Þjóðviljinn - 23.03.1985, Blaðsíða 2
FRÉTT1R
BÚH
Eignir fyrir skuldum
Þrír affyrrum útgerðarráðsmönnum B ÚHsendafrá sér
yfirlýsingu: Eignir umfram skuldir 99 miljónir í árslok.
Útvegsbankinn segir veðsetningar eðlilegt hlutfall afbirgðum
Fyrrverandi formaður Útgerð-
arráðs Bæjarútgerðar Hafn-
arfjarðar, Sigurður Þórðarson
og þeir Hrafnkell Ásgeirsson og
Magnús Jón Árnason fulltrúar
Alþýðuflokks og Alþýðubanda-
lags í ráðinu hafa sent frá sér
Þingfréttir
Páll hætt-
ur við
Á fundi útvarpsráðs í gær lagði
Inga Jóna Þórðardóttir formaður
fram tillögu þar sem því var lýst
yflr að gefnu tilefni að ráðið sæi
ekki ástæðu til athugasemda við
störf þingfréttaritara sjónvarps.
Er þessi tillaga fram komin vegna
deilu þeirra Páls Magnússonar
fréttamanns og Ingibjargar Haf-
stað útvarpsráðsmanns Kvenna-
listans vegna bókunar Ingibjarg-
ar frá í haust um þingfréttir sjón-
varps.
Tillaga Ingu Jónu var sam-
þykkt á fundi ráðsins með 5 at-
kvæðum gegn engu, en, sátu hjá,
Ingibjörg og Gerður Óskarsdótt-
ir fulltrúi Alþýðubandalagsins.
í samtali við Þjóðviljann
kvaðst Páll Magnússon líta á
þessa samþykkt sem ótvíræða
traustsyfirlýsingu við sig. „Ég
túlka hjásetu Ingibjargar sem svo
að hún hafi þar með viðurkennt
að bókun hennar frá í haust hafi
ekki átt við rök að styðjast. í
framhaldi af því hef ég sent ríkis-
saksóknara bréf þar sem óskað er
eftir því að málið verði látið niður
falla,“ sagði Páll.
„Það er ekki hægt að leggja
mat á eitt eða neitt á grundvelli
þess yfirlits sem Páll hafði lagt
fram,“ sagði Ingibjörg við Þjóð-
viljann í gær. „Við Gerður
lögðum fram tillögu um ýtarlega
úttekt, unna af óháðum aðila, til
dæmis félagsvísindadeild HÍ.
Hún var ekki afgreidd, hjásetu
mína ber að skoða í þessu ljósi.“
-ÞH/m
Fótbolti
Liverpool
heppiö
Everton ekki
Evrópumeistarar Liverpool
voru heppnir í gær þegar dregið
var til undanúrslita í Evrópu-
mótunum í fótbolta. Liverpool
leikur þar gegn grísku meisturun-
um Panathinaikos og á fyrri
leikinn heima. Hinn leikurinn í
Evrópukeppni meistaraliða er á
milli Juventus, Ítalíu, og Borde-
aux, Frakklandi.
Ensku bikarmeistararnir
Everton voru ekki eins heppnir.
Þeir drógust gegn vestur-þýska
toppliðinu Bayern Múnchen og
verður fyrri leikurinn í Múnchen.
Hinn undanúrslitaleikurinn í
keppni bikarhafa er á milli Rapid
Wien og Dynamo Moskva.
í UEFA-bikarnum mætast
annarsvegar stórliðin Inter Mi-
lano og Real Madrid og hinsveg-
ar hin lítt þekktu austurevrópufé-
lög Videoton frá Ungverjalandi
og Zeljeznicar frá Júgóslavíu.
- VS
greinargerð um fjárhagsstöðu
BÚH í tilefni fréttaflutnings
undanfarna daga um stöðu fyrir-
tækisins.
Þar kemur m.a. fram að í
reikningsuppgjöri 30. sept. sl sem
lá til grundvallar stofnun Útgerð-
arfélgags Hafnfirðinga voru
eignir BÚH metnar á 610 miljón-
ir og heildarskuldir taldar 523
miljónir, eða eignir umfram
skuldir 87 miljónir kr.
Samkvæmt endanlegum árs-
reikningum fyrir sl. ár eru
heildarskuldir komnar niður í 478
miljónir sem er 45 milj. kr. lægri
skuldir en þegar bæjarstjórn
gerði samþykkt sína um að stofna
nýtt hlutafélag og eignir umfram
skuldir orðnar 99 miljónir í árs-
lok. Þrátt fyrir viðgerðir á skipum
uppá 40 miljónir eru til eignir hjá
BÚH til að mæta öllum skuldum.
Vandi BÚH umfram þann
vanda sem blasir hvarvetna við í
sjávarútvegi stafar af bágri
lausafjárstöðu eins og margsinnis
hefur verið bent á, segir í greinar-
gerð útgerðarráðsmanna.
Þá fylgir greinargerðinni yfir-
lýsing frá Útvegsbanka íslands
þar sem segir að afurðalán BÚH
við bankann séu nú sem næst
eðlilegt hlutfall af verðmæti
birgða.
