Þjóðviljinn - 20.04.1985, Side 8

Þjóðviljinn - 20.04.1985, Side 8
MENNING Haldið ykkur við hákarlinn landi ef eitthvað er og samt hitti ég fólk hér sem er mjög opið og frjálslynt. Petta er því ekki spurn- ing um veðurfar, menningu eða lærdóm heldur það að líta framan í heiminn með opnum huga. í Þýskalandi búa 60 miljónir manna, þar af 2,5 miljónir atvinnulausar. Par er því mikið þéttbýli og allt skipulagt til þrautar. Þetta skipulag er nauðsynlegt að vissu marki en það gerir fólki erfiðara fyrir um að losa sig við hömlur og losa sig undan áhrifum menntunarinnar. ísland er ekki eins strjálbýlt og auk þess einangrað sem gerir það að verkum að fólk verður að fara mikið utan til að afla sér menntunar. Ég hef séð mér til ánægju að ungt fólk leggur á sig langar ferðir í þessu skyni. I Þýskalandi er mjög algengt að ' fólk fari ekki lengra en til næstu borgar til að afla sér menntunar. Ef ég dreg þetta saman má segja að Þjóðverjinn í myndinni læri þá lexíu að það er undir hon- um sjálfum komið hvort hann opnar fyrir öðru fólki. Hann bíð- ur eftir sólinni, að honum verði boðið inn, og hann þarf að sigrast á eigin stolti og öryggisleysi. En þegar hann loks tekur undir sig stökkið finnur að hann er vel- kominn og hann eignast vini“. Hákarl og hamborgarar - Verður þetta mikið fyrir- tœki? „Þetta verður ekki stórmynd Það er lítill markaður fyrir þjóð- legar myndir, bæði hér og í Þýskalandi. Við eigum í harðri samkeppni við amerísku mynd- irnar sem eru búnar að móta áhorfendur. Það er erfitt fyrir okkur að keppa við stjörnumynd- ir þar sem mikið er beitt „effekt- um“ oþh.. Við höfum ekki stjörnurnar og heldur ekki pen- ingana. Fólk á borð við Nastössju Kinski og Eddie Murphy eru stjörnur um allan heim en leikar- arnir okkar eru óþekktir. Ef maður hefur ekki mikla peninga til að kaupa stjörnur og vera með alls kyns tæknififf er eini möguleikinn að reyna að vera frumlegur og draga fram eitthvað sérstakt og þjóðlegt. Það gefur manni á hinn bóginn frjálsari hendur að mörgu leyti. Ef maður er að gera stórmynd sem búið er að dæla í peningum verður hún að vera alþjóðleg, hvað sem það kostar. Og það er í raun ekki hægt að skoða amerísk- ar myndir lengur og segja: þetta er amerísk menning. Það var þó hægt að segja um vestrana. Eg skal taka dæmi. Þú getur fengið hamborgara um allan heim, þeir bragðast alla staðar eins, eru mjúkir og bragðgóðir. Ég smakkaði hins vegar hákarl hér um daginn, bara smábita, og ég gat ekki borðað mikið af þessu. En ég efast ekki um að þetta sé ágætis matur og þið getið Leikstjórinnásamtleikhópnum,frávinstri:KolbrúnHalldórsdóttir, HannaMaría Karlsdóttir, Edda Heiðrún Backman, Lutz Konermann, Guðjón Pedersen og Þröstur Guðbjartsson. Auk þeirra koma við sögu í myndinni Þorgeir Gunnarsson aðstoðarleikstjóri, Guðjón Ketilsson sem gerir leikmynd og búninga fyrir leikhópinn og Hilmar Oddsson aðstoðarhljóðmaður. Mynd: Valdís. er held ég aðeins fær þeim sem búa í enskumælandi löndum. Hin leiðin er að minnka kostn- aðinn við gerð myndanna og draga úr þeim metnaði sem hvet- ur menn til að slá í gegn á alþjóð- amarkaði. Gera litlar myndir. Það er orðinn til stór hópur þýskra kvikmyndagerðarmanna sem stendur frammi fyrir þessum kostum". Á fjórum tungum - Og hvernig ferð þú að þvíað fjármagna myndirnar þínar? „Ég hef engan framleiðanda að þessari mynd sem ég er að gera núna. Hluti peninganna sem hún kemur til með að kosta kemur frá þýskri sjónvarpsstöð sem heitir Þriðja rásin. Ég seldi henni sýn- ingarrétt að myndinni. Þessi stöð nær aðeins til hluta Þýskalands sem þýðir