Þjóðviljinn - 22.03.1985, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 22.03.1985, Blaðsíða 8
SJÁVARÚTVEGUR Guðmundur J. Guðmundsson skrifar: Vandj fjskvinnslunnar á íslandi: LÁG LAUN, LFTIÐ ATVINNUÖRYGGI OG MIKIÐ VINNUÁLAG Betrikjör, aðbúnaðurog menntun starfs- fólks er forsenda fyrir bættri aðstöðu fslenskrar fiskvinnslu Það sem einkennt hefur mál- flutning fulltrúa sölusamtaka og fiskverkenda í umræðum um frekari vinnslu sjávarafla, er að vegna skorts á vinnuafli geti þeir ekki framleitt þær afurðir sem verðmeiri eru og þeir vildu raun- verulega framleiða. Mætti þar nefna að stærstu vinnslugreinina, sem er frysting, getur oft ekki framleitt dýrustu pakkningar sem hráefnið býður upp á, þar sem þær krefjast meiri vinnuafls, sem ekki fáist. Þetta viðurkenna sölusamtökin og framleiðendur. Svipaöa sögu er að segja um þurrkun á saltfiski og ýmsa möguleika á sviði lagmetisfram- leiðslu. Með þessu ástandi afsölum við íslendingar okkur ótöldum fram- leiðslumöguleikum og ótrúlega stórum fjárhæðum. Lítið atvinnuöryggi, óþrifaleg vinna og lág laun Hvað veldur? Hvers vegna er ekki hægt að fá vinnuafl í þann þátt atvinnulífsins sem aflar þjóð- inni mestanhluta gjaldeyristekna hennar? I fyrsta lagi má svara því til að vinna í fiskiðnaði er mjög ó- tryggt. Fiskvinnslufólk er eina fólkið í landinu sem hægt er að segja upp með viku fyrirvara, hvort sem það hefur unnið í þrjá mánuði eða þrjátíu ár í starfs- greininni. Þessar uppsagnir með viku fyrirvara geta staðið í nokkra mánuði. Skip siglir á er- lendan markað, - og starfsfólkið í frystihúsinu er sent heim. Skipum er jafnvel lagt um ein- hvern ákveðinn tíma og fólkið sent heim vegna hráefnisskorts. Skuldbindingar atvinnurekenda gagnvart þessu fólki eru minni en gerist í öðrum starfsgreinum. I öðru lagi er þessi vinna bæði erfið og óþrifaleg. Vinnutíminn er oft mjög langur ef vel aflast, og getur þá orðið allt að tvöfaldur dagvinnutími og helgarvinna að auki. í frystingu er meginþorri vinn- unnar í bónus, sem skapar gífur- legt álag, bæði líkamlegt og and- legt. Kannanir hafa sýnt að at- vinnusjúkdómar eru ótrúlega tíð- ir meðal fiskvinnslufólks. Bónu- sinn stuðlar að auknum afköstum og mikilli samkeppni milli starfs- fólksins innbyrðis, en hann stuðl- ar ekki að vöruvöndun að sama skapi. í þriðja lagi er kaup fisk- vinnslufólks í lægsta launaflokki verkafólks. Ef einhver tekjuvon á að vera, þurfa að koma til mikil afköst í bónusvinnu eða gífurleg eftirvinna. Allt þetta hefur stuðlað að því að hver leitar úr fiskvinnu sem beturgetur. Öryggisleysið, erfið- ið og launin gera það að verkum að fiskiðnaðurinn tapar sam- keppninni um vinnuaflið við nær allar aðrar atvinnugreinar. Samtímis því að við erum með óhagstæðan gjaldeyrissöfnuð upp á þrjá milljarða á síðasta ári, getum við ekki, vegna þess að ekki er hægt að fá fólk til að starfa í fiskiðnaðinum, notfært okkur þá framleiðslumöguleika sem tví- mælalaust eru fyrir hendi í fisk- iðnaðinum og myndu gera meira en að jafna gjaldeyrishallann. Forsenda markaðsstöðu? Stærsta hagsmunamál þjóðar- innar er að búa starfsfólki