Þjóðviljinn - 07.05.1985, Page 14

Þjóðviljinn - 07.05.1985, Page 14
HEIMURINN Laust embætti er forseti íslands veitir Prófessorsembætti í byggingarverkfræöi við verk- fræði- og raunvísindadeild Háskóla íslands er lausttil umsóknar. Prófessornum er einkum ætlað að hafa umsjón með og stunda rannsóknir og kennslu í efnisfræði og húsa- gerð. Við veitingu embættisins fellur jafnframt niður núverandi dósentsstaða á þessum sviðum. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Við mat á hæfni umsækjenda verður lögð áhersla á góða faglega þekkingu á eðlis- og efnafræðilegum eiginleikum byggingarefna, einkum steinsteypu, og hagnýtri notkun þeirra, sem og á byggingareðlisfræði og húsagerð. Jafnframt verður lögð áhersla á víðtæka reynslu í skipulagningu, framkvæmd og úrvinnslu til- raunarannsókna á eiginleikum byggingarefna og byggingarhluta. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf um- sækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,101 Reykjavík, og skulu þær hafa borist fyrir 1. júní n.k. Jafnframt skulu eintök af vísinda- legum ritum, óprentuðum sem prentuðum, fylgja með. Menntamálaráðuneytið, 30. april 1985. Akraneskaupstaður Kennarar - fóstrur Eftirfarandi kennara vantar í Grundaskóla veturinn 1985-86. Smíðakennara, tónmenntakennara, hann- yrðakennara, myndmenntakennara, raungreina- kennara, sérkennara (2 stöður), auk almennra kenn- ara. Upplýsingar veitir skólastjóri Guðbjartur Hannes- son, vinnusími 93-2811, heimasími 93-2723 eða yfir- kennari Guðrún Bentsdóttir, vinnusími 93-2811, heimasími 93-2938. Nýlegurskóli í uppbyggingu verð- ur næsta vetur með 6 ára börn og upp í 7. bekk. Umsóknarfrestur er til 10. maí. Brekkubæjarskóli Lausar eru til umsóknar staða tónmenntakennara, staða við kennslu fjölfatlaðra nemenda við sambýli við Vesturgötu. Upplýsingar veitir skólastjóri Viktor Guð- laugsson í síma 93-1388. Umsóknarfrestur er til 10. maí. 9. bekkur grunnskóla, staðsettur í Fjölbrautaskólanum á Akranesi Tungumálakennara vantar (danska, enska) í 9. bekk grunnskóla. Upplýsingar veitir skólameistari í síma 93-2544. Umsóknarfrestur er til 10. maí. Fóstrur Fóstrur óskast til starfa við dagvistunarstofnanir Akr- anesskaupstaðar frá og með 1. september 1985. Skriflegar umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist til félagsmálastjóra Kirkjubraut 28. Nánari upplýsingar í síma 93-1211. Umsóknar- frestur um fóstrustöður er til 29. maí Félagsmálastjórinn Akranesi, skólastjóri Grundaskóla, skólastjóri Brekkubæjarskóla, skólameistari Fjölbrautaskólans á Akranesi. Faðir okkar, Eyjólfur Finnsson Rituhólum 4 andaðist í Borgarspítalanum að morgni 4. maí s.l. Svanhildur Eyjólfsdóttir og systkinin. Eiginmaður minn og faðir okkar Adolf J.E. Petersen fyrrv. vegaverkstjóri Hrauntungu 15, Kópavogi lést í Borgarspítalanum 5. maí. Hólmfríður B. Petersen og synir. Danmörk: Kratar vilja stjóma meö SF Schluter œtlar að einbeita sér aðþvíað koma í vegfyrir slíkt Anker Jörgensen í ræðustól; stundum hefur hann látið sér nægja lauslegt samstarf til vinstri um einstök mál. Miðstjórn Sósíaldemókrata- flokksins danska hefur sam- þykkt, að ef næstu kosningar veita sósíalískum flokkum meirihluta á þingi skuli Sósí- aldemókratar eindregið leitast við að kanna möguleika á stjórnarsamstarfi við SF, Sósí- alíska alþýðuflokkinn. Miðstjómin bætir því við, að það skipti þá mestu í þessu sam- bandi að Sósíaldemókratar komi sterkir út úr kosningunum næstu til að þeir geti brotið á bak aftur það sem miðstjórnin kallar „ein- hliða borgaralega stefnu“. Varaformaður flokksins Sven Auken notaði tækifærið til að vara íhaldsflokk Schlúters og stuðningsflokka hans við því að halda áfram stefnu, sem leiði til tvískiptingar samfélagsins. En það hafi þeir gert með þeim kaupránslögum