Þjóðviljinn - 25.04.1985, Síða 19
ÍÞRÓTTIR
Noregur
Gunnarí
sviðsljósinu
BesturíNoregi, segjablöðin. Iliði
ársins. Gerir ótrúlega hluti. Fékk rautt
eftir korter \
Frá Markúsi Einarssyni frétta-
manni Þjóöviljans í Noregi:
Gunnar Einarsson hefur verið
mikið í sviðsljósinu í norskum
handknattieik í vetur. Lið hans,
Fredensborg/Ski, varð bikar-
meistari í vetur og á alla mögu-
leika á að sigra í sérstakri 4-liða
keppni um sæti í IHF-keppninni
eftir jafntefli á útivelli, 27-27,
gegn nýkrýndum Noregsmeistur-
unum, Urædd.
Sá leikur var í meira lagi sögu-
legur. Gunnar var rekinn af
leikvelli fyrir fullt og allt eftir að-
eins 15 mínútur fyrir „hroðalega
ljótt brot“ eins og sagt var í blöð-
unum. Síðar í leiknum setti Fre-
densborg inná leikmann sem átti
að vera utan vallar í 2 mínútur en
það uppgötvaðist ekki fyrr en
Ieiknum var lokið. Urædd hefur
kært leikinn útaf þessu og ekki er
útséð um hvernig það muni fara
en liðin eiga að leika síðari úr-
slitaleik sinn í kvöld. Úrslitin
'fyrrakvöld.
skipta þó ekki máli hvað varðar
Evrópusæti, Urædd leikur í Evr-
ópukeppni meistaraliða næsta
vetur og Fredensborg í Evrópu-
keppni bikarhafa. Lið númer
þrjú í þessari keppni fer því í
IHF-keppnina.
Gunnar hefur verið ráðinn
þjálfari Fredensborg/Ski fyrir
næsta vetur eins og Þjóðviljinn
hefur áður skýrt frá. Hann var nú
í vikunni valinn í „lið ársins“ hjá
norsku blaði og blaðamenn hér
virðast á einu máli um að Gunnar
sé besti leikmaður norsku 1.
deildarinnar. Hann hafi gert
ótrúlega hluti í leikjum
Fredensborg/Ski, hluti sem aldrei
hafi sést áður í norskum hand-
knattleik.
Já, þó fyrrum landsliðsmaður-
inn úr FH hafi einbeitt sér að
þjálfun Stjörnunnar undanfarin
ár og lítið leikið sjálfur er greini-
legt að hann hefur engu gleymt -
hann er leikmaður í hæsta gæða-
flokki.
Noregur
Guðbjöm
bjartasta
vonin
Brann loks með
almennilegan
markmann
Frá Markúsi Einarssyni frétta-
manni Þjóöviljans í Noregi:
„Guðbjörn Tryggvason er
bjartasta vonin hjá Start,“ segir í
einu norska blaðanna í gær þar
sem fjallað er um 1. deildar-
keppnina í knattspyrnu sem hefst
á sunnudaginn. Skagamanninum
Ijóshærða er spáð miklum frama
með Start í sumar þrátt fyrir að
brösuglega hafi gengið hjá honum
í vor. Guðbjörn er tvívegis búinn
að tábrotna og óvíst er hvort hann
geti leikið gegn Bjarna Sigurðs-
syni og félögum í Brann á sunnu-
daginn.
Bjarni hefur leikið mjög vel í
markinu hjá Brann í æfingar-
leikjunum í vor og hefur fengið
lofsamleg ummælj. Blöðin segja
að nú hafi Branri loksins náð í
almennilegan markmann, þetta
hafi alltaf verið veik staða hjá lið-
inu þar til nú.
Það verður fróðlegt að fylgjast
með gengi íslands- og bikar-
meistaranna frá Akranesi í
norsku 1. deildinni í sumar og
vonandi getur Guðbjörn leikið
með Start í Bergen á sunnudag-
inn.
Teitur Þórðarson fókk hættulegasta
færi Islands í Luxemburg í gær. Hann
hefur skorað 3 mörk í 5 leikjum með
Yverdon [ Sviss.