fisk- iðnaðarins þannig kjör að störf við þessa grein verði eftirsóknar- verð, þannig að við getum nýtt þá vinnslu- og tekjumöguleika sem þar eru fyrir hendi. Þetta ætti vitaskuld að vera meginviðfangs- efni stjórnenda þjóðfélagsins í dag. Þetta er líka stærsta hagsmuna- mál fiskiðnaðarins sjálfs. En mikið óskaplega vantar mikið á skilning forráðamanna þessarar atvinnugreinar, sem beina öllu afli sínu í að halda launum þessa fólks niðri. Að öðrum kosti segj- ast þeir ekki vera samkeppnis- hæfir á erlendum mörkuðum. Skyldu þá ekki samkeppnisað- ilarnir greiða svipað kaup eða lægra, því fólki sem þar starfar við fiskiðnað? Skoðum það nánar. Ef borin eru saman laun verka- fólks við fiskvinnslu á íslandi, í Noregi og Danmörku, kemur eftirfarandi í ljós: ; g$gfl| 1 I Á 1' ■ c. SH ■ ■■ - aM 7 p| h$ ’ p'l 1 Hærri laun og aukin menntun er forsenda framfara í fiskiðnaði Tímakaup í íslenskum krónum: KARLAR ísland 86,11* Noregur 211,95 Danmörk 190,40 Mismunur með kuldaálagi: KARLAR Noregur +173,9% Danmörk +126,2% Víðast hvar mun vera um bón- usvinnu að ræða í frystihúsum í Noregi, en þá er þar um hóp- bónus að ræða, sem reiknaður er á alla starfsmenn viðkomandi húss, miðað við heildarafköst yfir dagana. Ekki veit ég hve þessi upphæð er há að meðaltali og þess vegna er hún ekki tekin með hér. í Danmörku hins vegar er bónus nokkuð útbreiddur og er talinn 23-25% kaupauki, þar sem hann er notaður, en þá er bónus reiknaður af lægri taxta en gefinn var upp í töflunni hér að framan, eða 175,45 íslenskar krónur á tímann. Samsvarandi taxti á ís- KONUR 86,11 199,54 190,40 KONUR +131,7% +111,1% KONUR +148,0% +126,2% landi myndi vera kr. 70,00 á tím- ann. Með bónus fer þá tíma- kaupið í 258,75 ísl. kr. á tímann í Danmörku, samkvæmt upplýs- ingum skrifstofu SID í Esbjerg (SID er hliðstæða Verkamanna- sambandsins í Danmörku). Á ís- landi er talið að bónus sé að með- altali 35-40%, þannig að reikna má með að tímakaup með honum sé um 98,00., - þ.e. að bónus- kaupið sé um það bil 164% hærra í Danmörku en á íslandi. Þá má geta þess að mismun- andi bónusstaðlar eru notaðir í Danmörku eftir fisktegundum, fiskstærðum og gæðum hráefnis. Ef fiskur er gamall og lélegur er notaður hærri bónusstaðall en á nýjan og ferskan fisk. Hvað ætli myndi gerast í frysti- húsum á íslandi ef staðlar væru mismunandi eftir gæðum og aldri hráefnis? Ætli það myndi ekki stytta útivist togaranna? Og ætli það sé ekki einmitt áhrifamesta aðferðin til að bæta gæði fisksins sem berst að vinnsluborðinu? Raunar er það réttlætiskrafa, í ljósi fenginnar reynslu af hráefn- isgæðum, að íslensk fiskverka- fólk fái greitt samkvæmt hærri bónusstaðli þegar unnið er gam- alt og lélegt hráefni. Aukin menntun - betra starfsfólk Eins og sést á samanburðinum hér að framan liggur vandi ís- lenskrar fiskvinnslu ekki í of háu kaupi fiskvinnslufólksins, miðað við samkeppnisþjóðirnar. Hins vegar skapar þetta lága kaup stórfelld vandamál fyrir fisk- iðnaðinn ijálfan, þar sem fólk flýr þessa atvinnugrein umvörp- um. Lág laun, lítið atvinnuöryggi og mikið vinnuálag gerir enga atvinnugrein