðunar, efAlþingi samþykkir
þingsályktunartillögu Steingríms Sigfússonar gegn ratsjárstöðvum.
Geir Hallgrímsson utanríkis-
ráðherra lýsti því yfir á fjöl-
mennum fundi á Þórshöfn á
Langanesi síðastiiðið fimmtu-
dagskvöld að hann myndi taka
þatttöku sína í ríkisstjórninni til
endurskoðunar ef Alþingi tæki
afstöðu gegn uppsetningu ratsjár-
stöðva á Langanesi og Vestfjörð-
um. Það er Steingrímur Sigfússon
sem ásamt fleirum hefur lagt slíka
tillögu fyrir Alþingi, og verður
hún væntanlega tekin til umræðu
í þessum mánuði.
Fundinn á Þórshöfn sóttu um
180 manns sem er gífurleg þátt-
taka í jafn litlu byggðarlagi. Geir
Hallgrímsson gerði grein fyrir
röksemdum sínum um nauðsyn
ratsjárstöðvanna, og síðan voru
leyfðar fyrirspurnir. Um 10
heimamenn komust að áður en
mælendaskrá var lokað og lýstu 7
þeirra sig andvíga hernaðarfram-
kvæmdum á Langanesi. Þá bár-
ust fundinum einnig yfirlýsingar
um andstöðu við hernaðarfram-
kvæmdir á Langanesi eða annars
staðar á norðausturlandi frá her-
stöðvaandstæðingum á Egils-
stöðum, Borgarfirði eystra,
Reyðarfirði og Vopnafirði.
Geir Hallgrímsson lýsti því yfir
að viðkomandi sveitarfélög gætu
ekki staðið í vegi fyrir þessum
framkvæmdum. Taldi hann sig
hafa fullan stjórnarfarslegan rétt
til að ákveða þetta sjálfur, en hins
NT-skoðanakönnun
Stjómin
faiiin
Stjórnarflokkarnir fá í fyrsta
skipti I skoðanakönnun minni-
hlutafylgi kjósenda, samkvæmt
könnun sem NT birti í gær. Sam-
kvæmt henni er þingstyrkur
ríkisstjórnarinnar kominn niður í
29 þingmenn.
f könnuninni fær A-listi 23.6%
fylgi, D-listi 33.2%, Framsókn-
arflokkurinn 15%, Alþýðu-
bandalagið 14.7%, Kvennalisti
6.6% og Bandalag jafnaðar-
manna 5.4%. -óg.
vegar sagði hann að það yrði ekki
gert án samráðs við ríkisstjórn-
ina. Geir Hallgrímsson sagðist
ekki mundu hafa frumkvæði að
því að leggja málið fyrir Alþingi.
Viðstaddir á fundinum sögðu
að fundurinn með Geir hafi verið
hugsaður sem áróðursfundur
fyrir ratsjárstöðvunum, en fund-
urinn hefði snúist upp í hið gagns-
tæða vegna fjölmargra fyrir-
spurna heimamanna. -ólg.
Nemendur leggja skólatösku, „tákn hins nemandi rnanns", að myndastyttu Jóns Sigurðssonar eins frumkvöðla
almennrar menntunar á (slandi á Austurvelli í gaer.
Framhaldsskólarnir
Skólastarf
lamað
Mikilþátttaka í uppsögnum
kennara. Tryggvi Gíslason
skólameistari: Deilunni
ekkiskotið áfrest. Kjör
kennara verðurað bæta.
Því verður ekki skotið á frest að leysa
deiluna. Kjör kennara verður að bæta,
sagði Tryggvi Gíslason skólameistari á Ak-
ureyri í gær, en þá höfðu 20 af 34 fast-
ráðnum kennurum menntaskólans hætt
störfum. Sömu sögu var að segja af flestum
framhaldsskólum landsins, þótt þátttaka
kennara í aðgerðunum sé eitthvað misjöfn
eftir skólum.