Teitur
Gengið vel
persónulega
,AIér hefur gengið vel með
svissneska 2. deildarliðinu Yverdon,
persónulega, en staða liðsins í fallbar-
áttunni er vonlítil. Ég vissi vel að
hverju ég gekk, liðið var sama og fall-
ið um áramót og það er alltaf erfitt að
leika við slíkar kringumstæður",
sagðl Teitur Þórðarson landsliðsmað-
ur í knattspyrnu í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær.
Teitur hefur skorað 3 mörk í 5
leikjum með Yverdon en hann gekk
til liðs við félagið eftir áramótin.
Yverdon getur enn sloppið við fall en,
eins og Teitur sagði, er sá möguleiki
fyrst og fremst tölfræðilegur. Teitur
fer til síns gamla félags, Oster í Sví-
þjóð, í júní en hann hefur gert tveggja
ára samning við félagið sem hann lék
með við góðan orðstír fyrir nokkrum
árum. -VS
England
Man. Utd 0-0 - Oxford upp
Á meðan Everton var að gera það
gott í Evrópubikarnum í gærkvöldi
tapaði eina liðið sem gæti veitt þeim
keppni um enska meistaratitilinn
tveimur stigum á heimavelli - Manch.
Utd gerði aðeins 0-0 jafntefli við Sout-
hampton.
Sunderland og Luton töpuðu dýr-
mætum stigum í fallbaráttunni. Luton
tapaði 1-2 heima fyrir Nott. Forest og
Sunderland 1-0 í West Bromwich.
Stoke tapaði 2-3 fyrir Norwich og
Aston Villa og Watford skildu jöfn,
1-1. Oxford er öruggt með sæti í 1.
deild í fyrsta skipti eftir 1-0 sigur á
Shrewsbury.
Evrópumótin
Stórkostlegt
hjá Everton
Ég hef aldrei upplifað svona
stemmningu hér á Goodison Park,
þetta er stórkostlegt," sagði nýliðinn í
enska landsliðinu, Trevor Steven,
eftir frækinn sigur ensku meistaraefn-
anna, Everton, á vestur-þýsku
meistaraefnunum, Bayern Miinchen,
3-1, í undanúrslitum Evrópukeppni
bikarhafa í knattspyrnu. Fyrri leikur-
inn endaði 0-0 og Éverton leikur því til
úrslita í keppninni - gegn Rapid Wien
frá Austurrfki.
Fimmtíu þúsund manns sáu
leikinn, það mesta á Goodison Park í
vetur. Strax á 4. mínútu klúðraði
Steven dauðafæri og Jean-Marie
Pfaff varði frá Kevin Sheedy sem
komst einn í gegnum vörn Bayern. Á
36. mín. náðu svo Þjóðverjarnir for-
ystu. Ludwig Kögl slapp frá Gary Ste-
vens og skaut, Neville Southall varði
glæsilega en boltinn hrökk til Uli Hö-
ness sem skoraði auðveldlega, 0-1.
En Everton byrjaði seinni hálfleik
stórkostlega - Andy Gray sendi fyrir
mark Bayern og við fjærstöng var
Graeme Sharp mættur og ýtti boltan-
um í netið, 1-1. Þetta var ekki nóg -
Bayern hefði komist áfram á útimark-
inu við þessi úrslit. Þegar 15 mín.
voru eftir tókst svo hinum eitilharða
Gray að koma Everton yfir, 2-1.
„Þetta var heppnismark, mistök hjá
markverðinum," sagði hinn hógværi
miðherji eftir leikinn. Og á 86. mín.
var Gray enn á ferð. Nú gaf hann á
Steven sem innsiglaði glæstan sigur
Everton, 3-1. Sheedy var svo nálægt
því að bæta fjórða markinu við í lok-
in. Enn vinnur Everton - liðið er
gjörsamlega óstöðvandi og stefnir á
sigur í ensku 1. deildinni, enska bik-
arnum og Evrópukeppni bikarhafa.
Rapid Wien verður andstæðingur
„Þetta var svo sem ekkert alltof
góður leikur en við áttum samt
meira í honum og hefðum með
smá heppni getað unnið. Sérstak-
lega í seinni hálfleiknum voru við
meira með boltann en okkur gekk
illa að skapa okkur færi“, sagði
Teitur Þórðarson landsliðsmaður
i knattspyrnu i samtali við Þjóð-
viljann í gærkvöldi. Hann lék þá
að nýju með íslenska landsliðinu
eftir þriggja ára fjarveru - er ís-
land og Luxemburg gerðu
markalaust jafntefli í Luxemb-
urg.
