Þjóðviljinn - 07.05.1985, Síða 1
HEIMURINN
ÍÞRÓTT1R
Nýtni
Plastpokum
breytt í
girðingarstaura
Feðgar á Heggstöðum í Kolbeinsstaðahreppi
brœða upp poka utan afáburði og búa til úr
þeim girðingarstaura sem ekki geta brotnað.
Aburðarverksmiðjan selur um 1,4 miljónir
poka árlega sem duga Í350þúsundsvona
girðingarstaura
Feðgarnir Guðmundur Al-
bertsson og Albert Guð-
mundsson á Heggstöðum í Kol-
beinsstaðahreppi hafa búið sér til
ofn og mót til að bræða upp
plastpoka utan af áburði og
steypa girðingarstaura úr plast-
inu. Þeir vefja upp fjóra poka
saman, setja þá í þríhyrnt mót og
bræða uppí í ofni og útkoman er
þrælsterkir plaststaurar, sem
ekki brotna. Þeir svigna aðeins
undan snjóþunga á girðingum og
rétta sig svo við þegar snjóa
leysir. Undan sama snjófargi
brotna tréstaurar. Og það sem
meira er, tréstaurar af þessari
stærð kosta 40 krónur stykkið, en
plaststaurarnir kosta ekkert
nema rafmagnið sem fer til þess
að bræða plastið og að sjálfsögðu
vinnuna við það sem er mjög lítii.
Það tekur aðeins 20 mínútur
frá því mótið er sett í ofninn þar
til kominn er plaststaur. Guð-
mundur sagði þessa staura mun
betri en tréstaurana vegna þess
að þeir brotna ekki.
Það var Albert sem fékk þessa
hugmynd þegar verið var að
bjóða erlenda girðingarstaura úr
plasti. Hann prófaði sig áfram
með plastpokana með þessum
ágæta árangri. Albert sagðist
hafa farið um sveitina í fyrra og
safnað saman plastpokum utan af
áburði og fékk um eitt þúsund
poka. Úr þeim hefur hann svo
verið að steypa girðingarstaura,
sem og bakka sem nota má til
ýmissa hluta.
Þetta geta raunar allir gert sem
hafa aðgang að þessum
plastpokum, auk þess sem mikil
hreinsun er af því að nota plastið
á þennan hátt. Þess má svo geta
til gamans að Áburðarverksmiðj-
an selur um það bil 1,4 miljónir
plastpoka árlega og samkvæmt
formúlu Alberts myndi það duga
í um 300 til 350 þúsund girðingar-
staura, sem hver um sig kostar 40
krónur ef hann er úr tré.
- S.dór.
Albert með sýnishorn. „Hráefnið", pokastæðan, er til vinstri á myndinni. Albert tekur fjóra poka, vefur þá uppí vöndul og
setur í mót, bræðir í rafmagnsofni, sem hann smíðaði sjálfur, og útkoman er girðingarstaurar úr plasti sem eru sterkari en
tréstaurar. - Ljósm.: S. dór.
Kennarar
1984
Ursögn
úr
BSRB?
Talið á
fimmtudag
Félagar í Kennarasambandi ís-
lands greiddu nú fyrir helgina at-
kvæði um aðild sambandsins að
BSRB. Atkvæði eru enn að ber-
ast skrifstofu KÍ og útlit fyrir
góða kjörsókn. Byrjað verður að
telja uppúr kössunum á
fimmtudag, en lokatölur verða
varla kunnar fyrren í næstu viku.
Tvo þriðju atkvæða þarf til að KÍ
segi sig úr BSRB.
- m
Þriðja mesta aflaárið
Verðmœti sjávarafurða nœr 9 miljarðar. Verðmætaaukningin 44%frá
árinu á undan. Heildarverðmœti útfluttra sjávarafurða 16,3 miljarðar
en 13 miljarðar árið 1983
Heildarflskafli íslendinga á ný-
liðnu ári var sá þríðji mesti
frá upphafi samkvæmt lokatölum
Fiskifélagsins. Aðeins árin 1978
og 1979 hafa íslensk skip aflað
meira. Aflaaukningin frá árinu
1983 nam 83% og munar þar að
sjálfsögðu mest um endurkomu
loðnuævintýrisins.
Verðmæti heildaraflans upp úr
sjó á liðnu ári nam 8 miljörðum
842 miljónum króna og er verð-
mætaaukning frá árinu á undan
44%. Þorskaflinn gaf af sér rúm-
lega 3,5 miljarði króna, loðnan
ríflega 1200 miljónir og karfinn
um miljarð, þar næst kemur rækj-
an með rúmlega 600 miljónir í
aflaverðmæti.
Af heildaraflanum voru rúm
420 þús. tonn fryst, um 150 þús.
söltuð, einungis 21 þús. hert,
tæplega 2 þús. niðurlögð, um 820
þús. unnin í mjöl og yfir 100 þús.
lestir seldar utan sem ísfiskur.
Heildarmagn útfluttra sjávaraf-
urða nam um 490 þús. lestum á
móti 336 þús. lestum árið 1983 og
heildarverðmætið var 16,3 milj-
arðar á móti 13 miljörðum árið á
undan.
Heildarafli erlendra veiðiskipa
á íslandsmiðum var um 10,500
lestir þar af veiddu Færeyingar
um 8.500 lestir. Árið 1983 var
heildarafli eriendra veiðiskipa
tæpar 17 þús.'lestir og ríflega 22
þús. lestir árið 1982. - lg.
Húsnœðismál
„Samraðið lítils virði“
Það sem kom út úr samráði ASÍ og ríkisstjórnarinnar til lausnar á
vanda húsbyggjenda virðist harla lítils virði, segir m.a. í opnu bréfi frá
áhugamönnum um úrbætur í húsnæðismálum til miðstjórnar Alþýðu-
sambands íslands.
í gærkveldi barst svo fréttatilkynning frá Birni Björnssyni og Grétari
Þorsteinsson ASÍ, þarsem því er m.a. harðlega andmælt að af rétt-
látum kröfum húsbyggjenda hafi á einhvern hátt verið slegið í við-
ræðum ASÍ við nefnd stjórnvalda. „ . , , .
Sja bls. 2