Þjóðviljinn - 21.03.1985, Blaðsíða 9
VIÐHORF
Boöið
Spurningin er: Eiga kirkjan og
þjónar hennar að hafa opinber
afskipti af friðarmálum? Við
þekkjum öll þau hróp, sem hefj-
ast úr vissum herbúðum, ef ein-
hver kirkjunnar þjónn skipar sér
opinberlega í flokk þeirra, er
styðja vaxandi friðarhreyfingar.
Þau hróp enda venjulega á: -
kommúnisti, kommúnisti!
En hvert er þá hlutverk kirkj-
unnar? Það er fyrst og fremst að
flytja boðskap Jesú frá Nasaret.
Hvarvetna í boðskap sínum
leggur hann þunga áherslu á frið,
frið milli þjóða, frið milli einstak-
linga, frið sem byggðist á náunga-
kærleika, bræðralagi og gagn-
kvæmu trausti. Kveðja hans var
jafnan: - Friður sé með yður og
fyrirheit hans: - Frið læt ég eftir
hjá yður, minn frið gef ég yður.
Og hann sagði líka: - Sælir eru
friðflytjendur, því að þeir munu
guðs börn kallaðir verða. Af
mörgu er að taka, þegar vitnað er
í orð Jesú frá Nazaret, en hvar-
vetna er boðskapur hans um frið
það fyrsta og síðasta. Og í sög-
unni mun hann ávallt verða talinn
fyrsti og mesti friðarsinni allra
alda.
Og nú eru senn liðin 2000 ár
síðan Jesús hóf friðarboðskap
sinn og það vantar ekki, að marg-
ir kalla sig kristna og íærisveina
hans og flestir þykjast vilja frið.
En ósköp hefur nú heimurinn
h'tið nálgast kenningu meistara
síns, eða kannski væri réttara að
segja, ósköp hefur nú heimurinn
fjarlægst kenningu hans á þessum
tíma. Aldrei hefur verið jafn óf-
riðvænlegt í heiminum og einmitt
í dag. Þjóðirnar keppast við að
verja sem mestu fé í framleiðslu
hernaðartækja og morðvopna,
svo óskaplega, að grandað gætu
allri heimsbyggðinni. Engin þjóð
treystir annarri og stórveldin
keppa að yfirburðum í vopna-
búnaði og þykjast þannig við-
halda friði, meðan stór hluti
heimsins sveltur í hel og þjáist af
skorti og öryggisleysi, á meðan
þeir sem málunum stjórna ganga
sjálfsagt andagtugir í kirkju og
játa trú sína á friðarsinnann Jesú
Krist, svona með vörunum, en
klerkar friðinn í kór og stól
eftir Sverri Haraldsson
„Efvið erum kallaðir kommúnistar
vegna þess að við vinnum í þágu frðar,
þá er það sœmdarheiti“.
kynda svo samt jafnt og þétt
undir ófriðarglæðunum, uns þær
verða að eyðandi báli sem þeir
sjálfir ráða naumast við. Biðja
þess jafnvel að takast megi að
drepa sem flesta andstæðinga
þeirra í Jesús nafni, Amen!
Davíð Stefánsson segir:
Við refsum bjálfum, sem rœna og
fremja svik
og rónum, sem neyta víns og
verða trylltir.
En foringjar þjóða, sem
framleiða geislaryk,
og fylla loftið eitrið
- þeir eru hylltir.
Þeim flytja lýðir flaðrandi
þakkargjörð.
En fer ekki að sortna þeirra
heillastjarna?
Sagt er aðfæðist senn á vorri jörð
sextán milljónir vanskapaðra
barna.
Við vitum öll hvað skáldið á
við. Við vitum að verið er að lýsa
afleiðingum eins hins mesta
stríðsglæps, sem sagan þekkir.
Við vitum að enn í dag eru afleið-
ingar hans að koma fram og
munu halda áfram að koma fram
um ókomin ár. Þær bitna fyrst og
fremst á saklausum börnum, með
vansköpun, kvölum, þjáningum
og dauða. Það má hver sem vill
trúa því, að þetta vígbúnaðark-
apphlaup stórveldanna sé háð í
þágu friðarins. Ég er hins vegar
sannfærður um það, að jafnskjótt
og eitt stórveldið telur sig hafa
náð yfirburðum í vígbúnaði, þá
verði ekki beðið með að hefja
styrjöld og guð forði okkur frá að
lifaslíkt. Afleiðingar undangeng-
inna styrjalda yrðu barnaleikur
einn hjá afleiðingum þeirrar
næstu, ef nokkur yrði þá á lífi til
að gjalda þeirra, enda þótt til séu
menn, sem trúa því, eða þykjast
a.m.k. trúa því, að hún yrði háð
til að koma á varanlegum friði.
Vopnaður friður verður aldrei
varanlegur, heldur aðeins hlé,
meðan þjóðirnar eru að efla her-
styrk sinn. Er furða þótt Jóhann-
es skáld úr Kötlum segi, þegar
honum verður hugsað til þessara
óskapa: - Ég get ekki sofið? Svo
kom sjálfur forsetinn Harry Tru-
mann í sjónvarpið og þakkaði
guði fyrir það að Bandaríkin
skyldu eiga kjarnorkuspreng-
juna!
í helgu riti er spurt: - Vöku-
maður, hvað líður nóttinni?
Vökumaður rennur ekki dagur
senn? Svo er guði fyrir að þakka,
að örlítil ljósglæta virðist nú
senda geisla inn í það skelfilega
náttmyrkur, sem yfir heiminum
grúfir og gæti táknað nýjan dag.
Voldugar friðarhreyfingar og
samtök hafa risið og fleiri og fleiri
sjá og skilja þá hættu, sem fylgir
því, þegar stríðsóðir öfgamenn
fara með æðstu völd í stórveld-
um, gráum fyrir járnum. En þess-
ar friðarhreyfingar fólksins fylla
þá ótta, sem þeir reyna að leyna
með því að gera lítið úr þeim,
rangtúlka og hæða. Þeir hneyks-
last á kröfu okkar um kjarnorku-
vopnalaus svæði, þar á meðal
Norðurlönd, o.m.a.s. á okkar
blessaða landi eru til fylgjendur
vaxandi hernaðarumsvifa og
framkvæmda, væntanlega í þeirri
góðu trú, að með því séu þeir að
stuðla að friði í heiminum!
Hitt skal viðurkennt, að kirk-
jan hefur oft sofið á verðinum í
þessum efnum. Hún hefur alltof
oft þagað, þegar henni bar að láta
til sín heyra, og hún hefur alltof
oft horft á griðrof, ofbeldi, árásir
stórþjóða á smáríki, kúgun, kyn-
þáttaofsóknir, afskipti stórvelda
af innanríkismálum smáríkja,
undir yfirskyni falskrar vináttu og
ímyndaðrar verndar o.fl. o.fl. án
þess að beita sér ákveðið og opin-
berlega gegn slíkum brotum á
boðskap meistara síns. Hún er að
vísu hátt hafin yfir allt flokkspól-
itískt þjark, en þegar um frið eða
styrjaldir er að ræða má hún ekki
og á ekki að þegja. Og það er líka
rétt, að hún á ekki að taka neina
flokkspólitíska afstöðu. En friða-
rmálin eru ekki neitt flokksmál,
eða eiga ekki að vera það. Friða-
rmálin varða alla einstaklinga,
allar þjóðir. Þau fjalla um baráttu
milli lífs og dauða og þau eru
byggð á orði Jesú sjálfs og því má
kirkjan ekki láta þau afskipta-
laus. Kirkjan á að vera byggð upp
af lifandi steinum, en ekki vera
stöðnuð stofnun. Það er frá henni
sem friðarákallið á að berast. Og
í dag, þegar svo getur farið að
lokaátökin milli lífsstefnu og hel-
stefnu fari fram á hvaða stundu
sem er, er það skylda kirkjunnar
og þjóna hennar að draga friðar-
fánann að hún og fylgja hverjum
þeim flokki og hverjum þeim ein-
staklingi, sem sér hættuna og
berst gegn afli dauðans og tortím-
ingarinnar í þessum blinda og
friðvana heimi. Og aldrei hefur
þess verið meiri þörf en í dag.
Aldrei hefur ógnun stríðshætt-
unnar verið meiri. Aldrei fyrr
hefur tækni mannsins verið svo
mikil sem nú, að varla þarf nema
að styðja á einn hnapp til að
granda öllu lífi á stórum hluta
heims. Þetta skildi skáldið Guð-
mundur Guðmundsson og hefur
þó allt breyst til hins verra síðan:
- Boðið klerkar friðinn í kór
og stól.
Látið kœrleikans himnesku
friðarsól
yfir kirkjunni lífgandi Ijóma.
Grœðið aldanna rotnu átumein.
Látið elskuna þagga hin sáru
kvein.
Látið heimsfriðarboðskapinn
hljóma.
Og nú þegar málsvarar
aukinna hernaðarframkvæmda
og erlendra yfirráða halda blekk-
jandi áróðursfundi um landið,
sínu vafasama máli til framdrátt-
ar, verða allir sannir íslendingar
að sameinast um að reka þessa
legáta af höndum sér og úr valda-
stólum, áður en óhappaverkin
hafa verið unnin. Og ef við erum
kallaðir kommúnistar vegna
þess, að við vinnum í þágu friðar,
þá er það sæmdarheiti.
Sverrir Haraldsson.
MINNING
Þórhildur Brynjólfsdóttir
Fœdd 3. október 1948 - Dáin 11. mars 1985
Aðfaranótt mánudagsins 11.
mars lést mágkona mín, Þórhild-
ur Brynjólfsdóttir. Ég má til með
að kveðja hana með nokkrum
orðum.
Það eru ekki mörg ár liðin síð-
an ég sá hana fyrst, en það var
þegar hún kynntist Jóni bróðir
mínum. Ég fann það strax þá,
hvað mikil hlýja og gleði
streymdi frá þessari manneskju.
Eftir að þau giftu sig fór ég að
sjá hana meir, og þá sérstaklega í
hestamennskunni, sem ég og Jón
bróðir höfum stundað í fjölmörg
ár og Jón þó miklu meir. Ég tók
strax eftir því hvað mikinn áhuga
Þórhildur fékk fyrir hestunum,
hún var öllum stundum með
manni sínum, hvort sem var í
hirðingu þeirra, eða útreiðum.
Ég man vel hvernig hlátur
hennar fyllti hesthúsið, og glað-
legt tal hennar kom okkur öllum í
gott skap, eða þegar hún þeysti
fram úr okkur á honum Sindra
skellihlæjandi og frískleg og var
komin langt á undan okkur áður
en varði. Einnig eru þær stundir
ógleymanlegar, þegar við
systkinin riðum austur í Fjóts-
hlíð, sem hefur verið árviss við-
burður. Hvort sem hún reið með
okkur eða fylgdi okkur á bíl, var
hún ætíð hress og glöð, og naut
ferðarinnar, enda er varla hægt
að vera öðruvísi en glaður á hest-
baki úti í náttúrunni, ég tala ekki
um á vordegi og það á leið í
Fljótshlíðina. Eins og við
systkinin öll, þá tók hún sérstöku
ástfóstri við Fljótshlíðina, og þá
sérstaklega Hlíðarendakot. Þar
höfum við öll komið mikið, fyrst
til Árna Jónssonar bónda þar,
sem hefur reynst okkur öllum
sem mikill og góður vinur, og nú
síðast hefur Matthías bróðir minn
búið þar. Jón og Þórhildur voru
ólöt að fara þangað, og dvöldu
þau oft þar á sumrin í sumarfríum
sínum.
Jón bróðir og Þórhildur áttu
mjög vel saman, hann gekk Val-
gerði dóttur Þórhildar í föður
stað, og fyrir rúmu ári, eignuðust
þau dóttur, Salbjörgu, sem var
þeim mjög kærkomin. Sú hugs-
un, að Þórhildur sé farin frá okk-
ur er erfið, og það tómarúm sem
hún skilur eftir, er erfitt að fylla.
Hún hefur haft mikil áhrif á
fjölskylduna alla, þennan stutta
tíma, sem við höfum notið návist-
ar hennar, en það er víst að við
munum alltaf geyma minningu
hennar, eins og hún var, glaðlega
unga konu sem kunni að hlæja.
Ég vil þakka henni fyrir allt, sem
hún hefur gefið okkur með nær-
veru sinni, og bið Guð að styrkja
ættingja hennar, börn og eigin-
mann og votta þeim öllum samúð
mína og fjölskyldu minnar.