Það var Teitur sem fékk hætt-
ulegasta færi íslenska liðsins
snemma leiks. „Ég var hálfpart-
inn búinn að missa af fyrirgjöf en
náði að teygj a hælinn í boltann og
hitti hann mjög vel en það var
Everton en Austurríkismennirnir
náðu jafntefli gegn Dynamo í
Moskvu, 1-1, eftir að hafa unnið fyrri
Ieikinn 3-1. Panenka kom Rapid yfir
á 3. mínútu svo liðið hafði leikinn í
hendi sér, engu breytti þó Posinatov
jafnaði fyrir Sovétmenn.
Juventus í
erfiðleikum
Það verður draumaúrslitaleikurinn
í Evrópukeppni meistaraliða, Liver-
pool gegn Juventus. Juventus lenti í
miklum vandræðum gegn Bordeaux í
Frakklandi þrátt fyrir að fara þangað
með 3-0 forskot úr fyrri leiknum.
Bordeaux sótti látlaust allan fyrri
hálfleik og uppskar mark á 24. mín-
útu er Dieter Múller skoraði, 1-0.
Frakkamir, með Tigana og Giresse í
aðalhlutverkum, sóttu síðan látlaust
framan af seinni hálfleik, en síðan fór
örvæntingin að ná yfirhöndinni og
sjálfstraust ítalanna jókst að sama
skapi. En á 80. minútu skaut Patrick
Battiston að marki Juventus af 30 m
færi, stöngin inn - 2-0. Við þetta hljóp
aukið kapp í Frakkana en þeir náðu
ekki að bæta við þriðja markinu -
Juventus vann 3-2 samanlagt og var
það sanngjarnt þegar á heildina er
litið.
Liverpool var ekki í neinum vand-
ræðum gegn Panathinaikos í Grikk-
landi með 4-0 í pokahorninu úr fyrri
leiknum. Að vísu skaut Saravakos í
slá Liverpoolmarksins í fyrri hálfleik
en á 61. mínútu geystist Mark Lawr-
enson í sóknina, lék „einn-tvo“ við
Ronnie Whelan og skoraði laglega.
Liverpool vann sanngjarnt, 0-1, og
samanlagt því 5-0, og leikur til úrslita
um Evrópubikarinn í fimmta skipti.
bjargað á marklínu", sagði
Teitur. Luxemburg fékk eitt
dauðafæri í fyrri hálfleik, sitt eina
umtalsverða færi í leiknum. Þá
komst sóknarmaður liðsins einn í
gegn en skaut yfir íslenska mark-
ið.
íslenska liðið beitti leikaðferð-
inni 3-5-2 í fyrri hálfleik en hún
verður notuð gegn Skotum þann
28. maí, ef að líkum lætur. í
seinni hálfleik var breytt í 4-3-3,
meiri áhersla lögð á sóknarleik.
Lið íslands var þannig skipað:
Bjarni Sigurðsson - Þorgrímur
Þráinsson, Árni Sveinsson, Sæ-
var Jónsson, Magnús Bergs - Atli
Eðvaldsson, Sigurður Jónsson,
Guðmundur Þorbjörnsson -
Teitur Þórðarson, Ragnar Mar-
geirsson, Lárus Guðmundsson.
Real Madrid vann upp 2-0 forskot
Inter Milano í UEFA-bikarnum og
sigraði 3-0 í Madrid - Santillana
skoraði tvö fyrstu mörkin. En - Berg-
omi varnarmaður Inter var borinn af
velli eftir að hafa fengið einhvern að-
skotahlut í höfuðið og því bendir allt
til þess að leika verði seinni leikinn
aftur á hlutlausum velli.
Videoton frá Ungverjalandi leikur
til úrslita um UEFA-bikarinn, gegn
Real eða Inter. Naumt var það þó
gegn Zeljeznicar í Júgóslavíu -
heimaliðið komst í 2-0 og það hefði
dugað því þar sem Videoton vann fyr-
ri leikinn 3-1. En Ungverjar náðu að
skora rétt fyrir leikslok - lokatölur
2-1 og Videoton áfram, samanlagt 4-
3.
