Þjóðviljinn - 25.04.1985, Qupperneq 7
Landbúnabur
Að bræða
lýsi fyrir
Kaupinhafn
Frá umrœðum á aukafundi
Stéttarsambandsins
Nokkrir fulltrúanna á aukafundi Stéttarsambandsins: Jónas R. Jónsson, Melum (fremst til v.), Einar Þorsteinsson,
Sólheimahjáleigu, Bjarni Ásgeirsson, Ásgarði, Jón Magnússon, Melaleiti, Guðbjartur Gunnarsson, Hjarðarfelli, Sigurður
Líndal, Lækjamóti.
Eins og að líkum lætur urðu
mjög miklar umræður á auka-
fundi Stéttarsambandsins um
drögin að nýjum framleiðslu-
ráðslögum. Við birtum hér ör-
lítið sýnishorn af máli manna,
sem tóku þátt i umræðum,
áður en nefndir tóku til starfa
upp úr hádeginu. Gefur það of-
urlitla vitneskju um það,
hvernig mönnum hugnuðust
ýmsar þær breytingar, sem
boðaðar eru.
Tryggvi Stefánsson, Hallgils-
stöðum:
Fjárhagsafkoma fjölmargra
bænda hefur aldrei verið verri en
nú. Ef enn verður dregið úr fram-
leiðslu hefðbundinna búvara
með afnámi útflutningsbóta, er
því þá að treysta, að aðrar bú-
greinar verði studdar þeim mun
betur? Hingað til hefur mjög
skort á nægilegan stuðning við
loðdýraræktina.
Einar Þorsteinsson, Sólheima-
hjáleigu:
Þetta frumvarp er engan veg-
inn nógu vel unnið. Ég er aiger-
lega andvígur því að áhrif Fram-
leiðsluráðs verði minnkuð, eins
og að er stefnt með frumvarpinu.
Það er opið í allar áttir og sam-
kvæmt því er hægt að ráðskast
með landbúnaðinn frá ári til árs.
Það klingir alltaf að allir skuli
vera stórbændur, með 40 kýr og
500 fjár minnst. Því mega ekki
smábúin þrífast, þar sem bóndinn
getur stundað aðra vinnu með
búskapnum? Svo er alltaf verið
að tala um að stytta vinnutímann,
nema hjá bændum. Það er stefnt
að því að lengja hann.
Kristófer Kristjánsson, Köldu-
kinn:
Verður vinnslustöðvunum séð
fyrir því fjármagni, sem gerir
þeim kleift að borga út strax, og
hverjir verða vextir af þeim lán-
um? Er bændum ætlað að eiga
vinnslustöðvarnar áfram eða
verða þær slitnar úr sambandi við
framleiðendur? Ekkert af þessu
liggur ljóst fyrir í frumvarpinu.
Það eru undarleg vinnubrögð við
jafn þýðingarmikið mál og hér er
um að ræða, að hraða afgreiðslu
þess svo mjög.
Sigurður Líndal, Lækjamót-
um:
Þetta er eitt hið stærsta mál,
sem nokkru sinni hefur komið
fyrir Stéttarsambandsfund. Það
brýtur að verulegu leyti upp það
kerfi, sem gilt hefur um þessi mál
hingað til og ekki verður með
neinum sanni sagt að hafi gefist
illa, þvert á móti. Það er því ákaf-
lega óheppilegt að fá það ekki
fyrr í hendur en þetta. Frumvarp-
ið er mjög opið og margt í lausu
lofti. Augljóslega er að því stefnt,
að þrengja mjög starfssvið Fram-
leiðsluráðs og er óhyggilegt því
það hefur reynst bændum mjög
þýðingarmikið. Hvernig er hug-
myndin að fjármagna vinnslu-
stöðvarnar svo þeim verði kleift
að inna fyrirfram af hendi útborg-
un til bænda?