-*g-
Megas. Þeir eiga fullt erindi við æsku landsins. (Ljósm Atli).
Páskar
Megas syngur
Passíusálmana
Tveir konsertar í Gamla bíói. Sálmarnir við lög Megasar. Ragga grýla
sér um bakraddir. Megas: Passíusálmarnir í fullu gildi.
Upp upp mín sál og allt mitt
geð, mun vætanlega sveiflast
mjúklega úr raddböndum Magn-
úsar Þórs Jónssonar, alias Megas,
yflr salinn í Gamla bíó laugardag-
inn fyrir páska. En þá mun Megas
halda konsert þar sem hann ætlar
að syngja úrval úr Passíusálmum
Haligríms sáluga Péturssonar við
sín eigin lög. Konsertinn verður
svo endurtekinn daginn eftir.
„Þremur öldum eftir að Hall-
grímur barði saman Passíusálm-
ana eru þeir enn í fullu gildi. Þeir
eru ekki orðnir að hefð, stofnun,
af því ágæti þeirra heldur þeim
lifandi. Þeir eiga fullt erindi til
æsku landsins. Og látum svo þar
við sitja“. Þetta sagði Megas í ör-
stuttu spjalli við Þjóðviljann í
gær.
Að sögn Megasar mun hann
syngja 16 sálma af 50, og verður
sálmavalið þannig að píslarsaga
Jesú Krists ætti að verða bærilega
skiljanleg áheyrendum. „Menn
ættu að geta náð þræðinum, hvað
er að ske“.
Megas hefur þegar flutt Passí-
usálma Hallgríms einu sinni áður
við feikilega góðar undirtektir.
Það var á mögnuðum konsert í
Gailerí SÚM árið 1973. Nú verða
konsertarnir í Gamla bíói og raf-
magnaður undirleikur framinn af
þrælvönum poppurum. Sam-
kvæmt heimildum Þjóðviljans
mun Ragnhildur Gísladóttir,
fyrrum Grýla og nú Hvítur máv-
ur, sjá um bakraddirnar.
Konsertarnir verða teknir upp,
væntanlega með frekari vinnslu
og síðar útgáfu í huga. Það er þó
ekki afráðið að fullu. Stefnt er að
því að endurtaka þá að ári, og
taka þá upp á myndband.
Um næstu helgi mun Þjóðvilj-
inn birta langt viðtal við Megas
um Passíusálma Hallgríms sál-
uga.
-ÖS
Seint myndi Hallgrímur sálugi
hafa drukkið Braga kaffi.
Undirskriftasöfnun
Stuöningur
við
Tarkovskí-
hjónin
Askorun til íslenskra
mœðra um að skrifa
undir tilmæli til Gor-
batsjof um að hjálpa
syni Tarkovskí-hjön-
anna að komast til
foreldra sinna.
Nokkrir íslenskar konur hafa
ákveðið að gangast fyrir undir-
skriftasöfnun meðal íslenskra
mæðra til styrktar Tarkovskí-
hjónunum í baráttu þeirra við að
fá 14 ára gamlan son sinn og 84
ára gamla móður Larissu Tark-
ovskí frá Sovétríkjunum til Ítalíu.
Á fréttamannafundi vegna þessa
máls í gær, rakti Larissa Tarkov-
skí ástæður þess að þau ákváðu
1982 að snúa ekki aftur heim til
Sovétríkjanna og sögu þeirra
hjóna síðan. Þetta mál hefur ver-
ið rakið í mörgum blöðum þannig
að út í það verður ekki farið hér.
Formálinn að undirskriftarlist-
unum sem konurnar hafa sett í
umferð og á 4. hundrað mæður
hafa skrifað á á einum sólarhring
er á þessa leið:
Háttvirti hr. Gorbatsjof!
Við undirritaðar íslenskar
mæður beinum til yðar þeim til-
mælum að þér hjálpið syni Larisu
og Andreis Tarkovskís, sem nú
dvelja á Ítalíu, að komast úr landi
og til foreldra sinna. í meira en
þrjú ár hefur drengurinn, sem er
aðeins 14 ára að aldri, búið hjá
aldraðri ömmu sinni. Við látum í
Ijós einlæga von um að þérgreiðið
fyrir mannúðlegri lausn þessa
máls og stuðlið að því að fjöl-
skyldan geti sameinast á ný.
Allir hinir fjölmörgu aðdáend-
ur listar Tarkovskís, sem hefur
borið hróður sovéskrar kvik-
myndagerðar um allan heim,
munu kunna yður þakkir fyrir. “
Þeir sem áhuga hafa á að skrifa.
undir þetta og/eða fá lista geta
snúið sér til Hallveigar Thorlací-
us Laugalæk 38 sími 83695, Vil-
borgar Harðardóttur Laugavegi
46 B sími 20482, Ingibjargar Har-
aldsdóttur Barónsstíg 63 sími
20798 og Kristínar Á. Ólafsdott-
ur Seljavegi 25 sími 22853. Þá er
einnig hægt að fá lista í Kvenna-
húsinu að Hótel Vík og hjá
Kvennafylkingu Alþýðubanda-
lagsins að Hverfisgötu 105.
- S.dór
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN