Þjóðviljinn - 22.03.1985, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 22.03.1985, Blaðsíða 13
SJÁVARÚTVEGUR Sjóeldi nærri Tromsö í N-Noregi. HANDBRAGD ÞITT SKIPTIR MÁLI BETRIMEÐFERÐ ★AUKIN GÆÐI* rikismat riO SJÁVARAFURÐA rannsóknina og samanburðinn. Dauði hrogna þar til þau náðu þeim þroska að verða svokölluð „augnhrogn“, urðu úr laxi sem hafði verið 4 mánuði í sjóblönd- uðu og fersku vatni, eins og að framan segir fyrir hrygningu 10- 20%, en af hrognum úr laxi sem hefur verið í sjó allt til hrygningar 50%. Pá segir ennfremur að sam- kvæmt rannsóknum Mater- stöðvarinnar þá verði útkoman á klaki hrogna úr villtum laxi mikið betri heldur en úr eldislaxi úr sjó- búri. Hvað liggur hér til grundvallar, er nú stöðin að rannsaka. Ég sem þessar línur rita, er aðeins leik- maður á þessu sviði. En mér þyk- ir það vera auðskilið mál, að því aðeins náum við góðum árangri í fiskeldi að við líkjum sem mest eftir lífsskilyrðum hinnar villtu náttúru eins og þau eru best, því það er traustur lærdómur sem ekki svíkur. Öll þróun frá villtum dýrum til taminna dýra tekur langan tíma. Og þetta lögmál gildir jafnt um fiska sem landdýr. Fyrirhugað eldi á sandhverfu Nú eru uppi ráðagerðir um að stofna til eldis á sandhverfu í Nor- egi. Talinn er möguleiki á aukinni sölu þessa fisks á Evróp- umarkaði. En heildarafli í Norður-Atlantshafi hefur verið í kringum 10.000 tonn síðustu árin. Eina sandhverfustöðin sem mér er kunnugt um, er í Skot- landi og er eigandi hennar norska fyrirtækið Norsk Hydro. Norska ríkisolíufyrirtækið Statoli hefur talið sig reiðubúið að leggja fram fé með öðrum í slíka tilraunaeld- isstöð. Talið er að eldisbú sem framleiddi 500 tonn af sand- hverfu kosti í kringum 30 miljónir n.kr. En eldisbú sem gæti fram- leitt 2000 tonn mundi hinsvegar kosta 80 miljónir n.kr. 9 miljón tonn! Á siðustu árum hefur fiskeldi verið um 5% á ári. Hér er miðað við alla heimsbyggðina. Sam- kvæmt skýrslum F.A.O. sem fylgist með þeirri þróun, þá var ársafli af eldisfiski, þar með talin skeldýr 1983, 9 miljón tonn. Af þessu magni er talið að Kínverjar framleiði 5 miljón tonn og aðrar Asíuþjóðir 1,5 miljón tonn. Og vestur-Evrópa samanlagt 1,5 miljón tonn. Það sem þá vantar á heildartöluna dreifist á margar þjóðir. F.A.O. telur að ef Asíu- þjóðirnar notuðu hlutfallslega jafnmikið fjármagn í sitt fiskeldi og þjóðir Evrópu gera nú, þá gæti framleiðsla þeirra vaxið í 40 milj- ón tonn. SÖMI FRÁBÆRIR SPORT- OG FISKIBÁTAR Sómi 600, 700 og 800 eru liprir, traustir og rúmgóöir bátar, hvort heldur er til siglinga eöa fiskveiöa. Sóma bátarnir hafa hlotió miklar vinsældir fyrir gæöi og hagkvæmni I rekstri. Hægt er að fá bátana afhenta á ýmsum smföastigum og búna tækjum aö óskum kaupenda. Hagkvæmt verð og greiðslu- skilmálar. Hringið eða skrifið eftir upplýsinga- bæklingi. _________SMIDJÆ GUÐMUNDAR HELLUHRAUNI6 220 HAFNARFIRDI SlMI50818 SAMSTARF GETUR GERT SMÁÞJÓÐ AÐ STÓRVELDI Sölumiðstöð hraöfrystihúsanna er sölufélag 70 hraðfrystihúsa á l'slandi. Sameinað afl hefur gert kleift aö byggja upp iðngrein sem talin er einstök, ekki einungis hérlendis heldur á heimsmælikvarða. Framleiðni íslenska hraðfrystiiðnaðarinser mjög mikil og stöðugt er unnið að því að auka hana. I öllum frystihúsum innan vébanda SH fer fram þrotlaust starf sérfræðinga, sem vinna að því að tryggja hámarksgæði framleiðsluvörunnar þannig að halda megi markaðsstöðu erlendis. íslenskur fiskur er seldur á hæsta verði á Bandaríkjamarkaði og víðar. Erlendir keppi- nautar taka (slendinga sér til fyrirmyndar og líkja eftir aðferðum og skipulagi við vöru- vöndun og eftirlit. Einungis með því að halda vöku sinni og vera alltaf á undan getur íslenski hraðfrysti- iðnaðurinn tryggt stöðuna á markaðnum erlendis og um leið tryggt þjóðinni möguleika á góðri lífsafkomu ílandinu. Virkt gæðaeftirlit í öllum frystihúsum landsins er hagsmunamál hvers einasta Islendings og einungis með sameinuðu átaki getur þjóðin tryggt stöðu sína sem framleiðandi í þeirri samkeppni sem nú ríkir. Sölumiðstöð Hr aðf ry sti húsanna

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.