Þannig hafa aðeins 3 af 11 fastráðnum
kennurum á ísafirði hætt störfum á meðan
17 kennarar höfðu lagt niður vinnu í Fjöl-
brautarskólanum á Selfossi. Á Laugarvatni
höfðu 7 af 9 kennurum í HÍK við mennta-
skólann þar lagt niður vinnu og í Fjöl-
brautarskólanum í Vestmannaeyjum höfðu
3 af 4 kennurum í HÍK lagt niður vinnu.
Sömu söguna er að segja af Akranesi, þar
sem 24 af 28 kennurum HÍK í fjölbrautar-
skólanum lögðu niður vinnu.
í Reykjavík lamaðist kennsla í fram-
haldsskólunum einnig og hafa rnargir
skólar gripið til þess ráðs að gefa nemend-
um kost á að stunda sjálfsnám með ráðgjöf
þeirra kennara sem eftir eru, þar sem ekki
er hægt að viðhalda venjulegri stundarskrá.
„Á þessu máli er engin lausn önnur en að
laga kennaralaunin, sem eru alltof lág,“
sagði Björn Teitsson skólameistari á Isa-
firði í samtali við Þjóðviljann. Sagði hann
að á nýlegum fundi skólameistara um málið
í Reykjavík hefði komið fram að samúð
þeirra væri með kennurum. -ólg.
Sjómenn
Þjöppum okkur saman
Óskar Vigfússon: Efekki gengur saman þá er illt í efni fyrir útgerðarmenn.
Ekki óeðlilegt að menn skoði málin heima dragist samningar á langinn.
„Ef ekki gengur saman nú á
næstunni, þá er iilt í cfni. Ekki
aðeins fyrir okkur heldur miklu
meira fyrir útgerðarmenn“, sagði
Óskar Vigfússon formaður Sjó-
mannasambandsins í samtali við
Þjóðviljann síðdegis í gær
skömmu áður en hann hélt á ný til
samningaviðræðna við útvegs-
menn í húsakynnum sáttasemj-
ara.
Sáttafundurinn hófst kl. 17 og
stóð enn þegar Þjóðviljinn fór í
prentun í nótt.
„Atburðir gærdagsins segja
okkur sjómönnum að þjappa
okkur saman. Taka á móti bár-
unni með því hugarfari sem sjó-
menn eru vanir til sjós“, sagði
Óskar aðspurður hvort samning-
ar yfirmanna við útgerðarmenn
hefður ekki veikt stöðu sjómann-
asambandsins. „Okkur finnst
það kannski ekki óeðlilegt þegar
lengra líður frá að menn hafi hug
á því hvort ekki bjóðist eitthvað
betra heima. Það er afskaplega
skiljanlegt. Ekkert slíkt er farið
af stað, menn standa vel saman í
þessari baráttu", sagði Óskar.
Töluvert greinir enn á í
deilunni við útgerðarmenn. Sjó-
menn vilja fá hærri kauptrygg-
ingu en samið var um við yfir-
. menn og að hækkunin gildi
lengur aftur fyrir sig. Einnig eru
ýmis sérmál sjómanna ennþá
óuppgerð, t.d. varðandi breytta
vinnutilhögun á línubátum, sagði
Óskar Vigfússon. -Ig.
Rektor
Páll eða Sigmundur
Páll Skúlason og Sigmundur
Guðbjarnason fengu langflest at-
kvæði í prófkjöri um rektorsefni í
Háskóla íslands í gær.
Páll fékk 30,6% atkvæða (49 at-
kvæði starfsmanna, 345 atkvæði
stúdenta), Sigmundur 30,5%
(80-118). Þeim næstir: Jónatan
Þórmundsson 11,6% (17-141),
Júlíus Sólnes 10,5% (25-60),
Ragnar Ingimarsson 5,8% (17-
11), Sigurjón Björnsson 3,5%
(10-9), Björn Björnsson 2,1% (2-
8). Állir 77 prófessorar Há-
skólans voru formlega í kjöri.