að hún getur ekki gert neinar kröfur til myndarinnar. Hún getur td. ekki bannað mér að gera mynd á fjórum tungumál- um eins og ég ætlaði mér, þýsku, íslensku, ensku og ítölsku. Afgangurinn kemur úr tveimur áttum. Annars vegar eru lán sem ég tek í banka. Hins vegar hefur starfsliðið í myndinni fallist á að taka þátt í áhættunni með því að borðað hann. Þið getið ekki selt hákarl um allan heim. Hins vegar finnst mér að þið ættuð að leggja áherslu á hákarlinn, hann er sér- stæður og fæst ekki annars stað- ar“. Litlar, skítugar myndir - Hvernig eru horfur í þýskri kvikmyndagerð um þessar mund- ir, eftir „Nýbylgjuna"? „Þýsk kvikmyndagerð mátti líða margt fyrstu árin eftir stríð. Það var ekki fyrr en árið 1949 að Þjóðverjar fengu leyfi hjá banda- rísku yfirvöldunum til að gera eigin kvikmyndir. Fram að þeim tíma voru eingöngu sýndar amer- ískar kvikmyndir og áhorfendur ólust upp við þær. Þýskir kvik- myndamenn urðu því að gera myndir í svipuðum stíl. Árið 1962 komu fyrstu við- brögðin við þessum eftirstríðs- myndum, þeim sem kallaðar voru „Heimat“ kvikmyndir, eins- konar ættjarðarmyndir með fal- legu landslagi og jákvæðu fólki. Þá kom fram hópur sem vildi gera öðurvísi myndir. Einn þeirra var Alexander Kluge sem sagðist vilja gera litlar skítugar myndir. Upp úr þessari hreyfingu komu menn á borð við Fassbinder, Volker Schlöndorff, Wim Wend- ers ofl. Kannski var þó annað mikil- vægara sem kom upp úr þessari hreyfingu en það voru tveir kvik- myndaskólar, í Múnchen og Berlín, sem voru stofnaðir árið 1967. Nú er staðan orðin allt önnur. Þessir leikstjórar sem gerðu uppreisn fyrir rúmlega 20 árum eru orðnir eldri og sumir þeirra dánir, því miður. Nú er komið upp mikið af mönnum sem kalla sig ,filmemacher“ en ekki leikstjóra. Á þessu er sá munur að leikstjórarnir eru ráðnir af framleiðendum eða kvikmynda- fyrirtækjum, en nýju mennirnir ráða sér sjálfir, semja sín handrit sjálfir, útvega fé úr ýmsum áttum og þannig. Yngri kvikmyndagerðarmenn standa frammi fyrir því að hinn hefðbundni kvikmyndaiðnaður getur ekki tekið við öllum þeim sem útskrifast úr skólunum. Það er því um tvær leiðir að velja. Önnur er sú ameríska þar sem áhersla er lögð á æ stærri myndir sem kosta æ meiri peninga. Fyrir 10 árum auglýstu fyrirtækin með stolti að þessi og þessi mynd væri „sú dýrasta sem gerð hefur ver- ið“. Nú er það bókstaflega orðin nauðsyn að myndir kosti mikið fé því áhorfendur vilja alltaf meiri elæsileeri ..effekta" Þecsi leið fá aðeins helming launa sinna strax. Afganginn fær það svo síð- ar og jafnvel eitthvað meira ef myndin gengur vel“. - Og hvernig er framkvæmda- áœtlunin? „Við verðum fyrst í svona viku á Snæfellsnesi, komum síðan til Reykjavíkur og tökum örlítið hér, aðallega brottför hópsins. í lok mánaðarins verður farið til Múnchen og unnið við undirbún- ing þangað til bfll hópsins er kom- inn út. I kringum 10. maí verður farið til Ítalíu þar sem við verðum í 7 vikur. Tökur hefjast í lítilli borg á Norður-Ítalíu, Bergamo, og enda á Sikiley". - Hverjir vinna við myndina auk þín og leikhópsins? „Það eru tveir íslendingar til viðbótar, þeir Þorgeir Gunnars- son sem verður mér til aðstoðar og Hilmar Oddsson aðstoðar- maður við hljóðupptöku. Töku- mennirnir eru þýskir, hljóðmað- urinn er svissnesk kona, kokkur- inn franskur, upptökustjórinn ítalskur og klipparinn frá Austur- ríki“. - Og hvenœr verður hún tilbú- in? „Ég stefni að því að hafa hana tilbúna til sýninga um jólin. Það er góður tími til að sýna sólar- myndir". -ÞH

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.