Þjóðviljinn - 22.03.1985, Blaðsíða 3
SJÁVARÚTVEGUR
Öryggismálanefnd sjómanna
Urbætur
hafnar
Öryggismálanefnd sjómanna sendi samgöngumálaráð-
herra fjölmargar tiliögur um úrbætur í öryggismálum sjó-
manna. Þegar hefur verið hafist handa um úrbætur sam-
kvæmt þessum tillögum og fara hér á eftir þær tillögur sem
annaðhvort búið er að framkvæma eða byrjað er á.
——
Þá leggur nefndin til að eftir-
farandi leiðir verði farnar til að
fjármagna tillögur nefndarinnar
nr. 3,13 og 15: a) með vöxtum af
gengishagnaði, b) með gjaldi á
Tryggingasjóð fiskiskipa, c) með
beinu framlagi úr ríkissjóði þar
sem hér er um að ræða
hagsmunamál allra landsmanna
en ekki einungis sjómanna sjálfra
og fjölskyldna þeirra.
Þetta mál hefur þegar verið af-
greitt.
Nefndin er sammála um að
leggja til við ráðuneytið að það
beiti sér fyrir víðtækri áróðurs-
herferð þegar á þessu hausti um
öryggismál sjómanna. Skal þetta
gert í samráði við Slysavarnafélag
Islands, sérskóla sjómanna og
aðra þá sem hjálpað geta til með
ráðleggingum og fjárhagslegri
aðstoð. Skal Slysavarnafélagið
hafa forgöngu um að kveðja til
samstarfs alla þá aðila sem láta
sig þessi mál einhverju varða.
Undirbúningur þessa er þegar
kominn af stað.
Öryggismálanefnd hvetur til
þess að endurskoðun á lögum um
atvinnuréttindi skipstjórnar-
manna verið hraðað. Nefndin tel-
ur nauðsynlegt að ný lög um at-
vinnuréttindi taki mið af alþjóð-
asamþykktum um menntun og
þjálfun.
Þetta mái er komið í gang.
Staðið verði við þá kröfu sigl-
ingamálastjóra frá því í ágúst sl.
um að skipt verði um og fenginn
viðurkenndur gormur í þann los-
unarbúnað þar sem sleppt er
sjálfvirkt með krafti gorms, en sá
frestur sem gefin var er útrunn-
inn. Allur sleppibúnaðurgúmmi-
björgunarbáta á skipun fái ýtar-
lega skoðun fyrir áramót. Öll
þilfarsskip verði skylduð til að
hafa sjálfvirkan sleppibúnað. Ör-
yggismálanefnd sjómanna telur
að strax skuli allur sjálfvirkur
sleppibúnaður gúmmíbjörgunar-
báta tekinn til ýtarlegrar og hlut-
lausrar prófunar af tæknideild
Fiskifélags íslands. Prófa skal
getu og kraft þess sjálfvirka bún-
aðar sem Siglingamálastofnun
hefur viðurkennt til þessa. Skal
m.a. prófað við aðstæður þegar
allur búnaðurinn er undir 10—12
cm þykku íslagi og við 60 gráðu
halla þegar sleppibúnaðurinn er
staðsettur á þaki stýrishúss.
Að þessu máli er nú unnið af
fullum krafti.
Fyrir forgöngu samgöngu- og
sjávarútvegsráðuneytis verði
komið á fót sérstökum lána- og
styrktarsjóði fyrir nemendur sem
ætla að helga starf sitt sjósókn og
siglingum.
Byrjað er að vinna að þessu
máli.
Undanþágur til skipstjórnar-
og vélstjórnarstarfa má veita
tímabundið, enda ætli viðkom-
andi einstaklingur að leita sér
frekari menntunar í greininni.
Lög um þetta atriði hafa nú
verið sett.
Þegar verði hafist handa um
endurskoðun laga um Siglinga-
málastofnun ríkisins.
Öryggismálanefnd er reiðubúin
að gera tillögur að breyttum
íögum um Siglingamálastofnun
fyrir þingbyrjun haustið 1985.
Nefndin
skipuð.
hefur þegar verið
Med skrifstofu Eimskips
í Rotterdam verður..
HOFN HEIMS
dálítíð íslensk!
Höfnin í Rotterdam í Hollandi er sannkallaður miðpunktur flutninga í heiminum. Um hana fer meiri varningur en nokkra
aðra höfn í veröldinni - þar mætast skip frá öllum heimshornum og þaðan liggja landvegir um alla Evrópu.
Rotterdam hefur lengi verið mikilvægur viðkomustaður Eimskips og þar með íslenskra inn- og útflytjenda. Vikuleg áætlun
þangað með ekjuskipunum Álafossi og Eyrarfossi, og beinar siglingar á tíu daga fresti með 3 gámaskipum á leiðinni
Reykjavík- Rotterdam - New York - Reykjavík tryggir tíðan og öruggan flutning. Með öflugri skrifstofu í Rotterdam og
þrautþjálfuðu starfsliði þar aukum við enn þjónustu okkar við viðskiptavini.
Heimilisfang Rotterdamskrifstofunnar er:
EIMSKIP - ROTTERDAM
Albert Plesmanweg 151
3088 GC Rotterdam
Sími: 9031 10 282933
Telex: 62122 EIMSK NL
Símskeyti: EIMSKIP
P.O. Box 54034
3008 JA Rotterdam
Flutningur er okkar fag
EIMSKIP
Sími 27100
*
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3