sem sett voru til að binda endi á vinnudeilur í Danmörku í fyrra mánuði. Sósíaldemókratar hafa lengst af verið tvístígandi í því, hvort þeir ættu að hugsa til formlegs stjórnarsamstarfs við SF. SF hef- ur einatt hlotið þær einkunnir hjá Sósíaldemókrötum að vera ábyrgðarlaus flokkur, yfirboðs- flokkur og auk þess er SF andvíg- ur Nató og vill draga úr útgjöld- um til hermála. Sósíaldemókrat- ar hafa áður verið tilbúnir til að þiggja stuðning SF í einstökum málum, en leitað til borgara- flokka nálægt miðju til að koma fram stjórnarstefnu í málum sem SF vill ekki styðja. Sumir Sósíaldemókratar hafa talið að með þessu móti fái SF „frítt spil“ - geti verið f stjórn og stjórnarandstöðu í senn, þegar minnihlutastjórn Sósíaldemó- krata situr og þar með losnað við að taka á sig ábyrgð af þeim að- gerðum sem óvinsælastar eru. SF-menn eru reyndar tregir margir hverjir til þess að „taka ábyrgð á kerfinu" eins og það heitir. Engu að síður hefur Gert Petersen formaður flokksins lagt á það áherslu að SF vilji ganga til formlegra viðræðna við Sósíal- demókrata án fyrirframskilmála. Poul Schluter forsætisráðherra segir svo um fyrrgreinda sam- þykkt miðstjórnar sósíaldemó- krata, að flokkur hans muni nú einbeita sér af öllum mætti að því að koma í veg fyrir að átökin út af kjaramálum undanfarnar vikur Noregur: leiði til þess að samstjórn Sósíal- demókrata og SF verði mynduð síðar meir. Schlúter slær þá mest á þá strengi að stjórn sem væri háð SF yrði ótrygg í utanríkis- og varnarmálum - nógu slæm sé þró- unin hjá krötum sjálfum þótt vin- strivillur SF bætist ekki ofan á! -áb Hægrimenn þykjast vissir um sigur Ætla að tukta samstarfsflokkana til hlýðni Hægriflokkur Káre Willochs í Noregi telur sér sigur vísan í þingkosningunum næsta haust. Mikil bjartsýni ríkti á ný- afstöðnum landsfundi flokks- ins í Álasundi og af því að vel- gengni flokksins meðal kjós- enda gerist að nokkru leyti á kostnað tveggja borgaralegra samstarfsflokka í ríkisstjórn, þá skal tækifærið notað til að reyna að sveigja stjórnina enn lengra til hægri en nú er. Verkamannaflokknum hefur að því er virðist mistekist að virkja óánægju með ríkisstjórn- ina sér til verulegs framdráttar - það hefur ekki tekist að koma þeim boðum til skila, að flokkur- inn bjóði upp á trúverðuga kosti í norskri pólitík. Skoðanakannanir segja nú, að 42% kjósenda vilji áfram hafa Káre Willoch sem forsætisráð- herra en 38% kjósa heldur Gro Harlem Brundtland, foringja Verkamannaflokksins. Hægrimenn eiga ekki við inn- anflokksörðugleika að etja sem stendur. Hins vegar er sambúðin við meðstjórnarflokkana, Mið- flokkinn og Kristilega þjóðar- flokkinn ekki snurðulaus. Lands- fundurinn ætlar reyndar að láta kné fylgja kviði gagnvart þeim, ef marka má þær stefnuályktanir sem hann samþykkti. Ljóst þykir af þeim, að það stefnir í átök innan stjórnar við Miðflokkinn út af málum bænda og dreifbýlis yfir höfuð - en Miðflokkurinn norski lendir í þeim málum í svipaðri stöðu gagnvart íhaldinu og Fram- sóknarflokkurinn hér. Þá þykir það og ljóst af ræðum Káre Willochs forsætisráðherra á landsfundinum, að Hægrimenn munu ekki þola samstarfsaðilum sínum lengur neitt múður í Nat- ómálum. Bæði innan Miðflokks- ins og meðal Kristilegra er um verulega andstöðu að ræða við ýmsa þætti þeirrar vígbúnaðar- stefnu sem nú er fylgt í Nató - og nú síðast er þar uppi verulegt andóf gegn áformum um rann- sóknir í þágu svonefndra Stjörn- ustríðsáætlana Reagans. En Will- och hefur bersýnilega fullan hug á að kveða slíkt andóf niður og heimta fulla hlýðni við þær ákvarðanir sem teknar eru á samráðsfundum Natóráðherra og herstjóra. 18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJlNN Þriðjudagur 7. maí 1985

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.