-VS
Handbolti
FH mætir
Víkingi
Það verða FH og Víkingur sem
leika til úrslita í bikarkeppninni í
handbolta. í gærkvöldi voru undan-
úrslitaleikirnir og sigraði FH Stjörn-
una í Hafnarfirði með 23 mörkum
gegn 22 f spennandi leik og í Seljaskóla
vann Víkingur Val 26-18.
Stjarnan hafði frumkvæðið í byrjun
á móti FH og voru yfir allan fyrri hálf-
leikinn, mest 5 mörk 11-6, en í hálf-
leik var staðan 12-10. FH-ingar jöfn-
uðu strax í síðari hálfleik og var jafnt
á öllum tölum upp að 19-19. Þá náðu
FH-ingar yfirhöndinni og komust í
23-20, en Stjörnumenn skoruðu síð-
ustu 2 mörkin.
Mikil barátta var í leiknum og best-
ir FH-inga voru Kristján Arason,
Guðjón Árnason og Þorgils Óttar, og
hjá Stjörnunni voru þeir Brynjar
Kvaran og Hannes Leifsson bestir.
Markahæstir voru: Hjá FH Kristján
9/7, Guðjón Á. og Þorgils 5. Hjá
Stjörnunni Hannes 7, Magnús T. og
Guðm. Þórðarson 4.
í Seljaskóla tóku Víkingar sprett
þegar staðan var 2-2 og breyttu henni
í 7-2. f hálfleik var staðan 11-7. Þessi
munur hélst þar til 10 mín. voru eftir
og staðan 17-14. Þá kom annar góður
kafli hjá Víkingum með 5 mörkum í
röð og staðan orðin 22-14. Eftir það
leystist leikurinn nánast upp og ör-
uggur sigur Víkinga í höfn.
Kristján Sigmundsson átti stórleik
hjá Víking og varði 23 skot (2 víti).
Utileikmennirnir léku allir mjög vel.
Valsmenn náðu sér ekki á strik í þess-
um leik. Þorbjörn Jensson var þeirra
bestur.
Mörkin: Víkingur: Þorbergur Að-
alsteinsson 7/1, Hilmar Sigurgíslason
5, Viggó 5/3, Karl Þráinsson 4,
Guðm. Guðmundsson 4 og Steinar 1.
Valur: Þorbjörn 5, Valdimar Gríms-
son 4, Jakob Sigurðsson 4/1, Jón Pét-
ur og Þorbjörn Guðmundsson 2 og
Theodór Guðfinnsson 1.
-gsm
Landsleikurinn
„Ekkert alttof
góður leikur“
Markalaust jafntefli í Luxemburg
Körfubolti
I Keflavík í kvöld
Fyrsti landsleikurinn af fjóruin
milli Islands og Luxemburgar í
körfuknattleik fer fram í íþrótta-
húsinu í Keflavík í kvöld og hefst
kl. 20. Einar Bollason landsliðs-
þjálfari hefur valið tíu leikmenn
fyrir leikinn í kvöld og eru þeir
eftirtaldir:
Pálmar Sigurðsson, Haukum
Árni Lámsson, UMFN
Torfi Magnússon, Val
Björn Stetfensen, |R
Birgir Mikaelsson, KR
Tómas Holton, Val
Gylfi Þorkelsson, IR
Jón Kr. Gíslason, (BK
Valur Ingimundarson, UMFN
(var Webster, Haukum.
Hreiðar Hreiðarsson, UMFN,
Ólafur Rafnsson, Haukum,
Guðni Guðnason, KR og Hreinn
Þorkelsson, ÍR, hvfla í kvöld.
Björn Steffcnsen leikur nú sinn
fyrsta landsleik.
Annar leikurinn verður í Hafn-
arflrði annað kvöld, sá þriðji í
Sefjaskóla í Reykjavík kl. 14 á
laugardag og sá fjórði á Akureyri
á sunnudaginn kl. 15. Þar leikur
Torfl Magnússon væntanlega
sinn 100. landsleik. í liði Lux-
emburgar eru tveir leikmenn sem
eru yfir 2 metra á hæð, Kalmes
sem er 2,04 og Rock sem er 2,05.
-VS
Fimmtudagur 25. apríl 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19