Páll H. Guðmundsson
Er við nú kveðjum æskuvin-
konu okkar leitar margt á hug-
ann. Fyrir örfáaum dögum sátum
við saman í glaðværum kunn-
ingjahópi. Þórhildur greindi okk-
ur frá því á sinn eðlilega hátt að
nú væri komið að fyrirhugaðri
skurðaðgerð. Síst hvarflaði að
okkur að aðeins væri nokkurra
daga samvist eftir. Við vorurn
hins vegar með ráðagerðir um
eitt og annað sem gera mætti þeg-
ar hún hefði jafnað sig í vor en
stundum er skammt milli gleði og
sorgar, meinsemdin hafði náð
lengra en svo að vísindi nútímans
gætu ráðið við. Þórhildur hélt
sinni bjartsýni og léttu lund og
tókst að dylja alvöru veikind-
anna. Aldrei heyrðist hún kvarta
þrátt fyrir þjáningafullar með-
ferðirsl. haust. En mestu ólíkind-
in eru þau að hún sem mestan
hafði lífsþróttinn skyldi fyrst
kölluð úr kunningjahópnum.
Þórhiidur fæddist í Hafnarfirði
3. okt. 1948, dóttir hjónanna Val-
gerðar Þórarinsdóttur og Brynj-
ólfs Guðnasonar, 3ja í röðinni af
5 systkinum. Kynni okkar hófust
á unglingsárum og héldust óslitið
síðan. Snemma kom í ljós áhugi
hennar á útiveru og ótaldar eru
ferðirnar sem farnar voru á þeim
árum, ýmist eigin vegum eða með
skátahreyfingunni í Hafnarfirði.
Þórhildur lagði stund á íþróttir og
lék um tíma með meistaraflokki
F.H. í handknattleik.
Hún gifist ung Steinari Guð-
mundssyni úr Reykjavík og
stofnuðu þau heimili þar. Þau
eignuðust eina dóttur, Valgerði,
sem nú er á sautjánda ári. Þór-
hildur og Steinar slitu samvistum
eftir skamma sambúð. Eftir það
fluttust þær mæðgur til Hafnar-
fjarðar og hóf hún störf hjá Gler-
borg hf. og starfaði þar æ síðan.
Þann 22.09.’79 giftist hún eftir-
lifandi eiginmanni sínum Jóni
Guðmundssyni. Jón og Þórhildur
voru einstaklega samrýmd og
hamingjusöm hjón. Gestrisni og
örlæti einkenndi þeirra heimili.
Þau stunduðu ötullega hver-
skonar útivist, s.s. hesta-
mennsku, skíðaferðir og ferða-
lög. Það sem okkur er minnistæð-
ast í fari vinkonu okkar er hennar
létta lund, jákvæða hugarfar og
hressileikinn sem ávallt fylgdi
henni. Ósjaldan dreif Þórhildur
okkur þessar framtaksminni í úti-
legur og hlustaði ekki á mótbárur
um rigningaspár enda sá hún
ævinlega einhvers staðar sólar-
glennu.
Skemmst er að minnast ferðar
er við fórum s.l. sumar austur í
Þjórsárdal, ferð sem hafði verið
ákveðin af stórum kunningjahópi
nokkuð löngu áður. Ýmislegt
varð tii þess að fólk heyktist á för,
þó helst slagveður og kuldi en
Þórhildur lét ekki slíkt aftra sér.
„Ég er viss urn að það verður sól á
morgun" og við það sat, þrjár
fjölskyldur lögðu upp og tjöld-
uðu í roki og rigningu. En viti
menn þvert á spá veðurstofunnar
snerist vindur til norðanáttar
með glaða sólskini og við nutum
veðurblíðu, náttúrufegurðar og
góðs félagsskapar.
Þann 16. des. ’83 kom lang-
þráður sólargeisli inn í líf þeirra
Þórhildar, Jóns og Vallýar en þá
fæddist Salbjörg litla. Ér sárt til
þess að hugsa að Þórhildi skildi
ekki auðnast að njóta hennar
lengur slfkur gleðigjafi sem hún
var henni.
Nú á skilnaðarstund viljum við
þakka fyrir góða samfylgd og
trygga vináttu. Jóni, Vallý og
Sallý litlu, móður Þórhildar, Val-
gerði, svo og öðrum aðstandend-
um vottum við okkar dýpstu
samúðarkveðjur.
Sóldís og Hulda.