Guðmundur Þorsteinsson,
Skálpastöðum:
Við fáum þetta frumvarp, -
upp á 60 greinar, margar langar
og sumar ekki alltof ljósar, auk
bráðabirgðaákvæða, - þá fyrst í
hendur er við komum hér á fund-
inn. Auk þess starfar meiri hluti
fulltrúanna í nefndum, sem fjalla
um önnur mál hér á fundinum, og
þeim er ætlað að taka afstöðu án
þess að hafa nokkur tök á að
kynna sér þetta mál. Þetta er
óhæfa.
Hvað er það í þessu frumvarpi,
sem kemur í stað útflutningsbót-
anna, sem á að afnema? Ég óska
eftir að það sé bókað, að það fé,
sem Framleiðnisjóði er ætlað til
þess að mæta niðurfellingu út-
flutningsbótanna, sé allsendis
ófullnægjandi og ég veit, að
margir hér inni eru mér sammála
um það. Fáist ekki viðunandi
leiðréttingar á þessu frumvarpi
þá slítum við þessu samstarfi og
berjumst gegn því með öllum til-
tækum ráðum.
Halldór Þórðarson, Lauga-
landi:
Það virðist vera ríkjandi stefna
að þjarma sem mest að fram-
leiðslustéttunum og hefur það þó
hingað til verið haft fyrir satt, að
á afrekstrinum af vinnu þeirra lifi
þjóðin. En hvað gerir það svo
sem til þó að bændum fækki?
Okkur er tjáð að 10 þúsund ís-
lendingar komi til með að lifa af
upplýsingastörfum um næstu
aldamót! Ég sé ekki betur en
býsna margir séu sammála etas-
ráði Laxness í íslandsklukkunni
þegar það stormar inn á sviðið,
etandi sultutau: „Mín skoðun er
sú, að það sem okkur hafi alltaf
vantað á íslandi sé vel heppnað
harðæri til þess að sá óvandaði
flökkulýður, sem fer þar um
landið, hverfi í eitt skipti fyrir öll
og þeir fáu menn, sem einhver
dugur er í, geti ótruflaðir af þjóf-
um og betlurum dregið þ?nn fisk,
sem Compagniet þarfnast þá og
þá og brætt það lýsi, sem Kaupin-
hafn verður að fá til að hafa ljós“.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson,
Öngulsstöðum:
Eg held að það hafi verið fjár-
fest svo mikið í hefðbundnum bú-
greinum á undanförnum árum,
að ekki þurfi að bæta þar miku
við á næstunni. Héraðabúmark á
að auðvelda að viðhalda byggð,
þar sem hún stendur höllustum
fæti. En það er mál alþjóðar og
því þarf aðstoð hins opinbera að
koma til. Meðalfjárhagsstaða
bænda hefur ekki versnað á síð-
asta ári en hins vegar hefur bilið
breikkað innan stéttarinnar.
Væri ekki athugandi, að þeir,
sem búa við betri lánakjör, að-
stoðuðu með einhverjum hætti
hina, sem verr eru settir? Legg
áherslu á að bændur ráði áfram
yfir vinnslustöðvunum.
Agúst Guðröðarson, Sauða-
nesi:
Því ekki að leggja flatan skatt á
búvöruframleiðsluna og greiða
með honum niður fjármagns-
kostnað þeirra, sem erfiðast
Aukafundi Stéttarsambands
bænda, sem getið var um hér í
blaðinu í gær, lauk um kl. 4 í
fyrrinótt. Megin viðfangsefni
fundarins var að ræða og gefa
umsögn um frumvarp stjórn-
arflokkanna „um framleiðslu,
verðlagningu og sölu búvara“.
Enginn fulltrúi, sem til máls tók á
fundinum, var sáttur við þetta
frumvarp og bar margt til, sem
hér er ekki tóm til að tíunda að
sinni. Gunnar Guðbjartsson,
framkvæmdastjóri Framleiðslu-
ráðs, benti ma. á atriði í frum-
varpinu, sem hann sagði sér með
öllu óskiljanleg. Ekki báru þó
frumvarpsfeður, sem þarna voru
mættir, við að skýra þær dulrúnir.
eiga? Það er eins og Laxness segir
í Sjálfstæðu fólki: Það er verst að
sama fólkið skuli ekki alltaf lifa í
landinu því þá kæmist það kann-
ski einhverntíma í álnir.
