Þjóðviljinn - 21.03.1985, Qupperneq 2
Vetrarvertíð
FRÉTTIR
Jakob þarf nú ekki aö fara á
miðin til að finna þá. Hann ætti
bara að labba sig yfir í fjár-
málaráðuneyti.
A Iþýðubandalagið
Rígaþorskur á miðum
Jakob Jakobsson forstjóri Hafrannsóknastofnunar: Uppistaðan í aflanum er 6-8 ára gamall
þorskur, sem hefur vaxið mjög hratt á einu ári vegna góðra vaxtaskilyrða í sjónum
Stormandi
fundur
á Skaga
Mjög góður afli hefur verið hjá
vertíðarbátum hér syðra síð-
an sjómannaverkfallinu lauk.
Hafa bátar verið að koma með
30-40 tonn eftir nóttina af stór-
þorski, þetta 8 og uppí 14 kg. að
þyngd. „Uppistaðan í þessum afla
er 6-8 ára gamall þorskur, sem
hefur vaxið alveg sérstaklega
hratt á einu ári eða svo, vegna
góðra vaxtarskilyrða í sjónum,“
sagði Jakob Jakobsson forstjóri
Hafrannsóknastofnunarinnar í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Hafrannsóknastofnunin hefur
tekið sýni úr þessum afla og sam-
kvæmt því er 4ra ára fiskur 3% - 5
ára fiskur 8%, - 6 ára fiskur 19%,
- 7 ára fiskur 21%, - 8 ára fiskur
26%, 9 ára fiskur 8%, - 10 ára
fiskur 6%, - 11 ára fiskur 3%, -
12 ára fiskur 4%, - 13 ára fiskur
2%.
Jakob sagði að 7 til 8 ára gamall
fiskur væri úr miðlungs ár-
göngum samkvæmt rannsóknum
Hafrannsóknastofnunarinnar, en
sem fyrr sagði hefðu þeir vaxið
mjög hratt þetta síðasta ár.
f Grindavík hefur afli verið
nokkuð misjafn. Sumir bátar
hafa Iítið fengið, aðrir mjög
mikið, verið með þetta 20-40
tonn eftir nóttina. Aflahæstur þar
er Sighvatur með 158,5 tonn á
tímabilinu 12. til 19. mars.
í Sandgerði hefur afli verið lak-
ari en í Grindavík, en rígaþorskur
það sem veiðist. Aðeins 4-5 neta-
bátar hafa aflað vel, hinir lítið
enn sem komið er. Línubátar
hafa verið að koma með 13-15
tonn á 90 bjóð.
í Þorlákshöfn hefur rígaþorsk-
ur verið uppistaðan í afla troll-
báta undanfarnar vikur. Þorskur-
inn er 9-11 kg. Góð veiði hefur
verið hjá Þorlákshafnarbátum en
aðeins dregið úr í þessari viku.
í Vestmannaeyjum hefur
nokkuð dregið úr veiði síðustu
daga en netabátar hafa verið með
frá 3 - uppí 34 tonn í róðri. Þeir
verða lítið varir við rígaþorsk en
hann veiðist vel á handfæri hjá
smábátum í Eyjum.
- S.dór/-lg.
Pingmenn Alþýðu-
bandalagsins héldu einn
fjölmennasta stjórnmála-
fund sem lengi hefur ver-
ið haldinn á Akranesi sl.
mánudag
Þingmenn Alþýðubandalags-
ins, þau Svavar Gestsson, Skúli
Alexandersson, Guðmundur J.
Guðmundsson og Guðrún Helga-
dóttir, ásamt varaþingmanni Al-
þýðubandalagsins í Vesturlands-
kjördæmi, Jóhanni Ársælssyni,
héldu stormandi góðan fund í
Rein á Akranesi sl. mánudags-
kvöld. Yflr 100 manns mætti á
fundinn, sem er einhver sá fjöl-
mennasti stjórnmálafundur sem
haldinn hefur verið á Akranesi
um langan tíma.
Þingmennirnir heimsóttu alla
helstu vinnustaði á Akranesi á
föstudag og mánudag og var
mikið spurt og spjallað.
Á fundinum í Rein, sem Ragn-
heiður Þorgrímsdóttir stýrði voru
bornar fram fjölmargar fyrir-
spurnir að loknum framsögu-
ræðum þeirra Skúla Alexanders-
sonar og Guðrúnar Helgadóttur.
Það sem mest var spurt um voru
atvinnumálin, sjávarútvegsmál-
in, húsnæðismálin, launamálin
og afstaða verkalýðshreyfingar-
innar.
