Þjóðviljinn - 21.03.1985, Page 6
FLÓAMARKAÐURINN
AWINNULÍF
Einn sumarbústaða Trésmiðju P.P. í Grundarfirði í byggingu. Húsin eru stöðluð og hægt að fá þau af ýmsum stærðum.
Ljósm.: R.E.
Grundarfjörður
Trésmiðja P.P. í örum vexti
Til sölu
Vel með farin og lítið notuð Fidelity
skáktölva með 10 styrkleika tali og
snertibúnaði til sölu. Verðtilboð.
Uppl. í s. 30618 e. kl. 20 á föstud.
Óska eftir að kaupa
allar plöturnar með hljómsveitinni
Mannakorn. Uppl. í síma 44465.
Hjónarúm
Til sölu hjónarúm með áföstum nátt-
borðum. Selst ódýrt.-Sími 44518.
Til sölu
svart-hvítt sjónvarp (His masters vo-
ice), nýr svartur kjóll og kápa á frekar
litla og granna konu. Uppl. í síma
31723 e.kl. 20.
Til sölu
eldhúsborð á einum fæti, sporöskju-
lagað á kr. 4 þúsund. Uppl. í síma
38132.
Garðeigendur
Ef þið þurfið að fá húsdýraáburð og
e.t.v. að fá honum dreift um lóðir ykk-
ar, þá hringið og leitið upplýsinga í
síma 41639.
Dagmamma
Óska eftir dagmömmu til að gæta 31/2
árs drengs frá kl. 1-5. Er í Vestur-
bænum. Uppl. í síma 20487.
Einbýlishús - lágt verð
Lítið einbýlishús á ísafirði til sölu. Fal-
legt, gamalt og vel viðhaldið. Lágt
verð ef samið er strax. Látið ekki
happ úr hendi sleppa. Sími 10762.
Raðsófasett
til sölu. Verð kr. 5 þús. Uppl. í síma
31281 á kvöldin.
Félag makalausra
Munið opið hús og spilakvöld í kvöld
21. mars að Mjölnisholti 14. Sími
27609.
Rimlarúm til sölu
og Britex barnabílstóll. Uppl. í síma
77783.
Sumarbústaður til sölu
í Tunguskógi á ísafirði, mjög stór og
glæsilegur garður fylgir með. Mikill
trjágróður, lautir og ákjósanlegir
staðir fyrir grillveislur. Stórkostlegt út-
sýni. Selst strax, vegna fjárhags-
vandræða. Sími 10762.
íbúð óskast
Par með barn vantar íbúð frá og með
1. júní nk. Fyrirframgreiðsla kemur til
greina. Uppl. gefa Helgi og Bjargey í
síma 38575.
Myndabúðin Njálsgötu 44
Myndarammar og málverkaprentanir
á góðu verði. Myndabúðin Njálsgötu
44. Opið frá kl. 16-18.
Barnavagn til sölu
góður og vel með farinn
Emmaljunga-barnavagn. Uppl. í
síma 46608.
Vefstóll tl sölu
Danskur vefstóll til sölu, tekur 80 cm
breiðan, láréttan vefnað, skeið og
skytta fylgja. Uppl. í síma 22439.
Erum að flytja
í nýtt húsnæði og vantar allt til skrif-
stofuhalds. Vill ekki einhver gefa okk-
ur t.d. skrifborð, hillur, stól eða ritvél?
Hringið í síma 20798. Viö sækjum.
Vináttufélag islands og Kúbu.
Nú er vor í lofti
(að minnsta kosti í gær).
Þess vegna ætla ég að selja hjólið
mitt sem er ágætis fjölskylduhjól, á 2
þúsund kr. og skíðin mín sem eru af
Blizzard gerð með Look bindingum, á
3 þúsund kr. Ester sími 41648.
Frá fréttaritara Þjóðviljans í
Grundarfirði, Rósant Egilssyni:
Mikil gróska hefur verið hjá
Trésmiðju P.P. hér í Grundar-
firði og hafa verið næg verkefni
hjá trésmiðjunni allt síðasta ár.
Þar hafa starfað að jafnaði um 20
manns og enn færir trésmiðjan út
kvíarnar með fjöldaframleiðslu á
sumarbústöðum sem verða full-
byggðir á lóð fyrirtækisins. Þessir
bústaðir eru 50 og 35 fermetrar
að stærð en einnig er hægt að fá
þá minni, allt eftir óskum
kaupenda enda um staðlaða
framleiðslu að ræða. Verðhug-
mynd er ca. 700.000 kr. á stærri
húsunum en ca. 550.000 á þeim
minni. Húsin eru fullfrágengin.
Þegar er búið að panta 6-7 bú-
staði og hefur það kallað á meiri
mannskap hjá fyrirtækinu og er
áætlað að milli 30 og 40 manns
starfi þar í sumar. Má þakka
þessa stöðugu vinnu í vetur ein-
stæðu tíðarfari.
Trésmiðja P.P. hefur einnig
haft talsverð umsvif í Stykkis-
hólmi og Ólafsvík. í stykkishólmi
er verið að reisa bensínstöð og
hefur verkið gengið mjög vel.