Sigfús Þorstcinsson, Fossgerði:
Ég er ekki hrifinn af því að færa
völd frá Framleiðsluráði til emb-
ættismanna í stjórnarráðinu, sem
sífellt þenst út og stækkar. Emb-
ættismenn ráða sífellt meiru,
áhrif stjórnmálamanna minnka,
hvað þá almennings. Það horfir
síst til heilla. Hef engin rök séð né
heyrt fyrir því að skerða völd
Framleiðsluráðs. Sakna þess að í
frumvarpinu er ekkert fjallað um
atvinnuréttindi í landbúnaði.
Jónas R. Jónsson, Melum:
Hér eru svo margir endar lausir
að ekki er auðvelt að sjá hvert
stefnt er. Mér koma í hug tveir
menn, sem voru að semja frum-
varp. Annar var greindur, hinn
duglegur. Frumvarpið þótti bera
þess merki, að sá greindi hefði
lagt til dugnaðinn en sá duglegi
greindina. - Það er vitanlega
gjörómögulegt að fjalla um svona
Frá aukafundinum
Settur var á blað og samþykkt-
ur aragrúi tillagna og athuga-
semda, sem fundurinn væntir
„fastlega að nefnd sú, er frum-
varpið hefur samið“, taki til
greina. Þá lagði fundurinn á það
þunga áherslu að fulltrúar frá
Stéttarsambandinu „fái að taka
fullan þátt í lokafrágangi frum-
varpsins og með því tækifæri til
að fylgja eftir og rökstyðja þær
tillögur til breytinga", sem fund-
urinn samþykkti, og aðrar, sem
þeir kunna að telja nauðsynlegar.
Þá verði og haft samráð við full-
trúa búgreinasambandanna um
atriði, sem þau varða sérstak-
lega.
Fundurinn kaus 6 menn með
viðamikinn frumvarpsbálk að
nokkru gagni á svo stuttum tíma
sem hér gefst. En ég vil spyrja:
Verður öllum sláturhúsum og
vinnslustöðvum tryggð sama að-
stoð til útborgunar?
Guðmundur Stefánsson,
Hraungerði:
Kjör þeirra bænda, sem verst
eru staddir fjárhagslega, verða
ekki bætt með því að hækka af-
urðaverðið. Því verður að koma
til móts við þá með öðrum hætti.
Þetta frumvarp speglar andann í
þjóðfélaginu í garð bænda.
Halldór Gunnarsson, Holti:
Hið alvarlega er það, að það
eru yngri bændurnir, sem eru að
gefast upp, mennirnir, sem fram-
tíð bændastéttarinnar byggist á.
En þeir geta bara ekki hætt þótt
þeir vildu, nema að ganga slyppir
og snauðir frá borði. Þessu veldur
enginn búskussaháttur, eins og
sumir menn segja, og mæla af
miklu óviti, heldur eru þarna að
verki okurvextir og verðbólga.
-mhg
fullu umboði til þess að „gera til-
lögur um endurskoðun og freista
þess að ná fram nauðsynlegum
breytingum". Nefndina skipa:
Birkir Friðbertsson, Hermann
Sigurjónsson, Ingi Tryggvason,
Jóhannes Geir Sigurgeirsson,
Magnús Sigurðsson og Þórarinn
Þorvaldsson.
Ekki verður þeirri hugsun var-
ist að giftusamlegra hefði verið
fyrir ríkisstjórnarnefndina að
leita í ríkara mæli ráða hjá
bændasamtökunum við samn-
ingu þessa 60 greina bálks, auk
bráðabirgðaákvæða en gert virð-
ist hafa verið. Trúlega hefði það
fækkað slysunum við þessa frum-
varpssmíði. -mhg
Stéttarsambandið
Taki fullan þátt
í fráganginum
Fimmtudagur 25. apríl 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7