- S.dór
Framkvæmdir eru nú hafnar í Stangarholti við byggingu fjölbýlishúss og
dagvistunarstofnunar, sem þar eiga að rísa, en töluverður styrr hefur staðið um
þessar framkvæmdir vegna óánægju íbúa í Nóatúni og Skipholti um of háa
nýtingu á því opna svæði sem þarna á að byggja.
Fjölbýlishúsið sem þarna verður reist er 3 hæðir og á að hýsa 32 íbúðir, en
dagvistarstofnunin verður fyrir framan. Ekki hefur ríkt ágreiningur um að byggja
skyldi á svæðinu, en íbúar í nágrenninu fóru fram á að afgreiðslu byggingar-
leyfis yrði frestað vegna of hárrar nýtingar þegar það var afgreitt hjá borgarráði
fyrir skömmu. Þeirri frestunarbeiðni var hafnað. Ljósm.,eik.
Útvarpsmálið
Sama óvissa og áður
Tillagan um Menningarsjóðinn dregin til baka
Þrátt fyrir atkvæðagreiðslu í
lok annarrar umræðu um út-
varpslagamálið í gær ríkir jafn
mikil óvissa og áður um framgang
þess. í atkvæðagreiðslunni var
ekki tekist á um meginágreinings-
efnið, þ.e. tillögu Friðriks Sófus-
sonar um að nýjum útvarpsstöðv-
um verði heimilað að ijarmagna
reksturinn með auglýsingum, en
Friðrik dró tillögu sína til baka í
gær og bíður hún þriðju um-
ræðu. Hins vegar var breyting-
artillaga Alþýðubandalagsins um
að auglýsingar yrðu ekki leyfðar,
felld.
Það sem mesta athygli vakti
var að formaður menntamála-
nefndar Halldór Blöndal, dró til-
lögu meirihlutans um stofnun
Menningarsjóðs ríkisútvarpsins
til baka, þannig að hún kom held-
ur ekki til atkvæða. Halldór sagði
í samtali við Þjóðviljann að sam-
staða hefði verið um að geyma
umræður um fjármálahlið frum-
varpsins þar til annarri umræðu
væri lokið og Menningarsjóður-
inn væri hluti af því dæmi.
Margar fleiri tillögur bíða
þriðju umræðu, t.d. allar tillögur
krata, sem sátu hjá við atkvæða-
greiðsluna í gær og nokkrar til-
lögur frá Bandalagi jafnaðar-
manna og Alþýðubandalagi. Er
þar um að ræða svipaðar tillögur
sem ætlunin mun að reyna að ná
samkomulagi um milli umræðna.
Tillaga Alþýðubandalagsins
um að óheimilt skuli að veita er-
lendum aðilum eða félögum sem
útlendingar eiga hlut í leyfi til út-
varpsrekstrar, var felld, en tillaga
meirihlutans samþykkt en hún
gerir ráð fyrir að útlendingar geti
átt allt að 10% hlut í útvarps-
stöðvum.
-ÁI
Valdataka?
Flokkur mannsins í Kron
Skipuleggur fjöldainngöngu í deildir KRON. 70 manns fengu inn.
Smalað á fundi
Allir með Steindóri!
ALLAR STÆRÐIR SENDIBÍLA
Við erum félagshyggjufólk og
höfum þar af leiðandi áhuga á
samvinnumálum, þess vegna
göngum við í KRON, sagði Júlíus
Valdimarsson formaður „Flokks
mannsins“. Félagar í þessum
mannflokki hafa flykkst í deildir
KRON og látið skrá sig þar inn,
mætt á fundi og lagt fram ótelj-
andi spurningar. Samkvæmt
heimildum Þjóðviljans hyggjast
þeir yfírtaka KRON og munu um
70 manns á þeirra vegum hafa
gengið í KRON.
Júlíus sagði að mannflokkur-
inn ætlaði að hafa eins mikil áhrif
og hann mögulega getur í
KRON, en hvergi væri flokkur-
inn þó kominn í meirihluta í
KRON-deildunum og ekki hefði
honum heldur tekist að koma
sínu fólki í stjórn deildanna enn
sem komið er.
Hér er ekki um það að ræða að
mannflokkurinn gangi skipulega
í deildir KRON, heldur aðeins
áhugi okkar á félagsmálum og
samvinnumálum sem veldur því
að félagar ganga í KRON-
deildirnar, sagði Júlíus.
f gær og fyrradag voru fundir í
deildum KRON og mun hafa ver-
ið smalað grimmt. - S.dór