Auk þess hafa verið klædd að
utan nokkur hús með áli. í Ólafs-
vík er fyrirtækið búið að skila
heilsugæslustöðinni fullbúinni
auk annarra verkefna sem þar
hafa verið í gangi. í undirbúningi
er bygging 1000 fermetra frysti-
húss þar. Auk alls þessa rekur
fyrirtækið myndarlega bygginga-
vöruverslun.
Til að styrkja enn frekar rekst-
ur fyrirtækisins hefur eigandi
þess Páll Harðarson stofnað nýtt
fyrirtæki, Hamrar s/f í Reykjavík
þar sem fyrirhugað er að selja
framleiðsluna auk þess sem flutt-
ar verða inn byggingavörur.
Eigendur þessa nýja fyrirtækis
eru þeir Páll Harðarson og Björg-
vin Magnússon. - R.E.
Auglýsið í Þjóðviljanum
ÁSKORUN
Til stjórnvalda um skjóta lausn kennaradeilunnar
Hverri menningarþjóö er mikil nauðsyn að annastvel uppfræðslu vaxandi kynslóða.
Launakjör kennara þurfa að vera með þeim hætti að þeir geti sinnt starfi sínu
af alúð og óskiptum huga. Við skorum þvíá stjórnvöld að bregða skjótt við
og ganga til móts við kennara með viðunandi hætti svo þeir hrekist ekki frá störfum.
AJbert Jóhannsson, fv. form. L.H., Skógum
Álfheiður Ingadóttir, blaðamaður
Árni Bergmann, ritstjóri
Ásgerður Búadóttir, myndlistarmaður
Ágúst Þorvaldsson, fv. alþm., Brúnastöðum
Benedikt Bogason, verkfr.
Séra Bernharður Guðmundsson,
fréttafulltr.
Björn Th. Björnsson, listfr.
Björn Líndal, deildarstj.
Séra Bolli Gústafsson, Laufási
Bríet Héðinsdóttir, leikari
Brynja Benediktsdóttir, leikstjóri
Einar Þorvarðarson, íþróttamaður
Séra Eiríkur J. Eiríksson,
fv. þjóðgarðsvörður
Erlingur Gíslason, leikari
Gísli Alfreðsson, Þjóðleikhússtjóri
Guðmundur Arnlaugsson, fv. rektor
Guðný Guðmundsdóttir, konsertmeistari
Gunnar G. Schram, próf.
Guðrún Agnarsdóttir, alþm.
Dr. Guðrún P. Helgadóttir, fv. skólastj.
Dr. Gylfi Þ. Gíslason, fv. ráðherra
Sr. Hanna María Pétursdóttir, Ásum
Halldór Guðjónsson, kennslustjóri H.í.
Halldór Laxness, rithöfundur
Hannes Pétursson, skáld
Haraldur Ólafsson, alþm.
Helga Bjarnadóttir, hreppstjóri
Helgi Ólafsson, stórmeistari
Jakob Jakobsson, fiskifræðingur
Jóhanna Sigurðardóttir, alþingismaður
Jón Nordal, tónskáld
Jónas Jónsson, búnaðarmálastjóri
Jónas Pálsson, rektor
Jónatan Þórmundsson, prófessor
Kolbrún Jónsdóttir, alþingismaður
Kristján frá Djúpalæk, skáld
Kristján Karlsson, skáld
Magnús L. Sveinsson, form. V.R.
Dr. phil. Matthías Jónasson
Njörður P. Njarðvík, rithöfundur
Ólafur Helgi Kjartansson skattstjóri, ísaf.
Séra Ólafur Skúlason, dómprófastur
Ólöf Kolbrún Harðardóttir, óperusöngvari
Óskar Vigfússon, form. Sjómannasamb.
ísl.
Páll Lýðsson, oddviti Litlu Sandvík
Pétur Bjarnason, fræðslustj. Vesfj.
Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðusamb.
Vestfj.
Ragnar Arnalds, alþingism.
Ragnheiður Jónsdóttir, myndlistarmaður
Rögnvaldur Sigurjonsson, píanóleikari
Herra Sigurbjörn Einarsson, biskup
Sigurður Björnsson, læknir
Séra Sigurður Pálsson, vígslubiskup
Sigurður Pálsson, rithöf. og leikstjóri
Sigurlaug Bjarnadóttir, fv. alþm.
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, alþm.
Sigríður Theodóra Sæmundsdóttir, húsfrú,
Skarði
Stefán Baldursson, leikstjóri
Valgerður Bjarnadóttir, bæjarfulltr. Ak.
Þór Magnússon, þjóðminjavörður
Þóra Kristjánsdóttir, listfræðingur
Þórarinn Eldjárn, rithöfundur
Þórdís Þorvaldsdóttir, borgarbókavörður
Þorgeir Ibsen, skólastjóri
Þórir Kr. Þórðarson, prófessor
Þorkell Sigurbjörnsson, tónskáld
Þóroddur Th. Sigurðsson, verkfræðingur
Þorsteinn Gylfason, dósent
Þorsteinn Hannesson, óperusöngvari
Þorsteinn Ö. Stephensen, fv. leiklistarstjóri
Þuríður Pálsdóttir, óperusöngvari
Ögmundur Jónasson, fréttamaður
Örlygur Hálfdánarson, bókaútgefandi