eftirsóknarverða. Það sem brýnast er fyrir fisk- iðnaðinn sjálfan er að forystu- menn hans nái áttum og geri sér grein fyrir því, að eitt helsta hagsmunamál þeirra er að hækka laun fiskvinnslufólks, miðað við aðrar atvinnugreinar; að kauptrygging þessa fólks sé í meira samræmi við aðrar launa- stéttir í þjóðfélaginu. Um það liggur nú frammi tillaga á Alþingi og áskoranir um samþykkt henn- ar frá þorra allra verkalýðsfélaga á landinu. Þá þarf að stuðla að aukinni menntun og sérþjálfun starfs- fólks í fiskiðnaði, enda liggur besta fjárfestingin í þjálfuðu og menntuðu starfsfólki. Halda þarf námskeið fyrir starfsmenn og greiða þeim hærri laun að þeim loknum, þar sem þeir eru þá hæf- ari starfsmenn og stuðla sem slík- ir að bættum gæðum. Þau nám- skeið í fiskiðnaði, sem hingað til hafa verið haldin á vegum Fisk- vinnsluskólans, eftirlitsstofnana og sölusamtaka, hafa takmarkast við verkstjóra og matsmenn. Námskeið fyrir almennt starfs- fólk hafa verið nær óþekkt. Nú standa yfir samningar milli Verkamannasambands fslands og sjávarútvegsráðuneytisins um slíkt námskeiðahald. Jafnframt er komin fram á Alþingi þings- ályktunartillaga um þetta efni. Þetta verður að fara að verða að raunveruleika. Ýmsar stéttir sækja fræðslu og námskeið í vinnutíma á fullum launum og fylgja þeim oftast einhverjar launahækkanir. En fyrirlitning þjóðfélagsins á fiski og fisk- vinnslu kemur skýrt fram í því, að það hefur verið talinn óþarfi að efla menntun og þjálfun þess fólks sem við undirstöðufram- leiðslu okkar starfar, til að gera það sérhæfðara og færara um að vinna þessi störf sem þjóðin stendur og fellur með hvort vel eða illa eru unnin. Guðmundur J. Guðmundsson. Tímakaup með kuldaálagi (frystiklefar, tæki o.s.frv.): KARLAR KONUR ísland 86,11 86,11 Noregur 235,88 213,62 Danmörk 194,77 194,77 Mismunur á tímakaupi í prósentum, miðað við Island: KARLAR Norcgur +146,1% Danmörk +111,1% * 7. taxti Verkamannasambands íslands, sem er svo hár að innan við heim- ingur fískverkafólks vinnur samkvæmt honum. PLUS YFIR 50 ÁR í FARARBRODDI Caterpillar, Cat ogCBeru skYásett vörumerki Fyrsta Caterpillar díeselvélin var framleidd áriö 1931. Það var D9900 geröin. Síðan þá hefur Caterpillar framleitt yfir 2 milljónir véla, sem samtals framleiöa 500 milljón hest- öfl. Á síðustu sex árum hafa þeir selt fleiri vélar, en öll hin árin. Fimmtíu ár stöðugrar framleiðslu- þróunar hafa leitt til minnkaðrar eldsneytiseyðslu og aukinna afkasta, samfara stöðugt léttari, fyrirferða- minni, áreiðanlegri og endingar- betri vélum. Af þessum sökum hefur vélasala caterpillar stöðugt aukist. D9900 CATERPlLLAR SALA Í3, ÞUONUSTA í dag býður fyrirtækið, sex megin- gerðir díseselvéla, í stærðum frá 85 -1500 hestöfl (63-1119 kw). Heildarframleiðslulínan telur 189 útfærslur véla frá 4 strokka — 16 strokka. Framleiðslulínan tekur yfir 52 gerðir sjóvéla og 31 gerð trukk- véla. Að auki eru boðnar 28 gerðir díeselrafstöðva frá 50 kw til 940 kw til notkunar á sjó og í landi. [ulHEKLA ■J Laugavegi 170-172 Sír HF Sími 21240

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.